17.10.2008 | 00:24
Til hamingju með daginn :)
Heimasætan Lovísa á afmæli í dag 17.okt... er orðin 23 ára.
Ég kalla hana heimasætuna vegna þess að hún býr enn heima, ásamt kærastanum Gunnari, hundinum Venusi og kisunni ,,Klemmu eða Smellu" því hún smellti sér inn um gluggann hjá Lovísu og ákvað að setjast að þar... Enn er von á fjölgun því Lovísa er ,,eigi einsömul."
Lovísa er nemi í Fjölbraut í Garðabæ og upprennandi lagasmiður og textahöfundur eins og má heyra á síðunni hennar... http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=193319337
Við ,,Gamla settið" sem er í útlandaflakki sendir bestu hamingjuóskir með daginn og við biðjum Lovísu og fjölskyldu alls hins besta... eigðu góðan og eftirminnilegan afmælisdag.
Afmæliskveðjur | Breytt s.d. kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2008 | 14:36
Hvernig er karlmanni nauðgað?
Þegar ég heyrði fyrst að konur hefðu nauðgað karlmanni þá spurði ég hvernig í ósköpunum það væri hægt... Svarið var mjög einfalt... Öll höfum við á unga aldri sett teygju á fingurinn og stoppað þannig blóðrásina fram í fingurinn. Við vitum líka af þeirri reynslu að það er mjög kvalafullt.
Þetta er aðferðin þegar karlmanni er nauðgað - það er sett teygja á liminn og menn sem hafa orðið fyrir þessu segja að þetta sé mjög kvalafullt. Þetta er því ekkert grín eða eins og sumir hafa ímyndað sér að það væri uppfylling á óvæntum draumóra, fyrir karlmanninn að verða nauðgað.
Það er því ekkert grín - frekar en þegar konu er nauðgað.
![]() |
Má grínast með nauðganir? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.10.2008 | 14:02
Ólíkar hefðir trúarbragðanna
Við gistum núna á Econo Lodge og eigendurnir eru indversk hjón. Einn morguninn þegar við voru að fara út og Bíðari nr.1 var eitthvað að leita á garminum, þá tók ég eftir því að Indverjinn stóð fyrir utan dyrnar. Hann snéri að götunni og húsinu á móti og baðaði út höndunum.
Ég hélt fyrst að hann væri að tala við einhvern með þessu handapati, en þá tóku við aðrar kúnstir og hann snéri sér m.a. í þrjá hringi. Hann var að framfylgja sinni trúarhefð, sennilega að biðja fyrir nýjum degi. Það skipti hann engu máli að tugir ef ekki hundruðir bíla keyrðu framhjá 5-10 metrum frá honum og fjöldi manns gengi hjá... hann var einn með sínum guði eða guðum.
Ég gat ekki annað en dáðst að því að umheimurinn skipti hann engu í samskiptum hans við guðinn eða guðina sína. Við hin kristnu leynum ekki beint trúnni en við opinberum hana ekki á þennan hátt... kanski erum við sífellt með þessi orð Jesú á bakvið eyrað...
Matt 6:5 Og þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir. Þeir vilja helst standa og biðjast fyrir í samkundum og á gatnamótum, til þess að menn sjái þá. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið út laun sín.
Við vitum að Jesús var að tala um gyðinga sem báðust fyrir með hrópum og köllum á götuhornum og börðu sér á brjóst og tilgangur þeirra var að vekja athygli á sér.
Indverjinn aftur á móti gaf ekkert hljóð frá sér en framkvæmdi þá siði sem honum bar samkvæmt trúnni...
Vegna þess að maðurinn er Indverji - þá vissi ég að athöfnin var trúarleg, ef hann hefði verið hvítur - hefði ég talið hann eitthvað skrítinn
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 20:28
Sammála Geir
við verðum að snúa bökum saman, ég var reyndar búin að blogga um að Davíð hefði sennilega bjargað landinu frá gjaldþroti http://bryndissvavars.blog.is/blog/bryndissvavars/entry/672793/ með því að vera búinn að greiða niður skuldir ríkisins... fyrir fjármálaáfallið.
Dabbi ætti frekar að fá Riddarakrossinn ef hann á hann ekki fyrir

![]() |
Ekki persónugera viðfangsefnin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 18:20
Skemmtilegar skreytingar
Við erum þessa dagana bara að dingla okkur hér í Kansas City. Á hinum síðustu og verstu tímum eyðir maður engu, enda er ferðin ekki búin, 2 vikur eftir og við þurfum að eiga fyrir mat og gistingu.
Við vorum að skoða okkur um og rákumst á þessa skemmtilegu skreytingu á húsi, framhliðin var eins og bókahilla og ég varð að smella af einni mynd.´
Við sáum líka svona skreytingar í Ashland... eins og má sjá hér... http://byltur.blog.is/blog/byltur/entry/669277/
skemmtilegt og lífgar svo sannarlega upp á húsin.
Ferðalög | Breytt 22.10.2008 kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 15:25
Allir vildu bita af kökunni meðan hún var til...
Mikið er gott að einhver hlý orð koma erlendis frá. Á erfiðleikatímum sannast ekki aðeins hverjir eru vinir manns - heldur einnig hvaða álit fólk hefur raunverulega. Þegar allt var á góðri uppsiglingu vildu allir fá hluta af kökunni... fólk var í röðum að fá styrki frá hinum ríku mönnum og fyrirtækjum, líknarfélög og sjúkrahús fögnuðu peningagjöfum... mönnum var hampað.
Allir vilja versla ódýrt hvort sem það er í Bónus eða annarsstaðar... og Bónus hefur verið okkar mesta kjarabót.
Það sorglega er að fáir virðast ætla að tala máli þessara manna nú. Ríkt fólk hefur alltaf gefið mikið frá sér, styrkir hér og styrkir þar. Að vísu var offjárfest en þessi kreppa er ekki þeim einum að kenna. Upptökin koma frá húsnæðislánakerfi Bandaríkjanna og hækkandi olíuverði í heiminum. Fjármálaheimurinn er eins og net, ef það kemur gat - glatast auðæfi margra.
Úr því sem komið er, er ekkert annað að gera en halda áfram, við viljum áfram versla ódýrt... reyndar er okkur það aldrei eins nauðsynlegt og nú, í tilraun til að halda sömu lífskjörum... Ekki förum við að skjóta okkur í fótinn með því að sneiða fram hjá lágvöruverslunum.
![]() |
Ísland við upptök skjálftans" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2008 | 23:19
Ekki nógu kynaukandi?
Að fá svona fréttir á síðustu stundu hlýtur að vera rosalega svekkjandi. Sérstaklega vegna þess að hljómsveitinni var boðið út... eða var þeim ekki boðið? Þeirra fjárhagur kemur málinu ekkert við... Það er því spurningin eins og fréttin segir, hvort menn séu ekki bara að skýla sér bakvið lélegar afsakanir... það hafi ekki selst nógu margir miðar til að borga fyrir heimboðið. Við höfum hingað til talið Japan vera velstönduga þjóð - en það er kanski bara misskilningur
Ps. Þeir hafa kanski komist að þeirri niðurstöðu að þau verk sem synfónían ætlaði að flytja "væru ekki kynaukandi" fyrir japanska karla... það miðast nefnilega allt við að auka kyngetu karla þar.
![]() |
Vilja ekki íslensku sinfóníuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2008 | 22:13
Hvað finnst hinum almenna Breta?
Við erum flest sammála um að hryðjuverkaaðgerð "Hr. Brúns" var óréttlát og að hann hafi verið að gera sig meiri í augum almennings... enda eru það við sem fengum skellinn.
Hvað okkur snertir, er nú spurningin... hefur blaðagreinin snúið áliti hins almenna Breta? Finnst þeim "Hr. Brúnn" hafa brugðist rétt við eða telja þeir nú að aðgerðin hafi verið óréttlát?
![]() |
Fjögur hundruð bloggfærslur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2008 | 21:50
Alltaf í sambandi :)
Það er ekki langt síðan við fórum að ferðast með fartölvuna
En þvílíkur munur, við erum í stöðugu sambandi við börnin heima í gegnum msn og email. Síðan ég byrjaði að blogga hafa þau svo getað fylgst með gömlu...
Í þessari ferð datt mér í hug að setja inn símanúmerið á hótelinu sem við erum á þá stundina svo það sé hægt að ná í okkur...
Við komum í gær til Kansas City og ég setti strax inn nýjustu upplýsingar... og það liðu nokkrir klukkutímar þar til við fengum símtal frá Lilju vinkonu okkar í Pueblo West í Colorado. Hún hafði farið inn á Mbl.is og rakst á bloggið mitt
Frændi og frænka, Jonna og Bragi fylgjast líka með frá Santa Barbara í Californíu... við erum í stöðugu sambandi við þau... svo þetta með símanúmerið, svínvirkar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2008 | 22:02
Davíð konungur Íslands!
Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum. Einu sinni heyrði ég þetta: Þó þú gerir 99 góðverk, man það enginn - ef þú gerir 1 mistök, muna það allir.
Nú sér maður hinar ýmsu skoðanir manna á Davíð Seðlabankastjóra. Þeir láta alltaf hæst í sér heyra sem eru á móti - það er bara hátturinn. Margir vilja að hann segi af sér- ekki ég.
Þó álit mitt á Sjálfstæðisflokknum hafi dalað eftir að sumir menn... eftir kostningar og viðtöku síns embættis síns... hættu að svara spurningum fólks og fl... ég er auðvitað ekki stjórnmálafræðingur... en ég hef þá skoðun, að Davíð hafi bjargað því að landið yrði gjaldþrota.
Áður en þessi kreppa kom upp var íslenska ríkið nær skuldlaust... og það lítur út fyrir að okkur takist að standast áfallið.
Auðvitað hafa allir galla og allir hafa gert mistök... við sjáum það aldrei fyrirfram - alltaf eftir á... en í stjórnartíð Davíðs var hafist handa við að greiða niður skuldir ríkisins... hvar stæðum við núna ef þjóðin hefði verið skuldug upp fyrir haus. Við hefðum orðið gjaldþrota.
13.10.2008 | 20:58
Komin til Kansas City, Missouri
Þriðja daginn í röð keyrðum við suður I-35. Nú erum við komin til Kansas City í Missouri. Við verðum hér fram á laugardag eða í 5 nætur. Við gistum í miðborginni á móteli sem var áður Roadway Inn en er nú Econo Lodge. Bæði eru keðjur sem við höfum oft gist á og þekkjum vel.
3240 Broadway , Kansas City, MO, US, 64111-2426
Phone: (816) 531-9250 room 116
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2008 | 13:37
Einfaldara getur það ekki verið
Róm 10:9
Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða.
Getur það verið einfaldara... bara að játa trúna og trúa... og himnaríki er þitt. Málið er að við eigum sjálf erfitt með að trúa að það hangi ekki meira á spýtunni. Við erum nefnilega ósjálfrátt alltaf að meta okkur við aðra. þ.e. telja þeirra afbrot verri en okkar... eins og fariseinn í Lúkasarguðspjalli...
Lúk 18:11
Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir með sjálfum sér: Guð, ég þakka þér, að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður.
Hver erum við að dæma hvort annað, en það þýðir ekkert að loka augunum fyrir að við gerum það... bæði í orði og hugsun. Fariseinn taldi sig vera betri því hann var gyðingur... hann var fæddur inn í samfélag sem átti fyrirheit Guðs, en hvað sagði tollheimtumaðurinn...
Lúk 18:13
En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins, heldur barði sér á brjóst og sagði: Guð, vertu mér syndugum líknsamur!
Tollheimumaðurinn bað til sama Guðs. Sá sem okkur virðist vera langt frá Guði... getur verið miklu nær honum en við. Trúin í hjarta og á vörum mannsins er mælistika sem manni virðist að mælt verði eftir. Það getur varla verið einfaldara - en samt eigum við fullt í fangi með það.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2008 | 13:53
Keyrðum til Minneapolis í gær
Lúlli tékkaði okkur út af mótelinu í Ashland á meðan ég var í hlaupinu. Það vantar ekki að það er mjög fallegt í haustlitunum að keyra þangað og þaðan burt. Það rættist úr veðrinu, það var kalt þar til í hlaupinu, einmitt þegar það mátti vera kalt... þá hitnaði.
Veran þarna var minna spennandi því Lúlli var veikur og síðustu nóttina - fyrir hlaupið fylltist ég af einhverju hálsdrasli ??? Svo að við biðum ekki eftir neinu eftir hlaupið heldur keyrðum beint suður til Minneapolis. Tókum sömu áttu og síðast.
Í dag keyrðum við áfram suður eftir I-35 niður til Des Moines höfðuborgar Iowa. Þar gistum við amk í nótt.
Super 8 Urbandale/Des Moines Area, 5900 Sutton Drive I35/I80 Exit 131 Merle Hay Rd Urbandale, IA 50322 US,
Phone: 515-270-1037 Room 120
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2008 | 13:26
Ætla að forðast að kaupa breskar vörur
![]() |
Breskir bankar yfirteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.10.2008 | 00:22
Til hamingju með daginn


Árný býr á Burknavöllunum, í sömu blokk og við, bara á 3ju hæð. Hún á 4 börn, Hafþór Örn, Sigurð Braga, Sigrúnu og Maríu Mist... og 2 barnabörn, Sverri Björgúlf og Sölva Stein.
Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að hún fari á tónleika (Vilhjálm) í tilefni dagsins.
Innilega til hamingju með daginn.
Megi allt ganga þér og þínum í haginn og eigðu góðan dag til að minnast.
Nýjustu færslur
- Áramóta-annáll fyrir árið 2024
- Kefl - Denver CO - Santa Fe NM 8-13.nóv 2024
- Kefl - Portland OR - WA - ID 19-27. sept 2024
- Kefl - Chicago IL og fl. 4-12. júli 2024
- Kefl - Raleigh NC - Bristol TN 20-27. mars 2024
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Enginn vissi hvað þetta var
- Stefnir í eitt mesta góðviðrisárið
- Eldur kviknaði á Fiskislóð
- Einn vann 2,5 milljónir króna
- Festist í Hveragerði eftir bjórhátíð
- Æfðu viðbrögð við flugslysi í Reykjavík
- Talning sýnir fá alvarleg slys á Höfðabakka
- Ferðamenn sáust pota í sel
- Andlitið tók skellinn
- Ung börn utan skóla í tvö ár: Grafalvarleg staða
- Frumvarp um símanotkun til umsagnar
- Slökkvilið kallað til vegna alelda bíls
- Hrindir af stað söfnun á eigin spýtur
- Hanna Katrín lætur sig víða vanta
- Fylgjast með Outlaws og Bandidos
Erlent
- Ísrael hafi samþykkt fyrsta áfanga brottflutnings
- Segir friðarsamkomulag í augsýn
- Það var komið fram við okkur eins og dýr
- Heitir því að afvopna Hamas
- Að öllum líkindum fyrsti kvenkyns forsætisráðherra
- Flokkur fyrrum forsætisráðherra bar sigur úr býtum
- Fulltrúar Hamas og Ísrael funda í Kaíró
- Rússar herða árásir á lestarkerfi Úkraínu
- Trump: Ég mun ekki líða neinar tafir
- 137 aðgerðarsinnar fluttir til Tyrklands
- Vikið frá störfum í kjölfar ásakana um misnotkun
- Fólk ætti ekki að mótmæla til stuðnings Palestínu
- 30 særðust í árás á lestarstöð
- Barátta sem við eigum hvern einasta dag
- Tveir látnir eftir skotárás í Frakklandi