Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
23.1.2009 | 19:56
Miami... ójé
Það var ekki einu sinni kaffi á mótelinu okkar í Florida City, svo við tékkuðum okkur snemma út og fengum okkur breakfast á buffetinu... Keyrðum þaðan til Miami, tókum rúnt niður á Miami Beach og fórum síðan á hótelið sem við vorum búin að panta... og verðum á amk næstu 3 daga.
Miami Days Inn Westland Mall
1950 W. 49th St., Miami, FL 33012, US
Phone: 305-823-2121 * Room 474
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2009 | 01:34
Key West, syðsti oddi Florida.
Við tékkuðum okkur snemma út, ætluðum að láta það ráðast hvort við fengjum hótel eða mótel í Key West, látum það ráðast hvar við gistum næstu nótt.
Á kortinu er lengsti hluti leiðarinnar merktur með rauðri línu, sem þýðir ein akrein í báðar áttir... í Ameríku heitir það sveitavegur.
Leiðin var ca 130 mílur og mestan hluta leiðarinnar var 45-55 mílna hámarkshraði... Ferðin sóttist því hægt, en þeim mun meira að sjá á köflum. Eyjur með brýr á milli og á einni þeirra stóð að brúin væri 7 mílur.
Það voru nokkrir bæjir á leiðinni niður eftir, Key Largo, Tavernier, Islamorada, Marathon, Big Pine Key og Key West. Allsstaðar gengur allt út á ferðamanninn, matsölustaðir, minjagripir, bátaleigur og mótel.
Við stoppuðum aðeins á leiðinni, það var sól en aðeins svöl gola. Þegar við komum niður á syðsta oddann, kíktum við á bryggjuna, hér er bátaflóran gígantísk...
Lúlli lét mig auðvitað vita hverju hann fórnaði fyrir allar hlaupaferðirnar... já, ég veit það, honum hefur alltaf langað í spíttbát
Við fengum okkur að borða, skoðuðum gamlar byggingar og þröngar götur... og tékkuðum á hótelverði...
MAN... hvað það er dýrt að gista hérna... varla undir 20.þús. nóttin...
Við tímdum ekki gista þarna, notuðum daginn bara til að skoða umhverfið. Við erum nú vön því að sjá allar rafmagns-línurnar hérna í Usa en í Key West eru þær ótrúlega fyrir-ferðarmiklar í umhverfinu, fólk er hreinlega með rafmagns-möstrin inní garði hjá sér.
Við keyrðum svo til baka, á sama mótelið sem við vorum á síðustu nótt.
Á morgun eigum við pantað á Days Inn í Miami... 3 nætur í kringum næsta maraþon.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2009 | 13:29
Að blása til orrustu...
Það er ábyrgðarhlutur að blása til mótmælaaðgerða. Ég efast ekki um að þeir sem skipulögðu mótmælin í upphafi hafi ekki ætlað að láta þau fara úr böndunum... Bankarnir ætluðu heldur ekki að láta almenning borga... hvorugt hefur farið eins og upphaflega var ætlað.
Fyrstu mótmælasamkomurnar sýndu samhug og alvarleika ástandsins í þjóðfélaginu, nú er það hætt að vera TOPPURINN í fréttamennskunni... nú eru lætin og óþverraskapurinn í kringum þá sem eru friðsamir, orðin aðalfréttin. Allskyns skríll hefur yfirhöndina - sennilega er orðið ,,spennandi" að mæta til að pirra lögregluna, sem er bara að vinna sína vinnu.
Lögreglan - mennirnir sem við leitum til, ef það er brotist inn til okkar, keyrt á bílinn okkar og við leitum til ef börnin okkar týnast... eru persónugerðir sem andstæðingar. Hvar eru þeirra mannréttindi. Þetta gengur ekki lengur.
Nafnbirtingin grafalvarlegt mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 23:49
Vitibornir mótmælendur :)
Það var gleðilegt að heyra að mótmælendur eru ekki svo blindaðir í reiði sinni að þeir taka skynsamlegum tilmælum.
Í þessum mótmælum kemur saman blandaður hópur manna... margir með sérþekkingu eins og þessi sjúkraliði... hann gerði sér grein fyrir hættunni og sté fram... mér finnst það aðdáunarvert af honum.
Það er líka hættulegt að kveikja eld á götunni og ég er ekki viss um að þeim liði vel á eftir sem bryti glugga í Alþingishúsinu og glerbrotið skæri einhvern illa...
Lögreglumennirnir sem reyna að halda mótmælunum ,,í böndum" eru menn sem eru að vinna vinnuna sína. Þeir eru í erfiðri aðstöðu... sjálfir skulda þeir, auðvitað hafa þeir skoðun á málunum en þeim er gert að vinna sitt starf... mótmælendur ættu að taka tillit til þess.
Hættið að kasta sprengjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 22:52
Florida City - Homestead
Við keyrðum frá Orlando í morgun og niður eftir miðjum Floridaskaganum. Áfangastaðurinn er Key West á morgun... Okkur hlakkar til... sólin skín... við, Íslendingarnir erum á bolnum, aðrir eru að þvælast í einhverju meira...
Okkur blöskraði nú mengunarskýin hérna á leiðinni... ef einhverjir kanar voru í hópi þeirra sem komu til að berjast í nafni Saving Iceland... þá ætti að benda þeim á að byrja hér... heima hjá sér.
Við fundum okkur Mótel í Florida City á viðráðanlegu verði... nú er allt svo dýrt, þegar dollarinn er himinhár. Héðan eru ca 130 mílur niður á ysta enda... KEY WEST
Svo fórum við út að borða... í tilefni af afmæli pabba gamla við erum orðin svo "ameríkönsk" notum öll tækifæri til að fara út að borða
Country Lodge, 651 N. Crome Ave, Florida City 33034
Phone 305 245 2376 Room 104
Ferðalög | Breytt 22.1.2009 kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 01:31
Pabbi á afmæli í dag, 21.jan
Til hamingju með daginn pabbi minn.
Pabbi, Svavar Jóhannesson er fæddur 1933 og er því 76 ára í dag, 21.jan.
TIL LUKKU MEÐ DAGINN
Afmæliskveðjur | Breytt s.d. kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.1.2009 | 19:06
,,þjóðin" er þá alltaf að minnka!
Menn mótmæla fyrir framan Alþingishúsið, enda í fullum rétti til þess. Fyrirsögn fréttar Mbl.is er ,,Þjóðin var í Alþingisgarðinum"... Þjóðin er nú orðin heldur fámenn ef hún kemst fyrir í Alþingisgarðinum. Fyrirsagnir fjölmiðla eru ekki alltaf sannleikanum samkvæmar.
Auðvitað á ekki að eyða dýrmætum tíma í umræðu um bjórsölu í matvörubúðum - raunar ætti bara að loka Ríkinu og hætta að selja tóbak...
Menn heimta kosningar... en hvern ætla menn að kjósa ef gengið væri til kosninga NÚNA? það væru sömu andlitin í framboði.
Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsókn = sami grautur í sömu skál og enginn flokkur getur unnið með Vinstri grænum...
Því miður verður að bíta í það súra og bíða betri tíma með kosningar.
Þjóðin var í Alþingisgarðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.1.2009 | 18:34
Hringdu þeir í rétt númer?
Viðtalið var við Ólaf Ragnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2009 | 15:42
Vísa-rán um hábjartan dag
Jamm... var að kíkja á vísareikninginn. Maður minn, við erum bæði með Visa Business Card... og í síðustu ferð notuðum við okkur Priority Pass... BETRI STOFA á íslensku. Þegar við fengum kortin var þetta innfalið, sem sagt eitt af ,,kostum" þess að vera með þetta kort.
En á Visa reikningnum er rukkun upp á 3.500 kr. á mann... það kostaði okkur sem sagt 7.000 kr. að fá þarna nokkrar kexkökur, kaffi, bjór og internet aðgang. Það var svo lélegt það sem var matarkyns að fólk fór niður á almenna svæðið til að kaupa sér mat.
Ef við hefðum bara verið niðri, hefðum við getað keypt okkur flottar steikur, bjór, kaffi og fl. og átt afgang. Internet aðgangurinn var það eina sem ég hefði ekki fengið.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2009 | 15:29
Innsetning Obama
Það er aðdáunarvert hve kananum tekst alltaf að vera skipulagður, og hvað allt gengur fljótt og vel fyrir sig... þetta er enginn smá mannfjöldi sem er á staðnum og fylgist með athöfninni. Öll dagskráin hefur verið sýnd beint og hreint út sagt frábær. Við sáum í sjónvarpinu í morgun að fólk var farið að drífa að eldsnemma í morgun. Við bíðum spennt eftir embættissetningunni kl 12 í dag.
Gífurlegt fjölmenni í Washington | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Áramóta-annáll fyrir árið 2024
- Kefl - Denver CO - Santa Fe NM 8-13.nóv 2024
- Kefl - Portland OR - WA - ID 19-27. sept 2024
- Kefl - Chicago IL og fl. 4-12. júli 2024
- Kefl - Raleigh NC - Bristol TN 20-27. mars 2024
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007