27.4.2015 | 00:32
Toledo OH - Detroit MI
Ég var skráð í maraþon hérna í dag en ég hætti við það. það gengur ekki að ætla að taka tvennu svona æfingalaus... svo við sváfum út, borðuðum morgunmat og keyrðum til Detroit.
Eftir að hafa tékkað okkur inn fórum við í smá búðarráp. Ég fann í hverju skrefi að það hafði verið rétt hjá mér að sleppa maraþoninu.
Við borðuðum á All American, enda erum við hálf amerísk... pökkuðum og slökuðum á.
Knights Inn, Romulus
9863 Middle Belt Rd. Romulus MI 48174
phone 734 946 8808 room 216
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2015 | 02:19
Louisville KY - Toledo Ohio
Það var grenjandi rigning þegar við vöknuðum, svo Lúlli ákvað að bíða á hótelinu. Ég fór því ein í maraþonið. Eftir maraþonið sótti ég Lúlla á hótelið og við keyrðum 300 milur norður til Toledo Ohio. Það rigndi megnið af leiðinni.
Við stoppuðum í Walmart um 5 leytið og fengum okkur kjúkling. Við komum á hótelið um kl hálf 10 um kvöldið. Vá hvað það verður gott að komast í sturtu og slaka á.
Days Inn, Toledo,
1800 Main Street, Ohio 43605
Phone: 419 666 5120 room 272
24.4.2015 | 22:16
Indianapolis IN - Louisville Kentucky
Við sóttum bílinn, fengum æðislegan van...og keyrðum um 130 mílur suður, stoppuðum aðeins á leiðinni til að vekja okkur. Byrjuðum á hótelinu,við gistum í IN þótt hlaupið sé í KY... síðan sóttum við númerið, fórum á Golden Corall og þá passaði að fara að græja morgundaginn.
Days Inn, Jeffersonville IN
354 E Boulevard, Jeffersonville IN US 47130
phone 812 288 7100 room 222
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.4.2015 kl. 02:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2015 | 00:58
Kefl - DC - Indianapolis IN
GLEÐILEGT SUMAR âº
Þetta verður langur dagur. Vaknaði kl 8 am til að vera tilbúin, mætt í Víðistaðakirkju um kl 10. það voru 7 börn fermd hjá okkur.
Ég var komin heim um hálf eitt og við brunuðum í Keflavík þar sem gamla "ástin" fékk dekur hjá Týra.
Við vorum orðin glorhungruð þegar við komum í betri stofuna. Vélin fór í loftið um kl 5 en það er 6 tíma flug til DC.
það er eins gott að hafa rúman tíma á milli fluga því taskan okkar kemur alltaf síðust og við lendum svo oft í "vesenis-biðröðum" Núna var langt á milli hliða og nauðsynlegt að hafa minnst 2 tíma... við höfðum 3... flug kl 10 á staðartíma með United.
Taskan sem við tékkuðum inn til Indianapolis kom til okkar með brotið handfang... við náðum varla að kvarta... konan fór bakvið og náði í glænýja tösku af svipaðri stærð og bauð okkur að skipta. Frábær þjónusta.
við vorum orðin ansi þreytt og tætt þegar við komumst loks á hótelið, hundfúl yfir að þurfa að borga 20 usd fyrir "fríu" hótelskuttluna.
Knights Inn, Indianapolis Airport south
4909 Knights Way, Indianapolis IN 46217
Phone 317 788 0125 room 200
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.4.2015 kl. 02:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2015 | 19:26
Raleigh NC - DC - Boston MA - Keflavik
Ég reyndi aldrei að rétta tímann við... og ég er orðin svo löt að ég nenni oftast ekki út eftir maraþonin í helgarferðum. Núna borðaði ég á Wendy´s út á horni áður en ég fór á hótelið... það kom ágætlega út. Eftir sturtuna, gekk ég frá dótinu, ég átti flug snemma og þurfti að vera búin að skila bílaleigubínum kl 8 am.
Morgunmaturinn var frá 6am og eftir það var bara að koma sér í flugið. Bíllinn var frá Hertz og ég flaug með United Airlines, fyrst til DC og þaðan til Boston.
Ég flaug síðan í fyrsta (og vonandi síðasta) sinn heim með WOW air. Ég gerði þeim ekki til geðs að kaupa aukaþyngd á handfarangur og var því aðeins undir 5kg takmarkinu. Vélin var stór og greinilega ný (Freyja) en um borð var ALLT selt nema súrefnið. Ég verð að segja að ég hef flogið þónokkuð mikið en ALDREI flogið með flugfélagi sem gefur manni ekki svo mikið sem vatnssopa eða kaffi.
Í þessari nýju flugvél var ENGIN afþreying... það var gert ráð fyrir að maður kæmi með sína eigin tónlist eða myndir á eigin skjátölvu. Það er kannski frekar hægt að þola það á heimleið af því það er næturflug en hlýtur að vera skelfing á leiðinni út. Alla vega vona ég að ég þurfi aldrei að ferðast með þeim aftur og myndi ekki mæla með WOW við neinn.
11.4.2015 | 18:01
Raleigh NC
Vélin lenti rétt fyrir miðnætti í nótt og ég hringdi eftir hótelskuttlunni... ég leit ekki á klukkuna þegar ég fór loks að sofa... Hótelið var rétt hjá flugvellinum, eftir morgunmat tékkaði ég mig út og notaði skuttluna til að fara á bílaleiguna... var komin með bílinn kl 8 am.
Ég dinglaði mér eitthvað, fann Walmart og Dollar Tree áður en í fór í expo-ið og sótti númerið mitt... þau eru alltaf frábær hjá R'N'R seríunni.
Þá er bara næsta skref að fá sé að borða, kaupa morgunmat og hringja heim í gegnum Viber.
Days Inn, 3201 Wake Forest Rd, NC 27609 US
Phone: 919-878-9310 room 170
11.4.2015 | 11:35
Keflavik - Boston - Raleigh NC
Þetta er helgarferð... eins og síðasta ferð og ég er aftur ein á ferð. Ég er ekki alveg orðin nógu góð í fætinum en ætla að fara og gera mitt besta. Það er ekki hægt að biðja um meira...
Það voru tæpir 3 tímar á milli fluga hjá mér í Boston og það mátti ekki vera minna. Þeir eru að setja allsstaðar upp vélar þar sem maður svarar sömu spurningum og á hvíta miðanum, vélin tekur fingraför og mynd og raðirnar eru hvíllíkt langar að ég hélt fyrst að ég myndi missa af fluginu til Raleigh.
Ég var ekki komin til Raleigh fyrr en um miðnætti og enn seinna á hótelið...
Days Inn, 1000 Airport blvd Morrisville, NC 27560
phone 919 8688 room 216
16.3.2015 | 00:56
Hilo - Honolulu - San Francisco - Seattle - Keflavik
Stutt stopp hjá Marathon Maniac í þetta sinn... og MJÖG langt ferðalag. Ég gisti í Seattle á leiðinni út en nú flýg ég 2 næturflug og tapa heilmiklum tíma.
Ég flýg fyrst til Honolulu og síðan næturflug til San Francisco, þaðan til Seattle og loks næturflug heim.
Þetta mun aðeins rífa í :/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2015 | 01:06
Hawaii - draumastaður allra
Ég er viss um að það er betra að koma hingað að sumri til. Hitinn hefur verið um 25 stig en það er töluverður vindur, enda er þetta eyja út í miðju hafi.
Síðast vorum við á Honolulu í 2 vikur... ég verð að segja að þessi hluti sem ég hef séð af Hilo er eins og eitt stórt fátækrahverfi miðað við Honolulu... enda held ég að þangað liggi ferðastraumurinn.
Það er 10 tíma munur á tíma miðað við heima og ég reyni ekki að rétta hann við. Á morgun sæki ég gögnin fyrir maraþonið.
13.3.2015 | 06:12
Seattle - Honolulu - Hilo Hawaii
Þetta hefur verið langt og strangt ferðalag. Ég vaknaði eldsnemma í morgun, langt á undan klukkunni. Svo var ég með allt tilbúið áður en ég mætti í morgunmat kl 6.
Ég tók flugrútuna kl 7:05 og það passaði ágætlega. Hawaiian Airlines var með 300 manna vél og það tók 45 mín að koma öllum í sætin sín. Flugið til Honolulu tók 6 og hálfan tíma, síðan var um 2ja tíma bið en flugið til Hilo var undir klst.
Mín var fljót að sækja bílinn og fara í Walmart. Ég náði mér í vatn, morgunmat og fl. fékk mér að borða og tékkaði mig svo inn á hótelið. Þá lenti ég í heljarinnar veseni að komast á netið því það komu alltaf villuboð í gegnum Google Chrome... Loksins gat ég fundið Explorer og komist inn í gegnum hann.
Hilo Seaside
126 Banyan Dr. Hilo Island, HI 96720
Phone: (808) 935-0821 room 26
12.3.2015 | 12:40
Keflavik - Seattle
Ég hef sjaldan tvístigið eins yfir neinni ferð eins og þessari. Í fyrst lagi hef ég aldrei farið svona í ökklanum eins og ég gerði í síðustu ferð og í öðru lagi gat ég aldrei "gleymt" honum og var alltaf að vanda mig... og svo gat ég ekkert æft.
Það var á síðustu stundu sem ég ákvað að fara og nú er ég komin til Seattle eftir nærri 8 klst flug. Þar sem ég er bara með handfarangur þá var ég fljót út og komin á hótelið eftir klst. Ég svaf ágætlega í nótt, vaknaði auðvitað allt of snemma því það er 7 tíma munur, en ég á flug til Hawaii kl 8:45.
Hilton Airport and Conference Center,
17620 Pacific Hwy South Sea Tec 98188
Phone: +1206 244 4800
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2015 | 01:57
New Orleans LA - New York - heim
Við gistum aðeins 2 nætur á Midtown motel... og það var meira en nóg fyrir okkur. Við erum ýmsu vön en þetta mjög óþægilegt. Ég held að SÍMI á herbergi sé með fyrstu atriðum sem maður óskar eftir... ömurlegt að þurfa stanslaust að fara niður ef eitthvað var að eða spurning vaknaði.
Morgunmatur er ekkert MUST þegar ég er að fara í hlaup - því ég verð að borða minn mat um miðja nótt og Lúlli getur alltaf fengið sér eitthvað... Við komum seint á laugardegi, ég hljóp á sunnudeginum og fórum snemma á mánudagsmorgni...(26.jan)
Lúlli var búinn að sjá óveðursspá fyrir New York-svæðið á mánudag og hafði áhyggjur af því hvort við kæmumst heim... en við fórum með stórri vél frá Delta til New York og Icelandair hélt sinni áætlun. Þó mörg flug hafi verið felld niður þennan dag, þá komumst við heim... lentum klst seinna en áætlað var.
Við ætluðum að prófa strætó frá Keflavík, en Harpa sótti okkur upp á völl og keyrði heim. Takk fyrir góða þjónustu :D
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2015 | 00:50
Baton Rouge - New Orleans LA
Við tékkuðum okkur út snemma því við ætluðum að fara á Golden Corral í morgunverðarhlaðborð. Það er æðislegt að byrja daginn á baconi, eggjum, ommilettu, vöfflu og öllu mögulegu Ummm, namm
Það voru svo um 80 mílur niður til New Orleans. Við byrjuðum á því að ná í gögnin fyrir hlaupið, fórum svo á startið og síðast á hótelið. Ég held ég myndi forðast í lengstu lög að velja þetta hótel aftur þó það sé ágætlega staðsett Annars er kannski ekki sanngjarnt að dæma eftir útlitinu og starfsfólkið getur ekki gert að því að næstum allt er bilað og þjónusta eiginlega ENGIN. Síðast þegar við vorum í New Orleans var það stuttu eftir eyðilegginguna eftir fellibylinn Katrínu og allt í rúst en nú er allt að byggjast upp.
Hverfið er ekki það besta, herbergið er svosem ágætt en það er ekki einu sinni sími á herbergjunum. Við vorum á þriðju hæð, fyrst virkuðu lyklarnir ekki, svo áttum í vandræðum með internetið og sjónvarpsfjarstýringin var batteríislaus
allt kostaði sér ferð niður fyrir mig
við reyndum að fá betra herbergi sem var svo verra og við fórum til baka.
En hér er þvottavél fyrir gesti það er plús
að þvo eftir hlaupið á morgun... en þegar ég ætlaði að nota hana var peningaskiptirinn bilaður og konan í afgreiðslunni yppti bara öxlum.
The Midtown Motel
3900 Tulane Avenue, New Orleans (Louisiana), LA 70119, USA
Phone +15042185984
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2015 | 03:06
New York - Louisiana
Hótelið í New York var ágætt, snyrtilegt og með góðan morgunmat... Ein nótt í New York nægir okkur - borgin er ekki í uppáhaldi hjá okkur... Það er mjög þægilegt að flugvallar-hótelin eru með skuttlur til og frá JFK.
Við áttum flug með JetBlue til Louisiana um kl 3 eh. Flugið var tæpa 4 tíma svo það var komið myrkur þegar við fengum bílinn hjá Budget í New Orleans. Þá áttum við eftir að keyra til Baton Rouge. Hér verðum við í rúma viku.
Knights Inn Baton Rouge,
9919 Gwenadele Ave, Baton Rouge, LA 70816 US
Phone Number : 1-866-460-7456, room 123
16.1.2015 | 02:15
Keflavík - New York
Við höfum haft gesti í viku, Bryndísi Líf og fjölskyldu og það var svolítið skrítið að skilja gestina eftir heima og fara sjálf erlendis.
Planið hjá okkur var að prófa strætó en Símon þurfti að fara í Keflavík og hann skuttlaði okkur í leiðinni... og skaphundinum í Vogana í bakaleiðinni.
Við vorum snemma á ferðinni og fengum okkur að borða í betri-stofunni. Við gistum eina nótt í Jamaica í Queens nálægt JFK... á leiðinni til New Orleans...
Howard Johnson
15395 Rockaway Boulevard
Jamaica (New York), NY 11434
Sími: +17187236700
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007