Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

666

Opb 13:14 Og það [dýrið] leiðir afvega þá, sem á jörðunni búa, með táknunum, sem því er lofað að gjöra í augsýn dýrsins.
Opb 13:18.  Hér reynir á speki. Sá sem skilning hefur reikni tölu dýrsins, því að tala manns er það, og tala hans er sex hundruð sextíu og sex. 
 
Það eru margir sem telja að einhver einn ,,maður" muni vera skepnan eða dýrið í Opinberunarbókinni. 
Ef dýrið væri einhver einn einstaklingur væri vald hans í mjög stuttan tíma í heimssögunni... og það eru svo sem dæmi um það í heimssögunni að einn einstaklingur geri allt vitlaust.

Dýrið er örugglega ,,vald"..... ,,trúarlegt vald"... Vald sem einn maður fer með hverju sinni en keðja manna eða ákveðins hóps heldur valdinu við og lætur stjórnast af kenningum þess....
Opinberunarbókin segir að nú reyni á speki, tala dýrsins sé 666.... það þarf að reikna töluna út...

Aðventistar telja ,,páfadóm" vera dýrið vegna þess að yfir dyrum páfadóms er texti á latínu... textinn minnir mig að lýsi embætti páfa en ef rómversku tölurnar (I, V, X, L, C ,D) úr textanum eru lagðar saman kemur út talan 666... sex, sex, sex... og þar er sex algjörlega bannað !

Annars veldur talan sex stundum vandræðum þegar við hjónin erum í Ameríku. Þegar við erum innan um annað fólk gleymir maðurinn alltaf að þar er sex ekki tala heldur athöfn og við fáum oft augnagotur..... eða fliss...... það fer eftir aldri þeirra sem eru nálægt...


mbl.is Óánægð með kennitöluna 666
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendið þá heim...

Í sjónvarpsfréttunum var sagt að þessir menn hefðu áður komið við sögu hjá lögreglu... og maður spyr - af hverju eru þeir enn hér?
Okkar litla og fámenna þjóð hefur nóg með sig, þó við förum ekki að hýsa einhvern fjölda af erlendu fólki sem lifir á afbrotum og veður uppi með ofbeldi.

Nú verður að taka til hendinni... ef erlent fólk verður uppvíst að lögbrotum, og þá er ég ekki að meina að keyra yfir á rauðu, heldur er ég að tala um innbrot eða ofbeldisverk...   þá á að vísa þessu fólki strax úr landi...  Sendið þá heim til sín.
mbl.is Réðust á lögreglu - fimm handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimasætan komin...

Heimasætan og kærastinn eru komin úr þriggja vikna ferð til Portúgal... ferðin átti upphaflega að vera 2 vikur en ótrúlegt en satt...lllllllengdistttttt í þrjár..... Woundering

Nú er allt þetta gamla að komast í réttan farveg, skólinn að byrja hjá öllum nema mér.... sem tek ársfrí Grin 
ég er á síðustu metrunum með BA-ritgerðina mína sem ég þarf að skila fyrir 15.sept. og svo fer ég út til Minneapolis 17.sept.


Nóg að gera...

Það verður nóg að gera hjá mér á morgun...
Ég byrja á því að hlaupa kl 10:00... síðan ætla ég suður með sjó eh og slæ þrjár flugur í einu höggi.

Ég ætla að heimsækja dóttir og barnabörn, sækja dóttir og tv.tengdason á flugvöllinn og verða við opnun sýningar Eddu systir á Ljósanótt.


Aumingja fólkið...

Við hjónin vorum í New Orleans í lok febrúar á þessu ári. 

Borgin var eins og draugabær.
Miðbærinn með háhýsunum og aðalhraðbrautirnar, brýr og slaufur þangað, voru að sennilega sá hluti borgarinnar sem var að komast í samt lag..... hinar ríku hótelkeðjur og stjórnsýsla hafa verið tryggð eða haft efni á að endurnýja eða laga húsnæðið....
en hin venjulegu íbúðarhverfi í margra kílómetra fjarlægð frá ströndinni voru nær auð.... litlu einbýlishúsin sem eru öll byggð úr timbri voru auð...við keyrðum um göturnar og það var búið á stökustað.... á kvöldin voru engin ljós þar, við vissum ekki hvort þeir sem bjuggu þarna hefðu rafmagn...
Í götu eftir götu voru húsin að hruni komin, ónýt eftir vind og vatn. 
Þónokkuð af fólki bjó í tjöldum undir hraðbrautunum....

Við höfðum keypt okkur Garmin... en það var ekkert að marka það.... búðirnar voru farnar og kaninn byggir bara nýja búð á annarri lóð, það er ódýrara en að laga gamla húsnæðið.

Og nú þarf fólkið sem lagði í koma aftur og byggja upp eða laga húsið sitt.... að yfirgefa það aftur, þetta er skelfilegt...


mbl.is Gustav að ná 5. stigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Shit - skítur

Einmitt...

Það virðist vera þekkt aðferð að smygla eiturlyfjum inn í endaþarmi... eða að þau skili sér þá leiðina út ... og fyrir nokkrum árum var herferð gegn fíkniefnum meðal annars með þessari spurningu -
úr hvaða rassi kemur þitt efni?  eða eitthvað í þá áttina...

þeim sem eru í neyslu - er kanski sama hvaðan efnin koma og hvar þau hafa verið geymd, en þetta fær vonandi þá sem ekki hafa prófað, til að segja nei við fíkniefnum.


mbl.is Með fíkniefni í endaþarminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skil á næsta leyti...

Ég er búin að liggja í ritgerðinni minni síðustu vikur....

og ef ég var ekki að lesa, skrifa og breyta... þá var blessuð ritgerðin á heilanum á mér, sem er líka nauðsynlegt... það nægir ekki að sitja bara við tölvuna...
En nú held ég að ég sjái fyrir endann á þessu.  Ritgerðin var send til leiðbeinandans í dag...

OMG... hvað ég verð fegin þegar ég læt prenta hana endanlega út  Grin


Misstu af fluginu...

Allur eftirmiðdagurinn fór í það að redda heimasætunni og kærastanum... þau misstu af fluginu heim frá Portúgal í dag.

Við vorum í stöðugu sambandi við Plúsferðir.... og hana á netinu.
Þau fóru með rútunni á völlinn og tékkuðu farangurinn inn... vélin átti að fara 13:40... 10 mín áður var kærastinn við brottfararhliðið og þá var þeim sagt að vélin væri farin. Þetta er ótrúlegt... því það hefur tekið amk hálftíma að leita að töskunum þeirra innan um hinn farangurinn. 

Nákvæmlega sama gerðist fyrir dóttir Lúlla og fjölsk. í sumar... þau misstu af fluginu heim frá Spáni, ferðuðust líka með Plúsferðum... Vélin fór hálftíma fyrr.... það var reynt að kalla þau upp á spænsku en þau skildu það ekki... og framburður á íslenskum nöfnum er lélegur. Þau þurftu að bera allan kostnað af því að koma sér heim með öðru flugfélagi.

Á netinu er hægt að kaupa aukaviku á 18. þús á mann, en af því að þau misstu af fluginu verða þau að borga fyrir flugið heim, eins og þetta sé ekki nægilegur skellur fyrir þau.

Svo sér maður auglýsingar í sjónvarpinu sem segja - komdu út í plús-.... það er nú meira í mínus


Saknaði Dorritar

Hvíllík hátíð í dag  Grin

Múgur og margmenni tóku á móti handboltalandsliðinu.  Það var áhrifamikið þegar flugvélin renndi sér niður úr skýjunum á þess að snerta flugvöllinn... og hóf sig upp aftur. 
Allur mannfjöldinn sem fylgdi hetjunum okkar eftir götunum og stemningin við Arnarhól.... þetta var allt draumi líkast...

Frammámenn og konur stigu á pall til að fagna og syngja.... en það vantaði einn eða eina.... Hvar var Dorrit?
Konan sem fagnaði svo innilega sigri okkar að öll settlegheit fóru fyrir bí.... var hvergi sjáanleg.

Hefur umræðan undanfarna daga um hvernig forsetafrú á að haga sér.... valdið sorg og hlédrægni hjá henni á sama degi og við hin leyfum okkur að hoppa og gráta af gleði.... það er sorglegt

Maðurinn er alltaf samur við sig... alltaf að segja öðrum hvernig þeir eigi að haga sér....
Í 2 Samúelsbók 6.kafla segir frá því þegar Davíð konungur dansaði af gleði er hann lét færa örk Guðs í musterið..... Sumum fannst þetta ekki hæfa konungi, en hann gat ekki hamið gleði sína.


mbl.is Með stöðugan kökk í hálsinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of langt á milli drykkjarstöðva í Reykjavíkurmaraþoni

Ég er búin að hlaupa nokkur maraþonin, ekki bara hér heima heldur einnig erlendis. Þrisvar hef ég verið í maraþonum þar sem menn dóu - steindóu- .... rétt innan við marklínuna.  

Það getur vel verið að þetta hafi gerst í fleiri hlaupum án þess að ég hafi tekið eftir því..... en árið 2000 var ég í Chicago maraþoninu og þar dó 23 ára Canadamaður í markinu, fjöldinn allur fór frá marklínunni studdir af öðrum, í hjólastólum, eða á börum með poka í æð....
Í OC maraþoninu í Californíu 2007 dó einn og nú síðast 2008 dó 27 ára maður þegar ég hljóp í Little Rock í Arkansas. Sá hljóp maraþonið á rétt rúmum 3 tímum. 

Það vantaði ekki að allir þessir menn kæmu inn á góðum tímum, vel æfðir menn, hefðu komist á verðlaunapalla..... þeir voru Boston-qualifiers..... en það er ekki krafa til að komast til himnaríkis.

Keppnin er mikil í mönnum.... það er gaman að geta borið tímann sinn saman við tíma annars og vera stoltur af honum....  svo það gleymist að hlusta á líkamann svo þeir komist heim til sín að hlaupi loknu.... það gleymist að vegalengdin sem maður er að kljást við hverju sinni er sigurinn.

En það er annað, sem ég er búin að segja oft í sambandi við Reykjavíkurmaraþon - það er alltof langt á milli drykkjarstöðva, erlendis er yfirleitt 1 míla (1,6 km) á milli drykkjarstöðva.  
nánar um það á http://byltur.blog.is/blog/byltur/entry/625428/


mbl.is Féll í yfirlið á síðasta kílómetranum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband