Leita í fréttum mbl.is

Hver er ekki spilltur?

Jesús sagði: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana (konuna sem var staðin að hórdómsbroti) Hvergi er minnst á manninn sem hún var með... það hefur sennilega þótt eðlilegt að kenna bara konunni um og dæma hana eina. Dæmigert að hegningin lendi á lægri þjóðfélagsþegni.

Nú kasta menn skóm, það er niðrandi hjá múslimum en ekki hjá Íslendingum. Hvað um það... það á að kasta í gullkálfinn, táknmynd auðs og spillingar. Gott og vel, það er allt í lagi að mótmæla og sennilega hirða menn síðan skóna sína upp og fara með þá heim aftur.

Annað orðatiltæki er að kasta steinum í glerhúsi... það er ekki hægt að kasta í neinn án þess að það leiti til manns sjálfs á einhvern hátt. Við erum öll spillt.
Hver myndi ekki vilja kaupa hlut nótulaust og sleppa við vsk?
Hver myndi ekki þiggja vinnu hjá frænda?
Hver myndi ekki þiggja allskyns fríðindi sem væru ekki talin til skatts?
Hver vill ekki vera ávaxta fé sitt með bestri ávöxtun?

Við verðum öll ánægð ef þetta tekst, en hundfúl ef það bregst.


mbl.is Kasta skóm í gullkálfinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Við erum öll breysk en þó er ekki hægt að setja að jöfnu allan breyskleika. Sumir nauðga börnum og aðrir kaupa nótulaust. Bæði eru dæmi um breyskleika en ekki beinlínis sambærilegir hlutir.

Héðinn Björnsson, 16.1.2009 kl. 13:59

2 identicon

Sorry Bryndís en þetta sem þú nefnir með steininn og konuna er seinni tíma tilbúningur, eins og svo margt annað í biblíu.

Learn baby!!!

DoctorE (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 14:30

3 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Héðinn,
Já við erum öll breysk, það er rétt að ekki er allt lagt að jöfnu, þarna var verið að tala um spillingu auðvalds, nauðgun var ekki í myndinni.

Sorry Doksi,
Það myndi ekki skipta neinu máli þó sagan væri tilbúningur, þegar þú bendir á einhvern með einum fingri, þá beinast 3 fingranna á hendinni að sjálfum þér. Í raun og veru höfum við ekki efni á að gagnrýna eða dæma neitt - en gerum það samt.

Bryndís Svavarsdóttir, 16.1.2009 kl. 15:21

4 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Pétur,
Já, ég held það sé gott fyrir sálina að vera jákvæður. Nei sem betur fer hafa mistök manna ekki alltaf áhrif á alla þjóðina. Samt hefur það t.d. áhrif á innkomu þjóðarbúsins ef allir svíkja undan skatti.
Með minni innkomu - minnkar féð sem er til sameiginlegra nota fyrir okkur öll. Við erum ekki bara að súpa seyðið af mistökum íslenskra stjórnmálamanna - heldur vegna húsnæðismálalána í Usa.  
Það er ósanngjarnt að vegna þess að þeir lánuðu alltof mikið til húsnæðiskaupa og fólk í Usa getur ekki staðið undir því - að við förum næstum á hausinn. 

Bryndís Svavarsdóttir, 16.1.2009 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband