Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
26.3.2009 | 14:13
Musterið í hinni nýju Jerúsalem
Jóh 4:19-21
-19- [Samverska]konan segir við hann[Jesú]: Herra, nú sé ég, að þú ert spámaður.
-20- Feður vorir hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli, en þér segið, að í Jerúsalem sé sá staður, þar sem tilbiðja skuli.
-21-Jesús segir við hana: Trú þú mér, kona. Sú stund kemur, að þér munuð hvorki tilbiðja föðurinn á þessu fjalli né í Jerúsalem.
Þegar Jesús dó og fortjaldið rifnaði, færðist hið allra helgasta upp til himins, til hinnar nýju Jerúsalemborgar. Jesús sagði að hann færi að búa okkur stað og þar sem við verðum, mun musteri Drottins einnig vera svo við getum tilbeðið hann þar.
Opb 3:12 Þann er sigrar mun ég gjöra að stólpa í musteri Guðs míns, og hann skal aldrei þaðan út fara. Á hann mun ég rita nafn Guðs míns og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum, og nafnið mitt hið nýja.
Sú Jerúsalem sem menn horfa til í Ísraelsríki nútímans, hefur skilað sínu hlutverki. Að sjálfsögðu verður fólk sem fer þangað fyrir hughrifum, þarna gekk Jesús um strætin og þarna var hann líflátinn. Þetta er Jerúsalem sögunnar. Kristnir menn eiga að beina sjónum sínum til himins, því borgin helga mun koma af himni ofan.
Opb 21:2 Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði, er skartar fyrir manni sínum.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2009 | 23:55
Musterið í Jerúsalem í Nt
Ríki Davíðs og Salómons klofnaði í tvennt og hvort ríki um sig féll fyrir grannríkjunum. Norðurríkið féll 722 F.Kr og Suðurríkið 130 árum síðar, eða 586 F.Kr. Þegar Suðurríkið féll misstu Ísraelsmenn musteri sitt... Samkvæmt trú manna táknaði fall musteris að guðinn hefði yfirgefið það.
Það segir í Jóh 2:20....að musterið hafði verið 46 ár í smíðum. Þegar æðstipresturinn Jesús Kristur mætti á svæðið, þá þekktu þeir hann ekki og afneituðu honum sem syni Guðs og frelsara sínum.
Jesús sagði er hann horfði yfir Jerúsalem í síðasta sinn, (Matt 23:38) Hús yðar verður í eyði látið... Nýja þýðingin orðar það svona: Guð mun yfirgefa musteri yðar og það verður lagt í rúst.
Þegar Jesús dó á krossinum, rifnaði fortjaldið sem aðskildi hið helgasta og hið allra allrahelgasta (þar sem Guð bjó) í musterinu, en þangað inn fór æðstipresturinn aðeins einu sinni á ári og friðþægði fyrir syndir sínar og lýðsins. Hið allrahelgasta var svo heilagt svæði að æðstipresturinn var með band í sér svo hægt væri að draga hann út, ef hann dæi þar inni.
Þegar Jesús dó, rifnaði fortjaldið - Guð flutti út úr musterinu...
Post 6:14 Vér höfum heyrt hann segja, að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum, sem Móse hefur sett oss.
Jóhannes skírari boðaði mönnum sinnaskipti... "change of mind" að skipta um skoðun, láta af hinu gamla og taka upp nýtt lögmál, lögmál trúarinnar... En fátt er eins erfitt og að ætla að breyta trúarsannfæringu annarra...
Trúmál og siðferði | Breytt 26.3.2009 kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2009 | 15:12
Musteri Drottins í Jerúsalem
Gamla testamentið - Gamli sáttmáli er saga óhlýðinnar þjóðar, þjóðar sem Guð valdi til forystu, en þjóðin brást, eins og við bregðumst öll... óhlýðni, eigingirni og græðgi láta okkur haltra til beggja hliðina í lífinu.
Hvernig sem við reynum, þá verður einhver prósenta af gjörðum okkar röng... afleiðingarnar eru ekki alltaf slæmar fyrir okkur sjálf, en það réttlætir ekki það sem er rangt í upphafi.
Menn líta til Salómons konungs með lotningu, hann var mikilmenni, valinn til forystu af Guði, sonur Davíðs og Batsebu. Viska hans er rómuð en hann hrasaði eins og aðrir breyskir menn. Davíð faðir hans hafði ekki fengið að byggja musteri fyrir Guð, musterisþjónustan fór fram í tjaldi. Salómon fékk það hlutverk að byggja musterið. Það segir frá byggingu þess í 1.Kon.6:2-3
-2- Musterið, sem Salómon konungur reisti Drottni, var sextíu álnir á lengd, tuttugu álnir á breidd og þrjátíu álnir á hæð.
-3- Forsalurinn fyrir framan musterishúsið var tuttugu álnir á breidd fram með musterisendanum og tíu álnir á dýpt fram af musterinu.
Í lok 6.kafla segir að bygging musterisins hafi tekið 7 ár.
Í upphafi 7.kafla segir að Salómon hafi verið 13 ár að byggja höll sína...
-2- Hann byggði Líbanonsskógarhúsið, er var hundrað álnir á lengd, fimmtíu álnir á breidd og þrjátíu álnir á hæð
-6- Hann gjörði súlnasal, fimmtíu álnir á lengd og þrjátíu álnir á breidd, og forsal þar fyrir framan ...
-7- Hann byggði hásætissal, þar sem hann kvað upp dóma dómhöllina,...
Auk þess lét Salómon byggja fyrir sig hús sem hann bjó í... Húsin sem Salómon ætlaði sjálfum sér voru stærri en það sem hann gerði fyrir Guð. Hvaða skilaboð er hægt að lesa út úr þessu... Var Salómon meiri en Guð? En Guð getur fyrirgefið alls kyns yfirsjónir en ekki að menn dýrki aðra guði.
Í 1.Kon.9:1-9 birtist Guð Salómon og sagði:
-5- þá vil ég staðfesta hásæti konungdóms þíns yfir Ísrael að eilífu, eins og ég hét Davíð föður þínum, er ég sagði: Eigi skal þig vanta eftirmann í hásæti Ísraels.
-6- En ef þér snúið baki við mér, þér og synir yðar, og varðveitið eigi boðorð mín og lög, þau er ég hefi lagt fyrir yður, en farið og þjónið öðrum guðum og fallið fram fyrir þeim,
-7- þá mun ég uppræta Ísrael úr því landi, sem ég gaf þeim, og húsinu, sem ég hefi helgað nafni mínu, mun ég burt snara frá augliti mínu, og Ísrael skal verða að orðskvið og spotti meðal allra þjóða.
-8- Og þetta hús, svo háreist sem það er hver sem gengur fram hjá því, honum mun blöskra og hann mun blístra. Og er menn spyrja: Hvers vegna hefir Drottinn leikið svo hart þetta land og þetta hús?
-9- munu menn svara: Af því að þeir yfirgáfu Drottin, Guð sinn, er leiddi feður þeirra af Egyptalandi, og héldu sér að öðrum guðum, féllu fram fyrir þeim og þjónuðu þeim. Fyrir því hefir Drottinn leitt yfir þá alla þessa ógæfu.
Nú stendur moska á rústum musterisins í Jerúsalem - Hvaða skilaboð eru það?
Trúmál og siðferði | Breytt 26.3.2009 kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2009 | 13:20
Allt er þegar þrennt er
Máltækið segir: Allt er þegar þrennt er og Gamla testamentið segir að Guð hafi gert 3 sáttmála.
Sá fyrsti var við Nóa, 1.Mós.9;11 en tákn hans er regnboginn.
-11- Minn sáttmála vil ég gjöra við yður: Aldrei framar skal allt hold tortímast af vatnsflóði, og aldrei framar mun flóð koma til að eyða jörðina.
-12- Og Guð sagði: Þetta er merki sáttmálans, sem ég gjöri milli mín og yðar og allra lifandi skepna, sem hjá yður eru, um allar ókomnar aldir:
-13- Boga minn set ég í skýin, að hann sé merki sáttmálans milli mín og jarðarinnar.
Annar sáttmálinn var við Abraham 1.Mós.17:9 en tákn þess sáttmála er umskurnin.
-9- Guð sagði við Abraham: Þú skalt halda minn sáttmála, þú og niðjar þínir eftir þig, frá einum ættlið til annars.
-10- Þetta er minn sáttmáli, sem þér skuluð halda, milli mín og yðar og niðja þinna eftir þig: Allt karlkyn meðal yðar skal umskera.
-11- Yður skal umskera á holdi yfirhúðar yðar, og það sé merki sáttmálans milli mín og yðar.
Síðasti sáttmálinn var gerður á Sínaí-fjalli 2.Mós.31:12 og tákn hans er hvíldardagurinn.
-12- Drottinn talaði við Móse og sagði:
-13- Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Sannlega skuluð þér halda mína hvíldardaga, því að það er teikn milli mín og yðar frá kyni til kyns, svo að þér vitið, að ég er Drottinn, sá er yður helgar.
-14- Haldið því hvíldardaginn, því að hann skal vera yður heilagur. Hver sem vanhelgar hann, skal vissulega líflátinn verða, því að hver sem þá vinnur nokkurt verk, sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni.
-15- Sex daga skal verk vinna, en sjöundi dagurinn er algjör hvíldardagur, helgaður Drottni. Hver sem verk vinnur á hvíldardegi, skal vissulega líflátinn verða.
Fyrst sáttmálinn var við Nóa, annar við Abraham og niðja hans og sá síðasti til Ísraelsmanna í eyðimörkinni. Margir telja regnbogann enn vera sáttmála við Guð, kristnir menn stunda ekki umskurn og enginn... sama hversu trúaður hann er... virkilega heldur hvíldardaginn.
Samt sem áður er hvíldardagurinn það eitt það besta sem Guð hefur gefið okkur, því við þurfum að hvíld og endurnæringu - á sál og líkama.
24.3.2009 | 00:08
Í upphafi skapaði Guð...
Biblían byrjar á þessum orðum... Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Það kemur vel til greina að þetta upphaf hafi verið löngu áður en önnur sköpun hófst. Hver erum við, að fella dóma um hvað tímanum leið. Það var ekki einu sinni búið að skapa ,,tímann."
Sköpunarsögurnar eru tvær og heimildakenning Wellhausens telur þær skrifaðar eftir að ríki Salómons klofnaði í tvennt. Wellhausen telur aðra söguna vera skrifaða í Norðurríkinu Efraím (E-heimild) og hina í Suðurríkinu Júda (J-heimild).
Telur hann að eftir að gyðingar hafi orðið land-og musterislausir, þ.e. eftir að bæði ríkin féllu þá hafi saga gyðinga verið fléttuð saman á einhverjum ákveðnum tíma. Vegna þess að gyðingar töldu textann heilagan mátti ekki breyta honum og gætir því nokkurs misræmis í textanum og oft tvær frásagnir af sama atburði.
Fyrri sköpunarsagan 1.Mós.1:1-2:4, fylgir E-heimild en hún notar nafnið Elóhím fyrir Guð. Í fyrri sköpunarsögunni lýkur Guð verki sínu með því að skapa manninn. Samkvæmt þeirri heimild heitir fjallið helga Hóreb, Jetro er tengdafaðir Móse (2.Mós 3:1) og íbúar fyrirheitna landsins eru Amorítar.
Síðari sköpunarsagan 1:Mós.2:5-3:24 fylgir J-heimild en þar er notað nafnið Jahve sem er þýtt Drottinn Guð. Í síðari sköpunarsögunni byrjar Guð á að skapa manninn og hann mótaði hann með eigin höndum. Samkvæmt heimildinni heitir fjallið helga Sínaí, í 4.Mós 10:29 heitir tengdafaðir Móse, Hóbab Regúelsson og samkvæmt J-heimild eru íbúar fyrirheitna landsins, Kanverjar.
Sitthvort nafnið, Elóhím eða Jahve, yfir Guð er því skýringin á því hvers vegna stendur Guð eða Drottinn Guð amk í Mósebókunum.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 21:17
Fjallræðan, Matt. 5:3-12
Matt 5:3-12
-3- Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.
-4- Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða.
-5- Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.
-6- Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.
-7- Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
-8- Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
-9- Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
-10- Sælir eru þeir, sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, því að þeirra er himnaríki.
-11- Sælir eruð þér, þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna.
-12- Verið glaðir og fagnið, því að laun yðar eru mikil á himnum.
Þannig ofsóttu þeir spámennina, sem voru á undan yður.
Sælir eru þeir sem taka við fagnaðarerindinu um Jesú Krist... séu þeir sorgbitnir yfir því að þeirra nánustu hati þá fyrir sakir nafns hans, þá munu þeir huggaðir verða.
Sælir eru þeir sem töldu sig ekki vita betur og afneituðu eða unnu gegn fagnaðarerindinu, heldur hungraði eftir hinu nýja lögmáli, lögmáli trúarinnar, því þeir munu erfa jörðina á efsta degi.
Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir að verða réttlættir af Kristi því þá mun ekkert skorta á hinni nýju jörð...
Sælir eru þeir sem elska náungann eins og sjálfan sig, miskunna öðrum og boða frið og fögnuð hjartans því þeir verða börn Guðs.
Verið stöðug í boðun fagnaðarerindisins, þó það kosti mótlæti, óvinsældir, vinslit, hatur eða ofsóknir, óvinurinn hefur frá upphafi heims verið sem grenjandi ljón og þannig hefur hann ofsótt alla þá sem boða orð Guðs hreint og ómengað... honum verður ekki út kastað fyrr en við endi tímanna.
15.3.2009 | 22:40
Frelsar lögmálið?
Hver vill ekki vera góð persóna, vinna náunga sínum gott, vera vinur í raun og hjálp í neyð? ALLIR, HVER EINASTI MAÐUR VILL LÁTA GOTT AF SÉR LEIÐA.
Góð verk færa okkur vellíðan og á sama hátt leiðist okkur ef við getum ekki staðið undir þessum væntingum sem við höfum til sjálfra okkar... okkur líður illa ef við getum ekki hjálpað. En það vill fylgja góðverkum að sá hinn sami telur sig nær Guði... það felist frelsun í því að gera góðverk, en Jesús segir að jafnvel vondir séu góðir við sína... svo góðsemi sé því ekki mælikvarði til að frelsast.
Matt 7:11 Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann?
Lögmálið í Gamla testamentinu var haldreipi gyðinga... vegna lögmálsins töldu þeir sig fremri öðrum mönnum og töldu sig frelsast fyrir að halda það.
Jesús vissi hvernig þeir hreyktu sér upp gagnvart öðrum og spurði þá: (Jóh.7:19) Gaf Móse yður ekki lögmálið? Samt heldur enginn yðar lögmálið. Hví sitjið þér um líf mitt?
Jesús boðaði nýtt fagnaðarerindi... frelsun fyrir trú á hann. Páll postuli segir í Róm 3:20-28
...með því að enginn lifandi maður réttlætist fyrir honum af lögmáls-verkum. En fyrir lögmál kemur þekking syndar. -21- En nú hefur réttlæti Guðs, sem lögmálið og spámennirnir vitna um, verið opinberað án lögmáls. -22- Það er: Réttlæti Guðs fyrir trú á Jesú Krist öllum þeim til handa, sem trúa. Hér er enginn greinarmunur: -23- Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, -24- og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú. -25- Guð setti hann fram, að hann með blóði sínu væri sáttarfórn þeim sem trúa. Þannig sýndi Guð réttlæti sitt, því að hann hafði í umburðarlyndi sínu umborið hinar áður drýgðu syndir, -26- til þess að auglýsa réttlæti sitt á yfirstandandi tíma, að hann sé sjálfur réttlátur og réttlæti þann, sem trúir á Jesú. -27- Hvar er þá hrósunin? Hún er úti lokuð. Með hvaða lögmáli? Verkanna? Nei, heldur með lögmáli trúar.
-28- Vér ályktum því, að maðurinn réttlætist af trú án lögmálsverka.
Það frelsast enginn fyrir að halda lögmál gyðinga. Við frelsumst fyrir náð Jesú Krists. Hin góðu verk hvorki frelsa okkur eða veita okkur forgang til Himnaríkis en þau færa okkur áfram vellíðan, hvort við erum veitendur þeirra eða þiggjendur.
Trúmál og siðferði | Breytt 16.3.2009 kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2009 | 21:36
Freddie og Carroll Filmore
Ég sæki Freddie og Carroll Filmore út á völl í fyrramálið. Vélin á að lenda um 6:10. Það er alltaf gaman að hitta þau. Við heimsóttum Freddie og Carroll í janúar, kíktum aðeins heim til þeirra en þegar við fórum í kirkjuna þeirra... voru þau á innsetningarhátíð Obama í Washington.
En þau koma sem sagt á morgun og Freddie prédikar í Fríkirkjunni Kefas næsta sunnudag. Annað veit ég ekki úr dagskrá hans.
4.3.2009 | 23:35
Skikkja réttlætisins
Þegar Guð síðan horfir niður á okkur á degi dómsins, þá sér Guð skikkju Krists en ekki syndarann sem er undir henni.
Lúther sagði að undir skikkjunni væri sami syndarinn og áður, syndin væri ekki horfin burt, hún væri enn til staðar... en Kristur væri búinn að breiða yfir hana. Hann er búinn að fyrirgefa okkur hana. Þannig útlistaði hann hvernig Kristur hafi íklætt okkur skikkju réttlætisins. Það er því stór munur á þessari tilgátu og því að telja, að fyrir réttlætingu af trú séum við hreinsuð af syndinni og þannig gerð syndlaus... aðeins Kristur er syndlaus... synd okkar er aðeins hulin.
Siðbótamaðurinn, leggur ríka áherslu á að hver og einn verði að ,,glíma eins og hann orðar það, sjálfur við Guð... það er, hver og einn verður að leita hans sjálfur, iðrast sjálfur og veita sjálfur skikkju réttlætisins viðtöku. Kristur er persónulegur frelsari þinn, hér koma engir milliliðir að gagni og hann veit allt um syndarann undir skikkjunni... en það er sama hve mikið við lesum og fræðumst um Jesú Krist, það er alltaf hægt að kynnast honum og náð hans BETUR.
Þegar hjörtu okkar hafa meðtekið Krist sem frelsara okkar, þá fáum við löngun til góðra verka, til að bæta okkur og verða betri manneskjur. Það er allt annað, en að vinna verk til þess að frelsast... allt annað en að ætlast til að frelsast í staðinn fyrir verkið.
Guð þarfnast ekki verka okkar... en náungi okkar þarfnast þeirra. Guð vill að við þjónum og hjálpum hvort öðru... Séum hvort öðru styrkur, veitum hvort öðru skjól og verndum og verjum hvort annað.
Við byggjum ekki kirkju fyrir Guð, hún er fyrir náungann svo að hann geti byggt upp samband við Guð, eins og við. Guð á ekki bara heima í kirkjunni, hann er þar sem hann er boðinn velkominn, hann er alltaf með okkur, allsstaðar.
Einn gárungi sagði... að Guð væri allsstaðar í heiminum... nema hjá páfanum í Róm... þar er hann með staðgengil.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2009 | 12:46
Einn fyrir alla - allir fyrir einn!
Í Post 16:22 segir frá uppþoti á hvíldardegi í Filippí og að Páll og Sílas sem voru á ferðalagi þar, hafi verið handteknir og varpað í fangelsi. Það er ekki nóg að vörðurinn eigi að gæta þeirra vandlega... það er settur stokkur á fætur þeirra... til að fyrirbyggja flótta.
Post 16:26 Þá varð skyndilega landskjálfti mikill, svo að grunnur fangelsisins riðaði. Jafnskjótt opnuðust allar dyr, og fjötrarnir féllu af öllum.
Vegna þess að fangarnir flúðu ekki, spyr fangavörðurinn hvað hann eigi að gera til að verða hólpinn.
Post 16:31En þeir sögðu: Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.
Ekki aðeins hann heldur heimili hans líka.Einmitt þetta hefur oft komið upp í huga minn... getur það verið... Gengur þetta svona fyrir sig ? Gildir hér máltækið : Einn fyrir alla og allir fyrir einn.Við höfum séð það í ritningunni... fyrir einn mann kom syndin í heiminn og einn maður leysti okkur undan henni...
Fólk reynir ekki húðstrýkingu og fangelsanir hér í dag, eins og Páll og Sílas reyndu, erfiðleikar dagsins í dag af allt annarri gerð en erfiðleikar manna áður fyrr. En erfiðleikar eru það samt og það má ekki vanmeta þá eða gera lítið úr þeim. Allt of margir eiga virkilega erfitt líf. Líf sem er stanslaust basl og áhyggjur af morgundeginum.
Eru menn almennt trúlausari nú en áður? Blundar trúarneisti í fólki og þá er spurningin... slokknar þessi neisti þegar eitthvað bjátar á eða styrkist hann og verður að loga eða brennandi báli.
Páll og Sílas voru húðstrýktir og fangelsaðir EN innra með þeim brann trúarinnar bál... þeir báðust fyrir og bandingjarnir hlustuðu... þetta er mikilvægur punktur... þeir hlustuðu, trúarfræinu hafði verið sáð... því við jarðskjálftann opnuðust allar dyr í fangelsinu og fjötrarnir féllu af öllum föngunum.
Bænir Páls og Sílasar leystu líka hina fangana... ef Guð hefði viljað... hefði hann getað opnað bara dyrnar hjá þeim tveim... en hann opnaði allar dyrnar og felldi fjötrana af öllum.
Þá er það spurningin um... einn fyrir alla... skiptir trúin máli, fyrst trú og bænir Páls og Sílasar leystu þá alla. Nægir trú eins manns, (eða reyndar tveggja manna ) nægja bænir annarra til að bjarga okkur hinum? Þarf ekki hver og einn sína fullvissu... þarf ekki hver og einn sitt haldreipi...
Vill einhver treysta því að einhver annar biðji fyrir honum svo hann bjargist... er ekki öruggara að biðja sjálfur!!!
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Áramóta-annáll fyrir árið 2024
- Kefl - Denver CO - Santa Fe NM 8-13.nóv 2024
- Kefl - Portland OR - WA - ID 19-27. sept 2024
- Kefl - Chicago IL og fl. 4-12. júli 2024
- Kefl - Raleigh NC - Bristol TN 20-27. mars 2024
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007