Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
16.1.2012 | 16:37
Tvö næturflug heim. AZ - MA - IS
11.1.2012 | 15:09
Los Angeles - Santa Barbara :)
I LOVE IT
Hvílík dásemd. Flugið frá Orlando til Los Angeles var 5 klst. Við höfðum upphaflega keypt hundódýrt flug til San Diego með millilendingu í LA... og fórum bara út þar. Delta var ekki eins liðlegt og jetBlue að merka töskurnar til LA og merkti þær til San Diego. En konan í týndu-tösku-vandræða-deildinni í LA lét sækja þær fyrir okkur :)
Við sóttum bílaleigubílinn og keyrðum til stór-vina okkar í Santa Barbara
Þar urðu fagnaðarfundir. Það er svo dásamlegt að heimsækja þau Jonnu og Braga. Við tókum því bara rólega, enda vöknuðum kl 3:30 síðustu nótt og svo er 3-4 tíma munur á tíma hér. Við fórum því snemma að sofa í gær og vöknuðum fyrir allar aldir í morgun.
Í Santa Barbara biðu okkar nokkrir pakkar...
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.1.2012 kl. 01:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2012 | 21:06
Fljúgum til Los Angeles í fyrramálið
9.jan mánudagur
Síðasti dagurinn í Orlando. Í stað þess að borða morgunmat á hótelinu, þá ákváðum við að borða öll saman á Golden Corral
frábært. Síðan var búðarráp
við Lúlli vorum bara dugleg, hann fékk sér stakan jakka og skó og ég fékk mér kjól, 2 toppa og tvenna skó
ég toppa hann alltaf ;)
Um miðjan dag fórum við til baka, til að pakka. Við eigum flug til LA kl 7 í fyrramálið.
4.1.2012 | 17:06
Keflavik - Orlando
Við flugum til Stanford Orlando í gær.... maður minn þetta voru 7 tímar og 45 mín. ég var orðin rosalega þreytt... fyrir utan það að ég hélt að ég væri að verða veik á leiðinni... Fékk rosalegan höfuðverk - sem varð til þess að ég horfði bara á eina bíómynd.
Þegar við vorum lent biðu Freddie og Carroll eftir okkur. Þau keyrðu Eddu, Emil og Ingu Bjartey á hótelið og okkur Lúlla að sækja bílinn á hinn flugvöllinn. Bíllinn var þrisvar sinnum ódýrari þar.
Days Inn
5827 Caravan Court Orlando.
17.11.2011 | 03:49
Erfitt að kveðja kæra vini
Það var erfitt að kveðja okkar kæru vini í dag. Við höfum átt dásamlegan tíma með öðlingunum og höfðingjunum Jonnu og Braga. Hin fátæklegu orð: TAKK FYRIR OKKUR KÆRU VINIR
lýsa engan veginn þakklæti okkar til þeirra
Þessi heimsókn hefur verið einstaklega skemmtileg, ekki af því að við höfum farið svo mikið, heldur af því að við höfum skemmt okkur svo vel saman. Helsta áhyggjuefni mitt var að við myndum þreyta höfðingjana því allir vita að það er álag að hafa gesti.
,,Síðasta kvöldmáltíðin" var borðuð í gær á Fess Parkers Doubletree. Við Lúlli fengum okkur Natural Prime Ribeye... Kokkarnir þar kunna svo sannarlega að velja bita og steikja mátulega, því þetta er besta steik sem ég hef á ævi minni smakkað... Þvílíkt lostæti...
Ummm ég fæ vatn í munninn við tilhugsunina.
Í morgun borðuðum við með Jonnu og Braga á IHOP áður en við lögðum í hann. Þetta var erfið kveðjustund og við keyrðum í burtu með tárin í augunum - ákveðin í að koma fljótt aftur
Við stoppuðum í Walmart og Target að útrétta það síðasta og renndum síðan á hótelið. Það er öruggt að ég get mælt með því, nálægt LAX, mjög snyrtileg og rúmgóð herbergi og sanngjarnt verð.
Value Inn Worldwide LAX
4751 W Century Blvd., Inglewood, CA 90304
phone 1-310-491-7000 room 303
Verð að setja inn myndir þegar ég kem heim
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.11.2011 kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2011 | 02:33
Komin ,,heim" til Santa Barbara aftur
Föstudagur...
Við lögðum af stað frá Redondo um 11 leytið. Komum við í Malibu og sóttum númerið fyrir maraþonið á sunnudag... keyrðum á startið í Camarillo og fórum þaðan að sækja gögnin fyrir maraþonið í Santa Barbara sem er morgun. Þegar við komum til Jonnu og Braga var okkur fagnað eins og við hefðum verið að koma frá Íslandi. Jonna bauð okkur á Codys í kvöldmat... en áður en við fórum þangað keyrðum við þangað sem markið er...
Síðan var bara að græja sig fyrir morgundaginn, taka til föt, setja flögu á skóinn, númerið klárt og fara snemma að sofa. Bragi ætlar með okkur á startið
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.11.2011 kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2011 | 16:51
Dekurdagar í Santa Barbara
Við liggjum hér í baðmullarhnoðra... og eigum sannkallaða dekurdaga hjá höfðingjunum Jonnu og Braga. Þau eru alveg sérstök heim að sækja og erfitt að endurgjalda dekrið sem við njótum. Í gær bættist annar gestur við í dekrið. Það er Indý, kötturinn hennar Steinunnar, en hún verður viku í New York.
Við Lúlli erum búin að labba okkar vanalega göngutúr ,,upp" að ströndinni. Hvernig á að skilja þetta??? Við löbbum upp héðan, síðan eru 110 tröppur niður snarbratta hlíðina að ströndinni.
Í dag ætlum við til Santa Clarita í maraþonið þar, gistum eina nótt þar og komum aftur hingað og leggjumst á baðmullahnoðrann.
.................................................................
Keyrslan tók um klukkutíma, við sóttum gögnin og fórum á hótelið og gerðum okkur klár fyrir morgundaginn og maraþonið.
Super 8 - Santa Clarita,
17901 Sierra Highway, Santa Clarita, CA 91351
phone 661-252-1722 room 147
Lúlli tékkaði okkur út á meðan ég hljóp og við keyrðum aftur til Santa Barbara :)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.11.2011 kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2011 | 16:44
Bíllyklarnir fundnir



2.11.2011 | 14:19
Las Vegas - Santa Barbara
Við vorum síðustu nóttina í Las Vegas hjá Lilju og Joe. Ég hjálpaði henni að koma tölvunni sinni í lag. Við áætluðum 6 tíma keyrslu til St Barbara svo við vildum leggja snemma af stað þangað. Ferðin gekk vel og við vorum komin úm 16:30, enda stoppuðum við bara einu sinni og það var stutt stopp.
Í St Barbara voru fagnaðarfundir - galopnir armar fyrir okkur. Steinunn var á leiðinni frá LA og við ætluðum út saman. Við tókum inn dótið og vegna þess að það var svo mikið af bílum lagt á götunni þá lagði ég þversum fyrir framan bílskúrinn... þegar við ætluðum síðan út, fundust bíllyklarnir hvergi. Húsinu, dótinu, og meira að segja frystinum var snúið við, Steinunn kom og hjálpaði okkur. Við skiljum þetta ekki - bíllinn er læstur og læsingin er í lyklinum.
Þrautalending var að fá lásasmið til að opna... sem opnaði með spaða eins og þjófarnir gera í bíómyndum. Allt dótið var tekið úr bílnum en lyklarnir finnast ekki enn...
Að lokum ákváðum við að sofa á þessu.
Í morgun fór ég enn einu sinni í gegnum dótið en án árangurs... en það verður bara að halda áfram að leita.
29.10.2011 | 02:03
Guð minn góður...
Flugið til Las Vegas tók um 2 tíma, lent kl 23 og við vissum að Enterprise lokaði kl 23:30. ég hafði verið í tölvupóstsambandi við þá og þeir bentu mér á að hlaupa að lestinni sem flytur mann í töskusalinn og þaðan út í strætó til að komast á leiguna. Við ákváðum að Lúlli biði eftir töskunum og ég sækti bílinn á meðan.
Það var ómögulegt að reikna út hvað það var löng keyrsla að leigunni, en bílinn fékk ég og þá byrjaði ballið... Lúlli hafði endilega viljað að við færum með nýja Garmininn hennar Helgu (ég skipti á síðustu stundu áður en við fórum) en þegar ég stillti hann inn, var ekkert leitarkerfi í honum, aðalgöturnar komu upp og stundum var bílinn ekki á götunni. Það var engu líkara en Íslandskortið hafi ýtt því Ameríska út... Nú var úr vöndu að ráða.
Myrkrið er verst þegar maður veit ekkert hvar maður er... ég fór margar villur og spurði til vegar. Loks komst ég á flugvöllinn en kannaðist þá ekkert við þetta svæði sem var þó merkt Terminal 1... ég hringsólaði á ,,passenger pick up... Allir virtust vera farnir og fólkið að fara út vinnunni. Loks lagði ég bílnum og fór inn að leita, búin að kalla um allt fyrir utan. Fann manninn sofandi inni, búinn að bjarga léttvíninu mínu.
Þá var að finna hótelið... við rötuðum rétta leið út af flugvellinum fyrir Guðs hjálp (eins og þangað) og á Las Vegas Blvd... en hótelið var svo nýtt að það var varla merkt. Það endaði með að ég fékk hjálp lögreglu sem var að taka bensín.
Við skráðum okkur inn og kl var 3:20 á staðartíma þegar ég fór loks gersamlega uppgefin að sofa.
....................................
Ég var vöknuð um 6 en dormaði til kl 8... Þá fórum við út í morgunmat og fyrsta stoppustaður var síðan BEST BUY... og þar gat strákurinn bjargað okkur... Restore settings... og Ameríka var fundin í annað sinn... Guð minn góður hvað ég var fegin.
Við heimsóttum Lilju og Joe, skoðuðum Hoover Dam og nýju brúna og sóittum gögnin fyrir halupið á morgun. Nú er ég að fara að hvíla mig, enda nær ósofin eftir allt þetta flug og stressið í kringum Garmin.
Continental Suites, (allt ný uppgert og mjög snyrtilegt)
1213 S. Las Vegas Blvd.,
Las Vegas NV 89104
phone 702 331 0545
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.11.2011 kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Áramóta-annáll fyrir árið 2024
- Kefl - Denver CO - Santa Fe NM 8-13.nóv 2024
- Kefl - Portland OR - WA - ID 19-27. sept 2024
- Kefl - Chicago IL og fl. 4-12. júli 2024
- Kefl - Raleigh NC - Bristol TN 20-27. mars 2024
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007