14.9.2008 | 23:56
Boðorðin tíu
Þessu ber mér að svara og stend ég áfram föstum fótum á minni skoðun að syndin sé aðeins ein og hún er vantrú á Drottinn vorn Jesú Krist. Eins og Prédikarinn hef ég Biblíuna mér til stuðnings.Þó syndin sé aðeins ein eru boðorðin tíu samt sem áður enn í fullu gildi. Það er hins vegar STÓR munur á hvort þau eru öll synd eða hvort hluti þeirra sé brot á samfélagsreglum manna.
Prédikarinn benti réttilega á að ef eitt þeirra er brotið er búið að brjóta þau öll og mér finnst ég lesa það út að hann telji brot á þeim vera synd. Jesús Kristur læknaði á hvíldardögum, en þá má ekkert verk vinna en hann var samt syndlaus.
Kristur boðaði breytingar og hann er ekki að tala um boðorðin tíu þegar hann segir í Matt. 5:19
Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það, mun kallast minnstur í himnaríki, en sá, sem heldur þau og kennir, mun mikill kallast í himnaríki.
í versum 22-48 kemur listinn yfir boðin sem um er rætt .og Jesús segir ekki að brotin séu synd, heldur mun sá sem brýtur þau og kennir kallast minnstur í himnaríki.
Jesús dró boðorðin tíu saman í tvöfalda kærleiksboðorðið....
Lúk 10:27
Hann svaraði: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum, og náunga þinn eins og sjálfan þig.
Róm 13:9 Boðorðin: Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki girnast, og hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.
Frá 1. versi kaflans er Páll að tala um samfélagsleg atriði, fólk sem lifir í samfélagi verður að taka tillit til hvors annars, við troðum ekki á hvort öðru og segjumst svo elska bæði Guð og náungann. Og hann segir í Galatabréfinu: Gal 5:14
Allt lögmálið er uppfyllt með þessu eina boðorði: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.
Jóh 16:8
Þegar hann [Jesús] kemur, mun hann sanna heiminum, hvað er synd og réttlæti og dómur,
Jóh 16:9
syndin er, að þeir trúðu ekki á mig,
Róm 6:23
Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum.
Róm 3:23
Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð,
Hver var synd englanna samkvæmt 2.Pét 2:4 Jú, þeir skiptu Guði út fyrir annan höfðingja, ekki þyrmdi Guð englunum, er þeir syndguðu. Baráttan er nefnilega um tignirnar og völdin.
Spurning er hverjum maður játast, á hvern maður trúir en ekki hvort mér takist að halda boðorðin, því það hefur engum manni tekist.
Jóh 16:9 syndin er, að þeir trúðu ekki á mig.
Post 10:43 Honum bera allir spámennirnir vitni, að sérhver, sem á hann trúir, fái fyrir hans nafn fyrirgefningu syndanna.
Jóh 8:24 Þess vegna sagði ég yður, að þér munduð deyja í syndum yðar. Því ef þér trúið ekki, að ég sé sá sem ég er, munuð þér deyja í syndum yðar.
Trúarjátningin felst í því að játa Jesú Krist. Sá sem játar hann mun frelsast fyrir náð hans en ekki fyrir nein af þeim verkum/boðum sem sá hinn sami reyndi að halda. Það er hins vegar annað mál að þeir sem játast Kristi og fylgja honum, reyna eftir fremsta megni að ganga hinn þrönga veg og lifa í sátt, samlyndi og í kærleika til náungans og á þann hátt reynum við að halda öll boðorðin... Jesús dró þau saman í eitt boðorð -tvöfalda kærleiksboðorðið- kanski er það boðorðið sem Jóhannes og postularnir eru að tala þegar þeir tala um boð Guðs.
1.Jóh 5:1-5
Hver sem trúir, að Jesús sé Kristur, er af Guði fæddur, og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans. -2- Að vér elskum Guðs börn þekkjum vér af því, að vér elskum Guð og breytum eftir boðorðum hans. -3- Því að í þessu birtist elskan til Guðs, að vér höldum hans boðorð. Og boðorð hans eru ekki þung, -4- því að allt, sem af Guði er fætt, sigrar heiminn, og trú vor, hún er sigurinn, hún hefur sigrað heiminn. -5- Hver er sá, sem sigrar heiminn, nema sá sem trúir, að Jesús sé sonur Guðs?
1Jóh 5:11-13
Og þetta er vitnisburðurinn, að Guð hefur gefið oss eilíft líf og þetta líf er í syni hans. -12- Sá sem hefur soninn á lífið, sá sem ekki hefur Guðs son á ekki lífið. -13- Þetta hef ég skrifað yður, sem trúið á nafn Guðs sonar, til þess að þér vitið, að þér hafið eilíft líf.
Þetta nægir í bili - en af nógu er að taka
Flokkur: Trúmál og siðferði | Breytt 15.9.2008 kl. 02:05 | Facebook
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Bloggvinir
Af mbl.is
Erlent
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana
- Skutu langdrægri eldflaug í átt að Úkraínu
- Flækingshundar auka áhuga á pýramídum
- Tveir Danir á meðal ferðamanna sem létust
- John Prescott er látinn
- Boða byltingu í flugi til Grænlands
Fólk
- Sjónvarpsverðlaun afhent í fyrsta sinn
- Herra Hnetusmjör fagnar átta árum edrú
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
- Endurgerði þekkt kvikmyndaveggspjald buxnalaus
- Liam Payne borinn til grafar
- Elton John mætti allnokkrum kílóum léttari
- Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti
- Jarðarför Liams Payne í dag
- Vaknar grátandi af söknuði um miðjar nætur
- Náði botninum við dánarbeð ömmu sinnar
Athugasemdir
Guð bannaði aldrei að gera góðverk á hvíldardögum; frekar þannig að það var akkúrat það sem ætti að einkenna hvíldardagurinn. Sá dagur í vikunni sem allir áttu að hafa nóg að borða og gátu hvílt sig af striti vikunnar. Í Jesaja er talað um að við eigum að kalla hvíldardaginn fegins dag eða gleðidag. Jesú talaði líka um þetta þegar fariseyjarnir voru að reyna að leiða Hann í gildru með því að lækna á hvíldardegi:
Jesús var ekki þarna að brjóta hvíldardagsboðorðið; miklu frekar að gera það sem það snérist um. Jesú var að brjóta reglur þessara manna en ekki Guðs.
Þess vegna er einmitt hvíldardags boðorðið af hinu góðu. Að allir hafa einn dag í viku þar sem þeir geta hvílt sig og átt stund með Guði. Það er auðvelt að tala um kærleika en síðan gera eitthvað sem er ekki kærleiksríkt. Ef það er eitthvað sem vantar í okkar þjóðfélag þá er það að fólk héldi hvíldardag, dag þar sem Guð og fjöldskyldan er í algjöru fyrirrúmi og öll vinna gleymd og grafin.
Kveðja,
Halldór
Mofi, 15.9.2008 kl. 10:29
Blessaður Mofi,
Ég er hjartanlega sammála að hvíldardagurinn er það besta sem Guð gaf okkur því okkur er öllum nauðsynlegt að hvílast.
En það er stór munur á hvort það er synd að brjóta hvíldardagsboðorðið eða hvort við erum sjálf að snuða okkur hvíld og samfélag við Guð og menn þennan dag.
Kveðja, Bryndís
Bryndís Svavarsdóttir, 15.9.2008 kl. 12:09
Synd er auðvitað persónulegt atriði, milli viðkomandi einstaklings og Guðs en ekki fyrir aðra að benda á og hvað þá óska einhverjum vítisvistar; sá sem gerir það er vægast sagt á villi götum. En Biblían er skýr að synd er lögmálsbrot ( Fyrsta Jóhannesarbréf 3:4 ) og ef eitthvað er lögmál þá eru það boðorðin tíu. Ég sé aðeins rembing til að afsaka brot á þeim sem vandamál viðkomandi einstaklings að beygja sinn vilja undir vilja Guðs.
Kveðja
Halldór
Mofi, 15.9.2008 kl. 12:17
Blessaður Mofi,
Synd er ekki persónulegt atriði að mínu mati.
Jesús sagði sjálfur: ,,syndin (í eintölu) er að þeir trúðu ekki á mig." Fyrstu boðorðin kveða á um samband við Guð ,,Þú skalt ekki hafa aðra Guði en mig" og við eigum fullt í fangi með að halda það lögmál.... brot á því er lögmálsbrot.
1.Jóh 2:1
Börnin mín! Þetta skrifa ég yður til þess að þér skuluð ekki syndga. En ef einhver syndgar, þá höfum vér árnaðarmann hjá föðurnum, Jesú Krist, hinn réttláta.
Þetta ,,ef" vekur upp spurningar, dettur einhverjum í hug að postularnir hafi verið syndlausir. Nei, en hver er syndin, hún er að leiðast frá Jesú Kristi, missa trúna á hann.
Kaþólska kirkjan var dugleg að halda uppi hræðsluáróðri, bókstaflega allt var synd. Mótmælendur klufu sig frá henni, einmitt með öðrum skilningi á syndinni. Það er það sem gerir okkur envangelisk lúthersk.
Margir söfnuðir hér á landi prédika að trúin ein nægi en um leið og þú ert kominn inn fyrir dyrnar, þá hlaðast á verkin sem þú verður að gera svo þú sést verðugur.
Mín skoðun er alls ekki sú að við getum gert hvað sem er... eins og margir orða það ,,að syndga upp á náðina."
Sá sem er kristinn í hjarta sínu hugsar ekki þannig.
Trúin á Krist á að hugga okkur og uppörva svo við viljum bæta okkur en ekki að draga okkur niður í örvæntingarleysi af því að við séum syndarar og getum aldrei staðið undir því sem við ,,eigum" að gera.
Með kveðju, Bryndís
Bryndís Svavarsdóttir, 15.9.2008 kl. 12:51
Mig grunar að þú ert að vísa í Jóhannes en mér finnst fólk lesa það ekki í heild sinni til að fá það sem ég myndi segja vera réttan skilning á því.
Til þess að dómurinn um glötun geti verið sanngjarn er að menn eru dæmdir eftir verkum en ekki vegna trúar. Þeir sem dæmast ekki, þeir dæmast ekki vegna trúar.
Hérna er stutt tilvitnun frá Lúther varðandi þetta:
Mótmælin snérust að stórum hluta um að fyrirgefningin væri ókeypis og að menn gætu ekki keypt eða selt hana eins og þeir væru guðir hér á jörð. Það ásamt mörgum öðrum atriðum þar sem Kaþólska kirkjan hafði farið út af sporinu eins og með sölu aflátsbréfa og fleira.
Sá sem er kristinn vill fylgja því sem Kristur bauð og fátt jafn áberandi og boðorðin tíu. Hann vill ekki fylgja þeim vegna refsingarinnar við að brjóta þau heldur af kærleika til Guðs og vegna þeirra vitneskju hve mikið það kostaði að borga fyrir þessi afbrot hans.
Held að við erum ekki svo ósammála :)
Kv,
Halldór
Mofi, 15.9.2008 kl. 13:15
Blessaður Mofi,
Það er satt við erum ekki svo ósammála, við erum alla vega sammála um að það er ,,trú þín bjargar þér" eins og Kristur sagði svo oft, en ekki verkin - það getur ekki verið blanda af báðum- annað hvort frelsumst við fyrir trú og af náð eða við frelsumst fyrir verk.
Róm 11:6
En ef það er af náð, þá er það ekki framar af verkum, annars væri náðin ekki framar náð.
Gal 5:4
Þér eruð orðnir viðskila við Krist, þér sem ætlið að réttlætast með lögmáli. Þér eruð fallnir úr náðinni.
Þökkum fyrir það á hverjum degi að við verðum ekki dæmd fyrir verkin... munum orð Jesú í Markúsi:
Mark 10:18
Jesús sagði við hann: Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn.
Bryndís Svavarsdóttir, 15.9.2008 kl. 13:40
Ps. ég meina nú ekkert sérstakt með þessu feitletri - það kom óvart
Bryndís Svavarsdóttir, 15.9.2008 kl. 13:41
Mofi, 15.9.2008 kl. 14:01
Elsku trúbróðir,
Það er satt hjá þér og forsendan fyrir fyrirgefningu er að biðja um hana í trú. Við erum bara eina bæn í burtu.
Bryndís Svavarsdóttir, 15.9.2008 kl. 14:22
Hjartanlega sammála!
Takk fyrir gott spjall
Mofi, 15.9.2008 kl. 17:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.