Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Afmæliskveðjur

Til hamingju með daginn :)

LovísaHeart Heimasætan Lovísa á afmæli í dag 17.okt... er orðin 23 ára.

Ég kalla hana heimasætuna vegna þess að hún býr enn heima, ásamt kærastanum Gunnari, hundinum Venusi og kisunni ,,Klemmu eða Smellu" því hún smellti sér inn um gluggann hjá Lovísu og ákvað að setjast að þar... Enn er von á fjölgun því Lovísa er ,,eigi einsömul."

       storkur

Lovísa er nemi í Fjölbraut í Garðabæ og upprennandi lagasmiður og textahöfundur eins og má heyra á síðunni hennar... http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=193319337

Við ,,Gamla settið" sem er í útlandaflakki sendir bestu hamingjuóskir með daginn og við biðjum Lovísu og fjölskyldu alls hins besta... eigðu góðan og eftirminnilegan afmælisdag.


Til hamingju með daginn

ÁrnýHeart  Árný á afmæli í dag 11.okt... er orðin 43 ára.

Árný býr á Burknavöllunum, í sömu blokk og við, bara á 3ju hæð. Hún á 4 börn, Hafþór Örn, Sigurð Braga, Sigrúnu og Maríu Mist... og 2 barnabörn, Sverri Björgúlf og Sölva Stein.
Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að hún fari á tónleika (Vilhjálm) í tilefni dagsins.  

Innilega til hamingju með daginn.
Megi allt ganga þér og þínum í haginn og eigðu góðan dag til að minnast.


Til hamingju með daginn

Harpa

Heart  Rithöfundurinn á afmæli í dag 5.okt... er orðin 31 árs.

Harpa býr í Vogunum, ásamt Óla manni sínum, 3 sonum en þeir heita Ísak Lúther, Adam Dagur og Gabríel Natan, tíkinni Mílu og læðunni Emmu.

Innilega til hamingju með daginn. Megi allt ganga þér og þínum í haginn og biðjum þess að dagurinn verði góður og skemmtilegur í minningunni.


Týri tengdasonur fertugur

Týri tengdasonurKissing  Kissing  Kissing  Kissing  X 10 = 40

Týri tengdasonur er fertugur í dag 27.sept. rós     








Innilegar hamingju óskir með daginn kæri tengdasonur.
Megi Guð og gæfan vera með þér og þínum.

Vonum að dagurinn verði þér góður í minningunni, sendum þér bestu kveðjur frá Omaha í Nebraska.
Kossar og knús þegar við komum heim aftur. 

Tengdó

Edda á afmæli :-)

Edda-passamyndSmile    Til hamingju með daginn

Edda systir á afmæli í dag....
Er ekki viss hvort hún heldur aldrinum leyndum.....

en það er annað !!!
hún heldur að hún sé yngsta systir..... ég er ekki svo viss... hún á nú afmæli á undan mér... ég á afmæli í lok nóvember Joyful

Þessa dagana er hún á fullu að undirbúa sýningu sem verður á Hafnargötu 2 í Keflavík.... sýningin stendur yfir frá fimmtudegi til sunnudags... eða á meðan Ljósanótt er...

þar sýnir hún handverk, skartgripi og málverk....

Þetta má enginn láta fara fram hjá sér Wink


Gullið og Donna Jonna eiga afmæli

Lúlli í Colorado sept.2007
Hann á afmæli í dag.... Kissing
Innilega til hamingju með afmælið Gullið mitt.

Hann gengur undir mörgum nöfnum hjá mér....
Hann er í fyrsta lagi Gullið...
Hann er ferðamálaráðherra... þegar hann skipuleggur hlaupaferðir...
Hann er Bíðari nr. 1.... þegar hann þarf að bíða óheyrilega lengi eftir mér...
Hann er bílstjóri í hlaupa- og gönguferðum....  
Hann á það til að vera Ljónið... þegar hann rís upp á afturlappirnar og er konungur frumskógarins.... urr...

Lúlli 62 áraHann er auðvitað maðurinn, pabbinn, afinn og langafinn... það er ekki spurningin... og hann er sjómaðurinn, kokkurinn og dundarinn.... og nýlega hljóp á snærið hjá honum Wink þegar hann varð þjónustufulltrúi og bankastjóri Gengisins
                                          
Smile .... heppinn 


  Skálað fyrir Jonnu í Santa Barbara í júní 2008   .... Kissing .... Kissing ....

Donna Jonna heiðursfrænka mín í Santa Barbara og öðlingur fram í fingurgóma... á líka afmæli í dag.

Við óskum Þér Jonna mín innlega til hamingju með daginn...


við skálum fyrir afmælisdeginum... Skál fyrir Jonnu

Megir þú eiga góðan og gleðilegan afmælisdag.
Kveðja frá okkur öllum.


Ísak Lúther 12 ára

Ísak Lúther
24.júlí
Innilega til hamingju með daginn Ísak Lúther InLove

Hetjurnar Ísak Lúther og Adam Dagur.... sem gengu Selvogsgötuna með okkur, eiga báðir afmæli um svipað leyti.

Í dag á Ísak afmæli.... orðinn unglingur Wink
Vá hvað þetta er fljótt að líða!

Við afi óskum þér innilega til hamingju með daginn.

happy

 

 

 

                                           


Adam 9 ára

Adam DagurHeartWizardHeart

Elsku Adam okkar,
innilega til hamingju með afmælið.

Við afi bíðum spennt eftir að vita hvar afmælið verður haldið. Það er nefnilega mjög sérstakt að vera boðið í 7 ára afmæli.... á topp Helgafells. 

Biðjum þér alls hins besta í framtíðinni

Amma og afi. 


Til hamingju með daginn...


HelgaHeart Frumburðurinn, á afmæli í dag 5. mars

Helga (33) býr í Njarðvík með dætrunum tveim Bryndísi Líf og Tinnu Sól, 2 hundum og 2 köttum. 

Innilega til hamingju með daginn.
Vona að dagurinn beri með sér hamingju og góðar fréttir. 

Bið þess að blessun fylgi þessari afmæliskveðju og allt fari upp á við með hækkandi sól.

Emil, mágur á líka afmæli (41)
til hamingju með daginn...


Bragi Freymóðsson 88 ára

Bragi
Kissing   Til hamingju með daginn frændi....

Bragi frændi í Santa Barbara varð 88 ára í gær, 27.febr.  Við hringdum og sungum afmælissönginn fyrir hann.  Það var allt gott að frétta af þeim öllum, honum, Jonnu og Steinunni. 

Jæja, sagði hann, hvernig líkar ykkur þarna?

Hmmm... við erum búin að uppgötva að það er allt miklu frumstæðara hér, annar háttur á öllu..... og að....

Heart   We love California


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband