28.10.2011 | 02:24
Keflavik - Seattle - Las Vegas
Flugið til Seattle tók 7 og hálfan tíma... og mér fannst það ekkert svo lengi að líða... en í alvöru, það er ekki hægt annað en kvarta yfir hvað Icelandair hefur sömu bíómyndirnar lengi.
Vélin var hálf tóm... svo við gátum verið tvö með 3 sæti. Í Seattle tókum við lest á milli terminala og síðan var þó nokkur ganga að okkar hliði. Eins gott að við vorum ekki í tímaþröng.
Flugið til Las vegas er kl. 20:15 eða eftir uþb klst.
13.10.2011 | 00:35
Þjóðvegur 66 - Mother Road Route 66 videó
Þar sem ég hljóp 2 maraþon eftir hinum sögufræga þjóðvegi 66 síðustu sunnudaga, þá stóðst ég ekki að gera vídeó með myndum sem Bíðari nr 1 tók
Mother Route 66.wmv www.youtube.com
Birt með góðfúslegu leyfi Bíðara nr.1
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2011 | 18:53
Komin heim - Home again
Við keyrðum frá Des Moines til Minneapolis... ætluðum að gera meira á leiðinni en það fórst einhvern veginn fyrir. Fórum á SÍÐASTA buffetið í bili ... 2 vikur í næstu ferð
Við tékkuðum töskurnar inn og slöppuðum svo af í góða veðrinu fyrir utan flugstöðina. Í þessari ferð, sem tók 11 daga, voru hlaupin 2 maraþon (84,67 km) og keyrðar 2.686 mílur, en það var suður Minnesota - Iowa - Missouri - til Oklahoma City.
Maraþonin voru frá Lebanon to Springfield (MO) og það seinna var frá Commerce Oklahoma, gegnum Kansas og til Joplin í MO.
Í þessari ferð átti
Harpa afmæli 5.okt Happy Birthday Harpa.wmv www.youtube.com
og Árný afmæli 11.okt Happy Birthday Árný 2011.wmv www.youtube.com
11.10.2011 | 03:14
Joplin til Branson MO og þaðan til Des Moines Iowa
Lúlli tékkaði okkur út af Days Inn í Joplin á meðan ég var að hlaupa. Eftir hlaupið keyrðum við til Branson sem er með stærstu afþreygingarstöðum í USA.
Við áttum þar gjafa-gistinótt á Wilk, glæsilegu 11 hæða, 5 stjörnu hóteli með útsýni yfir stýflu og vatn (Svandís Svavars hefði orðið brjáluð)
Við vorum á 9.hæð, ég fékk fótaverki út á svölum. Eftir að hafa farið í sturtu, fórum við út að borða. síðan slöppuðum við bara af. Hótelið sem var allt hið glæsilegasta, var svo flott að netið fylgdi ekki með heldur varð að nota bissness center í lobbyinu... það varð nú til þess að ég nennti ekki í tölvuna, hvorki til að blogga eða hringja gegnum Skype.
Við fengum okkur morgunmat, skoðuðum okkur aðeins um og keyrðum síðan til Joplin, létum grafa á flokka-verðlauna-gripinn minn og héldum síðan norður, í átt til Minneapolis.
Við gistum á Rodeway Inn í Des Moines, sama hótel og við eyddum fyrstu nóttinni í ferðinni.
Herbergi 201
6.10.2011 | 18:48
Gott að vera á Days Inn :)
Þriðjudagur 4.okt
Við skiptum um mótel, fórum í næsta hús... vorum ekki ánægð með verð, gæði og þjónustu á Super 8 :( Við erum ekki með kynþáttafordóma en þegar hótelin eru komin í eigu indverja þá drabbast þau einhvernveginn niður og allt einhvernveginn lafir saman.
Við skiptum yfir í Days Inn :) Verðum hér næstu 2 nætur. Hitinn hérna hefur verið um 30°c og blessuð sólin hefur engin ský til að fela sig bakvið
Það er nú bara fréttnæmt að ég keypti mér 3 boli í gær... ég, konan sem er með 4 skúffur af bolum í fataskápnum heima... hehe... það eru allt hlaupabolir í öllum litum, það vantar ekki að þeir eru úr hágæða efni en þessir verða tilbreyting fyrir mig.
Við/ég missti mig aðeins í ungbarnadeildinni... hehummm... maður er nú að verða lang-amma... það verður sennilega að binda hendurnar fyrir aftan bak til að ég hætti í þeirri deild... þetta er svo ódýrt
Days Inn and Suites Springfield on I-44,
3114 N Kentwood Avenue, Springfield, MO 65803 US
phone: 417-833-4292 room 128
Fimmtudagur 6.okt.
Við keyrðum til Joplin, erum enn í Missouri. Hér verða gögnin afhent á laugardaginn og hér er markið. Startið er í Commerce Oklahoma og þar hélt ég að við ættum pantaðar næstu 3 nætur. Ég setti mikilvæga staði inn í Garminn en uppgötvaði þá mér til mikillar skelfingar að ég hafði pantað Days Inn í Oklahoma City... Til að reyna að leiðrétta þessi mistök keyrði ég á næsta Days Inn og bað manninn að hringja þangað og afpanta... síðan fór ég á netið til að panta nýtt hótel í Commerce... en vefurinn leiddi mig alltaf á götuna Commerce í Oklahoma City... þannig voru þá mistökin gerð í upphafi. Í stuttu máli sagt - komu ekki upp nein hótel í Commerce... svo við ákváðum að vera hér á þessu Days Inn næstu 3 nætur :)
Days Inn Joplin 3500 Rangeline Road, Joplin, MO 64804 US
phone 417-623-0100 room 311
Ingvar bróðir hefði orðið 58 ára í dag, blessuð sé minning hans
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.10.2011 kl. 01:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2011 | 22:00
Keflavik - Minneapolis - Des Moines í gær, Springfield Missouri í dag
Það var grenjandi rigning og hífandi rok þegar við fórum af landinu. Vorum með síðustu út af tollsvæðinu en ég náði að keyra upp á þjóðveg 35 í björtu. Leiðin lá suður til Des Moines höfuðborgar Iowa, heilar 234 mílur og ég orðin þreytt þegar komið var á áfangastað... gott að komast til að hvíla sig. Við gistum á Rodeway Inn, en netið lá niðri þar svo ég komst í tölvuna.
Í morgun héldum við áfram ferðinni og 380 mílur keyrðar til Springfield Missouri. Við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni og teygðum úr okkur. Fyrsta stopp í Springfield var í Expo-inu... sem er það næst-minnsta sem við höfum séð, aðeins 2 borð í anddyri Hótels. Ég læt það fylgja hér að minnsta Expo-ið var þegar ég hljóp Palos Verdes í Californiu... það var 1 stóll og borð út á stétt.
Við erum nú komin á Super 8... rétt hjá markinu... en þaðan fara rúturnar kl 6:30 á startið á morgun.
Super 8 N Glenstone Ave, Springfield, MO 65803-4414 US
Phone: 1-417-8339218 room 213
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2011 | 13:57
Eau Clarie WI - Minneapolis MN - Keflavík Ísland
Það rignir aðeins úti núna... en við höfum verið heppin með veður til þessa. Við erum að ganga frá dótinu. Tékkum okkur út fyrir hádegi, keyrum til Minneapolis og fljúgum heim kl. 19:20... frekar snemmt sem þýðir þá að við komum ELDsnemma heim.
Tilgangur ferðarinnar heppnaðist vel, tékklistinn næstum útstrikaður, hvað er hægt að gera betur.
AMEN
21.9.2011 | 01:23
Eau Claire Wisconsin
Nú fer að styttast í heimferð... Við færðum okkur nær Minneapolis í dag. Fengum smá rigningu á leiðinni annars hefur verið þurrt... veðurfræðingar klikka hér sem annars staðar.
Eau Claire er ágætis bær, við kíktum um og borðuðum áður en við fórum á hótelið.
Days Inn Eau Claire-Campus
2305 Craig Rd, Eau Claire, WI 54701 US
Phone: 715-834-3193 room 136 (þó við notum mest skype)
20.9.2011 | 02:44
Förum á morgun til Eau Claire
Höldum í áttina til Minneapolis á morgun... það rigndi smá í gærkvöldi og nokkrir dropar í morgun en svo var mátulega hlýtt og gott veður. Þetta er orðið gott, á morgun drífum við okkur af stað heim. Verðum eina nótt í Eau Claire.
16.9.2011 | 13:49
Appleton Wisconsin
Ég keyrði allan gærdaginn frá Minneapolis til Appleton. Stoppaði nokkrum sinnum á leiðinni til að rétta úr mér og notaði þá tækifærið að hala inn eitthvað af því sem var á innkaupalistanum.
Appleton er hluti af samfélagi sem heitir Fox Cities og maraþonleiðin liggur gegnum þau. Við vorum heppin með gististað, virkilega gott hér.
La Quinta Inn & Suites
Appleton College Avenue 3800 West College Ave
Appleton, WI 54914
Phone: 920-734-6070 room 413
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2011 | 11:54
Minneapolis i gær
Við flugum til Minneapolis i gær. Flugið var 6 timar. Eg náði 3 biómyndum... 28 biómyndir i vali, en helmingurinn var þegar við flugum til New York i mai.
Við keyrðum á áttuna okkar... og þau eru alltaf svo yndisleg herna, ég hafði óvart pantað einum degi of snemma en þau löguðu bara bókunina fyrir okkur án nokkurrar greiðslu. Við erum núna að fara i morgunmat... vöfflur og fineri... svo höldum við áfram til Appleton WI á eftir.
Super 8 Roseville
2401 Prior Ave N
Roseville, MN 55113-2714 US
Phone: 1-651-6368888
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2011 | 20:51
Það er ekkert að gerast á þessari bloggsíðu
Sumarið hefur verið meiriháttar... Ég hef aðeins hreyft bílinn örfá skipti, náði samt að bakka á :( annars höfum við farið allt á hjólinu í sumar.
Við hjónin erum búin að hjóla saman í Selvoginn og Bláfjallahringinn. Ég er búin að fara nokkrar ferðir í Vogana og Keflavík, Grindavíkurveginn, í Grafarvoginn, upp að Esju (og gekk á hana)... HJÓLIÐ ER ÆÐISLEGT :)
Helgafellið hefur nokkrum sinnum verið toppað og tvisvar einn daginn :) Öll 27 spjöldin í Ratleik Hafnarfjarðar voru elt uppi í sumar og Leggjarbrjótur genginn og 5 maraþon hlaupin það sem af er þessu ári.
Gönguhópurinn GENGIÐ náði hvorki að ganga Fimmvörðuháls eða Laugaveginn - það verður að bíða næsta sumars.
Það hefur því verið nóg að gera þó ekkert hafi verið sett á þessa síðu - það fer allt á Facebook núna.
25.7.2011 | 23:34
Leggjarbrjótur í 3ja sinn
Við vorum fimm, ég og dæturnar 3, Helga, Harpa og Lovísa og svo kom Clara líka með. Minnið var ekki betra en það að ég mundi ekki nákvæmlega hvar við fórum síðast að Svartagili. Fengum leiðbeiningar í I-miðstöðinni, fyrst rangar uppl en síðan réttar.
Veðrið var ágætt, hélst þurrt, var aðeins skýjað á köflum en það létti til þegar von var á útsýni. Við gerðum eins og síðast - stoppuðum smástund á 2ja km fresti. Í einu stoppinu varð Draumur viðskila við okkur án þess að við yrðum þess varar. Þegar það uppgötvaðist leituðum við en ekkert dugði. Héldum því áfram hundlausar og vonuðum að hann dúkkaði upp á leiðinni.
Leiðin frá Svartagili á Þingvöllum að Hvalfjarðarbotni er 16 km og 3 km fóru í leit að hundinum sem fannst síðan sem betur fer um kvöldið, hágrátandi greyjið.
Bílstjóri ferðarinnar á afmæli í dag og fékk afmælissöng í ferðinni og þá ánægju að bíða eftir okkur. Við vorum ekki komnar heim þegar leit var hafin að Draumi sem fannst sem betur fer innan nokkurra klukkutíma.
19 km í allt - 6 tímar og 19 mín.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2011 | 22:19
Lúk 15:11-32... Týndi sonurinn
Það er orðið nokkuð langt síðan ég hef bloggað um trúmál en nú er það að gerast. Á laugardagsmorguninn síðasta hjóluðum við hjónin í bröns í Ikea og þaðan í Loftsalinn, á samkomu. Lexían, eftir samkomuna var um ,,týnda soninn" sem ég hef að mig minnir fjallað um oftar en einu sinni í prédikun. sjónarhorn allra var afar venjulegt... sem sagt faðirinn í hlutverki Guðs sem fyrirgaf týnda syninum allt er hann snéri heim... og án nokkurrar ásökunar eða spurninga og svo reiði sonarins sem var alltaf heima.
Mitt innlegg í umræðuna (sjónarhorn sem laust niður á staðnum) var að það mætti sjá föðurinn sem kirkjuna (stofnunina/söfnuðinn)... synirnir tveir eru þeir tveir vegir sem við höfum að velja - að ganga með Guði eða að hafna honum og fara út í heiminn. Kirkjan (söfnuðurinn) á að taka vel á móti þeim sem snýr til baka en þeir sem aldrei fóru burt eiga oft mjög erfitt með að meta þá sem jafningja sem snúa aftur.
Sálmur1:1 - Sæll er sá sem eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur götur syndara... og vers 4, óguðlegum farnast á annan veg, þeir hrekjast sem hismi í stormi... vers 6b, vegur óguðlegra endar í vegleysu.
Sé sagan túlkuð sem val um tvær leiðir, er arfurinn sem sonurinn sóaði, blessanir sem hann var aðnjótandi í lifandi orði en þær hurfu er hann hætti að treysta Guði og fjarlægðist hann. Önnur trúarbrögð svöluðu ekki hungri hans og þegar hann áttaði sig á því vildi hann, fullur iðrunar og með lágt sjálfsmat, snúa heim.
Sonurinn sem var heima, lifði í allsnægtum, át af alikálfinum alla daga án þess að taka eftir því eða vera þakklátur... fannst hann etv hafa unnið fyrir því sem hann naut og eiga það skilið, hann sá ekki að hann hafði allt. Hann taldi sig meiri en þann sem snéri heim... sem minnir mann eilítið á söguna um faríseann og tollheimtumanninn.
Nýjustu færslur
- Áramóta-annáll fyrir árið 2024
- Kefl - Denver CO - Santa Fe NM 8-13.nóv 2024
- Kefl - Portland OR - WA - ID 19-27. sept 2024
- Kefl - Chicago IL og fl. 4-12. júli 2024
- Kefl - Raleigh NC - Bristol TN 20-27. mars 2024
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007