Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Ódýrt að drekka vatn ?

Hitinn hérna er 35-38 stig og á viku er ég búin að drekka 2 og hálfan kassa af vatni.  Annar kassinn var 30 flöskur en hinir 24...... bíðið..... set heilann í gang.... 30+24+12 = 33 lítrar.  Fyrir utan það sem ég drekk með mat.  Ekkert smá.  Tounge

Ég uppgötvaði mikil sannindi í dag...Woundering.... það er vatnsdrykkjunni að kenna hvað ég versla mikið.  Sko, maður þarf að pissa öllu þessu vatni.... WC er alltaf innst í búðinni ...... og þá borgar sig að taka bara strax körfu, því ég sé alltaf eitthvað sem mig vantar á leiðinni út. 


Hetjan okkar

Adam DagurVið fengum að vita að aðgerðin á Adam hafi gengið vel og fréttum í morgun að hann væri kominn heim.  Guði sé lof.  Hann er hetjan í dag.

 Það var gerð aðgerð á báðum fótum.

Þú ert hetjan okkar litli kall. Við heimsækjum þig um leið og við komum heim.

Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing  Kissing


Húsherrann

Myndir frá Green River, Wyoming 2007 017Við tókum það rólega í gærkvöldi, þá gekk yfir úthelli með þrumum.... sáum engar eldingar.

Ljónið er búinn að fá sér nýjan steikarpott, það kom gat á þennan gamla rétt áður en við fórum.  Hann sér oftast um eldamennskuna.  Í hverri ferð kaupir hann sér eitthvað í eldhúsið.  Síðast keypti hann sér ný bökunarform. 

Jájá... og hann notar það sem hann kaupir, það fer ekki bara inn í skáp.  Þessi elska verður að fá eitthvað fyrir sig !Kissing ..... sérstaklega ef það léttir mér þrifin eftir að hann hefur leikið lausum hala í eldhúsinu. 

Það er ekki hægt að neita því að það er sælusvipur á honum í kringum matinn.  Smile


(G)óð kaup....

Við förum alltaf með auka tösku út.... og segjum alltaf það sama við hvort annað..... sem er = Við höfum litlu töskuna þá bara inní hinni á leiðinni heim líka ........ En það hefur aldrei gerst.... enginn vandi að fylla allar töskur.Wink

Við höfum verið að gera ótrúlega góð kaup í allan dag.  Meira að segja eiginmaðurinn verður að slá á puttana á sér, það er jafnvel takmarkað hvað maður getur sett í töskurnar sem við komum með.  En þegar maður er svona ríkur af börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum.... og jólin alltaf á sínum stað, aftast í árinu.... þá stenst maður þetta ekki. InLove


Ferðin hálfnuð

Tíminn líður svo hratt þegar maður er í fríi.  Nú er ferðin hálfnuð.  Við notuðum allan gærdaginn til að keyra frá Colorado Springs til Albuquerquie New Mexico.  Lögðum af stað kl 9 um morguninn og komum um 6leytið.  Auðvitað var byrjað á að fara í tölvuna..... Hvað haldið þið .... en ég átti í svolitlum vandræðum með netið, var að detta út, svo það endaði með því að ég tengdi mig við þráðlausa netið á hótelinu við hliðina..... þeir eru með svaka signal.  Cool


Ameríka er svo stór.....

cave of the wind. CoÞað er ekki hægt að sjá og gera allt sem mann langar til..... Mig langaði t.d. að skoða - Cave of The Winds- en maðurinn er búinn að fá nóg af þessum hellaferðum mínum.  Hann hefur þurft að elta mig ofaní hvern hellirinn á fætur öðrum hér í Usa undanfarin ár ..... ennnn...... nei ekki meiri hellaferðir. 

Í Wyoming hefðum við getað skroppið í Yellowstone og heilsað upp á Jógý bear og Búbú en það verður víst að bíða þar til við ferðumst um Montana. Það verður að púsla þessu hagkvæmt saman.


I love it .....

Ef það er eitthvað sem ég elska við Bandaríkin.... fyrir utan stórar og góðar búðir.... þá eru það hraðbrautirnar.  Að geysast áfram á 140 km. hraða... I love it.

Í dag keyrðum við frá Colorado Springs í Colorado til Albuquerque í New Mexico.  Við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni, versluðum ..... tókum allan daginn í þetta.  Fengum hótel á góðu verði hér og verðum á því næstu 5 daga.  Við borðuðum á Wendy´s.  Fyrsti hambóinn síðan við komum.... Í kvöld hef ég verið að senda Email, kjafta á msn og blogga..... sem sagt nóg að gera.


Komin í samband aftur

Þvílíkur munur að vera komin í samband aftur.  Green River, Wyoming 24.8.2007

Við höfum ferðast mikið um Bandaríkin síðustu árin.  Stefnum á að fara í öll fylkin og sjá það markverðasta um leið.  Við höfum hingað til notað tölvubúðir, oftast Best Buy, til að komast ,,online".  Núna tók ég fartölvuna með, ætlaði að vera mjög tæknileg en það var ekkert net í Rawlings og hún fann ekki netið á hótelinu í Green River.  Hér í Colorado Springs fékk ég hjálp í Best Buy..... og það var bara einn takki on/off framan á tölvunni sem kveikti á þráðlausa netinu ??? ég er ekki tæknimaður.....  Blush

Við erum að ferðast á þessu svæði -Colorado-Wyoming-New Mexico- í fyrsta sinn. Cool Flestir staðir eru keimlíkir, og maður þekkir verslanirnar að innan, því hver þeirra er eins upp sett.  Einkar þægilegt.

 

New MexicoVið keyrum reglulega framhjá, undir eða yfir brúakerfi sem eru að jafnvirði íslensku fjárlögunum.... og sem sannir hafnfirðingar... undrumst við bruðlið hjá þessum könum..... þarna mætti spara verulega og setja upp nokkur góð hringtorg....

það halda þeir að virki á Völlunum í Hafnarfirði...... en eins og allir vita, þá koma þeir þaðan, þessir í rauðu búningunum og kanski er ekki allt viturlegt sem þeir gera..... ekki misskilja, ég er ekki að tala um Haukana, heldur jólasveinana..... einn og átta, ofan koma af Völlunum....     en þeim er vorkunn hérna í Bandaríkjunum... þeir hafa bara 1 jólasvein á meðan við höfum 13  Wink

 


Húsamyndir....

Götumynd

Gamalt húsÓveður í aðsigi


Nýtt þema, fjölskyldan

 HúnHann                       

 Hún og Hann

...Verst hvað það kemur mikill glampi af flassinu.

 

Myndirnar eru 25x50

 

 

MæðgurFeðgar

Mæðgur og Feðgar


Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband