Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Þægilegt...


Bryndís bloggariÉg er í dag og á morgun amk. í heimaprófi
í Siðfræði stríðs og friðar, en ég
gaf mér samt tíma eh. að líta aðeins upp
og halda upp á afmælið (51) 

Björg vinkona á líka afmæli í dag (52)
Til hamingju með daginn okkar.

Vegna þess að ég mátti í raun ekkert vera að því að halda upp á þetta, þá nýtti ég mér opnunarhátíð á nýju og endurbættu húsnæði Byrs þar sem boðið var upp á smákökur, konfekt og kaffi. 

Var þetta hið besta mál, lifandi tónlist þó ekki væri sunginn afmælissöngur.  Ég verð bara að segja það var ágætlega mætt, þó ég hafi ekki þekkt marga. 

ATH....
Búið að framlengja málverkasýningunni á Sjónarhóli til 14.des


Til hamingju með daginn

Bryndís Líf
Heart   Elsta barnabarnið og nafna mín á afmæli í dag 29.nóv

Bryndís Líf (14) á afmæli í dag. 
Bryndís Líf var fermd sl vor sem var stóráfangi
útaf fyrir sig.... amk fyrir mig að vera amma fermingarbarns.

En ég er stolt af þér stelpa og bið þér alls hins besta

pakki 

Innilega til hamingju með afmælið Kissing 


Málverkin hengd upp

HannHún Wink
  
Þá eru málverkin komin upp á vegg í Sjónarhóli. 
Ég kom 12 verkum fyrir, öll ný. 

Búðin skiptist í tvo hluta,
tvö verk eru sömu megin og afgreiðsluborðið,
hin eru í hliðarherberginu. 


Sýningin stendur frá 19-30 nóv og opnunartíminn fylgir opnunartíma verslunarinnar 10-18 alla virka daga. 
Verkin kosta frá 15-55 þús. 

Ég ætla að taka á móti fólki,
formleg opnun mánudaginn 19.nóv frá 16-18. 

Munið Sjónarhóll, Reykjavíkurvegi 22 HF   http://www.sjonarholl.is

Allir velkomnir.


Málverkasýningin mín

Þessa dagana er ég á fullu við undirbúning málverkasýningarinnar minnar á Sjónarhóli.  Þetta verður fyrsta einkasýningin og mjög spennandi að fá svona tækifæri.  Cool

Samsýningin sl. vor á Listahátíð Hafnarfjarðar ,,Bjartir dagar" sýndi vissan kjark.  Það er viss kjarkur finnst mér að sýna verkin sín, nýbyrjuð að mála og hafa ekkert lært. 

Vonandi hef ég skánað eitthvað.  Ég sýni nýjar myndir, allt olíumálverk, sennilega 13 verk.  er ekki alveg viss hvernig þetta rúmast.
Sýningin mun standa í 2 vikur og opnunin verður mánudaginn 19.nóv milli 16 og 18 (allir velkomnir)

Kíkið inn..... 

augaATH....
Lína langsokkur verður að heiman.  Óþarfi er að koma með gleraugu, nóg af þeim á staðnum og nóg að sjá þegar fólk mátar.

Ég vona að þetta takist vel. 
Sýningin mun standa til 30.nóv, sem er bæði afmælisdagurinn minn og síðasti kennsludagur í Háskólanum.


Málverkasýning Eddu

Edda-passamyndEdda, litla systir sem er stærri en ég......
opnar í dag málverkasýningu í Sjónarhóli,
gleraugnabúðinni á Reykjavíkurveginum. 
Þetta er auðvitað stórviðburður, fyrsta einkasýningin. 

Við fórum á föstudaginn og hengdum verkin upp. 
Hún sýnir 10 verk sem koma frábærlega út og sjást vel inn um gluggann þegar maður keyrir framhjá......
samt betra að gefa sér tíma til að fara inn og skoða.  

Sýningin er opin virka daga frá 10-18

Opnunin er 7.nóv kl. 16-18 en sýningin stendur til 16.nóv
Allir að fara að skoða.

Til hamingju Edda með sýninguna...Heart


Dýrt er Drottins orðið

Ég bara spyr... er þetta hægt, að vera að halda úti bloggsíðu og skrifa svo sjaldan að dagatalið til hliðar lítur út eins val á lottótölum...

BiblíanUndanfarið hafa verið heitar umræður um nýju Biblíuna bæði í guðfræðideildinni og annars staðar. 
Það er allt gott og blessað og Bók bókanna stefnir í metsölu.  Það er nú sennilega mjög langt síðan Biblían hefur verið söluhæst.... ég meina þegar hún hefur haft samkeppni við aðrar bækur. 

Erlendis er Biblían alltaf söluhæsta bókin, en við getum ekki jafnað því saman, þegar bókin er boðin á 99 sent í Walmart en kostar 6-8 þús. hér.  
Ég er sannfærð um það að ef Biblían væri ódýrari þá gæfum við fleirum hana og ættum sjálf fleiri. 


Hetjan laus við gifsin

með 3 prjónaÞað gerðist í vikunni að Adam Dagur
losnaði við gifsin og stálprjónana
sem voru í fótunum, eftir að hafa verið
með þau í nákvæmlega 7 vikur. 

Hvílík hetja,
prjónarnir voru dregnir út
án þess að hann væri deyfður.

Blá gifsFyrst var hann með blá gifs,
en svo þurfti að skipta,
vegna þess að hælarnir brotnuðu. 

Það er svo sniðugt að fá að velja sér lit,
hann valdi sér svört gifts Bandit

Þó Hetjan sé nú laus við gifsin,
verður hann að nota hjólastólinn
eitthvað lengur....
svört gifsÞað mun taka tíma að þjálfa sig aftur
að ganga .

En Adam verður kominn í fótboltann
áður en maður veit af.... 

Hann er svo duglegur strákur InLove

Áfram Adam...


Starfsvika í skólanum

námsbækur haust 2007Það hefur verið starfsvika þessa viku í guðfræðideildinni.... ég verð nú að segja að hún byrjaði vel hjá mér.  Smile 
Um síðustu helgi lá ég í ritgerð um bókina When Religion Become Evil.... og tókst bara ágætlega, sendi fyrirspurn til kennarans.... hef ekki fengið svar enn.

Á mánudeginum sleit ég í sundur milli ritgerða og málaði í skúrnum með Eddu.
Það veitir ekki af að halda sig við efnið,
við verðum báðar með sýningar í nóv. á Sjónarhóli.....  
Lína langsokkur verður ekki heima  Wink

Síðan byrjaði ég á stærri ritgerðinni, sem er nokkuð meiri vinna og get ekki gortað af meiru en að vera byrjuð á henni...Blush 

En... eins og maður segir.... það er ekki eftir, það sem er búið !


Hafdís í Róm

kertiHafdís systir skrapp til Rómar nú nýverið.  Hún skreppur ekki oft út fyrir landsteinana, ekki auðvelt þegar börnin eru sjö.  Ekki veit ég af hverju Róm varð fyrir valinu....

Minnist ég nú gamals brandara....
Ung hjón (kaþólikkar) komu til prestsins síns og báðu hann að biðja fyrir því að þau eignuðust barn.  Presturinn sagði að það væri lang áhrifaríkast að fara til Rómar og kveikja á bænakerti í kirkjunni þar.  Ungu hjónin gerðu það.  Ekki leið á löngu þar til börnin fóru að hlaðast niður. 

15 árum seinna átti presturinn leið fram hjá húsi hjónanna og ákvað að líta við.  Til dyra kom unglingsstúlka.  Eru foreldrar þínir heima spurði presturinn.  Nei, svaraði hún.  Þau fóru til Rómar, til að slökkva á einhverju helv.... kerti. 

Ég er bara að spá í hvort Hafdís hafi tekið slökkvitæki með sér ???


Námsbókaflóð

Það mætti halda að ég hafi verið að mynda jólabókaflóðið, en þetta eru námsbækurnar þetta haustið. 

Ég man þegar ég byrjaði í HÍ.  Fór á kynningarfundinn og kom stolt heim með stundatöflu haustsins.   Þar voru nokkrir tímar á stangli, vægast sagt mjög ólíkt því sem ég var vön í Hraðbraut, þar var alltaf þéttskipuð stundatafla...  Maðurinn tók stundatöfluna upp...leit á hana og sagði.... kallarðu þetta að vera í skóla !

Sem minnir mig á það að... um daginn losaði ég nokkrar hillur af námsbókum, fór með bækur í pappakössum á bókamarkaðina.  Það voru bækur frá báðum árunum mínum í Hraðbraut, allar bækurnar sem sonurinn notaði í Flensborg (og hann tók rúmar 200 einingar) og bækur úr Iðnskólanum frá heimasætunni.  Við geymdum flestar mála-og orðabækur... en samt ekkert smá fjall......

Fékk innleggsnótur.....en í nýju kerfi bókabúðanna ... er kassastrimillinn inneign.  Þetta er að sjálfsögðu ekki í frásögur færandi, nema að inneignin er óðum að hverfa, mást af strimlinum....

það er auðvitað óljóst hvernig þetta endar !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband