Færsluflokkur: Bloggar
25.9.2007 | 23:39
Málverkin og bækurnar
Ég hélt ég væri komin með námsleiða... miklaði þetta svo fyrir mér. Tveir kennarar með 4-5 námsbækur hvor, fyrir utan búnka af ljósrituðum greinum sem á að lesa.... þeir eru með kröfumiklar ritgerðir... og allir kennararnir setja upp nemendafyrirlestra-form....
En ég er að jafna mig á áfallinu, þetta var bara of mikið i einu.... ég var heppin að fyrstu bækurnar sem ég opnaði voru svo áhugaverðar að ég lifnaði við.
Það skiptir líka miklu máli að ég leyfi mér að mála eftir hádegi á föstudögum, í skúrnum hjá Eddu systir. Þá getur maður aðeins kúplað sig út.
Annars fórum við eh síðasta föstudag með nokkur málverk í tvö Gallerí á Skólavörðustígnum.... Ekki skiptu nein verk um eigendur, en þetta var mikilvægt skref í að kynna sig... Ekki spurning
Bloggar | Breytt 27.9.2007 kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2007 | 12:16
Ættfræðibækur
Fyrir rúmum 3 árum seldum við húsið okkar, minnkuðum við okkur um 150 fermetra, og fluttum á ,,frímerki". Við flutninginn fóru bílfarmar í Sorpu og Góða hirðinn.... Samt fluttum við með alltof mikið dót með okkur.
Ættfræði var ,,eitt" af mínum stærstu áhugamálum og ég hef safnað að mér bókum.... síðan ég gekk í ættfræðifélagið ca 28 ára... og ég var félagi í amk. 15 ár. Vikum saman lá ég inn á safni og rakti ættir, gerði ættartré og hvaðeina.
Þegar við fluttum var ég sest á skólabekk og ættfræðibókunum var pakkað í kassa. Ég hafði ekki hillupláss fyrir þær... og hef ekki enn.
Þess vegna hef ég tekið þá stóru ákvörðun að selja þær.... Ég sé ekki fram á að hafa nokkurn tíma fyrir ættfræðigrúsk..... þó það sé rosalega gaman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2007 | 19:10
Ljósmyndir
Það hringdi einhver kona frá Blaðinu í gær og tók viðtal gegnum símann við mig. Það var svosem ekkert mál. Ekki vildi hún að ég sendi henni mynd.... það varð að senda ljósmyndara á staðinn. OK. Þegar hann kom, var farið að rigna, kólna og skyggja... en hvað um það myndin var tekin á pallinum bakvið og maðurinn hélt því fram að hann væri mjög góður ljósmyndari..... það getur vel verið, en myndin er samt hörmung.
Þetta minnti mig á..... að fyrir mörgum árum þurftum við hjónin bæði að endurnýja ökuskírteinin okkar. Þetta var á þeim tíma þegar myndin var inn í kerfinu. Maðurinn sótti skírteinin okkar og ég fékk áfall þegar ég sá myndina. Í ökuskírteininu..... sem gildir til 2026... var hrikaleg skyndimynd sem var tekin á Hrafnistu í starfsmannaskírteinið mitt þar. Bankinn á Hrafnistu hafði sent myndina í gagnagrunn reikningsstofnunar. Í ökuskírteini mannsins var lala-mynd sem hann hafði einhverntíma látið setja í lyftaraprófsskírteini......
Mér leist ekkert á þetta og fór á Sýslumannsskrifstofuna og sagði við konuna að ég væri ekki sátt við þetta... gamla myndin í skírteininu hefði verið skárri... Hún viðurkenndi það og sagði að ég mætti koma með nýja mynd.... hún sagði: þú mátt skipta.... en EKKI maðurinn þinn, ég sá hann.... hann er svona.
Bloggar | Breytt 19.9.2007 kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 11:49
Þetta gengur ekki ...
Ég er í fullu námi í guðfræði ... en það mætti halda að ég væri enn í sumarfríi. Ég hef varla litið í bók.
Mér tókst að skipuleggja lestur og áherslur, en mér hefur aldrei reynst eins erfitt að opna bækurnar... eins og núna.
En nú gengur þetta ekki lengur.... enginn verður óbarinn biskup..... ég meina prestur. Ég verð að taka mig á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2007 | 18:21
Símaauglýsingin...
Ég sagði einhverntíma að ég ætlaði nú alls ekki að blanda mér í umræður dagsins.... en auglýsing símans brýtur blaðið. Höfundur auglýsingarinnar Jón Gnarr gefur sig út fyrir að vera trúaður maður. Ég ætla ekki að leggja mat á það, enda geta menn ekki mælt trú.
En hugmyndir hans um Guð hljóta að endurspeglast í auglýsingunni. Á símaskjánum stendur nafnið Jesú..... En Frelsarinn okkar heitir Jesús...... með s í endann.
Ekki veit Jesús mikið um sína menn, ef hann þarf að hringja og spyrja hvar þeir eru... en minn Guð er amk. svo máttugur og mikill að hann veit miklu meira um mig en ég sjálf.
Það sem kom manni ekki á óvart við auglýsinguna.... var að ,,Júdas" var SVIKARI.... bæði þá.... og nú í auglýsingunni þegar hann notar síma frá öðru fyrirtæki.
Svo kemur í ljós að ,,Jesús" skiptir við sama símafyrirtæki.... ekkert kemur fram hvort hann var með frelsi eða í áskrift eða hvort þeir hafi verið ,,vinir".... þó við vitum að hann sé vinur allra.... elskar syndarann en hatar syndina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2007 | 13:42
Hver fékk mest ?
Við vorum að taka upp úr töskunum, maðurinn var að dást að eldhúsdótinu ,,sínu" enda orðin húsherrann hér.... og þá datt mér í hug gömul saga af innkaupaferð. Tóta heitin gömul vinkona mín sagði mér hana einu sinni.
Það var þannig að... þegar fjölskyldan kom heim úr innkaupaferð, sagði 5 ára sonur hjónanna: Það fengu allir eitthvað núna, pabbi fékk nýja sokka, ég fékk húfu og vettlinga, litli bróðir fékk galla... en mamma fékk mest... HÚN FÉKK ALLAN MATINN.
Bloggar | Breytt 24.9.2007 kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2007 | 14:51
Home sweet home
Já,já, það er ágætt að koma heim, en mig langaði ekkert heim. Það er fínt að vera á ferðalagi, með allt sem maður þarf í ferðatöskunni. Hafa bara föt til skiptanna og smá snyrtidót.
Ég fór ósofin í skólann. Sem betur fer var kennslan bara í 2 tíma. Eftir tímann fór ég út í bóksölu stúdenta.... og var eitthvað svo rugluð að ég keypti bækur fyrir fag sem ég er búin með.... tók í vor.... Það verður að reiknast mér til fyrirgefningar að ég þekkti ekki bækurnar því þessi kennari kennir aldrei sömu bækurnar.... einn af þessum erfiðu.
Hvað sem því líður þá er sjötta skólaárið mitt byrjað.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2007 | 15:21
Á leiðinni heim
Klukkan er 9.... við eigum flug kl. 14:20 frá Denver til Minneapolis og síðan heim eitthvað um kl. 20. um kvöldið. Komum heim eldsnemma í fyrramálið.
Eins og venjulega hef ég misst 1-2 daga af skólanum og mæti beint í tíma......og svo ætla ég að heimsækja hetjuna. það þýðir ekkert annað en að hafa nóg fyrir stafni allan daginn og sofna á venjulegum tíma um kvöldið .... og þá er ég búin að snúa tímanum.
Þessi ferð hefur verið góð, við erum búin að keyra mikið (2.230 mílur segir mælirinn), sjá margt, gista á mörgum stöðum..... öll Buffetin sem við erum búin að borða á.....ummmmm. Frábært, ég get ekki beðið eftir næstu ferð sem er eftir tæpa 2 mán.
MAÐUR Á AÐ VERA GUÐI ÞAKKLÁTARI FYRIR HVAÐ MAÐUR Á OG GETUR LEYFT SÉR....... MYNDIN ER AF HEIMILI ÚTIGANGSMANNS..... HANN BJÓ RÉTT HJÁ HÓTELINU OKKAR Í ALBUQURQUE NEW MEXICO.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 23:32
Hetjumyndir
Nú er öldin önnur !
Í öllum þessum ferðum okkar erlendis höfum við sætt okkur algerlega við að vera sambandslaus heim.
Tímamunurinn hér hefur líka haft sitt að segja, annað hvort er of snemmt eða of seint að hringja.
Einhvernveginn sætti maður sig við þetta en þegar maður hefur tækin og tæknina.... þá er það ekki spurning... tölvan verður alltaf með hér eftir og ekki tekin hótel nema með hispeed internet
Nú, þegar maður les mbl. bloggar, sendir email og er á msn, þá er þetta ekkert mál.
Ég var að fá sendar myndir á msn.... af hetjunni okkar, honum Adam.
Myndir teknar fyrir og eftir aðgerðina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 15:11
Lilja og Joe í Pueblo West
Við áttum góða stund með Lilju og Joe. Þau hafa búið í Pueblo í 12 ár.
Við hittum Lilju í Selvoginum áður en við fórum út og fórum til USA viku á undan henni. Það var skemmtileg tilviljun að hún búi þar sem við erum að ferðast og að tíminn hentaði til heimsóknar.
Joe fór í hjartaaðgerð fyrir 3 mán. og er að berjast við sýkingu í skurðinum.
Með þeim á myndinni er Brittney, vona að ég skrifi það rétt, hún er dóttir Díönu yngstu dóttur þeirra.
Lilja ætlar að senda mér myndir sem hún tók af okkur saman. Takk fyrir okkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007