Leita í fréttum mbl.is

Er Biblían heilög - er Jesús kominn?

Margir nota hugtakið ,,heilög ritning" yfir Biblíuna. Kanski ruglar það fólk.  Biblían sjálf, þ.e. bókin sjálf, er ekkert heilagri en aðrar bækur, það er boðskapurinn sem hún flytur... fagnaðarerindið  sem er heilagur boðskapur. 

Fagnaðarerindið finnum við í Jóh 3:16   Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. 

Vegna trúar okkar er Biblían okkur hjartfólgin og við lítum öðruvísi á hana en aðrar bækur. Í Nýja testamentinu eru 4 guðspjöll... ég ætla ekki að fara út í samstofnakenninguna. Það sem ég vil benda á, er að þó guðspjöllin séu að mestu leiti sammála, þá segja þau ekki eins frá í sumum tilvikum þó greinilegt sé verið að segja frá sama atburði eins og t.d. hér...

Mark 6:8   Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti.
Lúk 9:3   og sagði við þá: Takið ekkert til ferðarinnar, hvorki staf né mal, brauð né silfur, og enginn hafi tvo kyrtla.

Nú segja sumir að Guð hafi passað að Orðið væri skrifað rétt niður. Því er ég sammála þ.e. ég tel að það sem skipti mestur máli sé rétt sagt frá.  Fagnaðarerindið er það sem skiptir máli - það sem er sáluhjálp skiptir máli. Annað er okkur til fræðslu, huggunar, uppörvunar og leiðbeiningar.

Ef 4 menn sjá árekstur, segir enginn eins frá honum, eins er með frásagnirnar í Bibíunni. Í raun og veru verður frásögnin ríkari þegar ritarinn auðgar hana með atriðum sem hann tók eftir en kanski enginn annar. Miðja frásagnarinnar er alltaf fagnaðarerindið. 

Það þýðir ekki að ætla að hengja sig á einhver atriði sem varða ekki einu sinni sáluhjálp okkar, og telja Biblíuna og þá fagnaðarerindið merkingarlaust ef það er hægt að finna mótsögn. 

Kristnir menn bíða endurkomu Jesú, menn eru búnir að bíða í 2000 ár og á hverjum mannsaldri í kirkjusögunni hafa menn séð táknin sem segja að séu síðustu tímar... endalokin. Á hverjum tíma var ástandið svo slæmt að menn töldu það ekki geta versnað.
Postularnir seldu allt sitt og biðu endurkomunnar...  Hverjum mætti Páll á leiðinni til Damaskus?

Post 9:4   Hann [Páll] féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Post 9:5   En hann sagði: Hver ert þú, herra? Þá var svarað: Ég er Jesús, sem þú ofsækir.

Samkvæmt Biblíunni hefur Jesús komið aftur - er það ekki ?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Samkvæmt Biblíunni hefur Jesús komið aftur - er það ekki ?  

Nei. Ertu búin að gleyma öllu talinu um að dæma lifendur og dauða? Tal um að láta engla kasta fólki í helvíti?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 22.9.2008 kl. 18:46

2 identicon

Lord of the rings er betri skáldsaga

DoctorE (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 20:28

3 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Blessaður Hjalti Rúnar,
Ég er ekki búin að gleyma því... allur pistillinn fjallaði um hvernig sumir hengja sig á einstakar tilvitnanir... og aðrir telja hana merkingarlausa skáldsögu ef þeir finna mótsögn.

Margir trúflokkar segja að eftir að Jesús steig upp á uppstigningardag komi hann ekki til jarðar aftur fyrr en hann sækir sitt fólk... sem sagt á dómsdegi.

Nú segir Biblían að Jesús hafi komið og mætt Páli postula á leiðinni til Damaskus... þá hefur hann komið aftur...  
Við mennirnir erum svo fljót að túlka Biblíuna og staðhæfa að hlutirnir eins og við túlkum þá og þeir geti ekki verið öðruvísi... 

Þó við finnum mótsagnir - þá er boðskapurinn heilagur og fagnaðarerindið stendur enn öllum til boða. 

Bryndís Svavarsdóttir, 22.9.2008 kl. 20:52

4 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Bryndís, að túlka það þegar Jesús á að hafa birst Páli sem endurkomu Jesú er ótrúleg nauðgun á textanum. Hvar stendur til dæmis að það hafi verið endurkoma Jesú?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 22.9.2008 kl. 21:15

5 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Blessaður Hjalti Rúnar,
Er ekki endurkomakoma aftur.  Nauðgun á textanum - segir þú, það gæti fleirum fundist. Kom Jesús eða ekki?
Jesús sagðist koma aftur og helgi þeirra orða skapar væntingar um að þegar hann komi verði endalokin. Merking orðsins endurkoma er þá orðin miklu meiri en einfaldlega að koma aftur.
Það sem ég var að tala um var, að það eru mótsagnir en einmitt vegna þessara mótsagna skiptist fólk í flokka í stað þess að sameinast.

Bryndís Svavarsdóttir, 23.9.2008 kl. 01:24

6 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Er ekki endurkomakoma aftur

Jú, og í Nt er því lýst sem á að gerast við endurkomu Jesú, englar að skilja "vonda" menn frá "góðum", Jesús birtast í skýjunum og fleira í þeim dúr.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 23.9.2008 kl. 20:43

7 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Blessaður Hjalti Rúnar,
Já, ég veit hvað þú ert að meina, en hvernig ætlar þú að skilgreina þessa komu Jesú. Trúflokkum sem leggja áherslu á að Jesús hafi ekki birst frá uppstigningunni og þar til hann kemur aftur, virðist hafa yfirsést að hann birtist Páli...  

Ég var að tala um mótsagnir í Biblíunni, og að það sé óþarfi að vantreysta orðinu vegna þeirra... menn hætta ekki að bíða... en menn rífast endalaust um væntanlega endurkomu og hver telur sig vita meira en næsti maður, menn sundrast fremur en að sameinast.

Bryndís Svavarsdóttir, 24.9.2008 kl. 01:08

8 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Já, ég veit hvað þú ert að meina, en hvernig ætlar þú að skilgreina þessa komu Jesú. Trúflokkum sem leggja áherslu á að Jesús hafi ekki birst frá uppstigningunni og þar til hann kemur aftur, virðist hafa yfirsést að hann birtist Páli...  

Nei, það hefur engum yfirsést það að hann á að hafa birtsts Páli, því að það passar engan veginn við lýsinguna sem Jesús er látinn gefa á endurkomu sinni í guðspjöllunum. Ef það var endurkoman, þá er Jesús guðspjallanna lygari.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 24.9.2008 kl. 18:32

9 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Blessaður Hjalti Rúnar,
Við finnum orð Jesú er hann lýsir endurkomu sinni t.d. í Matteusi. Þar sem Jesús sagði að lærisveinarnir myndu ekki hafa náð að prédika fagnaðarerindið í öllum borgum Ísrael og að sumir þeirra myndu ekki deyja... hann kæmi áður... vegna þessara orða töldu þeir að endurkoman væri á næsta leyti.

Það sem ég var að segja í mínum pistli er að sum trúfélög hafna því að Jesús hafi birst á jörðu síðan hann steig upp á uppstigningardag og að hann muni ekki birtast neinum fyrr en er hann kemur í dýrð sinni.  Þeim hefur yfirsést að Jesús birtist Páli. En vegna þess að hann birtist Páli þá hefur Jesús komið aftur - þó það sé ekki hin endanlega endurkoma.

Matt 10:23
Þegar þeir ofsækja yður í einni borg, þá flýið í aðra. Sannlega segi ég yður: Þér munuð ekki hafa náð til allra borga Ísraels, áður en Mannssonurinn kemur.

Matt 16:27-28 
Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum, og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans.
Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Mannssoninn koma í ríki sínu.

Bryndís Svavarsdóttir, 26.9.2008 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband