Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Martin Luther King Day

Við fengum okkur í rúmlega klukkutíma brúnkugöngu í dag 19.jan... í sólinni en það var aðeins vindur. Við vorum rétt komin út á International Drive þegar við heyrðum rosa hvell... niðri á horninu hjá Wet´N´Wild hafði orðið árekstur. 
Fólksbíll í köku að framan, hafði keyrt undir pall á flutningabíl. Bílstjórinn hafði á einhvern óskiljanlegan hátt sloppið án þess að fá skrámu... ef hann var ekki blessaður þá veit ég ekki hver er það.

Ég var auðvitað í tölvunni í dag, byrjaði á prédikun... skoðaði póstinn minn... facebook... moggann og fl.  Við fórum út að borða og horfðum svo á útsendingu frá Washington... ótrúlega flott dagskrá.

Í dag er fæðingardagur Martin Luther King og þá vinna margir þjónustuverk eins og að tína drasl í poka á ströndinni eða eitthvað... það sleppur víst alltaf eitthvað drasl út í náttúruna Woundering

Við förum til Miami á miðvikudagsmorgun Kissing


Elmo radarvari

ElmoÉg gleymdi nú að blogga um Elmo kallinn...
Harpa pantaði Elmo á netinu og hann var sendur á hótelið til okkar. Við höfum ekkert tekið pakkann upp... enda eigum við hann ekki.
Eitt kvöldið þegar Lúlli var að flakka á milli stöðva á sjónvarpinu... þá heyrum við flaut... hvít-hvíjú... Whistling í ca. eina mínútu.  Við skildum ekkert í þessu... en svo datt okkur í hug að þetta hafi komið frá Elmo... að sjónvarpsfjarstýringin hefði komið þessu flauti af stað.

Þegar við keyrðum til Georgíu, var Elmo í aftursætinu... Allt í einu fer hann að flauta og það eina sem okkur datt í hug var að við hefðum keyrt inn í radargeisla hjá lögreglunni. Svo Elmo kallinn lét okkur vita - kannski heldur seint - að lögreglan væri að mæla.


Frábær konsert

Ég var að horfa á beina útsendingu frá konsert í Washington. Þar söng hver stjarnan af annarri og hver stórleikarinn af öðrum tók til máls... til heiðurs Obama fjölskyldunni. 

Athöfnin var öll hin stórkostlegasta, frábær lög og flytjendur og sviðsetningin snurðulaus. Mannfjöldinn sem var á staðnum og fylgdist með... var eins og við myndum segja ,,óteljandi"


mbl.is Obama aldrei vinsælli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilganginum náð!

Þeir þurfa sennilega ekki að ráða neinn starfsmann. Tilganginum er náð. Eyjan er komin á ferðamannakortið... það þarf ekki annað en auglýsa öðru hverju og endurnýja áhugann Tounge
mbl.is Gríðarlegur áhugi á „besta starfi í heimi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Freedom ministries

sólbekkurVið skelltum okkur í messu í hádeginu. Fórum í kirkju Freddie Filmors í Apopka. Það er virkilega skemmtilegt að koma þangað, fólkið tekur virkan þátt í athöfninni og músíkin frábær.

Þegar við komum til baka skelltum við okkur út á bekk í sólbað... við getum ekki komið heim hvít eins og við höfum dottið ofaní hveitipoka... eftir mánuð í Flórída.

Komin aftur í hitann í Orlando

Lúlli tékkaði okkur út af hótelinu á meðan ég hljóp maraþonið. Það var kalt í Georgíu þess vegna drifum við okkur suður. Kl 2 lögðum við af stað til Orlando og keyrðum samfleytt í 6 klst. fengum herbergi á áttunni sem við vorum á síðast. Hún er á mjög þægilegum stað.

SUPER 8 ORLANDO / NEAR UNIVERSAL    
International Dr &  (5900) American Way,
Orlando, FL 32819 US    
Phone
: 407-352-8383
   herb. 205


Fjölgar þá hæfum konum sem bjóða sig fram?

Þó ég sé kona, þá er ég ekki fylgjandi kynjakvóta.
Við eigum margar hæfar konur sem gefa sig fram í þau störf sem þær girnast... þær stjórna ekkert betur vegna þess að þær eru konur. Sá hæfileiki sem þær þurfa að hafa til að valda starfi sínu er áunninn og meðfæddur.
Sú staðreynd að það eru færri konur í stjórnunarstörfum er ekki vegna þess að við höfum ekki hæfar konur... heldur vegna þess að þær bjóða sig ekki fram. Kynjakvóti gæti frekar komið óhæfum eða vanhæfum konum að... það myndi skaða ímynd kvenstjórnenda.
Fyrir utan það... hver vill vera valinn vegna kyns en ekki vegna hæfni.


mbl.is Félagsmálaráðherra: Aðhyllist kynjakvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er ekki spilltur?

Jesús sagði: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana (konuna sem var staðin að hórdómsbroti) Hvergi er minnst á manninn sem hún var með... það hefur sennilega þótt eðlilegt að kenna bara konunni um og dæma hana eina. Dæmigert að hegningin lendi á lægri þjóðfélagsþegni.

Nú kasta menn skóm, það er niðrandi hjá múslimum en ekki hjá Íslendingum. Hvað um það... það á að kasta í gullkálfinn, táknmynd auðs og spillingar. Gott og vel, það er allt í lagi að mótmæla og sennilega hirða menn síðan skóna sína upp og fara með þá heim aftur.

Annað orðatiltæki er að kasta steinum í glerhúsi... það er ekki hægt að kasta í neinn án þess að það leiti til manns sjálfs á einhvern hátt. Við erum öll spillt.
Hver myndi ekki vilja kaupa hlut nótulaust og sleppa við vsk?
Hver myndi ekki þiggja vinnu hjá frænda?
Hver myndi ekki þiggja allskyns fríðindi sem væru ekki talin til skatts?
Hver vill ekki vera ávaxta fé sitt með bestri ávöxtun?

Við verðum öll ánægð ef þetta tekst, en hundfúl ef það bregst.


mbl.is Kasta skóm í gullkálfinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Warner Robins, Georgía

Við komum rétt eftir hádegið, þetta er stærri bær en við héldum, allar helstu keðjurnar eru hér. Við komum okkur fyrir og erum að fara út að borða.

Super 8 Warner Robins, 
105 Woodcrest Blvd. Warner Robins, GA 31093-8825 US
Phone: 478-923-8600 Room 111


Hvílíkt bull

Sigurbjörg var með þessu að fá fólk almennt til að taka afstöðu á móti ráðherrum og með sér. Til hvers nefndi hún skilaboðin... hún þurfti þess svo sannarlega ekki.  Mér finnst Sigurbjörg hafa skemmt fyrir sér með þessu og reyna svo að snúa sér út úr vandræðunum með því að segja að,

,,fyrir henni hafi aðeins vakað að koma almennum skilaboðum á framfæri, en ekki persónulegum, um hvað hefði áhrif á það hvort og hvernig fólk tjáði sig á opinberum vettvangi."

Hvílíkt bull... Sigurbjörg ætlaði að láta þetta hafa áhrif á fólkið sem hlustaði á hana á fundinum.


mbl.is Ráðlegging eða boð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband