Færsluflokkur: Umhverfismál
5.7.2009 | 20:53
Dýrðardagur í dag
Það var rigning í morgun, DAGUR fyrir innivinnu :) og maðurinn hélt myndarskapnum áfram - búinn að mála herbergið. Næst er að kaupa og setja saman fataskápa.
Á morgun er planið að ég sjái áfram um almannatengsl og fari á Esjuna á morgun með börnum og barnabörnum. Þar verða sumir hetjur í annað sinn. Það er gríðarlega mikilvægt í svona ferðum að hafa mikið nesti og taka sér góðan tíma. Spáin er góð... en það er jafn nauðsynlegt og nestið.
16.6.2009 | 21:55
Hagerstown MD - Allentown PA
Við keyrðum á sunnudag frá Logan WV til Hagerstown MD, gistum þar 2 nætur... Við ætlum ekki að keyra svo langt, það gerðist bara. Eini sólardagurinn í WV var á meðan ég hljóp og við fengum steikjandi hita í gær í Hagerstown... annars hefur verið skýjað. Í dag (þriðjudag) keyrðum við til Allentown PA.
Á leiðinni þangað skoðuðum við Crystal Cave...
http://www.crystalcavepa.com/
Crystal Cave Video Tour
Þetta er hellir sem ég hef átt bækling um í mörg ár og taldi spennandi að skoða. Hellirinn var síðan frekar lítill og lítið að sjá... kannski vegna þess að ég hef skoðað svo marga stóra og glæsilega hella hér í Usa...
Eftir að hafa tekið okkur hótel í Allentown, fórum við á The Old Country Buffet... það var komið að því... frábært.
Super 8
1033 Airport Road Allentown, PA 18109 US
Phone: 610-434-9550, room 234
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.6.2009 | 23:28
Logan, Vestur Virginíu
Við erum í Logan og keyrðum til Williamson sem er við fylkismörk Kentucky og West Virginia. Hér er hrikalegt landslag. Fjöll og dalir með trjám frá ,,toppi til táar"... Hlýtur að hafa verið erfitt fyrir þá fyrstu að ferðast hingað.
Í Williamson var Hatfield-McCoy Reunion Festival, þar sem ég hljóp maraþon í dag.
Afkomendur Hatfield og McCoy voru mættir með rifflana sína, veðrið var frábært - of gott fyrir maraþon í frumskógarstígum og lognmollu milli trjánna.
Kaninn hefur greinilega ekki áhyggjur af umhverfismati... allar línur á staurum og greinilega ekkert mál að sníða af þessum fjöllum til að gera almennilega vegi... og mættu fleiri huga að hvort öryggi fólksins sé ekki meira virði en útlit umhverfisins.
12.6.2009 | 17:21
Keflavík - New York - Hagerstown MD - Logan WV
Við nýttum okkur í fyrsta sinn morgunflug til New York. Komum út um hádegið og fengum bílinn um kl.1 eh. Við erum á leiðinni til West Virginia... umferðin var auðvitað klikkuð á Manhattan en um leið og maður var kominn á Highway komst maður í gang.
Við keyrðum í 7 og 1/2 tíma (281 mílur) og gistum á sexu í Hagerstown MD. Þá kom hvílíkt úrhelli að maður sá ekki fram fyrir bílinn. Sexurnar eru netlaus kvikindi... og við þreytt, svo það var farið fljótlega að sofa.
Ekkert net og enginn morgunmatur... þannig að við vorum lögð af stað fyrir 7 í morgun. Keyrðum um 350 mílur í dag og komum til Logan WV í hádeginu. Það rigndi hressilega öðru hverju á leiðinni... en leiðin lá í gegnum fjöll og dali með trjám á báða bóga.
Við rennum niður í Williamson sem er við fylkismörk Kentucky og West Virginia og sækjum gögnin fyrir maraþonið á eftir.
Super 8 Logan
316 Riverview Ave, Rt 119 S, Logan, WV
phone: 304-752-8787 Room 118
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 11:27
Friðum kengúrur...
Ástralir ósáttir við hvalveiðar Íslendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.2.2009 | 19:33
Vonbrigði...
Æj... þetta eru mikil vonbrigði, en hvað um það, það þýðir ekki að deila við dómarann. Ég hafði svo sannarlega vonað að Íslendingarnir OKKAR kæmust alla leið á endastöðina. Svona ævintýraferð krefst ógurlegs undirbúnings, en enginn getur ráðið við veðrið.
Eitthvað hafa hitatölurnar skolast til því samkvæmt veðri Yahoo á Mbl.is er 22°c frost eða -7 á Farenheit í Nome.
http://weather.yahoo.com/Nome-Alaska-United-States/USAK0170/forecast.html
Hætt keppni í Alaska | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | Breytt 12.2.2009 kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2009 | 00:52
Aftur komin til Orlando
Það var 4 klst keyrsla frá Miami til Orlando. Um leið og garmurinn sendi okkur norður 27... mundi ég að ég hafði ekki ætlað að keyra þessa leið til Orlando... ég ætlaði norður 95. Þá keyrir maður í gegnum fleiri og stærri bæi og meira að sjá... við keyrðum 95 til Miami þegar við vorum hérna 2005.
27 aftur á móti er hundleiðinleg-ur vegur, svipað og Fimman í Kaliforníu. Við forðumst hana eins og heitan eldinn... 101 er miklu skemmtilegri. Eins og ég bloggaði um suðurleiðina þá er mengunin á þessari leið ekkert venjuleg.
Og við stóðumst ekki að taka mynd af einni mengunarverksmiðjunni... en frá henni lá stórborgarslæða sem sést kannski ekki vel á myndinni... og þó, það sést ekki í bláan himininn nema efst á myndinni.
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2009 | 01:34
Key West, syðsti oddi Florida.
Við tékkuðum okkur snemma út, ætluðum að láta það ráðast hvort við fengjum hótel eða mótel í Key West, látum það ráðast hvar við gistum næstu nótt.
Á kortinu er lengsti hluti leiðarinnar merktur með rauðri línu, sem þýðir ein akrein í báðar áttir... í Ameríku heitir það sveitavegur.
Leiðin var ca 130 mílur og mestan hluta leiðarinnar var 45-55 mílna hámarkshraði... Ferðin sóttist því hægt, en þeim mun meira að sjá á köflum. Eyjur með brýr á milli og á einni þeirra stóð að brúin væri 7 mílur.
Það voru nokkrir bæjir á leiðinni niður eftir, Key Largo, Tavernier, Islamorada, Marathon, Big Pine Key og Key West. Allsstaðar gengur allt út á ferðamanninn, matsölustaðir, minjagripir, bátaleigur og mótel.
Við stoppuðum aðeins á leiðinni, það var sól en aðeins svöl gola. Þegar við komum niður á syðsta oddann, kíktum við á bryggjuna, hér er bátaflóran gígantísk...
Lúlli lét mig auðvitað vita hverju hann fórnaði fyrir allar hlaupaferðirnar... já, ég veit það, honum hefur alltaf langað í spíttbát
Við fengum okkur að borða, skoðuðum gamlar byggingar og þröngar götur... og tékkuðum á hótelverði...
MAN... hvað það er dýrt að gista hérna... varla undir 20.þús. nóttin...
Við tímdum ekki gista þarna, notuðum daginn bara til að skoða umhverfið. Við erum nú vön því að sjá allar rafmagns-línurnar hérna í Usa en í Key West eru þær ótrúlega fyrir-ferðarmiklar í umhverfinu, fólk er hreinlega með rafmagns-möstrin inní garði hjá sér.
Við keyrðum svo til baka, á sama mótelið sem við vorum á síðustu nótt.
Á morgun eigum við pantað á Days Inn í Miami... 3 nætur í kringum næsta maraþon.
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 23:49
Vitibornir mótmælendur :)
Það var gleðilegt að heyra að mótmælendur eru ekki svo blindaðir í reiði sinni að þeir taka skynsamlegum tilmælum.
Í þessum mótmælum kemur saman blandaður hópur manna... margir með sérþekkingu eins og þessi sjúkraliði... hann gerði sér grein fyrir hættunni og sté fram... mér finnst það aðdáunarvert af honum.
Það er líka hættulegt að kveikja eld á götunni og ég er ekki viss um að þeim liði vel á eftir sem bryti glugga í Alþingishúsinu og glerbrotið skæri einhvern illa...
Lögreglumennirnir sem reyna að halda mótmælunum ,,í böndum" eru menn sem eru að vinna vinnuna sína. Þeir eru í erfiðri aðstöðu... sjálfir skulda þeir, auðvitað hafa þeir skoðun á málunum en þeim er gert að vinna sitt starf... mótmælendur ættu að taka tillit til þess.
Hættið að kasta sprengjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 22:52
Florida City - Homestead
Við keyrðum frá Orlando í morgun og niður eftir miðjum Floridaskaganum. Áfangastaðurinn er Key West á morgun... Okkur hlakkar til... sólin skín... við, Íslendingarnir erum á bolnum, aðrir eru að þvælast í einhverju meira...
Okkur blöskraði nú mengunarskýin hérna á leiðinni... ef einhverjir kanar voru í hópi þeirra sem komu til að berjast í nafni Saving Iceland... þá ætti að benda þeim á að byrja hér... heima hjá sér.
Við fundum okkur Mótel í Florida City á viðráðanlegu verði... nú er allt svo dýrt, þegar dollarinn er himinhár. Héðan eru ca 130 mílur niður á ysta enda... KEY WEST
Svo fórum við út að borða... í tilefni af afmæli pabba gamla við erum orðin svo "ameríkönsk" notum öll tækifæri til að fara út að borða
Country Lodge, 651 N. Crome Ave, Florida City 33034
Phone 305 245 2376 Room 104
Umhverfismál | Breytt 22.1.2009 kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007