Leita í fréttum mbl.is

Og hvað kostar þetta?

Nú fara fram rannsóknir á rannsóknir ofan og fjármálaspekingar vinna hægri vinstri... Hvað fær almenningur svo út úr þessu? ENN MEIRA TAP.

Um daginn var sagt að kostnaðurinn við einhverja fjármálaráðgjöf vegna bankahrunsins væri kominn í 150 milljónir og það voru 15 manns á launum við herlegheitin... Er eitthvað ekki í lagi... 10 milljónir á mann að meðaltali... Ætlar þessu aldrei að linna?


mbl.is Hægt að nýta sambönd Joly
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Ég held að þessi ráðning sé peningana virði.

Offari, 11.3.2009 kl. 23:10

2 Smámynd: Ingunn Guðnadóttir

Held að ekki sé ástæða til að velta sér upp úr hvað þetta kostar. Hefðum ekki getað fengi' betri lausn, en að fá utanaðkomandi snilling til að hrista upp í og leysa sukkmálin hér hjá okkur. 

Örugglega peninganna virði..

Ingunn Guðnadóttir, 11.3.2009 kl. 23:34

3 identicon

Hvað kostar þetta? Það veit enginn.

En hitt skulum við alveg hafa á hreinu að verði þessi mál ekki rannsökuð af hlutlausum aðilum (og slíkir fyrirfinnast varla hér á landi) þá verður það okkur dýrara. Þá glötum við leifunum af trausti umheimsins. Og það sem ennþá verðmætara er: Þá glötum við restinni af sjálfsvirðingunni.

Mér er alveg sama hvað þetta kostar í peningum. Það er ekki nema dropi í hafið í samanburði við það sem glæpalýðurinn hefur stolið. Svo bara áfram Eva Joly!

sleggjudómarinn (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 03:01

4 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

"væri kominn í 150 milljónir og það voru 15 manns á launum við herlegheitin... Er eitthvað ekki í lagi... 10 milljónir á mann að meðaltali..."

Þú virðist bara vera nokkuð sleip í stærðfræði....

Ef að heildarkostnaður deilt með starfsmannafjölda er reiknaður þá endurspeglar sá útreikningur ekki mjög meðallaun starfsmanna, vegna ýmis annars kostnaðar.

Ef þú heldur það samt, þá mæli ég með því að þú prófir að taka heildarútgjöld þjóðkirkjunnar og deila með  fjölda presta eða jafnvel heildarfjölda starfsmanna þjóðkirkjunnar og sjá hvort að þú haldir að starfsmenn þar séu með yfir 100 milljónir á mánuði... því útgjöldin eru gríðarleg, en starfsmenn frekar fáir í því tilfelli....

Annars er ég gríðarlega sáttur við komu Joly, því ef íslendingur hefði sinnt þessu, þá hefðum við fengið að heyra frá Baugsmönnum og öðrum að viðkomandi rannsakandi væri gerður út af Davíði Oddssyni og Birni Bjarnasyni, s.br. Baugsmálið, ég held að útrásarplebbarnir geti varla talað um að Joly sé að rannsakandi vegna þess að Davíði Oddsyni sé "illa við þá".

Ingólfur Þór Guðmundsson, 12.3.2009 kl. 07:40

5 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæl öll sömul,
Ég gerði mikla leit að þessari 150 milljóna króna kostnaðarfrétt, en fann hana ekki, en ég hef staðið í þeirri trú að þessar millur hafi verið laun til Íslendinga en ekki útlendinga.
Ég hef ekkert á móti Joly, held hún sé góður kostur fyrir okkur og að sjálfsögðu þarf að rannsaka málið.
Mér er nú ekki sama hvað þetta kostar... við verðum að komast upp úr þessu einhverntíma.

Bryndís Svavarsdóttir, 12.3.2009 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband