Færsluflokkur: Fjármál
1.11.2022 | 18:45
Budapest 13-27.okt 2022
Við Harpa vorum að fara í seinni tannlæknaferðina.. Fyrri ferðin gekk vel hjá mér, en var auðvitað áfall fyrir Hörpu að lenda í Hjalta og Íslensku Klínikinni.. og ótrúlegt að Hjalti, Íslenska Klínikin segist hafa kært Hörpu fyrir tilraun til fjárkúgunar því hún vill að Klínikin greiði það sem kostaði að laga mistökin eftir þá... Þetta hefur komið fram í Fréttinni, DV og Mannlífi..
Við höfum hins vegar fengið frábæra þjónustu hjá Helvetic Cliniks.. sem er með vottun valin besta tannlæknastofan í Evrópu og 5. besta í heimi..
Bara til að upplýsa vinnubrögðin í Budapest, þá fær maður tilboð þar sem hver tönn hefur sérstakt númer og sunduliðaðan kostnað.. og því auðvelt að reikna út hvað kostar að gera við hverja tönn..
Við Harpa tókum AirB&B í þessari ferð, litla íbúð við göngugötuna og í uþb km fjarlægð frá stofunni... Við keyptum okkur oft morgunmat á hótelinu þegar við áttum tíma snemma. Við skoðuðum kirkjur, Hospital in the Rock og fl.. Einn dag þegar við áttum ekki tíma skelltum við okkur með lest til Bratislava í Slóvakíu.. Þar skoðuðum við Bratislava kastala, borðuðum, versluðum og tókum lestina til baka..
Síðasti tíminn hjá mér var fyrir hádegi sama dag og við fórum heim.. en þann dag var ég búin að vera 1 mán í burtu fyrir utan 1 dag (12.okt) sem ég var heima milli ferða.
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2016 | 18:04
Noregur 23-28 ág 2016
23.ág
Við fljúgum að sjálfsögðu báðar leiðir með Icelandair... og fyrir flug fengum við okkur morgunmat í betri stofunni. Flugið var með einni millilendingu (Bergen) þar sem við biðum klst í vélinni og héldum svo áfram til Stavanger.
Við fengum stóran og flottan bíl á vellinum og héldum til Kopervik. Garmin og Noregur eru EKKI vinir... en við komumst í ferjuna og með stórum aukahring til Haugasunds... enduðum við loks í Kopervik. Þar urðu fagnaðarfundir því ferðin var orðin frekar löng með öllum útúrdúrum. Emilía átti svolítið erfitt með að skilja að það þyrfti ekki að sækja okkur því við kæmum á bíl ??? Settum við hann með töskunum eða hvað ??? Við pöntuðum pizzu og tókum það rólega.
24.ág.
Íbúðin þeirra er mjög skemmtileg. Bryndís og stelpurnar vakna kl 6. Símon var á næturvakt um nóttina svo hann svaf lengur, stelpurnar fóru á leikskólann og Bryndís fór í skólann. Við Lúlli fórum á rúntinn fh en eh fór ég með Bryndísi að sækja stelpurnar í leikskólann og versla í matinn :)
Eftir kvöldmat kíktum við í heimsókn til Gunnu og Olavs. Þau búa ekki langt frá í flottu húsi á þrem hæðum.
25.ág.
Til hamingju með afmælið Edda systir :)
Það var skipulagsdagur í leikskólanum hjá stelpunum og field-trip í skólanum hjá Bryndísi... og henni var sagt að hún mætti taka börnin með svo ég mætti líka... þegar til kastanna kom var ekki hægt að vera með kerru því þetta átti að vera ganga meðfram fjörunni... ég skutlaði því Evu Karen heim til Símonar og langafa og brenndi á eftir þeim.... ég gekk svo eftir þeim út í Ferkingstad og náði þangað í nestistímanum... og svo gengum við til baka... ég fór ekki alveg rétta leið og gekk sennilega um 9 km en þau um 8 km... Emilía var mjög dugleg að ganga. Á eftir fórum við og sáum litlu frelsisstyttuna en koparinn sem var notaður í NY-styttuna var fenginn úr námu þar við... Við horfðum á Rambó 4 um kvöldið.
26.ág.
Allt sem er skemmtilegt er svo fljótt að líða... Við fórum með Bryndísi og stelpunum í leikskólann og svo kvöddumst við... Við Lúlli keyrðum áleiðis til Stavanger og urðum að taka ráðin af Garmin... fara göngin með hringtorginu til að stytta leiðina í ferjuna... og svo keyra til Stavanger... Við fundum hótelið - ótrúlegt en satt - og gögnin - enn ótrúlegra - því Garmurinn hringsnýst hérna, lætur okkur keyra göngugötur og lokaðar götur... Eftir ótal hringi fundum við út að hótelið, gögnin og startið var í 200 metra radíus. EN engin bílastæði nálægt hótelinu... næsta bílastæðahús var niður við höfn í um 400m fjarlægð. Við tókum allt sem við mundum eftir með okkur... snörluðum brauð úr COOP Prix á móti og fórum snemma að sofa.
27.ág
Klukkan var stillt á 5:45 og svo breytt í 6:30... eftir hefðbundinn undirbúning fórum við morgunmat og mættum á startið 20 mín fyrir 9.
Maraþonið var ræst kl 9... og hægt að lesa um það á byltur.blog.is
Eftir hlaupið ákváðum við að skoða minnismerkið sem var á verðlaunapeningnum - Sverd i Fjell - og það tók ótrúlegan tíma vegna lokaðra gatna sem enginn vissi að væru lokaðar og fleira. Við fengum okkur hambó á Burger King og fórum á hótelið...
28.ág... Heimferð kl 14:35
Fjármál | Breytt 21.9.2016 kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2015 | 02:17
Williams AZ - Grand Canyon west, Skywalk - Hoover Dam - Las Vegas NV
8.júní
Sexurnar eru aldrei með morgunmat svo við lögðum snemma af stað. Það var svo sem full dagskrá hjá okkur. Við vorum búin að ákveða að fara á verndarsvæði indíana, Grand Canyon west og ganga SKYWALK... og ganga eftir Hoover Dam brúnni.
Ég hljóp Grand Canyon Maraþonið í okt 2002 á þessu svæði og hvílíkt hvað svæðið var breytt... Ferðamennskan og græðgin var ótrúleg - allt gert til að plokka ferðamanninn...
Aðgangurinn 100 usd var rán-um-hábjartan-dag og það kostaði að auki 30 usd á mann að ganga SKYWALK... Í Tusayan borguðum við 30 usd samtals fyrir okkur bæði, þar voru 11 eða 12 frábærir útsýnisstaðir og passinn gilti í viku. Það eru 240 mílur á milli þessara tveggja staða við Grand Canyon.
Svæðið er í einkaeigu indíánanna, rúta keyrði okkur á TVO útsýnisstaði og Skywalk var á öðrum þeirra. Maður sá varla landslagið fyrir fólksfjöldanum. Við urðum fyrir gífurlegum vonbrigðum að það skyldi vera bannað að taka myndavélina/símann sinn með sér í Skywalk en það var auðvitað bara til að þeir gætu selt okkur myndir.
ÉG RÁÐLEGG FÓLKI AÐ FARA FREKAR TIL TUSAYAN.
Á leiðinni til baka ákváðum við að ganga loksins upp á nýju brúna við Hoover Dam og mynda stífluna. Við erum búin að koma svo oft í Hoover Dam, bæði áður en nýja brúin kom, á meðan hún var í byggingu og eftir að hún komst í gagnið en við höfðum ekki enn labbað eftir henni. Hitinn var um 100°F þegar við vorum þar... en eins og við vissum var útsýnið frábært.
Þaðan keyrðum við til Las Vegas á uppáhaldshótelið okkar þar. Hér verðum við fram á föstudag.
Palace Station Hotel,
2411 W Sahara Ave, Las Vegas 89102 Nevada,
phone: 702-367-2411 room: 9017
Fjármál | Breytt s.d. kl. 02:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2013 | 02:25
Dagur 3 í Orlando - Black Friday
Við héldum að við yrðum frekar rólegar í dag EN það var misskilningur...
við vöknuðum kl 5 í stað 3 í nótt og skelltum okkur af stað... beint upp í útsöluþorp og byrjuðum að hala inn pokana... enda BLACK FRIDAY ;)
Berghildur og Edda voru miklu duglegri en ég... áður en við vissum af vorum við búnað að fylla skottið á bílnum.
Við tókum okkur smá pásu í hádeginu, borðuðum morgunmat á Golden Corall... æðislegar ommilettur, hars browns og allar kúnstir. Við hreinlega ultum út og hefðum ekki þurft að borða meira í dag... Síðan fórum við í nokkur moll... Við versluðum stanslaust í 14 tíma... geri aðrir betur.
Það þýðir auðvitað að við þurfum ekki að fara SVO snemma af stað á morgun.
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2013 | 03:50
Dagur 2 í Orlando - Thanksgiving
Við vorum komnar út eldsnemma... svo snemma að það var ekki búið að opna í Útsöluþorpinu... sem opnaði kl 10 am.
Við tókum því eina ferðamanna-keyrslu niður International Drive. Sáum húsið sem er á hvolfi og eitthvað fleira var þarna að skoða.
Eftir að það opnaði var dagurinn FLJÓTUR að líða. Við versluðum MIKIÐ og spöruðum ÓGEÐSLEGA MIKIÐ.
Við fengum okkur að borða á DENNY´s og renndum svo í WAL-MART... Þetta er í eina skiptið sem við höfum bakkað út þaðan.
Það var brjálað að gera, hundraðmetra röð að öllum kössum og hreinasta geðveiki að ætla að "skreppa" inn.
Við ákváðum því að fara frekar í TARGET... en maður minn það var biðröð í kringum húsið... Við fórum heim í BILI ;)
Þegar pokarnir voru komnir á rúmið sáum við að við höfðum getað verslað þó nokkuð.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 04:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2013 | 01:31
Dagur 1 í Orlando
Við sváfum ágætlega... borðuðum ágætis morgunmat og gerðum smá teygjur fyrir búðarrápið... við ætluðum að taka vel á því í dag.
Það var byrjað í Dollar Tree, síðan Walmart, Target, annað Dollar Tree, og annað Walmart og borðað á Golden Corrall.
Berghildur tekur myndir af öllu en snúran til að færa á milli er heima... svo minn gamli Sony Ericsson bjargar málinu til sanna fyrir fólkinu heima að það er hörku vinna að versla.
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2012 | 04:22
Las Vegas, Nevada - Denver, Colorado
Vaknaði kl 5 í morgun... gengum frá því síðasta af dótinu og ég tékkaði okkur út. Það var stutt upp á flugvöll... Ég keyrði Lúlla að innrituninni og skilaði bílnum. Við höfðum keyrt um 1850 mílur...
Morgunmaturinn á Saga Lounge, bauð ekki upp á betra en meðal-Super8.
Þar munaði minnstu að ég týndi kortaveskinu mínu, það rann undir stólinn og japönsk kona benti mér á það.
Ég gat þakkað henni fyrir með dvd-diski um Ísland... ég held að hún hafi verið ánægðari en ég :)
Við flugum með UNITED til Denver. Ballið byrjaði þegar við sóttum töskurnar sem við þurfum að borga undir í Las Vegas...
Stóra taskan hafði verið skorin upp meðfram rennilásnum á tveim hliðum... og síðan teipuð lauslega saman og utan á töskunni var poki með dóti flæktur í teipinu sem var merkt Transportation Security Administration... Þeir hafa ekki fattað að það átti að opna hana að framan.
Ég kvartaði í starfsmann UNITED en hann benti á TSA. Þar fékk ég spjald með símanúmerum og netfangi. Enginn svaraði í fyrra símanúmerinu en í því seinna lenti ég í könnun savings2go og átti að fá sendan vinning og alltaf beið kvörtunin mín út af töskunni...
Ég var gjörsamlega græn fyrir því að ég hefði lent í símtali sem hafði verið brotist inn í... Ég var að hringja í öryggisþjónustu Bandarísku flugvallanna... en ég sá síðan þegar ég fletti upp þessu savings2go á netinu, að þetta var svindl-fyrirtæki... og ég búin að gefa upp kortanúmer.
Ég sendi því kvörtunina mína til TSA varðandi töskuna á email og sendi annað email til Vísa á Íslandi og lét loka kortinu mínu. Þessir svindlarar skulu ekki fá krónu frá mér.
Hótelið okkar er frábært....
Best Inn and Suites,
4590 Quebec Street, Denver, CO 80216
Fjármál | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2011 | 18:19
Er strax farin að leita að nýrri ferð !
Það hefur alltaf verið dýrt að ferðast en hvílíkt verð á flugi núna... Það hvarflar ekki að mér að reyna þetta hópkaup með Iceland Express... og myndi ekki ferðast með þeim nema í algerri neyð, fólk heldur að það sé að gera góð kaup en það er misskilningur sem það uppgötvar síðar.
Allir dagar til allra staða í USA eru út árið á himinháu verði hjá Icelandair... það vantar meiri samkeppni, einhvern sem getur keppt við þá :)
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki er þessi grein áhugaverð fyrir inngöngu, það segir sig sjálft að við höfum ekkert að gera í ESB. Hvernig væri að hætta fjáraustri í umsóknaraðildar-ferli og farið að nota peningana fyrir fólkið í landinu.
Eftir sem mér skylst þá er skjaldborgin um heimilin komin... Búið að hirða hverja krónu af landanum, banna nektardans og bjórauglýsingar... Skrítin skjaldborg...
Vilja Grikki af evrusvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.3.2010 | 12:35
Hvað eiga menn að halda ?
Gagnrýnir harðlega sænskan ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007