Leita í fréttum mbl.is

Hvílíkt bull

Sigurbjörg var með þessu að fá fólk almennt til að taka afstöðu á móti ráðherrum og með sér. Til hvers nefndi hún skilaboðin... hún þurfti þess svo sannarlega ekki.  Mér finnst Sigurbjörg hafa skemmt fyrir sér með þessu og reyna svo að snúa sér út úr vandræðunum með því að segja að,

,,fyrir henni hafi aðeins vakað að koma almennum skilaboðum á framfæri, en ekki persónulegum, um hvað hefði áhrif á það hvort og hvernig fólk tjáði sig á opinberum vettvangi."

Hvílíkt bull... Sigurbjörg ætlaði að láta þetta hafa áhrif á fólkið sem hlustaði á hana á fundinum.


mbl.is Ráðlegging eða boð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sigurbjörg segir einnig að: "hún hafi með vilja ekki nafngreint umræddan ráðherra þar sem fyrir henni hafi aðeins vakað að koma almennum skilaboðum á framfæri, en ekki persónulegum, um hvað hefði áhrif á það hvort og hvernig fólk tjáði sig á opinberum vettvangi."

Auðvitað ætlaði hún að hafa áhryf á fólkið sem hlustaði á hana á fundinum, ekki var hún að halda mál þarna til þess að enginn myndi hlusta. Fyrir mér var hún að benda á að stjórnvöld pota sínum vilja inn hér og þar og aldrei er að vita hvar einstaka stjórnmálamenn hafa haft áhryf á ræðismann. Auðvitað er það svo aftur svolítið róttækt að hugsa þannig en þetta er jú lítið land þar sem allir þekkja alla og því varla svo ótrúlegt.

Hvað sem vakti fyrir henni þá finnst mér það ekki hafa skemmt neitt fyrir henni nema síður sé. Hún hefur lokið sínum fluttningi og vill ekki meira um málið segja. Svo einfalt er það. Ef ætlun hennar var að vekja reiði hjá fólki þá er ég einnig mjög sáttur við það því mál hennar var alvarlegt og vakti mikla reiði burt séð frá afskiptum ráðherra.

Það sem ég sé hins vegar við þetta mál allt er að ráðherra skuli vera að skipta sér af málfluttningi borgara á opnum borgarafundi. Það er það sem ég skil ekki og samþykki ekki miðað við þær upplýsingar sem ég hef. Ef Sigurbjörg hefði leitað til Ingibjargar þá væri það eitt en það hef ég ekki séð eða heyrt að væri tilfellið. Það minnir mann óneitanlega á Sovéska stjórnartaktík að vilja stjórna umræðunni með heilræðum sem virka öll vel fyrir ríkisstjórn á kostnað almennings. Er það landið sem við viljum lifa í? Nei ég vill lifa í landi þar sem heiðarleiki og heillindi eru höfð í fyrirrúmi.

Og eitt að lokum. Af hverju hefur umræðan um heilbrigðiskerfi ekki rokið af stað í kjölfarið? Af hverju hefur enginn litið betur á þetta mál? Er verið að búa til Ameríkaniserað kerfi þar sem fátækir hafa ekki efni á að láta sauma skurði saman hvað þá annað? Nógu erum við komin nálægt því allavega.

Sigurður J Guðmundsson (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 17:34

2 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Sigurður,
Ég er mjög sammála þér í mörgu sem þú nefnir. Auðvitað á ráðherra ekki að skipta sér af því sem menn segja á opnum fundum þar sem fólk mætir etv vegna fagsins sem það vinnur í. En að mínu mati kom Sigurbjörg ekki fram af heilindum með því að nafngreina ekki ráðherrann strax...
... ef tilgangurinn var að vekja reiði... held ég að það sé einmitt það sem við þurfum að forðast... reiðin rænir okkur orku til að koma okkur aftur á réttan kjöl og grefur undan okkur andlega.  Ástandið á eftir að versna - því miður og ef það er sífellt verið að vekja reiði og vonleysi þá sökkvum við enn dýpra. 
Heillyndi og heiðarleika... já en ekki ónafngreindar ásakanir.

Já, ég er sammála þér með heilbrigðiskerfið, það er alltaf verið að auka hlut sjúklinga, en Ameríka hefur þann kost að það eru til sjúkrahús fyrir fátæka sem geta ekki borgað - læknarnir þar eru kanski ekki eins færir og hinir... en þennan kost höfum við ekki... hér er sama sjúkrahúsið með sömu gjöld fyrir alla. 

Bryndís Svavarsdóttir, 15.1.2009 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband