Leita í fréttum mbl.is

Musterið í Jerúsalem í Nt

Ríki Davíðs og Salómons klofnaði í tvennt og hvort ríki um sig féll fyrir grannríkjunum. Norðurríkið féll 722 F.Kr og Suðurríkið 130 árum síðar, eða 586 F.Kr. Þegar Suðurríkið féll misstu Ísraelsmenn musteri sitt... Samkvæmt trú manna táknaði fall musteris að guðinn hefði yfirgefið það.

Það segir í Jóh 2:20....að musterið hafði verið 46 ár í smíðum. Þegar æðstipresturinn Jesús Kristur mætti á svæðið, þá þekktu þeir hann ekki og afneituðu honum sem syni Guðs og frelsara sínum.

Jesús sagði er hann horfði yfir Jerúsalem í síðasta sinn, (Matt 23:38)  Hús yðar verður í eyði látið... Nýja þýðingin orðar það svona: Guð mun yfirgefa musteri yðar og það verður lagt í rúst.

Þegar Jesús dó á krossinum, rifnaði fortjaldið sem aðskildi hið helgasta og hið allra allrahelgasta (þar sem Guð bjó) í musterinu, en þangað inn fór æðstipresturinn aðeins einu sinni á ári og friðþægði fyrir syndir sínar og lýðsins. Hið allrahelgasta var svo heilagt svæði að æðstipresturinn var með band í sér svo hægt væri að draga hann út, ef hann dæi þar inni.
Þegar Jesús dó, rifnaði fortjaldið - Guð flutti út úr musterinu...

Post 6:14  Vér höfum heyrt hann segja, að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum, sem Móse hefur sett oss.

Jóhannes skírari boðaði mönnum sinnaskipti... "change of mind" að skipta um skoðun, láta af hinu gamla og taka upp nýtt lögmál, lögmál trúarinnar... En fátt er eins erfitt og að ætla að breyta trúarsannfæringu annarra...


Musteri Drottins í Jerúsalem

Gamla testamentið - Gamli sáttmáli er saga óhlýðinnar þjóðar, þjóðar sem Guð valdi til forystu, en þjóðin brást, eins og við bregðumst öll... óhlýðni, eigingirni og græðgi láta okkur haltra til beggja hliðina í lífinu.
Hvernig sem við reynum, þá verður einhver prósenta af gjörðum okkar röng... afleiðingarnar eru ekki alltaf slæmar fyrir okkur sjálf, en það réttlætir ekki það sem er rangt í upphafi.

Menn líta til Salómons konungs með lotningu, hann var mikilmenni, valinn til forystu af Guði, sonur Davíðs og Batsebu. Viska hans er rómuð en hann hrasaði eins og aðrir breyskir menn. Davíð faðir hans hafði ekki fengið að byggja musteri fyrir Guð, musterisþjónustan fór fram í tjaldi. Salómon fékk það hlutverk að byggja musterið. Það segir frá byggingu þess í 1.Kon.6:2-3

-2- Musterið, sem Salómon konungur reisti Drottni, var sextíu álnir á lengd, tuttugu álnir á breidd og þrjátíu álnir á hæð.
-3- Forsalurinn fyrir framan musterishúsið var tuttugu álnir á breidd fram með musterisendanum og tíu álnir á dýpt fram af musterinu.
Í lok 6.kafla segir að bygging musterisins hafi tekið 7 ár.

Í upphafi 7.kafla segir að Salómon hafi verið 13 ár að byggja höll sína...
-2- Hann byggði Líbanonsskógarhúsið, er var hundrað álnir á lengd, fimmtíu álnir á breidd og þrjátíu álnir á hæð
-6- Hann gjörði súlnasal, fimmtíu álnir á lengd og þrjátíu álnir á breidd, og forsal þar fyrir framan ...
-7- Hann byggði hásætissal, þar sem hann kvað upp dóma dómhöllina,...

Auk þess lét Salómon byggja fyrir sig hús sem hann bjó í... Húsin sem Salómon ætlaði sjálfum sér voru stærri en það sem hann gerði fyrir Guð. Hvaða skilaboð er hægt að lesa út úr þessu... Var Salómon meiri en Guð? En Guð getur fyrirgefið alls kyns yfirsjónir en ekki að menn dýrki aðra guði.

Í 1.Kon.9:1-9 birtist Guð Salómon og sagði:
-5- þá vil ég staðfesta hásæti konungdóms þíns yfir Ísrael að eilífu, eins og ég hét Davíð föður þínum, er ég sagði: Eigi skal þig vanta eftirmann í hásæti Ísraels.
-6- En ef þér snúið baki við mér, þér og synir yðar, og varðveitið eigi boðorð mín og lög, þau er ég hefi lagt fyrir yður, en farið og þjónið öðrum guðum og fallið fram fyrir þeim,
-7- þá mun ég uppræta Ísrael úr því landi, sem ég gaf þeim, og húsinu, sem ég hefi helgað nafni mínu, mun ég burt snara frá augliti mínu, og Ísrael skal verða að orðskvið og spotti meðal allra þjóða.
-8- Og þetta hús, svo háreist sem það er hver sem gengur fram hjá því, honum mun blöskra og hann mun blístra. Og er menn spyrja: Hvers vegna hefir Drottinn leikið svo hart þetta land og þetta hús?
-9- munu menn svara: Af því að þeir yfirgáfu Drottin, Guð sinn, er leiddi feður þeirra af Egyptalandi, og héldu sér að öðrum guðum, féllu fram fyrir þeim og þjónuðu þeim. Fyrir því hefir Drottinn leitt yfir þá alla þessa ógæfu.

Nú stendur moska á rústum musterisins í Jerúsalem - Hvaða skilaboð eru það?


Allt er þegar þrennt er

Máltækið segir: Allt er þegar þrennt er og Gamla testamentið segir að Guð hafi gert 3 sáttmála. 
Sá fyrsti var við Nóa, 1.Mós.9;11 en tákn hans er regnboginn.

-11- Minn sáttmála vil ég gjöra við yður: Aldrei framar skal allt hold tortímast af vatnsflóði, og aldrei framar mun flóð koma til að eyða jörðina.
-12- Og Guð sagði: Þetta er merki sáttmálans, sem ég gjöri milli mín og yðar og allra lifandi skepna, sem hjá yður eru, um allar ókomnar aldir:
-13- Boga minn set ég í skýin, að hann sé merki sáttmálans milli mín og jarðarinnar.

Annar sáttmálinn var við Abraham 1.Mós.17:9 en tákn þess sáttmála er umskurnin.

-9- Guð sagði við Abraham: Þú skalt halda minn sáttmála, þú og niðjar þínir eftir þig, frá einum ættlið til annars.
-10- Þetta er minn sáttmáli, sem þér skuluð halda, milli mín og yðar og niðja þinna eftir þig: Allt karlkyn meðal yðar skal umskera.
-11- Yður skal umskera á holdi yfirhúðar yðar, og það sé merki sáttmálans milli mín og yðar. 

Síðasti sáttmálinn var gerður á Sínaí-fjalli 2.Mós.31:12 og tákn hans er hvíldardagurinn.

-12- Drottinn talaði við Móse og sagði:
-13- Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Sannlega skuluð þér halda mína hvíldardaga, því að það er teikn milli mín og yðar frá kyni til kyns, svo að þér vitið, að ég er Drottinn, sá er yður helgar.
-14- Haldið því hvíldardaginn, því að hann skal vera yður heilagur. Hver sem vanhelgar hann, skal vissulega líflátinn verða, því að hver sem þá vinnur nokkurt verk, sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni.
-15- Sex daga skal verk vinna, en sjöundi dagurinn er algjör hvíldardagur, helgaður Drottni. Hver sem verk vinnur á hvíldardegi, skal vissulega líflátinn verða.

Fyrst sáttmálinn var við Nóa, annar við Abraham og niðja hans og sá síðasti til Ísraelsmanna í eyðimörkinni. Margir telja regnbogann enn vera sáttmála við Guð, kristnir menn stunda ekki umskurn og enginn... sama hversu trúaður hann er... virkilega heldur hvíldardaginn.

Samt sem áður er hvíldardagurinn það eitt það besta sem Guð hefur gefið okkur, því við þurfum að hvíld og endurnæringu - á sál og líkama.


Í upphafi skapaði Guð...

Biblían byrjar á þessum orðum... Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Það kemur vel til greina að þetta upphaf hafi verið löngu áður en önnur sköpun hófst. Hver erum við, að fella dóma um hvað tímanum leið. Það var ekki einu sinni búið að skapa ,,tímann."

Sköpunarsögurnar eru tvær og heimildakenning Wellhausens telur þær skrifaðar eftir að ríki Salómons klofnaði í tvennt. Wellhausen telur aðra söguna vera skrifaða í Norðurríkinu Efraím (E-heimild) og hina í Suðurríkinu Júda (J-heimild).
Telur hann að eftir að gyðingar hafi orðið land-og musterislausir, þ.e. eftir að bæði ríkin féllu þá hafi saga gyðinga verið fléttuð saman á einhverjum ákveðnum tíma. Vegna þess að gyðingar töldu textann heilagan mátti ekki breyta honum og gætir því nokkurs misræmis í textanum og oft tvær frásagnir af sama atburði.

Fyrri sköpunarsagan 1.Mós.1:1-2:4, fylgir E-heimild en hún notar nafnið Elóhím fyrir Guð. Í fyrri sköpunarsögunni lýkur Guð verki sínu með því að skapa manninn. Samkvæmt þeirri heimild heitir fjallið helga Hóreb, Jetro er tengdafaðir Móse (2.Mós 3:1) og íbúar fyrirheitna landsins eru Amorítar.

Síðari sköpunarsagan 1:Mós.2:5-3:24 fylgir J-heimild en þar er notað nafnið Jahve sem er þýtt Drottinn Guð. Í síðari sköpunarsögunni byrjar Guð á að skapa manninn og hann mótaði hann með eigin höndum. Samkvæmt heimildinni heitir fjallið helga Sínaí, í 4.Mós 10:29 heitir tengdafaðir Móse, Hóbab Regúelsson og samkvæmt J-heimild eru íbúar fyrirheitna landsins, Kanverjar.  

Sitthvort nafnið, Elóhím eða Jahve, yfir Guð er því skýringin á því hvers vegna stendur Guð eða Drottinn Guð amk í Mósebókunum.


Bloggfærslur 24. mars 2009

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband