Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2021

Áramóta-annáll fyrir Covid-árið 2021

Annállinn er mjög líkur þessum frá síðasta ári... covid hefur öll völd... 

Nú gerðist aftur, það sem hafði aldrei gerst áður... að ég hafi ekki skrifað á þessa bloggsíðu í heilt ár... HEILT ÁR... og nú í TVÖ ár. 

Málin hafa æxlast þannig að þessi síða hefur orðið að ferðalýsingum... en eins og svo margir aðrir þá ferðaðist ég aðeins innanhúss og á milli landshluta þetta árið. Eins og segir í síðasta annáli, þá var ég ráðin aftur til Patreksfjarðarprestakalls til loka maí... með aðsetur á Patró. Ég get ekki sagt annað en að ég sakna fólksins í prestakallinu.

Við hjónin óskum öllum Guðs blessunar, gæfu og góðs gengis á komandi ári um leið og við þökkum fyrir árið sem er að líða. 

Árið byrjar alltaf eins... á afmælisdegi elsta lang-ömmu-barnsins míns/okkar (Lúlli á eldra)... Emilía Líf er 10 ára á morgun, nýjársdag 2022... og þessa dagana er þær systur á Íslandi og eyða jólum og áramótum hjá pabba sínum.

STARFIÐ

Ég elska prestsstarfið og hef ekki talið tímana, kannski frekar unnið of mikið... Auðvitað hafði covid áhrif en ég hef gert myndbönd í fjölda ára svo það var ekki vandamál fyrir mig að vera með netmessur... og fermingarfræðsluna setti ég í dropbox... Tíminn var fljótur að líða og áður en varði var komið að heimför... Það eina sem skyggði á, var hræðilegt slys daginn áður en starfstíma mínum lauk. Það var MJÖG erfitt að kveðja bæinn í sorg. 

Þegar mamma var komin á Hrafnistu, fékk ég að koma með gítarinn og syngja með fólkinu á hæðinni hennar upp úr Rósinni... þegar síðan covid reglur breyttust, tók ég upp nokkrar söngstundir og setti á netið og hefur það eitthvað verið notað með fólkinu. 

https://www.youtube.com/watch?v=9sz5mDiog8A&t=4s
https://www.youtube.com/watch?v=qCl3YkEpQEw&t=29s
https://www.youtube.com/watch?v=W-qoCJriSY8&t=8s

FJÖLSKYLDAN

Lovísa var með stól í MODUS í Smáranum en flutti í Modus upp á Höfða og Svavar er enn í lögfræðinni. Nafna mín, Bryndís Líf kom til landsins með kærastann Jarle Reke og stelpurnar sínar í sumar og við áttum góðan tíma þó ég væri fótbrotin. Mamma fékk inni á Hrafnistu í lok apríl. Hún er á 5.hæð og er nú með einka herbergi. 2.nóv fékk hún slæmt áfall, stóran blóðtappa og hefur verið lömuð vinstra megin.

STÓRAFMÆLI ÁRSINS

Sá gamli varð 75 ára í ár og við vorum með smá kaffiboð fyrir hann. 

FERÐALÖG

Bíddu... hvað er nú það??? nema innanlands. Ég var bara heima, enda búin að búa á Patreksfirði um veturinn. 17.júní fagnaði ég með því að tví-ökklabrotna... Í júlí fékk ég Hörpu til að keyra mig norður til að messa á Hólum eins og í fyrra... og í okt skrapp ég vestur og fékk að gista 2 nætur á Tálknafirði. Ég keyrði vestur á mánudagsmorgni og hitti eldriborgara í Vindheimum á Tálknafirði eh á þriðjudeginum heimsótti ég eldriborgana í Selinu á Patró og á miðvikudeginum eldri borgara í Muggstofu á Bíldudal og keyrði þaðan yfir Dynjandisheiði og suður.

HREYFING

Ég hljóp ekki eitt einasta maraþon á þessu ári frekar en því síðasta. Ég átti nokkur maraþon frá síðasta ári sem hafði verið frestað, eins og t.d. Tokyo, sem var frestað aftur og nú á ég aðgang í mars 2023. Í byrjun júní fór ég í augasteinaskipti á hægra auga... og var varla búin að jafna mig eftir það þegar ég ökklabrotnaði eins og ég nefndi hér fyrir ofan(17.júní). Ég datt á hjólinu og brotnaði klaufabroti... mátti ekki stíga í fótinn í 6 vikur og síðan bara tilla í aðrar 6 þar til búið var að taka skrúfurnar... þær voru teknar 15.sept en þá vorum við hjónin búin að vera bæði fótlama í 2 vikur. Lúlli fékk nýjan hnjálið á vinstra hné 30.ág. og gekk aðgerðin vel. Þrátt fyrir að vera á hækjum, tókst mér að messa í júlí á Hólum (Harpa keyrði)og verða léttfeti með litlu ömmu-gullunum mínum (9 spjöld). Það var ótrúlega gaman að Matthías og Indía fengu síðan útdráttarverðlaun á uppskeruhátíðinni.

https://www.youtube.com/watch?v=y6YIUP9qRRA  

GLEÐILEGT ÁR 2022 


Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband