Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
6.4.2009 | 20:39
Trúboð - Matt. 10.kafli
-1- Og hann kallaði til sín lærisveina sína tólf og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum, að þeir gætu rekið þá út og læknað hvers kyns sjúkdóm og veikindi.
-2- Nöfn postulanna tólf eru þessi: Fyrstur Símon, sem kallast Pétur, og Andrés bróðir hans, þá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróðir hans,
-3- Filippus og Bartólómeus, Tómas og Matteus tollheimtumaður, Jakob Alfeusson og Taddeus,
-4- Símon vandlætari og Júdas Ískaríot, sá er sveik hann.
-5- Þessa tólf sendi Jesús út og mælti svo fyrir: Haldið ekki til heiðinna manna og farið ekki í samverska borg.
-6- Farið heldur til týndra sauða af Ísraelsætt.
-7- Farið og prédikið: Himnaríki er í nánd.
Jesús kom sem trúboði og tilgangur ferðarinnar var að leiða hina útvöldu þjóð réttan veg. Þjóðin var týnd... En stærsti hluti þjóðarinnar vildi ekki taka við honum.
,,Himnaríki er í nánd"... himnaríki er alltaf í nánd, hver og einn hefur einungis sinn líftíma til að gera upp hug sinn - og okkar ævi er óráðinn tími. Það er því betra að gera upp hug sinn fyrr en seinna hvort maður ætlar að þiggja þá gjöf sem fagnaðarerindið er.
-14- Og taki einhver ekki við yður né hlýði á orð yðar, farið þá úr því húsi eða þeirri borg og hristið dustið af fótum yðar.
Sá sem prédikar fagnaðarerindið á hvorki að deila við viðmælenda sinn né þröngva boðskapnum upp á hann - betra er fyrir hann að hverfa á brott.
-16- Sjá, ég sendi yður eins og sauði meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur.
-17- Varið yður á mönnunum. Þeir munu draga yður fyrir dómstóla og húðstrýkja yður í samkundum sínum.
-22- Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.
-28- Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða, en fá ekki deytt sálina. Hræðist heldur þann, sem megnar að tortíma bæði sálu og líkama í helvíti.
-32- Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum.
-33- En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun og ég afneita fyrir föður mínum á himnum.
-40- Sá sem tekur við yður, tekur við mér, og sá sem tekur við mér, tekur við þeim, er sendi mig.
Jesús vissi að fagnaðarerindið sem átti að sameina lýð Guðs myndi sundra hópnum og valda ofsóknum og hatri á fylgismönnum hans... Í öllum okkar erfiðleikum og mótlæti eigum við einungis að hræðast einn óvin, þann sem tortímir sálu okkar...
Baráttan er um tignirnar og völdin í heiminum (Efe 6:12)... því allt varðar þetta tilbeiðslu... Það getur enginn sótt um inngöngu fyrir annan í himnaríki... Í trúmálum þarf hver og einn að taka afstöðu hvort hann fylgi Kristi.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2009 | 21:27
Trú er allt sem þarf - Matt. 9.kafli
-1- Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar.
-2- Þar færa menn honum lama mann, sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra, sagði hann við lama manninn: Vertu hughraustur, barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.
-3- Nokkrir fræðimenn sögðu þá með sjálfum sér: Hann guðlastar!
-4- En Jesús þekkti hugsanir þeirra og sagði: Hví hugsið þér illt í hjörtum yðar?
Hversu oft erum við ekki tilbúin að dæma það sem við þekkjum ekki? Hvort sem það er gott eða illt. Læknaðist maðurinn við að fá syndir sínar fyrirgefnar eða notaði Jesús aðeins þetta orðfæri vegna þess að fræðimennirnir hafi talið fólki trú um að bæklanir þeirra væru í beinu samhengi við syndir þeirra.
-9- Þá er hann gekk þaðan, sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann: Fylg þú mér! Og hann stóð upp og fylgdi honum.
-10- Nú bar svo við, er Jesús sat að borði í húsi hans, að margir tollheimtumenn og bersyndugir komu og settust þar með honum og lærisveinum hans.
-11- Þegar farísear sáu það, sögðu þeir við lærisveina hans: Hvers vegna etur meistari yðar með tollheimtumönnum og bersyndugum?
-12- Jesús heyrði þetta og sagði: Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru.
-13- Farið og nemið, hvað þetta merkir: Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara.
Fylg þú mér... Jesús setur engin inntökuskilyrði fyrir þá sem vilja fylgja honum, önnur en að trúa á hann. Miskunnsemi vil ég - ekki fórnir, sagði Jesús. Þessum orðum beindi hann til Faríseanna, en þeim var mjög umhugað um að hver og einn innan samfélagsins skilaði sínum fórnum.
Og höfðu menn ekki efni á að gefa til musterisins þá bauð erfikenning þeirra upp á að skila ,,korban" (Mark 7:8-11)
Farisearnir viðurkenndu ekki að þeir væru syndarar... þeir töldu sig vera réttláta og hina heiðnu vera syndara...
Í þessum kafla læknar Jesús lamaða manninn, konuna með blóðlátin, reisti dóttur forstöðumannsins til lífsins, gaf tveim blindum mönnum sjónina og læknaði mállausan mann með illan anda. Hvílík kraftaverk...
-33- Og er illi andinn var út rekinn, tók málleysinginn að mæla. Mannfjöldinn undraðist og sagði: Aldrei hefur þvílíkt sést í Ísrael.
Jesús kenndi í samkundum gyðinga og læknaði hvar sem hann fór...
-36- En er hann sá mannfjöldann, kenndi hann í brjósti um þá, því þeir voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir, er engan hirði hafa.
-37- Þá sagði hann við lærisveina sína: Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir.
-38- Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.
Verkamennirnir eru þeir sem prédika fagnaðarerindið, þeir sem sá fræinu (orði Guðs) og nostra við það svo það vaxi upp, dafni og beri ávöxt... og uppskeran margfaldist.
Matt 7:19 Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.
Trúmál og siðferði | Breytt 6.4.2009 kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2009 | 23:40
Þurfum ekki að fara neitt - Matt. 8.kafli
-2- Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.
-3- Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: Ég vil, verð þú hreinn! Jafnskjótt varð hann hreinn af líkþránni.
-4- Jesús sagði við hann: Gæt þess að segja þetta engum, en far þú, sýn þig prestinum, og færðu þá fórn, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.
Þegar Jesús snerti manninn, braut hann hreinleikalögin... Jesús var syndlaus, þess vegna geta brot á hreinleikalögunum ekki verið synd.
Mörgum finnst mjög undarlegt, að Jesús hafi beðið manninn að þegja yfir kraftaverkinu, en sagt honum að hann ætti að sýna prestinum sig...
Það var presturinn sem skar úr hvort maður ætti að vera í einangrun vegna sjúkdóms eins og holdsveiki, en líklega hefur það ekki verið ástæða þess að Jesús sendi manninn til prestsins. Presturinn hefði átt að átta sig á að nú væru spádómar Gt að rætast... Jesús gerði allt sem hann gat til að sýna fram á hver hann væri - en án árangurs.
Jesús læknar svein hundraðshöfðingjans (heiðingja) og undrast mikla trú hans og segir jafnframt:
-11- En ég segi yður: Margir munu koma frá austri og vestri og sitja til borðs með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki,-12- en synir ríkisins munu út reknir í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.
Þeir sem taka við Jesú munu komast í ríki hans en jafnvel þeir sem áður voru útvaldir munu vera útilokaðir.
-19- Þá kom fræðimaður einn til hans og sagði: Meistari, ég vil fylgja þér, hvert sem þú ferð.
-20- Jesús sagði við hann: Refar eiga greni og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.
-21- Annar, úr hópi lærisveinanna, sagði við hann: Herra, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.
-22- Jesús svarar honum: Fylg þú mér, en lát hina dauðu jarða sína dauðu.
Einn vill fylgja Jesú hvert sem er, en annar vill koma seinna... þegar betur stendur á.
Við þurfum ekki að ,,fara neitt" til að fylgja Jesú. Ákvörðunin á sér stað í hjörtum okkar og hana er hægt að rækta hvar sem við erum, með bæn, beiðni og þakkargjörð.
Trúmál og siðferði | Breytt 6.4.2009 kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2009 | 20:09
Dæmið ekki - Matt. 7.kafli
-1- Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir.
-2- Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða.
-3- Hví sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu?
-4- Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: Lát mig draga flísina úr auga þér? Og þó er bjálki í auga sjálfs þín.
-5- Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
Við ætlum ekki alltaf að dæma, en við leggjum ósjálfrátt mat á allt sem gerist eða er umhverfis okkur... ef við segjum frá því er nær öruggt að einhver skilur orð okkar á annan veg en ætlast er til... Gróa er lögð af stað á næsta bæ... Málin snúast oft ekki um það sem við segjum - heldur hvernig viðmælandinn skilur það og segir frá því.
Alltof oft les fólk ANNAÐ en það sem er skrifað og svo á fólk það til að blanda skyldum málum við og eftir þann LESSKILNING er komin niðurstaða sem oft er ekkert nálægt upphafinu.
Í þessu getum við séð okkur báðum megin við borðið.
-6- Gefið ekki hundum það sem heilagt er, og kastið eigi perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum, og þeir snúa sér við og rífa yður í sig.
Heiðingjar voru hundar í augum gyðinga... Við eigum að bera boðskapinn áfram en Jesús segir okkur að meta hvort hjarta hins heiðna sé opið fyrir hinu heilaga orði eða hvort hann myndi snúa því upp í öfugmæli og troða það niður. Þá myndi ,,hundurinn eða svínið" fremur loka hjörtum þeirra sem væru nálægt þeim og boðskapurinn (perlan) væri engum dýrmæt.
-15- Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum, en innra eru þeir gráðugir vargar.
Jesús er góði hirðirinn, hirðir sauðanna. Hann segir okkur að varast þá sem boða falskar kenningar INNAN safnaðanna. Það að falsspámaðurinn sé í sauðaklæðum, merkir að hann þykist eða telur sig vera kristinn.
-19- Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.
-20- Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá.
-21- Ekki mun hver sá, sem við mig segir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá einn, er gjörir vilja föður míns, sem er á himnum.
-22- Margir munu segja við mig á þeim degi: Herra, herra, höfum vér ekki kennt í þínu nafni, rekið út illa anda í þínu nafni og gjört í þínu nafni mörg kraftaverk?
-23- Þá mun ég votta þetta: Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.
Við erum lærisveinar og eigum að bera fagnaðarerindið áfram, FYLGIÐ JESÚ... Falsspámaðurinn ber ekki ávöxt fyrir ríki Guðs - hann kemst ekki þangað inn.
Við eigum að byggja á Orði Guðs, Jesús á að vera kletturinn í lífi okkar. Falskar kenningar koma eins og sviptivindar og steypiregn og geta hrakið okkur til og frá og að lokum geta þær skolað okkur burt frá Sannleikanum.
Trúmál og siðferði | Breytt 6.4.2009 kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2009 | 14:33
Launin á himnum - Matt. 6.kafli
-1- Varist að iðka réttlæti yðar fyrir mönnum, þeim til sýnis, annars eigið þér engin laun hjá föður yðar á himnum.
-2- Þegar þú gefur ölmusu, skaltu ekki láta þeyta lúður fyrir þér, eins og hræsnarar gjöra í samkunduhúsum og á strætum til þess að hljóta lof af mönnum. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
-3- En þegar þú gefur ölmusu, viti vinstri hönd þín ekki, hvað sú hægri gjörir,
-4- svo að ölmusa þín sé í leynum, og faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.
Þetta er eitt af því sem okkar er freistað með, af hinum illu öflum... að sanna okkur fyrir öðrum. Eins og ritningin segir, þá nægir að Guð viti okkar gjörðir.
Reyndar á þetta við um fleiri hluti en ölmusu eða góð verk, bænir okkar eiga að vera einfaldar, frá hjartanu og gerðar í einrúmi og enginn þarf að vita hvenær við leggjum eitthvað á okkur s.s. föstum.
-31- Segið því ekki áhyggjufullir: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast?
-32- Allt þetta stunda heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa.
-33- En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.
-34- Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.
Áhyggjur okkar eru óþarfar, en samt sem áður viljum við burðast endalaust með þær.
Drottinn segir ekki að við eigum að vera óábyrg og hugsa ,,þetta reddast", heldur eigum við að vera eins ábyrg og við getum og hugsa ,,þetta blessast"
Trúmál og siðferði | Breytt 6.4.2009 kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2009 | 10:54
Nóg pláss í ríki Guðs - Matt. 5.kafli
Í þessari færslu er fjallað um fjallræðuna http://bryndissvavars.blog.is/blog/bryndissvavars/entry/830224/
-13- Þér eruð salt jarðar. Ef saltið dofnar, með hverju á að selta það? Það er þá til einskis nýtt, menn fleygja því og troða undir fótum.
-14- Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist.
-15- Ekki kveikja menn heldur ljós og setja undir mæliker, heldur á ljósastiku, og þá lýsir það öllum í húsinu.
-16- Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna, að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar, sem er á himnum.
Það var ekki ætlunin hjá Jesú, að lærisveinarnir héldu fagnaðarerindinu fyrir sig eina. Það væri líkt því að hafa allt saltið í einni skeið... þá smitar það ekki bragðinu út í matinn. Salt þarf að vera í hæfilegu magni, það má ekki salta of mikið, fólk hverfur matarborðinu ef maturinn er óætur. Kenningarnar þurfa að vera bornar fram í hæfilegu magni... það þarf að strá þeim í kringum sig til að smita þeim út í samfélagið.
Sá sem tekur orðinu fagnandi, getur ekki dulið það, hann lýsir frá sér enda á hann að vera vegvísir fyrir aðra... Við eigum að hjálpast að, það er nóg pláss í ríki Guðs.
-17- Ætlið ekki, að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema, heldur uppfylla.
-18- Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok, mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu, uns allt er komið fram.
Uns ALLT HVAÐ er komið fram ??? Hvaða spádóma er Jesús að tala um? Hann er ekki að segja að lögmálið verði í fullu gildi til enda veraldar - heldur er hann að segja að lögmálið verði uppfyllt þegar spádómarnir um komu hans og dauða, hafi ræts. Eftir það, eða þar til himinn og jörð líða undir lok, frelsumst við fyrir hans náð, því með dauða sínum sigraði hann heiminn.
-19- Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það, mun kallast minnstur í himnaríki, en sá, sem heldur þau og kennir, mun mikill kallast í himnaríki.
-20- Ég segi yður: Ef réttlæti yðar ber ekki af réttlæti fræðimanna og farísea, komist þér aldrei í himnaríki.
Jesús er ekki að tala um boðorðin 10, þau eru hvergi nefnd. Þessi boð er þau sem koma hér á eftir og varða hið nýja lögmál, réttlæti fyrir trú því ætli sé einhver að frelsast að hætti fræðimanna og farísea - þá komast menn ekki í himnaríki.
-21- Þér hafið heyrt, að sagt var við forfeðurna: Þú skalt ekki morð fremja. Sá sem morð fremur, skal svara til saka fyrir dómi.
-27- Þér hafið heyrt, að sagt var: Þú skalt ekki drýgja hór.
-31- Þá var og sagt: Sá sem skilur við konu sína, skal gefa henni skilnaðarbréf.
-33- Enn hafið þér heyrt, að sagt var við forfeðurna: Þú skalt ekki vinna rangan eið, en halda skaltu eiða þína við Drottin.
-38- Þér hafið heyrt, að sagt var: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.
-43- Þér hafið heyrt, að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn.
En ég segi yður... sagði Jesús. Hann setti fram nýtt lögmál byggt á kærleika, þú skalt ekki reiðast, vertu skjótur til sátta, ekki vinna eiða, ekki hefna, rístu ekki gegn óvinum þínum og þú skalt elska náungann.
Trúmál og siðferði | Breytt 6.4.2009 kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2009 | 09:17
Ef þú ert... - Matt. 4.kafli
-1- Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina, að hans yrði freistað af djöflinum.
-2- Þar fastaði hann fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður.
-3- Þá kom freistarinn og sagði við hann: Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú, að steinar þessir verði að brauðum.
-4- Jesús svaraði: Ritað er: Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði, heldur á hverju því orði, sem fram gengur af Guðs munni.
-5- Þá tekur djöfullinn hann með sér í borgina helgu, setur hann á brún musterisins
-6- og segir við hann: Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér ofan, því að ritað er: Hann mun fela þig englum sínum, og þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini.
-7- Jesús svaraði honum: Aftur er ritað: Ekki skalt þú freista Drottins, Guðs þíns.
-8- Enn tekur djöfullinn hann með sér upp á ofurhátt fjall, sýnir honum öll ríki heims og dýrð þeirra
-9- og segir: Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú fellur fram og tilbiður mig.
-10- En Jesús sagði við hann: Vík brott, Satan! Ritað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.
Það er þetta EF sem leiðir okkur oft afvega, eða fær okkur til að gera einhverja vitleysu... það að ætla að freistast til að sanna eitthvað fyrir öðrum. Djöfullinn freistaði Jesú þrisvar... tvisvar freistaði hann hans að sanna hver hann væri.
Djöfullinn á þennan heim, þessa jörð og í síðustu freistingunni vildi hann láta hana í skiptum fyrir tilbeiðslu.
Jesús sagði að það verði ekki fyrr en í lok þessa heims sem þessum höfðingja verður út kastað (Jóh 12:31) svo að þangað til verður heimurinn eins og hann er... eða fer versnandi.
Baráttan milli góðs og ills verður lúmsk... jafnvel fyrir þá sem velja og vilja fylgja Jesú Kristi.
Trúmál og siðferði | Breytt 6.4.2009 kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2009 | 19:25
Takið sinnaskiptum - Matt. 3.kafli
-1- Á þeim dögum kemur Jóhannes skírari fram og prédikar í óbyggðum Júdeu.
-2- Hann sagði: Gjörið iðrun, (takið sinnaskiptum, útg.2007) himnaríki er í nánd.
-3- Jóhannes er sá sem svo er um mælt hjá Jesaja spámanni: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans.
-5- Menn streymdu til hans frá Jerúsalem, allri Júdeu og Jórdanbyggð,
-6- létu skírast af honum í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
-7- Þegar hann sá, að margir farísear og saddúkear komu til skírnar, sagði hann við þá: Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði?
-8- Berið þá ávöxt samboðinn iðruninni!
-9- Látið yður ekki til hugar koma, að þér getið sagt með sjálfum yður: Vér eigum Abraham að föður. Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum.
-10- Öxin er þegar lögð að rótum trjánna, og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.
Spádómar úr Gamla testamentinu voru að rætast... Menn gengu ekki með veggjum í boðuninni á dögum Jesú. Jóhannes boðar nýtt, nú skiptir bakgrunnur persónu engu máli. Það var kominn nýr mælikvarði.
Hvort menn eigi ,,Abraham" að föður eða ekki, hvort sá hinn sami var einstaklingur í hinni útvöldu þjóð eða ekki, var aukaatriði. Nú skipti máli að bera góðan ávöxt... það tré sem ber ekki góðan ávöxt verður upphoggið og í eld kastað...
Jesús kom að ánni og vildi skírast... eftir það var starf hans hafið - öxin var lögð að rótum trjánna... þaðan í frá mundi hver sá sem trúir, hólpinn verða.
Gjörið iðrun - takið sinnaskiptum http://bryndissvavars.blog.is/blog/bryndissvavars/entry/659847/
Trúmál og siðferði | Breytt 14.4.2009 kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2009 | 14:46
Fóru í ranga borg - Matt. 2.kafli
-1- Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs, komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem
-2- og sögðu: Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? Vér sáum stjörnu hans renna upp og erum komnir að veita honum lotningu.
-3- Þegar Heródes heyrði þetta, varð hann skelkaður og öll Jerúsalem með honum.
-4- Og hann stefndi saman öllum æðstu prestum og fræðimönnum lýðsins og spurði þá: Hvar á Kristur að fæðast?
-5- Þeir svöruðu honum: Í Betlehem í Júdeu...
Ótrúlega margir halda því fram að vitringarnir hafi verið 3, tala þeirra er hvergi nefnd en gjafirnar voru 3, gull reykelsi og myrra.
Það er athyglisvert að vitringarnir fara beint til Jerúsalem þó að fæðingin eigi að eiga sér stað í Betlehem... Þeir sáu stjörnuna, fylgdu henni en fóru samt í ranga borg... kannski var það beinlínis ætlað til að Heródes spyrði æðstupresta gyðinga hvar Kristur ætti að fæðast.
Á þessum tíma voru flestir gyðingar það sem er kallað Díaspora, þ.e. gyðingar í dreifingunni... aðeins lítill hluti þeirra var í borgum. Gyðingar tóku ekki stjórnunarembætti og höfðu þess vegna ekki stjórnmálaleg áhrif og konungi stóð engin ógn af þeim. Aftur á móti hlýddu gyðingar æðstuprestum sínum þannig að það var betra fyrir konung að hafa æðstuprestana með sér.
Konungur gyðinga var aftur á móti embætti sem gat ógnað Heródesi konungi og lét hann því myrða öll sveinbörn, tvævetur og yngri í Betlehem og nágrenni.
Allt þetta hefði átt að vekja gyðinga til umhugsunar um að nú væri frelsari þeirra fæddur og að spádómarnir sem þeir biðu eftir að rættust, væru að rætast.
Trúmál og siðferði | Breytt 6.4.2009 kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2009 | 14:15
Guð sér fyrir öllu - Matt. 1.kafli
Höfundur guðspjallsins er talinn vera tollheimtumaðurinn Matteus (Matt 9:9) sem Markúsarguðspjall segir að sé einnig kunnur sem ,,Leví Alfeusson" (Mark 2:14).
Guðspjallið er sennilega skrifað á því tímabili sem Rómverjar lögðu musterið í eyði (70 e.Kr.) og virðist það vera beinlínis skrifað fyrir gyðinga með áherslu á að sanna fyrir þeim (með vitnisburði í Gt) að Jesús væri sannarlega Messías, sá sem þeir biðu eftir... þ.e. uppfylling spádómanna.
Það sem sker þetta guðspjall frá hinum er að Matteus er eini guðspjallamaðurinn sem notar hugtökin ,,kirkja" og ,,himnaríki."
Matteusarguðspjall er fremst guðspjallanna vegna þess að það er gyðinglegast. Þess vegna hefur það verið talið góð tenging frá Gamla testamentinu yfir í Nýja testamentið.
Að góðum og gildum ástæðum og að íslenskum sveitasið er nauðsynlegt að fyrir þá sem lesa að vita hverra manna aðalpersónan er.
Guðspjallið byrjar á ættartölu ,,Jesú" en ef betur er að gáð er þetta ættartala Jósefs, sem kristnir menn vita að er ekkert skyldur Jesú. Ættartala Jesú hefði verið mjög stutt... Guð gat Jesú, sem var einn getinn af honum, þ.e. einkasonur hans.
Matt.1;1 Ættartala Jesú Krists, sonar Davíðs, sonar Abrahams.
-16- og Jakob gat Jósef, mann Maríu, en hún ól Jesú, sem kallast Kristur.
Það segir að ,,áður en þau, María og Jósef, komu saman" var hún þunguð af heilögum anda. Þótt Jósef væri réttlátur maður ráðgerði hann að skilja við Maríu í kyrrþey... en engill Drottins vitraðist honum í draumi og hann tók Maríu til sín.
Samkvæmt hefðinni hefði María verið grýtt til bana ef það hefði uppgötvast að hún hefði orðið þunguð fyrir brúðkaupið. Það hefur því verið góð yfirhylming fyrir lengd meðgöngutímans, að María og Jósef þyrftu að fara burt og skrásetja sig í borg Davíðs... og að þau hafi flúið þaðan til Egyptalands.
Guð sér fyrir öllu, stóru sem smáu
Trúmál og siðferði | Breytt 21.4.2009 kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Áramóta-annáll fyrir árið 2024
- Kefl - Denver CO - Santa Fe NM 8-13.nóv 2024
- Kefl - Portland OR - WA - ID 19-27. sept 2024
- Kefl - Chicago IL og fl. 4-12. júli 2024
- Kefl - Raleigh NC - Bristol TN 20-27. mars 2024
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007