Leita í fréttum mbl.is

Réttur hvers?

Án þess að vilja dæma neinn í svaðið fyrir þessar aðgerðir.... þá getur maður ekki annað en tekið afstöðu.
Mér finnst rétt að hafa framkvæmt þessa leit þó hún hafi í sjálfu sér ekki verið uppörvandi fyrir þá sem áttu hana ekki skilið... Hún ætti að bæta stöðu þeirra sem raunverulega eru í neyð en fyrir þá sem hafa brotið af sér og eru hér á fölskum forsendum kemur svona aðgerð sér illa.

Það sem við ættum að taka eftir er hvernig fólkið brást við aðgerðinni, ég meina það... ef fólk sem bíður eftir að mál þeirra sé tekið fyrir, steytir hnefann núna, hvernig verður það eftir að það hefur fengið ríkisborgararétt?
Í sjónvarpinu var dökkur maður sem snéri aðgerðinni upp í kynþáttamisrétti.... ef hann fengi landvistarleyfi en fengi síðan ekki vinnu ... hvað þá?  Verður þá hnefinn á lofti og ásakanir um kynþáttamisrétti... mun honum einhverntíma finnast hann vera einn af okkur? 
Margt af þessu fólki á bara ekki heima hér, þeirra menning og bakgrunnur er svo gerólíkur okkar og margt af því vill ekki samlagast okkur... og stundum leyfir trú þeirra það ekki. 

Þegar atvinnan minnkar og hún fer minnkandi... fer fólk að hata útlendinga vegna þess að þeir taka frá þeim vinnu... því þeir sætta sig við lægri laun.  Þá verður ekki aftur snúið... 

Við verðum að herða reglurnar NÚNA, fólk á ekki að komast upp í flugvél hingað nema sýna skilríki og eiga farmiða til baka.   Geti fólk ekki sýnt skilríki við komuna hingað - þá er farmiðinn til baka notaður.
Við verðum nefnilega líka að hugsa um hælisleitendurna, þeir fara úr öskunni í eldinn ef það kemur upp útlendingahatur hérna. Þeir eiga rétt á því að málin gangi hratt fyrir sig og með þessu móti er best að hugsa um rétt þeirra og okkar sem búum hérna... það erum við sem borgum á meðan þeir bíða eftir svari.


mbl.is Hælisleitendur mótmæla aðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Margt af þessu fólki á bara ekki heima hér"

Einmitt rétt hjá þér Þess vegna fór ég af landi brott fyrir 30 árum. Hver vill búa á þessum grjóthólma þar sem afturhaldsemi og fyrirlitning ræður gagnvart þeim sem eru öðruvísi. Þar sem grannarnir eru að njósna hver á annan og sýndarsemi er í hásæti.

Ég óska þessu fólki bara far út aftur sem fljótast, áður enn þau komast að því hversu íhaldsamt íslenska þjóðfélagið er.

s.j (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 11:31

2 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir, Marathon Maniac # 3942

Enginn er fullkominn. Allir eru í raun afturhaldssamir, við viljum fæst gefa eitthvað eftir af okkar en finnst kanski sjálfsagðara að aðrir geri það.

En í sambandi við grannanjósnir, þá hefði nú farið betur ef grannar hefðu verið eftirtektarsamari amk í varðandi þessi mál sem hafa komið upp undanfarið úti í heimi þar sem konur hafa árum og áratugum saman verið lokaðar inni... enginn tók eftir neinu eða engum kom neitt við !

Varðandi útlendinga á Íslandi, þá verðum við að sporna strax við svo útlendingahatur blossi ekki upp... ekki viljum við að fólk fari úr öskunni í eldinn, nóg hafa sumir þeirra þurft að þola. 

Bryndís Svavarsdóttir, Marathon Maniac # 3942, 13.9.2008 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband