11.7.2008 | 17:40
Fimmvörðuháls
Mig hefur lengi langað til að ganga Fimmvörðuháls. Í fyrra var ég komin að Skógum og ætlaði að ganga ein yfir en hætti við, það var alltof mikil þoka og ég þekkti ekki leiðina.
Sem betur fer hætti ég við í það sinnið.
Dætrunum langar að ganga Laugaveginn og ég taldi Fimmvörðuháls vera ágætis undirbúning fyrir það. Veðurspáin fyrir fimmtudag lofaði góðu og við ákváðum að kýla á það.
Á vef ferðafélagsins... http://www.fi.is/gonguleidir/fimmvorduhals/
er lýsing gönguleiðarinnar svona: Fimmvörðuháls
Skógar-Þórsmörk (Fimmvörðuháls á milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls)
Vegalengd 22 km, áætlaður göngutími um 9 klst., lóðrétt hækkun/lækkun 1000m. Leiðin liggur frá Skógum undir Eyjafjöllum, milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls, yfir til Þórsmerkur. Hér er um að ræða eina allra vinsælustu gönguleið á Íslandi en e.t.v. þá viðsjárverðustu sakir snöggra breytinga sem geta orðið á veðri á hvaða árstíma sem er. Það getur verið blítt og stillt veður á láglendi en þegar komið er upp á háhálsinn getur skollið á svarta þoka svo að ekki sér handa skil. Á leiðinni eru tveir skálar, annar í eigu Eyfellinga og hinn í eigu Útivistar.
------------------------------------------------------------------------
Við lögðum af stað héðan um 8 leytið. Keyrðum austur að Skógum. Lúlli tók mynd af okkur áður en við lögðum á fjallið 10:45. Við vorum allar brosandi... stelpurnar að fara á fjallið, hann, Gabríel og Venus... strákarnir urðu eftir.
Ég er sammála þeim sem segja að það sé fallegra að ganga í Þórsmörk en öfugt. Við gengum á móti hverjum fossinum af öðrum. Vorum með brauðfætur þegar við litum fram af gilbrúnunum. Eftir að við höfðum farið yfir göngubrúna, var landslagið aftur á móti .. the same shit all over again" eins og Harpa sagði..... hrjúfur vegaslóði sem var ekkert fyrir augað og svolítil þoka.... annars fengum við himins blíðu alla leið.
Um það bil km. áður en við komum að neyðarskýlinu... Baldvinsskála, .?.?. (sem var svo ógeðslegur að það er varla hægt að nota skálann í neyð) hélt Helga að bakið á henni væri að gefa sig og hægri fóturinn var að hætta að hlýða fullkomlega...
Harpa og Lovísa voru farnar að þakka Guði fyrir að fá nú ástæðu til að hringja í sjúkraþyrlu. En eftir skammt af Ibufeni og hitaplástra harkaði Helga af sér... og þá varð Lovísa stíf framan í lærunum... svo að við fórum mjög hægt í ca 2 tíma. Harpa var orðin fremst.
Við vorum á milli jöklanna, Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Nú fór að síga á seinni hlutann og betra að ganga. Helga var með göngumæli. Þegar við komum á efsta punkt fyrir ofan Þórsmörk vorum við búnar að ganga rúma 24 km. og héldum að við ættum stutt eftir, héldum jafnvel að við færum leiðina á 8 tímum.
Útsýnið var eins og klippt úr auglýsingu fyrir Gand Canyon. Veðrið óborganlegt, varla ský á lofti, stafa logn og sól... og við .... On the top of the world.
Stelpurnar mynduðu útsýnið og ég tók myndir af þeim við minningarstein þar sem 3 höfðu orðið úti í júní 1970.
Við vorum tæpa 3 tíma að komast niður, hverja snarbratta fjallshlíðina á fætur annarri, einstigi og ófærur með öryggiskeðjum eða böndum til að hanga í.
Hættulegasti og seinfarnasti hluti leiðarinnar var að komast niður í Þórsmörk.
Neðst biðu strákarnir, Lúlli með myndavélina og tók mynd af hverri og einni þegar við komum dauðþreyttar niður af fjallinu eftir 9 tíma og 45 mín og samkvæmt göngumælinum eftir tæpa 32 km.
Lúlli grillaði ofaní okkur dauðþreyttar en ánægðar með daginn.... við vorum svo blessaðar með veður.
Gabríel var hinn ánægðasti með daginn, hann passaði afa sem keyrði lengi, lengi í vatninu..... og mér sýnist á myndunum að Gabríel sé sá eini sem sé í glasi !!!
Við rétt náðum að kaupa kók og súkkulaði fyrir lokun kl 11 á Hlíðarenda og renndum í hlað heima kl. 12:45 eftir miðnætti. Þá vorum við Lovísa búnar að vera 16 tíma en Helga og Harpa 17-18 tíma á ferðinni.
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.