Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Fjármál

Hefði aldrei gerst ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið við stjórn!

Síðasta stjórn hefði aldrei fengið grænt ljós frá Vinstri grænum til áframhaldandi starfa eftir að boðað væri til þingkosninga. 
Sjálfstæðisflokkurinn má því eiga það að með þessu fordæmi verður hann að teljast ,,fjölskylduvænni" en núverandi stjórn... sem hefur eytt öllum sínum dýrmæta tíma í eitthvað annað en þau mál sem áttu að vera í forgangi s.s. endurreisn atvinnulífsins og skjaldborgin um heimilin. 
mbl.is Þjóðarbúið mun ná sér á strik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert!

Mér finnst þessi grein Bubba sérstaklega athyglisverð... þar sem það er lokað fyrir Istorrent.

Ekki veit ég hvaða tekjur Bubbi gefur upp til skatts... það væri fróðlegt að tékka á því hjá tónlistarmönnum almennt, hvaða tekjur þeir gáfu upp árin fyrir lokun Istorrent og svo árið sem hefur verið lokað...


mbl.is Bubbi hótar að hætta útgáfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað kostar þetta?

Nú fara fram rannsóknir á rannsóknir ofan og fjármálaspekingar vinna hægri vinstri... Hvað fær almenningur svo út úr þessu? ENN MEIRA TAP.

Um daginn var sagt að kostnaðurinn við einhverja fjármálaráðgjöf vegna bankahrunsins væri kominn í 150 milljónir og það voru 15 manns á launum við herlegheitin... Er eitthvað ekki í lagi... 10 milljónir á mann að meðaltali... Ætlar þessu aldrei að linna?


mbl.is Hægt að nýta sambönd Joly
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppin að búa ekki í Rvík

Það kemur manni ekkert á óvart lengur... þeir virðast eiga nóga peninga í Reykjavík eða eru þeir ekki búnir að frétta af bankahruninu og kreppunni. Átta menn sig ekki á því að þeir eru að eyða fé hins almenna borgara.
AUÐIR GLUGGAR eiga að fá andlitslyftingu... Ætli borgarstjórnin ætli að verða að gínum í gluggunum... Það yrði amk talið frumlegt atvinnuframtak... ný atvinnugrein.


mbl.is Miðborgin fær andlitslyftingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er hér !!!

HÆ Katrín... ég er hér.... ég hef verið að mála...  og hef ekki getað lifað á listinni (nema matarlystinni)... og ég auglýsi hér með eftir eyðublaðinu til að skrá mig... fyrirgefið SÆKJA UM!


mbl.is Leggur til breytingar á listamannalaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afnemið biðlaunin...

Maður hefur nú aldrei skilið að þjóðin kýs stjórn til fjögurra ára... og eftir þessi 4 ár... fara menn á biðlaun.  Halló... þeir vissu að þeir væru bara ráðnir í 4 ár... Þeir eru sömu sporum og verktakar og annað fólk sem er ráðið í ákveðinn tíma - eftir 4 ár er verktakatíminn BÚINN.
mbl.is Leggur til afnám laga um eftirlaun ráðamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki betra að vera í lítilli íbúð og halda henni!

Sennilega eru margir sem vildu skipta við Rakel, losna við sína eign og minnka við sig og geta haldið íbúðinni.
Rakel kvartar yfir því að vanta herbergi... hér kemur ráð sem ótal foreldrar hafa notað. Það er að láta eldra barnið fá hjónaherbergið og sofa sjálf í stofunni.
mbl.is Föst í of lítilli íbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í samhengi !

Það hefur alltaf verið vitað að blaðamenn hafa sjaldnast rétt eftir... og stundum seljast fréttirnar betur ef þær eru teknar úr samhengi.

En það er umhugsunarverðara að FORSETI ÍSLANDS, sem á að vera SAMEININGARTÁKN þjóðarinnar og á að vera ÓPÓLITÍSKUR... hefur ekki haft það í heiðri í þessu samtali við þýska blaðamanninn.


mbl.is Viðtalið tekið úr samhengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja...há

Ég vona að höfundurinn hafi ekki samið um að fá greitt EFTIR flutning verksins!
mbl.is Bara 631 ár eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagræðing?

Ef það er hagkvæmt að hafa öll norrænu sendiráðin í Berlín... er þá ekki bara styttra að flytja þau heim. Það er nóg af tölvufyrirtækjum hér sem gætu tekið að sér að vera í sambandi við umheiminn með sms eða msn með eða án myndavélar ???  
Hagkvæmt og menn myndu ekki missa af neinu.
Ég held þessir stjórnmálamenn séu ekki í lagi, það er allt hægt í gegnum tölvu nema að heilsa með handabandi.


mbl.is Vill fjölga norrænum sendiráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband