Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
31.12.2008 | 13:01
Áramótakveðja
Gleðilegt ár
til ættingja, vina og allra sem við þekkjum.
Takk fyrir allt gamalt og gott.
Hittumst heil á nýju ári, blessuð af gjöfum og lífsgæðum... lærum, göngum, hlaupum og ferðumst saman og njótum þess að vera til.
Drottinn blessi þig og heimili þitt
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 12:49
Komin til Orlando
Flugið var 7 tímar og 20 mínútur. Ég horfði á 3 bíómyndir Shrek 3, Walk the line og Narnía. Icelandair hefur skipt um flugvöll hér eins og á fleiri stöðum og við lentum um 45 mílum frá hótelinu sem við gistum á. Eftir langt flug var því smá keyrsla eftir fyrir okkur. Miðað við vegalengdirnar í Ameríku, þá er þetta ,,rétt hjá"
Við fórum því fljótlega að sofa þegar við loksins fengum herbergið okkar, við vorum víst ,,yfirbókun" og okkur var komið fyrir á næsta hóteli við hliðina.
Í dag leggjum við af stað til Jackson
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2008 | 23:50
Til hamingju Sigurður Bragi
Vá, hvað tíminn er fljótur að líða
+ sinnum 10 = 20 knús, má ekki minna vera.
Sigurður Bragi á STÓRafmæli í dag 29.des, orðinn tvítugur strákurinn... ekkert smá hvað tíminn er fljótur að líða.
Til hamingju með afmælið, elsku Sigurður Bragi okkar.
Við afi óskum þér alls hins besta og biðj-um að þér gangi allt í haginn í framtíðinni.
Afmæliskveðjur | Breytt 29.12.2008 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2008 | 16:58
Erum að ferðbúast
Það var heldur mikið kæruleysi í gangi þegar við fórum út síðast, taskan var sótt fyrir hádegi, einhverju dóti hent í og keyrt út á völl kl. 2.
Við höfum alltaf ferðast ,,létt" og samt farið með of mikið. En maður getur nú ekki vitað nákvæmlega hvað maður þarf og betra að hafa aðeins of mikið með sér.
Hótelin sem við tökum eru yfirleitt með aðgangi að þvottavél, sem er ofboðslega þægilegt, sérstaklega þægilegt að geta þvegið hlaupadótið og nú orðið heyrir það til undantekninga að við komum heim með eitthvað skítugt.
Við fljúgum til Flórida eh. á þriðjudag og Gullið var í fyrra fallinu núna, sótti töskuna út í geymslu í gær. Við verðum 4 vikur úti í þetta sinn... gaman gaman...
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2008 | 12:53
Hjálp að fá, hvenær sem er
Jólin eru alltaf jafn helg í mínum huga. Það fer gleðistraumur um mig þegar jólaguðspjallið er lesið og jólasálmarnir sungnir.
Þessi jól hafa verið öðruvísi en vanalega... í fyrsta lagi var okkur boðið í mat á aðfangadagskvöld. Við fengum æðislega jólasteik og nú voru teknir upp pakkar með barnabörnum í Vogum. Það er langt síðan við höfum séð pakka rifna upp með látum
Um kvöldið þegar við komum heim, fór ég að finna fyrir eirðarleysi og kláða í fótum og klst seinna var ég orðin viðþolslaus... og stokkbólgin á ökklunum, sofnaði loks kl 4 um nóttina. Ég reyndi að lifa af á jóladag, en þá fór mig að klæja á fleiri stöðum, frá úlnlið og upp handlegg, á hálsi, í hári... hreinlega allsstaðar.
Þegar ég sá fram á svefnlausa nótt hringdi ég á vaktina og rétt slapp þangað inn fyrir 11:30. Þeir gáfu mér sterkar ofnæmistöflur og ég keyrði heim. Á leiðinni versnaði ég aftur en harkaði af mér... og náði að sofna.
Vaknaði kl 4:30 um nóttina vegna verks í vinstri hendi sem var orðin stokkbólgin. Þá ákvað ég að reyna ekki að berja þetta af mér og var komin inn á slysavarðstofu kl 5... Fékk enn sterkari ofnæmistöflur til að taka samhliða hinum og sterakrem.
Vona að þetta dugi ... en það er dásamlegt hvað við erum heppin hér... hægt að fá hjálp á hvaða tíma sem er, hvort sem það er heilög hátíð eða hánótt.
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.12.2008 kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2008 | 14:30
Gleðileg Jól
Jólakveðja
Óska ættingjum og vinum
nær og fjær,
gleðilegrar jólahátíðar
og
farsældar á komandi ári.
Guð blessi ykkur öll.
23.12.2008 | 19:43
Hvað voru vitringarnir margir?
Ég varpaði þessari spurningu fram, þegar við systur vorum að föndra jólakúlur um daginn. Hvað voru vitringarnir margir?
Ekki stóð á svörunum, allar sammála um að þeir hafi verið 3... og vitnuðu meira að segja í Biblíuna.
Matt 2:1
Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs, komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem
Matt 2:11
þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu, móður þess, féllu fram og veittu því lotningu. Síðan luku þeir upp fjárhirslum sínum og færðu því gjafir, gull, reykelsi og myrru.
Það er oft þetta einfaldasta sem fellir okkur... Eitthvað sem við höfum bitið í okkur og myndum standa á því föstum fótum að væri rétt... en sannleikurinn er sá að tala vitringanna er hvergi nefnd - aftur á móti eru gjafirnar þrjár, gull, reykelsi og myrra.
17.12.2008 | 19:54
Allra hagur...
Sem krakki man ég eftir sjoppueiganda og sundlaugaverði sem voru af erlendum uppruna. Sjoppueigandinn talaði slagfæra íslensku... varð kanski að gera það svo það væri hægt að versla við hann en hinn danski sundlaugavörður var búinn að búa til sitt eigið tungumál, sem ég held að hvorki Danir eða Íslendingar hefðu skilið þó lífið lægi við...
Tengdamamma mágkonu minnar reyndi hins vegar aldrei að læra íslenskuna, þó hún væri búsett hér í fjölda ára... svo það er nauðsynlegt að ýta við fólki. Það er nauðsynlegt að setja kröfur, því eftir allt saman er auðveldara fyrir fólkið sjálft að fóta sig hér, ef það lærir málið.
Íslenskupróf skilyrði fyrir ríkisborgararétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.12.2008 | 10:39
Röng ályktun?
Hvernig geta fræðimenn haldið því fram að færri umferðarslys verði vegna lengri svefntíma... fækkunin gæti alveg eins stafað af því að umferðarálagið hefur minnkað... En það er nokkuð sem er vert að hugsa um, amk hér á landi þar sem stefnan virðist vera sú að tefja umferðina sem mest með alls kyns hossum og þrengingum og fólk fer að taka alls kyns sénsa í tímahraki.
Breyttur skólatími myndi vera breytt álag í umferðinni... ég hef enga trú á að unglingar fari að sofa lengur, mín reynsla hefur verið sú að unglingar vaki lengur ef þeir eigi að mæta seinna í skólann.
Seinkun skóladagsins fækkar bílslysum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2008 | 12:51
Allt að komast í samt lag
Ég er búin að vera lengi að jafna mig eftir þessi næturflug. Við vorum 2 sólarhringa á leiðinni og allt virtist fara í rugl við þetta. Við þurfum að jafna okkur á svefnleysi og 8 tíma tímamun.
En nú hlýtur þetta að komast í samt horf
Ég er búin að skila af mér því dóti sem ég tók með heim fyrir aðra, koma einhverju í verk og heilsa upp á einhverja... en hef ekki hlaupið enn... tek hring á morgun.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007