Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008
31.7.2008 | 10:00
Hlunnindi - reki
Nú hefur fimmta andarnefjan rekið á land.
Reki hefur alltaf talist til hlunninda fyrir jarðir sem liggja að sjó, amk nýtanlegur reki. Sé dýrið nýdautt er kjötið af því mikil búbót en úldnuð hvalhræ hafa ekki verið fagnaðarefni, enda eru dýrin engin smá stykki eins og lýsingin á andarnefjunni ber með sér, þó smáhveli sé.
http://nat.is/Hvalir/andarnefja.htm
ANDARNEFJA
(Hyperoodon ampullatus)
Stærð fullvaxinna karldýra í hafinu umhverfis landið er að meðaltali 8,4 m og 7½-8½ tonn og kvendýra 6-7 tonn. Lífslíkur eru 40-60 ár. Trýnið er mjótt og ennið hátt og hvelft. Í því er mjög feitt lýsi, líkt og í búrhvalnum, sem notað var m.a. í hægðatregðulyf og húðkrem. Tvær 2-4 sm langar tennur eru fremst í neðra skolti. Sporðurinn er ekki klofinn og liturinn er dökkgrár, en neðra borðið nokkru ljósara.
----------------------------------------------------------------
Við þessa frétt af andarnefjunni minntist ég klausu úr Íslands-og Mannkynsögubók NB1. Frá Upphafi til upplýsingar, (bls.212-213) en þar segir:,,Rekið hvalkjöt getur verið varasamt og vissara að reyna kjötið. Þess vegna er soðinn biti af hvalnum og hann gefinn niðursetningi eða hent fyrir hundinn og athugað hvort honum yrði meint af. Sumum þótti það illt að eiga á hættu að missa hundinn sinn."
Bóndi einn í Þingeyjarsýslu fann rekinn hvalkálf á síðari hluta 18.aldar. Hann var ekki viss hvort hvalurinn væri ætur og sauð fyrst bita fyrir son sinn.... því hann gat ekki hundlaus verið...
Sonurinn var svangur, át hvalinn og varð ekki meint af.
Já, það er misjafnt hvað er verðmætast í augum manna.
Fimmta andarnefjan finnst dauð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2008 | 19:35
Sumarsæla við Hvaleyrarvatn
Það er sjaldan sem maður upplifir slíka skaðræðisblíðu og var í dag. Við plöntuðum okkur niður við Hvaleyrarvatn, 3 ættliðir, amma, dætur, 2 barnabörn og 2 hundar og við nutum veðursins.
Hvað við erum heppin að hafa svona útivistarsvæði við bæjardyrnar. Þarna var múgur og margmenni og þegar ég gekk hringinn í kringum vatnið með Mílu, mættum við 8 hundum. Allir nutu þessarar himins blíðu.
Krakkarnir óðu í vatninu, voru með báta og háfa og reyndu að fangi síli og hundarnir notuðu vatnið til að kæla sig.
Helmingurinn af allri ánægjunni er svo að vera með nesti......
Það er ekki spurning hvar við verðum á morgun, heldur klukkan hvað við förum þangað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2008 | 12:16
Kerið, náttúruauðlind
Greiða eftir á fyrir komur að Kerinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 31.7.2008 kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2008 | 23:10
Esjan í dag
,,Gengið" var óstöðugt í dag..... Fór upp og niður.... amk 3 gjaldmiðlar, því Dollarinn, Líran og ferðatékkinn drifu sig á Esjuna. Veðrið var frábært, við héldum að það yrði meiri vindur.
Við lögðum af stað upp fjallið kl. 12:30.... Við fórum mýrina upp, styttri en brattari leið.... á miðri leið settumst við niður og fengum okkur kaffi og nutum útsýnisins. Við vorum rétt fyrir neðan Stein.... við skrifuðum í gestabókina við Stein.... Hver les þessar gestabækur ?
Það var rosalega mikið af útlendingum í fjallinu. Við hljótum að hafa verið eitthvað annars hugar rétt fyrir neðan klettabeltið.... því við eltum einhverjar útlenskar stelpur, fórum vitlausa leið.... og urðum nánast að bjarga útlensku stelpunum upp....
Eftir á sáum við að leiðin sem allir aðrir fóru var merkt og með keðjum til að halda í .... og við bara í lífshættu, því við nánast skriðum upp og héngum á litlum nibbum... þangað til við skriðum upp að keðjunum. Vorum 2:20 mín. upp. Önnur gestabók á toppnum...
Uppi var útsýnið frábært, en smá saman kom þokuslæðingur.... við náðum að taka myndir og komast niður... alltaf elti þokan okkur. Við fórum lengri leiðina niður og vorum sléttan klst að bílnum.
Ferðin var frábær.... alltaf erum við svo blessaðar með veður... það helli-rigndi á leiðinni heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.7.2008 | 11:56
Selvogur-Þorlákshöfn
Gengið ætlaði að ganga á Esjuna í gær. Ég hringdi í lögregluna og hún sagði að við yrðum sennilega stoppaðar af vegna leitarinnar af nakta manninum.
Gullinu langaði í Selvoginn og þar sem hann átti afmæli varð nú að leyfa honum að ráða.... en þó hann ætti afmæli slapp hann ekki við að þjónusta mig og Berghildi.... hann stakk upp á að við gengjum frá Selvoginum til Þorlákshafnar.
Við afleggjarann að hjólhýsinu er skilti.... stikuð gönguleið til Þorlákshafnar, 15 km.
Við lögðum af stað kl 1 frá hjólhýsinu, gegnum fyrst eftir vegslóðanum og stikum.... fundum hvergi gönguslóða. Ferðin sóttist seint í sandinum og ekkert að sjá nema netakúlur í öllum litum.... þær voru mikið myndefni fyrir Berghildi. Veðrið var dásamlegt, skýjað en um 20°C.
Þegar við sáum stóran klett standa upp fyrir sjávarkambinn eftir ca 2 tíma, ákvað Berghildur að fara niður í fjöru,... eftir það gengum við á klöppunum við sjóinn... þar var öll fegurðin og úrvalið hvílíkt af steinagerðum og hraunmyndunum, hellar og hvaðeina. Við komumst varla áfram fyrir myndefni. Ég var ekki með myndavél svo ég verð að fá afrit hjá Berghildi.
Leiðin var öll seinfarin og tók nokkuð á þó hún væri slétt! þ.e. engin fjöll.
Lúlli keyrði 4 km á móti okkur og tók okkur upp í skammt frá gömlum fiskeldistönkum, þá vorum við búnar að ganga tæpa 14 km á 5 og hálfum tíma með stoppum.... klukkan orðin hálf 7.
Rétt eftir að hann tók okkur upp fór að rigna, tímasetningin var því frábær. Það var brennt í hjólhýsið, Lúlli fór að grilla, en við Berghildur fórum í sturtu hjá Sigfríði í T-bæ.
Við vorum öll orðin glorhungruð.... Ummm... hvað maturinn var góður. Við spiluðum nokkur spil, þægilegt að vera inni í svona beljandi rigningu og hífandi roki.
Tókum saman dótið og fórum heim fyrir hádegi í dag...... hreint frábær ferð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2008 | 01:07
Gullið og Donna Jonna eiga afmæli
Hann á afmæli í dag....
Innilega til hamingju með afmælið Gullið mitt.
Hann gengur undir mörgum nöfnum hjá mér....
Hann er í fyrsta lagi Gullið...
Hann er ferðamálaráðherra... þegar hann skipuleggur hlaupaferðir...
Hann er Bíðari nr. 1.... þegar hann þarf að bíða óheyrilega lengi eftir mér...
Hann er bílstjóri í hlaupa- og gönguferðum....
Hann á það til að vera Ljónið... þegar hann rís upp á afturlappirnar og er konungur frumskógarins.... urr...
Hann er auðvitað maðurinn, pabbinn, afinn og langafinn... það er ekki spurningin... og hann er sjómaðurinn, kokkurinn og dundarinn.... og nýlega hljóp á snærið hjá honum þegar hann varð þjónustufulltrúi og bankastjóri Gengisins
.... heppinn
.... .... ....
Donna Jonna heiðursfrænka mín í Santa Barbara og öðlingur fram í fingurgóma... á líka afmæli í dag.
Við óskum Þér Jonna mín innlega til hamingju með daginn...
við skálum fyrir afmælisdeginum... Skál fyrir Jonnu
Megir þú eiga góðan og gleðilegan afmælisdag.
Kveðja frá okkur öllum.
Afmæliskveðjur | Breytt 1.10.2008 kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.7.2008 | 20:36
Ísak Lúther 12 ára
24.júlí
Innilega til hamingju með daginn Ísak Lúther
Hetjurnar Ísak Lúther og Adam Dagur.... sem gengu Selvogsgötuna með okkur, eiga báðir afmæli um svipað leyti.
Í dag á Ísak afmæli.... orðinn unglingur
Vá hvað þetta er fljótt að líða!
Við afi óskum þér innilega til hamingju með daginn.
Afmæliskveðjur | Breytt 1.10.2008 kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2008 | 13:31
Þjónustufulltrúarnir óendanlega mikilvægir :)
Gönguferðir sumarsins hafa tekist með eindæmum vel og er það ekki síst að þakka þjónustufulltrúa Gengisins. Bókstaflega allt hefði verið erfiðara umfangs ef ekki væri hægt að treysta á þennan frábæra þjónustufulltrúa .... og Bankastjóra.
Hans starf hefur verið að fylgjast með veðri og velja góða göngudaga..... en auk þess að sendast með Gengið á upphafsstaði og sækja Gengið á endastöðvar...... og bíða óendanlega mikið þar á milli..... þá fylgir starfinu að grilla ofaní liðið og sjá um að allar brosi út að eyrum.
Þegar hópurinn fékk nafnið Gengið, varð hann auðvitað Þjónustufulltrúi og Bankastjóri, en hvort embætti er hálft starf.... nauðsynlegt að hafa bankastjóra - allt kostar þetta.
Engin okkar er gjaldmiðillinn Pund, því engin vill ávaxta pundin.... enda reynir fólk yfirleitt að losa sig við aukapundin og þá er ég ekki bara að tala um í verslunarferðum í London....
Í Selvoginum, meðan Gengið var á Selvogsgötunni, var haldið námskeið fyrir tengdasynina. Þeir vissu ekkert af því en þetta var fyrsta bíðara og þjónustunámskeiðið..... Við vorum nefnilega lengur á leiðinni en áætlað var í fyrstu, stoppuðum oftar. En þeir stóðu sig einstaklega vel, held þeir hafi bara nánast útskrifast sem fullgildir bíðarar. Húrra fyrir þeim.
Undirstaðan að góðri ferð hjá Genginu eru nefnilega góðir og fórnfúsir aðstoðarmenn....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2008 | 15:41
Selvogsgata, seinni hluti
19.júlí
Það var heilmikið púsl að koma þessu öllu saman, því það fjölgaði í hópnum. Berghildur systir bættist við og Ísak Lúther og Adam Dagur. Við vorum 7 sem gengum seinni hluta Selvogsgötunnar.... og við sáum engan ísbjörn.
Veðrið var frábært... sól og aðeins andvari. Við vorum með nesti fyrir marga daga.... ef við þyrftum skyndilega að gista á heiðinni.... bara grín
Ég hef ekki nokkra hugmynd um hve oft ég er búin að ganga þessa leið.... Berghildur og Harpa hafa gengið Selvogsgötuna áður en Helga, Lovísa og strákarnir voru að fara í fyrsta sinn.... og þeir voru sannkallaðar hetjur.
Undanfarið hafa verið miklar umræður um hvað hópurinn ætti að heita.... enda algjört möst að gott nafn á liðinu. Stelpurnar stungu upp á ,,Gengið" og fékk hver okkar gjaldmiðilsnafn samkvæmt áhugasviði...... ég er Dollar, Helga er Líra, Harpa er Evra, Lovísa er Dönsk króna, strákarnir voru skiptimynd og smáaurar og Berghildur (margfætla) sem var gestur... gilti sem ferðatékki.
Gengið reis í upphafi ferðar en hélt sér nokkuð stöðugu á há-heiðinni þó sumir gjaldmiðlar ættu góða spretti, þá féllu þeir allir nokkuð jafnt í lok dags... á leiðinni niður að Hlíðarvatni eftir 5 og 1/2 tíma og 16 km göngu. Þar beið þjónustufulltrúinn... bankastjórinn... hann rakaði saman peningunum og keyrði með þá í bankahólfið (hjólhýsið).
Þegar við skrifuðum í gestabókina var þetta orðið heljar ævintýri þar sem allir voru komnir með bankatengd gælunöfn.
Við grilluðum og ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið sannkallað fjölskyldugrill... Vantaði bara Svavar og Bryndísi Líf. Týri kom með Ástþór son sinn og Tinnu, Gunni kom og Óli með Gabríel.
Veðrið var frábært um kvöldið, það var sofið í hjólhýsinu og 3 tjöldum.
20.júlí
Við skoðuðum Strandakirkju og heimsóttum leiði afa og ömmu bankastjórans, síðan var farið í ævintýraferð í vitann.... eftir að hafa fengið sér næringu, var dótið tekið saman, gengið frá hjólhýsinu og allir keyrðu heim eftir velheppnaða ævintýraferð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.7.2008 | 18:08
Selvogsgata, fyrri hluti
Þjónustumaður nr 1, öðru nafni Bíðari nr.1 keyrði mig og dæturnar 3 í 10-11 í Setbergi. Þar hittum við Clöru systurdóttur, en hún hefur áður gengið með okkur.
Selvogsgatan var málið, fyrri hluti. Til að taka þetta með trompi og vegna hin dásamlega veðurs.... ákváðum við að ganga þaðan..... segið svo að það sé ekki sjoppa á leiðinni í gönguferðum.
Það er sko ekki sama í hvora áttina maður gengur, leiðin er miklu skemmtilegri, fallegri og auðveldari ef maður gengur frá Bláfjallaafleggjaranum til Hafnarfjarðar en öfugt eins og við gerðum núna. Þessi leið er öll á fótinn og annað útsýni en þegar maður hefur hafið og bæinn fyrir augunum.
Á leiðinni var ýmislegt rætt, nafnið á hópnum, Fimmvörðuháls.... sem hefur strax fengið glansmyndarstimpil á sig.... komandi göngur, útbúnaður og fleira.
Við stoppuðum tvisvar á leiðinni fyrir utan að við komum við í Valabóli og skrifuðum okkur í gestabókina.
Í þetta sinn klikkaði engin okkar á nestinu.... með nesti fyrir marga daga
Þjónustumaður nr. 1 og Venus biðu síðan eftir okkur á Bláfjallaveginum, með ískalt kók og sjóðheitt kaffi í brúsa. Hann fær 5 stjörnur..... ekki spurning
Við lögðum af stað um hádegið og vorum 4 klst að ganga 14,5 km. Á morgun verður seinni hlutinn genginn.... skiltið við veginn segir að sá spotti sé 18 km.... en við látum okkur nægja 16 km, verðum sóttar að fjallsrótum við Hlíðarvatn.
Bloggar | Breytt 28.7.2008 kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007