Færsluflokkur: Löggæsla
20.12.2012 | 16:47
Lentum í árekstri í Dallas
Við vildum helst ekki keyra til Humble án þess að fá töskurnar en við verðum að keyra þangað í dag (19.12.2012). Við tókum leigubíl upp í Rental Car Center og fengum bílinn, ákváðum síðan að fara fyrst með rútunni upp í flugstöð og bíða eftir fluginu frá Denver. Okkur fannst það snilld að þurfa þá ekki að hafa áhyggjur af bílastæði. Konan hjá Frontier athugaði málið í tölvunni og síðan á rúllubandinu og töskurnar voru komnar. Hvílíkur léttir - Konan kvittaði á eyðublaðið að við fengum þær í hendur kl 12 á hádegi.
Þá var það rútan aftur í bílaleiguna. Við sóttum bílinn okkar, settum hótelið í Humble inn í Garmin. Ég rétti Lúlla töskuna undan Garmin og þegar hann opnaði hanskahólfið voru 2 stórar pakkningar af lyfjum þar, sem við skildum eftir í útkeyrsluhliðinu. Við lögðum af stað. Ég var búin að keyra um 10 mílur, þegar ég sá að bílar fyrir framan voru að færa sig til hliðar, ég var á miðjuakgrein. Ástæðan var að upp á hæðinni - eða aðeins niðri í hallanum hinum megin lá vörubretti með kassastafla á minni akgrein. Ég setti stefnuljós og dró úr hraðanum en þegar allir færa sig í einu og enginn dregur úr hraða - þá komst ég ekki út af akgreininni.
Ég var næstum komin að brettinu þegar annar bíll skall aftan á okkur. Ekkert smá högg, við köstuðumst út á innstu akgreinina en ég gat afstýrt að lenda á steinblokkunum. Nú fyrst hægðist á umferðinni og við komumst út í kant. Í hinum bílnum var ungur strákur - við vorum bæði í sjokki, púðinn hafi sprungið hjá honum en ég hef grun um að hann hafi ekki verið í belti. Guði sé lof að við fundum ekki fyrir neinu en hann fékk verk í öxlina þegar frá leið.
Síminn okkar virkar ekki nema fyrir sms hér en hann hringdi í 911 og pabba sinn. Nú tók við 4 klst ferli því við vorum á svæði Dallas lögreglunnar. Fyrst komu lögreglumenn úr öðrum umdæmum og voru okkur til halds og trausts. Allir svo almennilegir og hjálpsamir. Pabbi stráksins reyndi að hringja í 1-800-númer til bílleigunnar... það símtal varð meira en klst langt eftir að hann afhenti mér símann sinn til að gefa upplýsingar... Meira að segja lögreglan brosti þegar ég sagði þeim það á eftir og bætti við:"do you know how many times I had to spell my name"
Fjöldi lögreglubíla kom, sjúkrabíll og slökkviliðið - það var yfirmaður slökkviliðsins sem tók símann hjá mér í miðju símtali og tilkynnti að hann tæki yfir í þessu máli. Eftir að lögregla Dallas umdæmis kom, var tekin skýrsla af okkur og ég get varla lýst því hvað ég er fegin að lyfin voru ekki í hanskahólfinu þegar lögreglan sótti sjálf pappíra þangað. Þessir tveir lögreglumenn frá Dallas Police voru hreinustu englar. Þeir gerðu skýrsluna fyrir okkur - töluðu við alla sem þurfti að tala við, þar á meðal bílaleiguna og hringdu á dráttarbíl sem tók báða bílana (báðir óökufærir).
Mín ráðlegging til þeirra sem lenda í umferðarslysi í USA... ekki hringja í bílaleiguna ef bíllinn er óökufær - bíðið eftir lögreglunni - hún höndlar málið best :D
Síðan keyrðu þessir hjálpar-englar okkur í tveim lögreglubílum aftur upp á Advantage bílaleiguna og fylltu út tjónaskýrslu fyrir okkur þar. Ég veit ekki hvað við hefðum þurft að ganga í gegnum ef þeir hefði ekki verið svona hjálpsamir.
Við fengum nýjan bíl og lögðum af stað til Humble. Þegar við keyrðum framhjá slysstaðnum okkar, mundum við eftir að einn lögreglumaðurinn sem kom fyrst á staðinn, sagði okkur að fyrir hádegi í dag myrti byssumaður 2 á bensínstöðinni sem var 100 metra frá slysstaðnum.
Það voru 248 mílur til Humble, við sluppum út úr Dallas í björtu og án teljandi umferðartafa. Ég var orðin dauðþreytt þegar við komum til Humble um 10-leytið og fljót að sofna.
Super 8 Motel - Intercontinental Airport7010 Will Clayton Parkway, Humble, TX, 77338
Phone: 1-281-446-5100 room 214
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2010 | 14:51
Hollendingar töldu sig kunna ráð til að fækka afbrotum
Í baráttu við afbrot, þýðir sem sagt ekki að gefa eftir í von um að ástandið lagist... það er betra að herða tökin og það er frábært að lögreglan er vakandi við að taka þá sem freista þess að keyra undir áhrifum.
Óvenju margir ölvunarakstrar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.12.2009 | 12:37
Eru gömlu útlegðarlögin enn í gildi?
Það segir í Íslands-og mannkynssögu I að á þjóðveldisöld hafi verið þrenns konar refsing verið í gildi, Útlegð (sekt), fjörbaugsgarður og skóggangur.
Fjörbaugsgarður var 3ja ára útlegð frá landinu en skóggangur var ævilöng útlegð.
Það er spurning hvort þessi lög hafi nokkurn tíma verið afnumin eða ef þau hafi verið afnumið hvort það sé ekki ráð að taka þau upp... og nota gagnvart þeim sem hafa ,,nýlega" fengið ríkisborgararétt eða búa hér án ríkisborgararétts og eru í afbrotum.
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2009 | 22:19
Sorglegt
Það hefur verið áberandi hversu margir Pólverjar hafa verið brotlegir við lög hér á landi... ofbeldi hefur viðgengist, þjófagengi hafa vaðið uppi og hlutir merktir íslenskum fyrirtækjum seldir á mörkuðum úti í nokkur ár og nú smygla þeir eiturlyfjum inn í landið. Hvað þarf eiginlega til að menn verði brottrækir héðan?
Þeir Pólverjar sem eru heiðarlegir vilja örugglega að hinir brotlegu verði brottrækir, því annars dragast þeir inn í vantraust okkar, því við erum svo gjörn á að setja allt undir sama hattinn.
Reyndu að smygla 5995 e-töflum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2009 | 01:22
New York - Denver - Pueblo West - Guymon, Oklakoma
Ég rétt gat klárað síðustu bloggfærslu á flugvellinum í New York, áður en ég fór um borð. Opnaði tölvuna svo seint. Flugið til Denver tók 3:40 mín... Náði að sofa í 1 tíma á leiðinni. Klst eftir lendingu var ég komin með bílaleigubílinn og svo var ég slétta 2 tíma að keyra til Lilju og Joe í Pueblo West, þá var klukkan 3:10 á staðartíma... ég lagði af stað að heiman kl 14, það er 6 tíma tímamunur svo ferðalagið var orðið 19 tímar.
Ég verð að viðurkenna að ég var orðin dauðþreytt, þurfti að passa mig á leiðinni til Lilju að loka ekki augunum of lengi þegar ég blikkaði þeim... ég er með plástur en hefði sennilega ekki þurft að nota hann, hefði ég farið útaf... 80 mílur er 130 km. hraði
Ég vakti upp, fiskurinn þurfti að komast í frysti. Síðan skelltum við okkur fljótlega í rúmið. Ég sofnaði fljótlega og svaf til kl 8... Lilja var farin í vinnuna, Joe var uppfartari og félagsskapur þar til ég lagði af stað til Oklahoma.
Ég lét garminn ráða, hefði betur ráðið sjálf og keyrt leiðina sem við Lúlli keyrðum þegar við fórum til New Mexico.
Þetta var nú meira sveita??? ... ég keyrði amk í 2 tíma án þess að sjá bíl og þá var það löggan sem stoppaði mig fyrir of hraðan akstur ... ég slapp með áminningu
Það eru um 600 mílur til Oklahoma City og ég keyrði um helminginn í dag. Tók áttu í Guymon og kom mér fyrir... loksins að ég sá menningu klukkan er orðin svo margt (18 hér, miðnætti heima) að Bíðarinn er sennilega sofnaður heima
1201 Hwy 54 East
Guymon, OK 73942-4543 US
Phone: 580-338-0507 room 230
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2009 | 10:23
Annað rán fljótlega...
Leggstu niður ef þú vilt lifa" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.1.2009 | 23:00
Í alvöru !!!
Enginn slasaðist alvarlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.1.2009 | 15:53
Alhæfingar
Mér hefur fundist það svolítið áberandi upp á síðkastið, hvað fólk alhæfir.
Mótmælendur á Austurvelli telja sig fulltrúa fyrir ALLA Íslendinga... einhver telur sig fulltrúa fyrir ALLA sem nenna ekki að mæta á Austurvöll...
Ég hef alltaf haldið að einstaklingur sem er ekki kosinn í forsvar fyrir nein samtök, mætti bara í eigin nafni og fyrir sig sjálfan.
Einn bloggar og spyr hvort STÓR hópur Íslendinga séu nú ekkert annað en villimenn og skepnur...
Hvað er STÓR hópur Íslendinga með blogg og hve stór prósenta af ÞEIM var með orðbragð gegn Herði Torfa??? Það er óþarfi að setja ALLA á sama bás vegna þess að fáir haga sér illa.
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2009 | 13:29
Að blása til orrustu...
Það er ábyrgðarhlutur að blása til mótmælaaðgerða. Ég efast ekki um að þeir sem skipulögðu mótmælin í upphafi hafi ekki ætlað að láta þau fara úr böndunum... Bankarnir ætluðu heldur ekki að láta almenning borga... hvorugt hefur farið eins og upphaflega var ætlað.
Fyrstu mótmælasamkomurnar sýndu samhug og alvarleika ástandsins í þjóðfélaginu, nú er það hætt að vera TOPPURINN í fréttamennskunni... nú eru lætin og óþverraskapurinn í kringum þá sem eru friðsamir, orðin aðalfréttin. Allskyns skríll hefur yfirhöndina - sennilega er orðið ,,spennandi" að mæta til að pirra lögregluna, sem er bara að vinna sína vinnu.
Lögreglan - mennirnir sem við leitum til, ef það er brotist inn til okkar, keyrt á bílinn okkar og við leitum til ef börnin okkar týnast... eru persónugerðir sem andstæðingar. Hvar eru þeirra mannréttindi. Þetta gengur ekki lengur.
Nafnbirtingin grafalvarlegt mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 23:49
Vitibornir mótmælendur :)
Það var gleðilegt að heyra að mótmælendur eru ekki svo blindaðir í reiði sinni að þeir taka skynsamlegum tilmælum.
Í þessum mótmælum kemur saman blandaður hópur manna... margir með sérþekkingu eins og þessi sjúkraliði... hann gerði sér grein fyrir hættunni og sté fram... mér finnst það aðdáunarvert af honum.
Það er líka hættulegt að kveikja eld á götunni og ég er ekki viss um að þeim liði vel á eftir sem bryti glugga í Alþingishúsinu og glerbrotið skæri einhvern illa...
Lögreglumennirnir sem reyna að halda mótmælunum ,,í böndum" eru menn sem eru að vinna vinnuna sína. Þeir eru í erfiðri aðstöðu... sjálfir skulda þeir, auðvitað hafa þeir skoðun á málunum en þeim er gert að vinna sitt starf... mótmælendur ættu að taka tillit til þess.
Hættið að kasta sprengjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Augu almannavarna á mikilvægum innviðum
- Hraun fór yfir Grindavíkurveg
- Él á Norður- og Austurlandi
- Sáu eldgosið brjótast út frá Snæfellsnesi
- Búseta skortir byggingarlóðir
- Gosið gæti varað lengur: Meiri fyrirstaða í gosrásinni
- Erlendir miðlar greina frá tíunda gosinu
- Beint: Eldgos hafið við Stóra-Skógfell
Erlent
- Boða byltingu í flugi til Grænlands
- Lars Løkke: Danir fylgjast náið með
- Vinaþjóðir Úkraínu kyndi undir sálfræðihernað Rússa
- Yfirvöld láta ekkert uppi: Sænsk herskip kölluð út
- Danir og Svíar útiloka ekki skemmdarverk
- Þúsundir þrömmuðu um götur Aþenu
- Ergelsi hjá Google
- Tvíburasystur týndust í Tyrklandi