24.10.2010 | 19:30
Endilega að banna trúboð...
Það verður kannski til þess að kristin trú vaxi. Tilhneiging manna er nefnilega að berjast fyrir því að fá að kynnast því sem er bannað. Allir vilja hafa frelsið og geta gengið að hlutunum en sumt verður aldrei eins spennandi og þegar því er haldið frá fólki.
Umræðan virðist snúast meira um hvað foreldrarnir vilja en hvað sé gott eða uppbyggjandi fyrir börnin þeirra. Ef skólarnir ætla að taka upp þessa stefnu, þá verða þeir að huga að fleiru. Nú nýlega frétti ég að því að farið var með barn í rútu án vitundar foreldra þess og ,,óperunni" troðið ofan í kok á barninu... en svona myndi lýsing margra vera á trúboði ,, að trúnni væri troðið ofan í kok" á barni þess.
Foreldrar hljóta líka að hafa skoðanir á ,,menningar-og listaferðum" skólanna.
Vegið að rótum trúarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Menning og listir, Trúmál og siðferði | Facebook
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Athugasemdir
Það er bara verið að tala um að banna trúboð í skólum. Það er skólaskylda á Íslandi og öll börn, sama hvers trúar þau eru, þurfa að mæta í grunnskóla. Það er ekki verið að tala um að banna trúboð á öðrum vettvangi, og það er alls ekki verið að tala um að banna kristna trú, enda er nóg um að velja fyrir þá sem vilja rækta trú sína utan skólatíma.
Freyr Bergsteinsson, 24.10.2010 kl. 20:00
Morten Lange, 24.10.2010 kl. 23:43
Sæll Freyr, ég er einmitt að tala um skólana. Fyrir þá sem trúa ekki en nær enginn munur á milli fræðslu og trúboðs.
Ef skólar ætla að fara í einu og öllu eftir vilja foreldra, þá verður ekki full mæting einn einasta dag í skólanum... því foreldrar hljóta að fá ákvörðunarvald í fleiru sem þeir vilja ekki að barnið taki þátt í en því sem varðar trúmál...
Jólin eru trúarhátíð. Flestir Íslendingar eru vanir því að halda jól en aðventan er að verða sífellt erfiðari í framkvæmd í leikskólum og skólum. Börnum sem hlakkar til jólanna finnst gaman að tala um þau svo það er erfitt að ætla að halda trúnni og jólum sem einkamáli á heimilinu... og eru börnin þá ekki orðnir litlir trúboðar?
Bryndís Svavarsdóttir, 24.10.2010 kl. 23:59
Allir trúlausir sem ég hef heyrt í, leggja einmitt mikla áherslu á muninn á milli trúboðs og fræðslu. Mér þykir þínar fullyrðingar um hið gagnstæða áhugaverðar. Gætirðu útskýrt þessu fyrir mig/okkur ?
Morten Lange, 25.10.2010 kl. 00:28
Það er rétt hjá þér Bryndís, að fyrir foreldra sem vilja ekki að börnin sín fá faglega og hlutlausa fræðslu, þá er skólinn afar óheppilegur. En fyrir persónulega, hlutdræga og valfrjálsa hluti, eins og í hvaða íþróttafélagi á að vera (ef eitthvert), í hvaða stjórnmálaflokki á að vera (ef eitthvert) eða í hvaða trúfélagi á að vera (ef eitthvert), þá gilda almenn lög þar sem foreldrar og forráðamenn ráða ferðinni og eru ábyrg barna sinna.
Skólinn er ekki valfrjáls. Trú er. Trúfræðsla er góð, trúboðun er það ekki fyrir þá sem vilja hana ekki. Harðir foreldrar sem vilja láta ekki vaða yfir sig hafa tekið börn sin út úr skólastarfi til að sleppa við kirkjustörf. Þetta er slæmt. Þetta er félagslega einangrandi. Mannréttindinn felast ekki í að koma fyrir að prestar séu teknir úr skólastarfi, heldur að börn séu tekin úr skólastarfi.
Freyr Bergsteinsson, 25.10.2010 kl. 07:10
Sæll Morten, Hvar er línan á milli trúboðs og fræðslu? Trúlaus kennari í skóla getur með ,,trúboði" sínu rakkað niður trúna fyrir þeim sem trúa. Á sama hátt getur trúaður kennari verið með kraftmikið trúboð yfir þeim vantrúuðu. Trúboð virkar nefnilega á báða bóga.
Þeir sem eru á móti trúboði í skólum ættu að spá í hvaða trú kennarinn hefur, því prestarnir og þeir sem heimsækja skólana eru bara ,,augnablik" á staðnum miðað við þann tíma sem kennarinn hefur með börnunum.
NIÐURSTAÐA: Engin kennsla er hlutlaus, hún er alltaf lituð af stefnu skólakerfis og áherslum kennarans.
Sæll Freyr. Ég er sammála þér í mörgu. Skólakerfið á að vera faglegt en það er aldrei hlutlaust.
Það er ekki langt síðan ég sagði að ég væri á móti trúboði í skólum, ég er það enn. En í hvaða tilgangi koma prestar? er það í sambandi við ferminguna?
En hvar ætlar andspyrnan að stoppa? Það er sífellt verið að færa "mörkin" nær því sem við teljum hluta af menningu okkar, svo sem jólahaldi.
Mér finnst það ekki mannréttindi að taka börn út úr skólastarfi, það eru mannréttindi að leyfa þeim að velja hvort þau vilji taka þátt í starfinu eða ekki. Börnin verða að vera sátt og geta svarað sjálf hvers vegna, svo þau lendi ekki í einelti.
Bryndís Svavarsdóttir, 25.10.2010 kl. 15:39
Kennsla er aldrei fullkomnlega hlutlaus, en það á að gera sitt besta til að ná því. Auðvitað eru til kennarar sem gera lítið úr trúfræðslu og kennarar sem gerir upp á milli trúarbragða (umfram þeim menningarlegan arf sem kristnin er á Íslandi), en þeir eru ekki að sinna starfi sínu vel.
Mikið er ég annars sammála þér um að mannréttindin snúast um val. Hins vegar er þetta val ekki til staðar í skólakerfinu eins og er. Kirkjustarf á skólatíma neyðir minnihlutahópa út í horn og eflir einelti. Mannréttindaráð Reykjavíkur borgar eru með þessari ályktun að reyna að bæta úr því.
Freyr Bergsteinsson, 25.10.2010 kl. 17:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.