Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
11.12.2008 | 09:04
Komin heim
Við komum heim í morgun, lentum kl 6:10 í Keflavík. Við fórum út af hótelinu um hádegi á þriðjudag, flugum næturflug til Boston (4:30 klst) lentum þar kl. 7 um morguninn...
Vegna þess hve langt var á milli fluga urðum við að taka töskurnar og bíða í 10 klst. á flugvellinum eftir að geta tékkað okkur aftur inn. Þegar við höfðum gert það fórum við á Priority Pass inn á betri stofu...þar sem átti að vera matur og drykkur... meiri drykkur - smá kökunasl... gott að við vorum með nesti með okkur.
Flugið heim var kl. 8:35 í gærkvöldi og flugtími 4:10. Tvö næturflug taka aðeins á... Pabbi og mamma sóttu okkur á völlinn. Ég svaf sirka 1 klst í hvoru flugi og er orðin svolítið drusluleg. Ætla samt að hanga uppi í dag til að snúa strax á íslenskan tíma. Nú er ég búin að taka upp úr töskunum og ganga frá dótinu og farin að þvo þvott - ekki veitir af
10.12.2008 | 05:08
Það er allt hægt !
Við eyddum síðasta deginum okkar í Las Vegas, við að skoða nokkrar stórkostlegar byggingar við Las Vegas Blvd.-The Strip.
Við byrjuðum á glæsilegu hóteli með jólaþorpi en í garðinum fyrir framan var vígt vatnsorgel í gærkvöldi.
Í gær voru reyndar líka opnuð ný bílastæði við hið fræga kennimerki Las Vegas... skilti sem ferðamenn láta oft mynda sig við. Vegna bílastæðavandamála hafa orðið slys og oft legið við slysum við staðinn.
Við fórum ekki þangað
Síðan skoðuðum við The Planet Hollywood Miracle Mile... þegar við gengum um inni í húsinu, var eins og við værum úti á götu í Austurlöndum... það kom þrumuveður og rigndi í miðjunni... okkur fannst það reyndar ekkert sniðugt
Þaðan fórum við á Mandalay Bay og skoðuðum spilasalina með allri ljósadýrðinni. Það kostar ekkert að skoða
Síðasta húsið sem ég dró hinn fótalausa Bíðara nr. 1 inní, var ,,The Venetian"
Það var ótrúlegt að sjá...
á annarri hæð í húsinu, var umhverfið eftirlíking af Feneyjum...
Þarna sigldu um gondólar og menn sungu ,,O sole mio"
ÞAÐ ER GREINILEGA ALLT HÆGT
Þarna er ég komin ,,til Feneyja"
Nú sit ég og blogga á flugvellinum í Vegas, flugvélin sem á að flytja okkur til Boston er komin.
Hér eru spilakassar út um allt... JUST IN CASE... ef einhver ætli nú með peninga burt
Það hafa verið spilakassar á hverju strái, í Albertson, Wal-Mart og hvaðeina...
hér eru meira að segja spilakassar við töskufæriböndin...
Nú kveðjum við Borg Ljósanna eða ,,borg syndarinnar" eins og Bragi sagði að Las Vegas væri kölluð... ég hefði alveg viljað vera lengur
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 06:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 15:17
Heimferðin
Heimferðin verður svolítið strembin... þar sem við tökum 2 næturflug.
Við tékkum okkur út af hótelinu okkar kl 11 í dag. Við ætlum að skoða okkur betur um... m.a. Mandala Bay, hótelið þar sem ég sótti gögnin og maraþonið byrjaði fyrir utan og svo ætlum við að skoða gamla bæinn. Við þurfum að ganga núna endanlega frá farangrinum.
Við þurfum að skila bílaleigubílnum um kl 8 í kvöld og eigum flug til Boston um miðnætti. Það er 4 tíma munur og svipaður flugtími þannig að við lendum þar í fyrramálið... og svo eigum flug heim um kvöldið.. þ.e. annað kvöld. Tæknilega séð, komum við heim eftir 2 sólarhringa, þegar þetta er skrifað.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 23:16
Hoover Dam, Nevada-Arizona
Þetta var menningardagurinn okkar í dag.
Við renndum til Hoover Dam
Þegar ég hljóp Grand Canyon Maraþonið langaði mig svo rosalega til að skoða bæði Hoover Dam og loftsteininn í Flagstaff, en hin nenntu ekki að keyra þangað...
Nú rættist sem sagt draumurinn að sjá stífluna.
Núna standa yfir rosalegar framkvæmdir... það er verið að byggja svakalega brú yfir gilið... sem þýðir auðvitað að,
NÚ ER ÁSTÆÐA TIL AÐ KOMA AFTUR SEINNA...
Ég sá að stíflan var byggð frá 1931-36 svo þetta hefur verið svakalegt mannvirki á sínum tíma. Ég sá ekki fylkismörkin máluð þvers... á miðri brúnni, eins og ég hef séð í nokkrum bíómyndum.
Eftir ævintýrið við Hoover Dam, tók Bíðari nr.1 nokkrar myndir af götunni sem hótelið okkar er við...
Las Vegas Blvd.... The strip
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2008 | 03:07
Las Vegas, Nevada
Við kvöddum Redondo með tárum... borðuðum morgunmat á Home Town Buffet og keyrðum þaðan til Las Vegas. Það voru um 400 mílur þangað.
Garmurinn átti ekki í neinum vandræðum með að finna hótelið okkar... og við fórum strax að ná í gögnin fyrir hlaupið á morgun. Auglýsingin fyrir hótelið sagði að það væri þráðlaust net... en það er víst bara í lobby-inu... svo ég sit þar og blogga.
Econo Lodge, 1150 Las Vegas Blvd. So.
Phone (702) 382-6001 Room 153
The Econo Lodge® hotel is ideally located on the famous Las Vegas Strip, only one mile from downtown Las Vegas and the Fremont Street Experience, featuring five blocks of fun, shops, casinos, and a 90-foot-high light and sound show every night.
This Las Vegas hotel is only five miles or less from many major casinos and attractions including the Las Vegas Convention Center, the Fashion Show mall, the Thomas & Mack Center arena and the University of Nevada, Las Vegas (UNLV). The McCarran International Airport is less than seven miles away.
Ferðalög | Breytt 8.12.2008 kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2008 | 16:26
Hótel Jonna, Redondo Beach
Við förum héðan um hádegið, við hefðum viljað vera lengur hjá öðlingunum, vinum okkar og frændfólki mínu en... við verðum að halda áfram förinni. Við keyrum niður til Redondo Beach á ,,HÓTEL JONNU" besta hótel í heimi.
Takk takk, elsku Jonna að lána okkur íbúðina
Við verðum bara eina nótt þar... nú er tíminn farinn að styttast. Snemma á laugardagsmorguninn keyrum við til Las Vegas og ég hleyp þar á sunnudag... ég hef ekki netsamband í Redondo og verð því ekki ,,í sambandi" strax.
á é í ú ó ý ð þ Þ æ ö Ú Ó Ð
Ferðalög | Breytt 7.12.2008 kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2008 | 00:08
Í Santa Barbara
Við lentum í 5 og 1/2 tima töf á flugvellinum í Seattle og komum því ekki til Long Beach fyrr en um kvöldmat. Gunna systir Óla var mætt og það áttu sér stað vöruskipti... hún fékk lambahrygg frá mömmu sinni en við tökum hunda-undirfeldssköfur heim i staðinn fyrir Hörpu.
Við ætluðum með rútu til Redondo Beach, en það fór allt í vaskinn... orðið dimmt, enginn vissi neitt þarna og við þreytt eftir alla töfina svo það endaði með að við tókum leigubíl.
Mikið var gott að koma ,,heim" til Redondo. Eftir að hafa skilað af okkur töskunum og hringt til Santa Barbara til að láta vita af okkur - löbbuðum við út í Albertson og keyptum okkur eitthvað í svanginn... ég komst ekkert á netið, allir í húsinu komnir með adsl.
Morguninn eftir kysstum við ströndina og bryggjuna og slöppuðum af. Um kvöldmat tókum við strætó upp á flugvöll og náðum í bílaleigubílinn.
HELLO... CALIFORNIA HERE WE COME.
Í dag keyrðum við síðan til Jonnu og Braga... vina okkar, öðlinganna og höfðingjanna í Santa Barbara.
PS... Við höldum alltaf að við séum konungborin þegar við komum hingað
á é í ú ó ý ð þ Þ æ ö Ú Ó Ð
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2008 | 14:26
Kveðjum Seattle fyrir hádegi... :)
Jeminn, hvað við erum fegin að fara héðan. Við höfum verið að tala við fólk um veðráttuna hérna, í gærkvöldi var þvílík svartaþoka að við áttum í vandræðum með að keyra til komast í mat.
Fólk segir að það snjói kanski 2svar á ári en það taki fljótt upp... í staðinn er endalaus rigning og þokumistur yfir öllu.
Í stuttu máli er fátt sem okkur finnst heillandi fyrir staðinn, vegakerfið minnir á kaosið í Boston og vegir mjög slæmir. En alls staðar sem við förum er fólkið sjálft mjög vingjarnlegt, hjálplegt og kurteisin í umferðinni til fyrirmyndar
Um 11 leytið eigum við flug til Long Beach, Californíu og við getum varla beðið okkur hlakkar svo til
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007