Færsluflokkur: Bloggar
18.6.2008 | 23:03
Endurskipulagning næstu ferðar
Síðan við komum heim í gærmorgun, höfum við staðið í ströngu við að skipuleggja næstu ferð til Bandaríkjanna. Eins og ég bloggaði í byrjun síðustu ferðar, þá virðast flugfélög vera á einhverjum sér samningum. Þau virðast geta fellt niður og fært til flugið manns... eftir eigin geðþótta.
Við áttum flug til Minneapolis 25. sept..... sem hefur verið fellt niður. Allar okkar ferðir eru skipulagðar í kringum maraþon. Það er út-spekulerað hvenær á að fara og passað að láta tímann standa á vikum upp á bílaleigubíla. Aukadagar eru svo dýrir.
Venjulega förum við á föstudögum ef fyrsta hlaup er á sunnudegi.... og oft er búið að borga hlaupin um leið og flugmiðann... þess vegna kemur sér mjög illa þegar breytingar verða.
Sem betur fer eru þetta lítil hlaup... sem eru ekki uppseld löngu áður, svo ég var ekki búin að skrá mig, því hlaup eru aldrei endurgreidd... en við vorum búin að panta bílaleigubílinn.... og borga flugmiðann fyrir löngu.
Nú getur borgað sig að fara viku fyrr... bæta hlaupi framan við og skera aftan af ferðinni.... ???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2008 | 16:20
Komin heim
Við erum komin heim ferðalagið tók hátt í 2 sólarhringa. Komum með þetta fína þjóðhátíðarveður með okkur, sól og blíðu.... það var 30 stiga hiti í Salt Lake City þegar við pökkuðum.
Við tókum upp úr töskunum.... ætluðum ekki að leggja okkur en ég sofnaði í sólbaði á pallinum og Lúlli í stólnum fyrir framan sjónvarpið. Alltaf gott að koma heim.
Það voru dýrin sem fögnuðu okkur fyrst... Hinir sváfu áfram...
Bloggar | Breytt 18.6.2008 kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2008 | 23:52
Á heimleið með Priority Pass
Nú sitjum við í Priority stofu North West. Við erum búin að hafa þessi skírteini í rúm 2 ár... skírteinin gefa aðgang að betri stofu þar sem allt er frítt og aðgangur að neti. Við höfum oft beðið tímunum saman á flugvöllum og aldrei munað eftir þessum skírteinum.
Það er einstaklega þægilegt að geta sest niður í betri sæti, fengið sér Baileys á klaka og farið á netið. Við erum búin að vera hátt í 1 og hálfan sólarhring á leiðinni heim. Við slepptum herberginu í Utah á hádegi í gær.... dunduðum okkur í listigarði og búðum þar til við flugum til New York kl 12:45 í nótt. Flugið var 4 tímar og tímamunur 2 tímar.... lentum kl 7 í morgun á staðartíma.
Við gátum bæði sofið eitthvað... en ég var hreinlega að drepast úr sibbu, þegar ég keyrði áleiðist til Boston.... og auðvitað glaðvaknaði ég þegar Lúlli tók við. Við fengum okkur breakfast á Ihop á leiðinni....og eftir búðarráp og skoðunar-villu-vegar-ævintýri um Boston, þá borðuðum við á The Old Country Buffet.
Við skiluðum bílaleigubílum, sem var sá 4. sem við tókum í þessari ferð og vorum komin á völlinn 3 tímum fyrir brottför. Flugið heim er 21:30 á staðartíma.
Núna slöppum við af og njótum þess......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2008 | 14:47
Salt Lake City, Utah
Allt er gott sem endar vel
Við erum búin að vera rúmar 3 vikur í þessari ferð. Flugum út föstudaginn 23.maí, eigum núna 2 næturflug eftir..... og komum heim á þriðjudagsmorgni... 17.júní.
Ferðin hefur í alla staði tekist vel. Við erum búin að strauja 3 ný fylki, Vermont, Montana og Idaho. Á milli Vermont og Montana skutumst í viku til öðlinganna og höfðingjanna í Californíu.... en þar bættist ekki við nýtt fylki.. ég er búin að hlaupa lang oftast í Californíu.... held það séu komin 12 maraþon þar.
Það var sérstök upplifun að fara í Yellowstone og Jackson Hole. Og það verður að minnast á hvað við vorum blessuð með veður. Í fyrsta lagi breyttum við allri ferðinni, við ætluðum upphaflega að vera á miðríkjunum þar sem flæðir núna yfir fjölda borga og svo á austurströndinni þar sem er hvílík hitabylgja, að það er til vandræða.
En við breyttum ferðinni fyrir nokkrum mánuðum.... veðrið blessaðist hér, því við sluppum við rigningar og þrumuveður sem voru í veðurspám og náðum að sjá Yellowstone áður en það frysti og snjóaði og varð ófært þar. Einu sinni vöknuðum við (Idaho Falls) og það hafði snjóað um nóttina. En hann bráðnaði strax.
Öll hlaupin voru í ágætis veðri, þó stundum væri heitt, ég nota alltaf sólarvörn 50 svo ég brenni ekki. Ég hef ekki tekið saman hvað við erum búin að keyra mörg þúsund mílur... en það er slatti.
Við keyrðum frá Rexburg, Idaho í gær, (ca 4 tíma keyrsla) strax eftir hlaupið og tókum sama hótel (Microtel) og við vorum á þegar við flugum hingað fyrir 2 vikum.
Eins og heima þá hefur allt hækkað hérna, bæði bensín, matur og hótel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2008 | 23:24
Rexburg, Idaho
Við höfum verið eins og blóm í eggi í Idaho Falls, það var yndislegt að hafa heitan pott og gott eldhús. Við gátum bakað okkur vöfflur í morgunmat.... ummm
Þess vegna ákváðum við að afpanta fyrri nóttina okkar í Rexburg og vera sólarhring lengur í Idaho Falls. Rexburg er bara 30-45 mín norðar. Við erum búin að vera nákvæmlega 3 vikur á ferðalagi í dag. Mótelið okkar er mjög fínt, þeir eru að búa til sundlaug og heitan pott hérna.
Við verðum bara eina nótt hérna. Lúlli verður að tékka okkur út á morgun á meðan ég er í hlaupinu og við keyrum annað hvort til Salt Lake City eða í áttina þangað. Við gistum einhversstaðar eina nótt í viðbót... síðan eigum við 2 næturflug eftir... annað þeirra frá Salt Lake City til New York, þaðan keyrum við til Boston og fljúgum þaðan heim nóttina á eftir.
Við eigum að lenda í Keflavík að morgni 17.júní.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2008 | 22:03
Veðrið...
ákváðum að vera hér 1 nótt í viðbót.
Maður er í stöðugu sambandi heim.... fékk að vita að það er miklu betra veður heima. Það er sennilega ekki talað um annað en veðrið á báðum stöðum.
Við fórum í búðarráp og Lúlli tók mynd af fossum hér rétt hjá... þeir gætu verið táknrænir fyrir nafnið á bænum. Núna ætlum við að slappa af, fara í heita pottinn, síðan ætlum við að hita örbylgjumat í eldhúsinu og horfa á góða bíómynd í sjónvarpinu.....
Já, það er COLOR TV hérna. haha
Bloggar | Breytt 12.6.2008 kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2008 | 15:11
Idaho Falls, Idaho
Við höfum ekki komið í þetta fylki fyrr. Veðrið var ágætt, svolítið hvasst, við kíktum í mollin.... áttum leið fram hjá Victoria Secret og svoleiðis.... Fórum í heitapottinn og höfðum það virkilega gott.
Bloggið er algjört must.
Þegar við vöknuðum var þykkt snjólag á bílunum fyrir utan... og í morgunmatnum talaði fólk ekki um annað en veðrið. Þetta er mjög óvenjulegt á þessum slóðum. Sjónvarpið sagði þykkt lag af snjó vera í Helena og nokkurra stiga frost og snjókomu í Yellowstone.... sumir hér höfðu áhyggjur að þar væri allt ófært og þá lokað.... og þá er skarðið milli Jackson Hole og Idaho Falls, sem við fórum yfir í gær, örugglega ófært.
Við höfum svo sannarlega verið blessuð með veður. Í dag eru meiri búðarferðir á dagskrá, góður matur.... og heiti potturinn í kvöld...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2008 | 01:14
Búið að skjóta Yogi...
Við höfum ekkert reynt að breyta tímanum og þess vegna sofnað snemma og vaknað snemma. Nú vorum við vöknuð um 5 leytið... við hanagal og hest á beit við gluggann. Við borðuðum frábæran morgunmat, þar sem allt var til alls og lögðum af stað.
Við yfirgáfum Livingston... eftir að hafa keyrt og tekið mynd af mótelinu sem auglýsti COLOR TV....og keyrðum til Yellowstone, önnur tilraun til að hitta Yogi bear.
http://www.campjellystone.com/ sjáið hann hér.
Vegakerfið í Yellowstone er eins og stór ,,8
Í fyrra skiptið keyrðum við vinstra megin upp garðinn, tókum vinstri hlið áttunnar og nú ætluðum við hina leiðina.
Við vorum ekki komin nema hálfa leið niður efri hlutann þegar við komum að lokun
vegurinn var lokaður vegna mikils snjós. Þetta kostaði okkur 2 klst. auka.
Landslagið var ótrúlega fallegt og dýrin oft á beit við veginn.
Það var mikið áfall að keyra fram á þjóðgarðsvörðinn með bjarnaskinn
það er búið að skjóta Yogi
.
Fórum yfir á hægri hlutann í miðjunni á áttunni. Það hafði greinilega snjóað á meðan við vorum í Helena
.
Enda sáum við á veðurspánni þar, að það var búið að vera leiðinda veður í Yellowstone.
En við vorum heppin með veðrið... buffaló-kálfur hljóp fyrir bílinn hjá okkur við vorum stopp en hann var svo snöggur að við náðum ekki að taka mynd af honum. Annar Buffaló var á beit við veginn, Lúlli hefði getað klappað honum um leið og hann tók myndina.
Það er enginn svikinn af því að keyra um Yellowstone. Landslagið er ótrúlegt og svo mikið af öllu.... allt svo stórt í Ameríku. Við vorum hætt að stoppa þó Buffalóhjarðir væru við veginn. Hverasvæðin voru gríðarstór. Fossarnir, gljúfrin og hamrarnir... allt í XXXL.
Komum um 4 leytið til Jackson Hole
áttum pantað herbergi á El Rancho og komum okkur fyrir. Staðurinn er mjög dýr, við sem héldum að rándýrin væru öll í Yellowstone.... hér lifa allir á ferðamanninum.
Við skoðuðum listagallerí. Vá, hvílíkir listamenn.
Við fengum okkur risa-borgara. Veðrið var sæmilegt, þurrt og smá sól. Hér er safnið Ripley´s believe it or not í sömu götu og mótelið okkar. Eins og í bæjarmerki Afton, var myndaður bogi úr hreindýrahornum yfir innganginum í bæjargarðinn.
Okkur fannst herbergið dýrt
. staðurinn er dýr. Herbergið var lítið, sturtan svo lítil að Lúlli varð að fara í sturtu í tvennu lagi, hann varð að bakka fyrst inn og hafa bumbuna fyrir utan. Netið náðist ekki og morgunmaturinn lélegur
en það þýðir ekkert að ergja sig á því
við erum búið að hafa það svo gott í allri ferðinni.
Um morguninn var ausandi rigning og lélegt skyggni þannig að við hættum við að fara í kláfnum upp á fjallstoppinn. Við ákváðum að fara til Idaho Falls og vera þar í 2 daga. Það rignir ekki í mollunum.
Á leiðinni yfir fjallgarðinn til Idaho.... snjóaði. Ferðin var stutt, rúmir 2 tímar. Við fengum okkur ,,Áttu" sem er með heitum potti og svo skelltum við okkur í Mollin.
Bloggar | Breytt 17.6.2008 kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2008 | 19:00
Eitt allsherjar ævintýri
Montana er 24. fylkið mitt
ég er sérlega ánægð með að vera ekkert eftir mig í hásininni, vegna þess að núna skokkaði ég meira en ég þorði í síðustu 2 maraþonum. Bíðarinn stóð sig eins og hetja.
Það er enginn smá tími sem fer í að bíða eftir mér...
Veðrið hélt aftur af sér svo við höfum sloppið við þrumuveðrið og rigninguna sem var spáð. Í dag keyrðum við suður til Livingston. Vegurinn frá Helena niður að næsta þjóðvegi var einbreiður... ein akgrein í báðar áttir. Á þessum kafla höfðum við ekki tölu á öllum krossunum sem táknuðu dauðaslys. Á einum gatnamótunum voru 9 krossar. Þar höfðu orðið þrjú slys, þar sem 4, 3 og 2 höfðu dáið. Sorglegt.
Í Livingston gistum við í Quality Inn. Það eru heitir pottar hérna... sem við ætlum að skella okkur í.
Á morgun ætlum við í gegnum Yellowstone
en aðra leið en síðast.... passinn sem við keyptum gildir í viku. Það er svo mikið að skoða þar. Við eigum síðan pantaða gistingu í Jackson Hole. Þar bíður okkar annað ævintýri.
http://wyomingtourism.org/cms/d/yellowstone_national_park.php
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2008 | 21:13
Helena, Montana
þetta erum við
Við komum snemma til Helena, sem er höfuðborg Montana. Bærinn er vinalegur og allt voða notalegt..... það besta er að það er enginn söluskattur í Montana. Svo verðið sem við sjáum í búðunum er rétta verðið á hlutnum. Það má því segja að allt sé ódýrara hér.
Veðrið er dásamlegt, við gistum á http://www.jorgensonsinn.com/ .... Mjög þægilegt.... erum við hliðina á mollinu. Ætlum að labba þangað yfir núna..... enginn skattur í Montana, maður verður að nýta sér það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007