Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Jackson Hole - Yellowstone - Livingston

Afton, Wyoming, 4.júní 2008              GrinGrin

Þetta var dásamlegur dagur. Við lögðum snemma af stað frá Afton.... Gat ekki stillt mig um að taka mynd af bæjarmerkinu þeirra sem skartaði yfir aðalgötunni.
Hvert fylki hefur sitt einkennismerki og merki Wyoming er Buffaló-inn.
Jackson Hole
Við keyrðum norður til Jackson Hole... sem er einu orði sagt stórkostlegur bær... einstaklega fallegur þar sem heildarmyndin hefur verið varðveitt.
Húsin voru öll lág bjálkhús eða í þeim stíl sem féll að því og gangstéttir úr viðarborðum. Hreindýrahorn mynduðu göng í skemmtigarðinn, allt svo náttúrulegt og snyrtilegt... Myndavélin sagðist vera rafmagnslaus ???
Svo ég tók enga mynd. en heimasíða bæjarins er frábær auglýsing fyrir hvað er hægt að gera þar. 
http://jacksonhole.com/index.asp 

Yellowstone, Wyoming, 4.júní 2008Þaðan keyrðum norður til Yellowstone. Þjóðgarðurinn er á stærð við Ísland.... svo við verðum að fara þangað aftur í bakaleiðinni og skoða meira. Hvílíkt landslag, fegurð og dýralíf. Við þurftum að varast birni, buffalóa og elgi. Því miður sáum við hvorki Yogi eða Boo Boo.
Þá voru hverasvæðin á stærð við smábæ heima.
Yellowstone National Park – ( 03:44 ) Augl.mynd

Yellowstone, Wyoming, 4.júní 2008Ógurlegir skógareldar voru þarna fyrir 20 árum og voru merki eldanna um allt. Við sáum ,,geysi" og hvernig hverasvæðin eru að færast til... sáum dauð tré í miðju hitasvæði.

Eftir langan dag og mikla keyrslu.... allt svo stórt í Ameríku... fengum við gistingu í Livingston, Montana... sem er áttunda fylkið sem við heimsækjum í þessari ferð.


Keyrt norður til Jackson Hole

Við flugum í gær frá San Diego til Salt Lake City í Utah. 
Fengum þar ágætis hótel, gistum eina nótt en ákváðum að halda áfram í dag. Við vorum í SLC, þegar ég hljóp Desert News Maraþonið 2006.
Svo um hádegið keyrðum við af stað. Bragi upplýsingafulltrúi okkar í Santa Barbara var búinn að segja okkur að Jackson Hole hér fyrir norðan, væri með fallegustu stöðum í Bandaríkjunum.... og það var í leiðinni til Yellostone... þar sem við höfum mælt okkur mót við Yokie Bear og Boo Boo.

Við tókum okkur hótel.... Hi-Country-Inn í Afton Wyoming... rétt sunnan við Jackson. Nú slöppum við af, erum að fara út að borða  Wink


Listaverk í Santa Barbara

St.Barbara maí.2008Heart  Heart  Heart

Ég var að setja inn myndir í San Diego. þá komu auðvitað fram myndir af síðasta deginum okkar í Santa Barbara.
Steinunn hafði komið með okkur út að borða kvöldið áður en við fórum og hún fór með okkur í klaustrið.
Þar fyrir framan höfðu listamenn verið dögum saman að gera krítarmyndir í gangstéttina... árlegur viðburður í sambandi við Memorial Day (á mánudag) ....Hvílík listaverk.

Einhverjir dónar höfðu keyrt yfir sum listaverkin... 
   

St.Barabara maí.2008St.Barbara maí.2008

 Höfðingjarnir í Santa Barbara 2008


Í San Diego

Kvöddum öðlingana og höfðingja í ST. Barbara og renndum suður í Redondo Beach.
Það er ekki netsamband á hotel Jonnu, svo við fórum á moggann í Best Buy til að fá fréttir af jarðskjálftanum heima.

Við kysstum ströndina, bryggjuna, buffetið og búðirnar. Vorum á Hótel Jonnu í 2 nætur. Borðuðum breakfast á HomeTown Buffet áður en við keyrðum til San Diego í dag, laugardag.

Það er sól og hiti. Gistum á Rodeway Inn núna, ekki svo langt frá Convention Center, þar sem gögnin eru og 10-12 mín frá flugvellinum þar sem ég fer í rútuna á startið.

Við sóttum gögnin, þetta er stórt hlaup og við sóttum gögnin mjög seint, en fannst mér expo-ið vera lélegra en síðast...

Við tókum það rólega á eftir, prufukeyrðum á rútustaðinn og settum hann í Garminn og fórum á mótelið.  

InLove I LOVE IT


íslensk veisla

Smile
Þ
að var íslensk veisla hér í gær, einiberjakryddað lambalæri med alles. Steinunn og Stephen sonur hennar komu í mat. Síðan var horft a LA Lakers og spilað UNO.... hvað annað.

Við tökum því bara rólega þessa dagana, á morgun keyrum við niður í Redondo og verðum þar í 2 daga, veit ekki hvort ég kemst á netið þar. En svo keyrum við suður til San Diego og verðum þar í 2 daga áður en við fljúgum til Salt Lake City.
Við verðum bara viku i Californiu.


Brandari

Við hlógum lengi að þessum..... Grin Grin Grin Grin

Jonna og Bragi fóru með okkur í breakfast á IHOP í morgun. Frábær staður og góður matur. Bragi krafðist þess að stelpurnar sætu frammí. 
Þegar við komum heim aftur keyrði Jonna inn í bílskúr eins og vanalega.
Við vorum að taka af okkur beltin þegar Bragi segir..... Jonna, þú ert ekki komin nógu langt.

Jonna var að færa bilinn aðeins nær, þegar Bragi segir: Jonna.... fyrirgefðu.... þú ert komin nógu langt, það er ég sem er afturí. Grin 


Komin heim...

Góðan daginn

þetta var langur dagur i gær. vöknuðum kl 3 um nóttina, flugum kl 6 til New York (flugtimi ca 1 klst), og þaðan til Long Beach (flugtimi 5:35) þar sem við lentum um hádegi i gær á staðartima. Við vorum að ferðast med jetBlue i fyrsta sinn og það er hreint út sagt frábært. það er svo gott fótapláss hjá þeim að við þurftum ekki að standa upp þó farþeginn i gluggasætinu þyrfti að fara fram á ganginn. Hvert sæti var með sjónvarp med 30-40 stöðvum sem voru ókeypis. Við munum örugglega taka jetBlue fram yfir önnur flugfelög.

það tók okkur siðan rúma 2 tima að keyra til St.Barbara, i Ameriku er það ,,rétt hjá".
Við vorum með eina ferðatösku af mat... eins og venjulega. Saltfisk i einum frauðkassa sem var skoðaður á hverjum flugvelli. Kassinn var opnaður og lokað mjög fljótt aftur .... út af lyktinni. Hinn kassinn var með frosnu læri og bjúgum... þessir tollverðir höfðu aldrei séð bjúgu...
En nú erum við komin heim til Californiu. Auðvitað var tekið höfðinglega á móti okkur, slegið upp stór-veislu og spilað UNO... Grin

á  é  í  ú  ó  ý  ð  þ Þ  æ  ö Ú Ó Ð


Flugfélög

Við eigum flug eldsnemma, kl 6 í fyrramálið.
Við höfðum keypt flugmiða hjá Jetblue og þeir tóku sér það bessaleyfi að færa flugið fram um 2 tíma og senda okkur til Long Beach í staðinn fyrir LA. Við fáum 50$ afslátt hvort á næsta flugi sem við pöntum.

Okkur finnst orðin nokkur einstefna í flugmálum. Icelandair hefur t.d. allan rétt hjá sér. Einusinni keyptum við far og þeir stafsettu nöfnin okkar beggja rangt. Ég lét vita þegar netpósturinn kom. Í annað sinn keyptum við far innanlands í Bandaríkjunum gegnum þá, og tókum eftir því af tilviljun þegar miðarnir komu í pósti... að ég átti flug 2 dögum á undan Lúlla. 

Svo kom það fyrir að Lúlli keypti far á netinu til Bandaríkjanna og víxlaði tveim stöfum í nafninu mínu... breyting kostaði 4000-. Við höfum greitt 5.000- á mann fyrir breytingu á brottfarardegi (held það kosti nú 10.000-)

Í gær fengum við e-mail að Icelandair hafi fellt niður flugið okkar til Minneapolis í september.... það eina sem okkur er boðið er að fara degi fyrr en degi seinna.... okkur ætti að minnsta kosti vera borgað sama gjald og þeir taka fyrir breytingu.


Frændur og VINIR okkar Danir


Við höfðum það huggulegt við að horfa á Eurovision í tölvunni. Erum í St Albans í Vermont USA.
Það var svolítið bras við að tengjast inn á hana en gekk að lokum.

Þetta var nú meiri klíkuskapurinn á alla kanta, allir að gefa nágrönnum og vinum stig.... en hvernig á annað að vera???  Hjá mörgum þjóðum austantjalds hefur fólk blandast mikið, lönd klofnað, menning og tungumál eru svipuð... Býr einhver í sínu heimalandi þar?

Frakkar gáfu Tyrkjum 12 stig, allir þessir atvinnulausu múslimar þar hafa kosið Tyrkland.  Gyðingar um alla Evrópu hafa kosið Ísrael.... Kanski það séu svona margir Íslendingar í Danmörku.

Eða... erum það bara við sem erum afbrýðisöm, eigum fáa vini og enga nágranna sem við getum skipst á atkvæðum við. Hin Norðurlöndin voru svo vinsamleg svona einu sinni að kjósa okkur og þar sköruðu frændur okkar og vinir DANIR fram úr öllum öðrum.  

En eitt stóðst... 14.sætið, maðurinn var búinn að segja það... sagðist vita það... hafa sambönd Wink


Flogin út...

hlaupa.jpeg
Loksins Smile

Það var pakkað fyrir hádegi, enda síðasti séns.
Við fljúgum til Boston um fimm-leytið, keyrum þaðan í kvöld til Manchester í New Hamshire.

Höldum síðan áfram á morgun til Burlington, Vermont þar sem fyrsta hlaupið er. 

Ég er ekki komin í hlaupagallann, en er komin í hlaupagírinn Cool


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband