8.9.2010 | 10:28
Bara gott að Jenis standi á sinni sannfæringu
Hverjum manni leyfist að hafa sína skoðun og fólk á að vita hvar stjórnmálaleiðtogar standa. Auðvitað er afstaða hans blásin út eins og hann hafi framið glæp með sinni afstöðu til samkynhneigðar en þetta er háttur blaðamennskunnar.
Biblían tekur skíra afstöðu til samkynhneigðar karlmanna.
Þetta kemur fram í lögmáli Gt, 3.Mós 18:22... Eigi skalt þú leggjast með karlmanni sem kona væri. Það er viðurstyggð... og í Nt 1.Kor. 5 og 6 er talað um saurlífismenn og kynvillinga og menn eru hvattir til að sitja ekki til borðs með þeim (1.Kor 5:11).
Biblían er mjög karllæg og gerir ekki ráð fyrir að tvær konur hafi áhuga á að ,,liggja saman" eins og það er orðað, þó maður geri ráð fyrir að afstaðan sé sú sama og gagnvart karlmönnum.
Danir blása Jenis-málið út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Trúmál, Trúmál og siðferði, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 10:30 | Facebook
Nýjustu færslur
- Áramóta-annáll fyrir árið 2024
- Kefl - Denver CO - Santa Fe NM 8-13.nóv 2024
- Kefl - Portland OR - WA - ID 19-27. sept 2024
- Kefl - Chicago IL og fl. 4-12. júli 2024
- Kefl - Raleigh NC - Bristol TN 20-27. mars 2024
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Athugasemdir
Tek undir þetta þótt ég hafi ekki lesið biblíuna
Valdimar Samúelsson, 8.9.2010 kl. 11:03
Já og breytum endilega hvernig taka eigi á nauðgurum, enda segir biblían hvernig eigi að taka á þessu vandamáli.
Vert er að benda á að ég er mótfallin þessu enda sé ég ekki neitt gáfulegt við að láta veslings konugreyið þurfa að búa það sem eftir er með nauðgara sínum. En ef þú vilt taka siðferðið manna aftur til fornaldar þá er nóg af fornaldarhugsunarhætti að finna þarna.Odie, 8.9.2010 kl. 11:17
Biblían vill líka að við grýtum til bana unglinga sem óhlýðnast foreldrum sínum eða brúka kjaft.
Biblían tekur skýrt fram að konur skuli ekki undir nokkrum kringumstæðum ganga menntaveginn...
Og svo framvegis.
Það hlýtur að vera þægilegt að geta valið og hafnað hvaða blaðsíðum biblíunnar maður trúir, svona eftir því hvað manni finnst sjálfum.
Elín (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 11:32
Odie. Of eða van. samkynhneigð er röng og ekkert til að auglýsa útávið hvað sem biblían segir.
Valdimar Samúelsson, 8.9.2010 kl. 11:41
Auðvitað er hverjum manni frjálst að hafa sínar skoðanir.
Ég er td. á þeirri skoðun að umræddur Jenis og aðrir skoðunarbræður og systur hans séu fordómafullir fávitar.
Arnar, 8.9.2010 kl. 13:14
Að standa á sinni sannfæringu er sjaldan gott ef sannfæringin er slæm.
Freyr Bergsteinsson, 8.9.2010 kl. 13:59
Æ, éttu skít Bryndís.
Sjáiði ekki fyrir ykkur einhvern eins og Jenis sem neitar að sitja kvöldverð með Obama vegna þess að hann er svartur?
Þá þætti mér gaman að sjá heimskingja eins og þig verja hann.
Stjörnupenni, 8.9.2010 kl. 14:20
"Hann hefur bara ákveðna skoðun. Það er bara allt í lagi!"
Mér finnst ég búinn að heyra þetta frekar oft undanfarið um þennan náunga. Mér finnst það undarlegt - og pínulítið kjánalegt.
Hann ákvað að hafa skoðun sem er fordómafull, og móðga forsætisráðherran okkar persónulega. Mér finnst það bara ekkert í lagi.
Danni (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 14:27
Ef hann hefði þessa skoðun á konum, rauðhærðum, búddistum, örventum eða fólki af afrískum uppruna þá væru fáir til varna. Það er alveg jafn auðvelt að rökstyðja fordóma gegn ofannefndum hópum með tilvísun í biblíuna og fordóma gegn samkynhneigðum.
Menn eiga ekkert að geta hlaupið í "stikk" í biblíuna með ankannalegar skoðanir sínar á samkynhneigð frekar en þeim leyfist það með ankannalegar skoðanir sínar á kynþáttum, konum eða öðrum sem þeim detta í hug. Við erum ekki glæpamenn eða illvirkjar.
Dagur (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 15:25
Já sæll... Á þessum athugasemdum sést best hverjir leyfa sér að hafa róttækar skoðanir... og finnst það sjálfsögð réttindi.
Bryndís Svavarsdóttir, 8.9.2010 kl. 23:08
Þetta andsvar finnst mér með allra rýrasta móti, Bryndís. Til að finnast færslurnar hér að ofan vera mjög róttækar þá held ég að maður þurfi að hafa alið allan sinn aldur í hugmyndafræðilega vernduðu og gríðarlega einsleitu umhverfi.
Þér finnst kannski nóg að hafa vitnað í 3. Mósebók í upphafi og nennir engu við það að bæta en þar sem að þú þykist vera að læra guðfræði þá býst ég við að þú þekkir 3. Mósebók og innihald hennar mætavel. Reyndu nú að rökstyðja, með öðru en persónulegri vanþóknun þinni á samkynhneigðum, hvers vegna þú velur að fara eftir 18:22 en nánast engu öðru úr þeirri bók.
Það hafa allir réttindi til að hafa róttækar skoðanir. Það eru meira að segja sjálfsögð réttindi. En skoðanafrelsi nær ekki til þess að þú getir haldið fram hverju sem er án þess að mæta andmælum og/eða háðung. Skoðun eins og þú heldur fram, illa rökum studd og til þess ætluð að setja hluta samfélagsins skör neðar en þig í virðingu og réttindum, er vel til þess fallin að þú verðir ekki tekin mjög alvarlega hér eftir nema af þeim já-systkinum þínum sem mig grunar að þú sért vön að eiga samskipti við.
Ef þér fannst fyrri færsla mín ekki vera nógu fín fyrir þig til að svara henni þá skal ég gefa þér hæfilegan frest til að trítla yfir í heimspekideild þar sem hægt er að fræða þig um kúgun minnihlutahópa í mannkynssögunni og hvaða biblíutilvitnunum og rökbrellum var beitt til þess að réttlæta það.
Að lokum ætla ég að vona að þú hafir ekki þulið þessa skoðun þína mikið yfir börnunum þínum eða barnabörnunum. Þeim gæti reynst erfitt að sættast við þig ef að sú stund kemur að þau þurfa að segja þér eitthvað persónulegt um sínar tilfinningar...
Dagur (IP-tala skráð) 9.9.2010 kl. 11:16
Hér er eitthvað sem Biblíuunnendur hunsa sem betur fer.
Þetta stendur líka skýrt í sömu bókinni.Odie, 9.9.2010 kl. 15:51
Góðan daginn Dagur,
Lastu það sem ég skrifaði eða ertu að túlka eitthvað milli lína rugl, því þú gerir mér upp afstöðu til samkynhneigðar.
Það sem ég skrifaði, er að Jenis leyfist eins og þér líka, að hafa ákveðna skoðun. Jenis er í kristilegum stjórnmálaflokki og hans afstaða mótast af Biblíunni - fínt að kjósendur viti hverjum þeir greiða atkvæði.
Ég gat ekkert út um mína afstöðu, hvorki til skoðunar Jenis eða til samkynhneigðar.
Það er athyglisvert að þú kýst að líta fram hjá því að ég segi að Biblían segi ekkert um samkynhneigð kvenna... sem er einmitt deilumálið hér.
Þú bendir mér á heimspeki - lærðu að lesa texta sem texta.
Bryndís Svavarsdóttir, 10.9.2010 kl. 18:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.