Leita í fréttum mbl.is

Hagræðing?

Ef það er hagkvæmt að hafa öll norrænu sendiráðin í Berlín... er þá ekki bara styttra að flytja þau heim. Það er nóg af tölvufyrirtækjum hér sem gætu tekið að sér að vera í sambandi við umheiminn með sms eða msn með eða án myndavélar ???  
Hagkvæmt og menn myndu ekki missa af neinu.
Ég held þessir stjórnmálamenn séu ekki í lagi, það er allt hægt í gegnum tölvu nema að heilsa með handabandi.


mbl.is Vill fjölga norrænum sendiráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að loka augunum fyrir tækninni?

Framtíðin er í tölvuheiminum. Sá sem ætlar að fara aftur fyrir það ,,besta eða tæknilegasta" í sínum bransa, byrjar ekki vel.  Því það sem er í raun það nýjasta, er í raun orðið úrelt um leið. 

Í áratugi hefur fólk átt vídeó... allir hafa tekið upp efni og skipst á spólum... er það ólöglegt?  Nýjasta tækniundrið er að taka sjónvarpsefnið upp á DVD spilara sem er með minniskubbi... er það þá ekki ólöglegt líka? Segulböndin voru notuð til að taka upp tónlistina... Þessi tæki ásamt tómum spólum, núna diskum er selt í raftækjabúðum... eru búðirnar þá að stuðla að ólöglegri háttsemi borgaranna?
Að kaupa sér afþreyingu og deila henni með öðrum hefur alltaf átt sér stað og mun alltaf eiga sér stað. Enda er það þannig að þegar ég kaupi mér disk, ÞÁ Á ÉG HANN.

Á hverjum CD eða DVD disk jafnvel þó hann sé tómur, er sérstakur skattur sem fer til STEFs og skyldi maður halda að það eitt kæmi í stað höfundaréttargjalds efnisins sem færi á diskinn... jafnvel þó diskurinn sé eingöngu notaður fyrir námsgögn þ.e. skjöl og ritgerðir, fjölskyldumyndirnar eða eitthvað annað persónulegt efni, þá kemst maður ekki hjá því að borga gjaldið til STEFs...

Fyrir mörgum árum varð það að blaðafrétt þegar Guðmundur Jónsson óperusöngvari skilaði til baka greiðslu sem honum var send fyrir stefgjöld. Hann hafði sungið allt árið út í gegn LAX LAX LAX... og platan hans seldist vel... en ávísunin frá STEFi var að mig minnir 45 krónur, kannski 450 kr að núvirði.

Í fyrra þegar við vorum í undankeppninni fyrir Eurovision, þá lánaði Páll Óskar sjónvarpinu myndefni... upptökur af gömlum Eurovisionkeppnum sem vinur hans erlendis hafði SKRIFAÐ fyrir hann og sent honum...  Hvorki Páli Óskari eða Rúv fannst nokkuð athugavert við að segja frá þessu og sýna þetta efni...
Nei, það er ótrúlegt að STEF skuli hafa unnið Torrent-málið að mestu leyti. 
Fyrir það fyrsta... gerir STEF í raun ekki neitt - nema reyna að sjúga í hverri smugu út gjöld... og af diskunum sem við erum neydd til að borga stefgjöld og hýsa fjölskyldumyndirnar og gamlar ritgerðir - þar ættum við að að fá þau endurgreidd.


mbl.is Istorrent-dómur kveikir ótta í brjósti torrentáhugamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að bregðast eða bregðast við?

Hin nýja stjórn hefur gjörsamlega gleymt sér í valdastólnum... það átti að slá skjaldborg um heimilin en það virðist vera gleymt í einhverju þrefi um stóla og embætti.
Það eina sem maður heyrir í fréttum er ,,hvað það er lítill tími"... en í tíð fyrri stjórnar var þessi sami tími ,,alltof langur" til að hægt væri að bíða eftir næstu kosningum... það varð að bregðast við strax... 
Ætlar þessi stjórn að ,,bregðast" eða ,,bregðast við"?
mbl.is Blæs á tal um pólitískar hreinsanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásmundur ráðinn bankastjóri...

Er frú Jóhanna að hygla sínum flokksbróður sínum með þessari ráðningu... Er Ásmundur Stefánsson ekki Samfylkingarmaður???
Það er hægt að segja manni allt...  ef hún vill að staðan sé auglýst... ætlar hún þá að hafa mánaðar umsóknarfrest eða kannski 80 daga Tounge


mbl.is Auglýsi stöðuna sem fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær á svo að byrja að spara?

Allsstaðar er verið að fækka fólki, draga saman og hagræða... Hvers vegna er verið að úthluta listamannalaunum?  Það er mín skoðun að þeir sem geta ekki lifað af list sinni, verða bara að láta sér það lynda að hafa listina sem ,,hobby"... fyrir utan það að launahæstu listamennirnir fá styrk... er einhver glæta í því?

Afnemum listamannalaun í eitt skipti fyrir allt.


mbl.is Þrír rithöfundar fá starfslaun í 3 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónus besta kjarabótin

Ef það er eitthvað sem er okkur nauðsynlegt núna í þessari kreppu, þá er það að hafa lágvöruverslun eins og Bónus. Bónus hefur haldið niðri verði í öllum öðrum matvöruverslunum. Ég vona að Bónusbúðirnar lifi og dafni áfram.
mbl.is Ódýrast í Bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þessi kona í lagi?

Ef það er eitthvað sem skilar litlum eða engum arði út í samfélagið þá er það tónlistarhúsið.. Í þessu húsi verður starfsemi sem verður alla tíð að vera niðurgreidd svo almenningur geti notið hennar... GEYMUM þetta þangað til betur árar.  Við höfum ekki efni á byggingunni núna.
mbl.is Klára húsið með sóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir lepja dauðann úr skel...

Ég man eftir látunum sem urðu þegar ALLIR áttu að borga stefgjöld, hárgreiðslustofur og allir almennir staðir þar sem útvarp væri opið áttu að borga.  STEF ætlaði að hala inn peninga.
Ég man nú ekki hvernig þetta fór... held samt að þeim hafi tekist að fá þetta í gegn... en hvort sem þeim tókst það eða ekki, þá hafa tónlistamenn fram til þessa lapið dauðann úr skel samkvæmt skattaskýrslum.
Ég var í 15 ár í klúbbi sem leigði stundum skemmtikrafta og hélt árshátíðir... verðlagið á skemmtikröftunum og hljómsveitunum var himinhátt en allir voru þeir samt með ,,vinnukonulaun"

Nú eru menn að huga að skattaskýrslunum og fróðlegt að sjá hvað t.d. STEF borgar sínum mönnum út, fara stefgjöldin ekki bara í umsýsluna við að rukka þau inn, þ.e. laun starfsmanna??? 


mbl.is Lögbann á Torrent staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjað á öfugum enda?

Hvers vegna þurfti að stjórnin að víkja?  Var hún ekki að fara eftir þeim úthlutunarreglum sem voru fyrir og einhverjir aðrir settu... og þarf ekki að vera ,,einhver" stjórn á meðan reglurnar eru þá endurskoðaðar?

Ég er námsmaður á námslánum... ég veit að maður þarf að ná prófunum til að fá lánið?  Þess vegna eru lánin greidd eftirá.  Falli námsmaður í einhverju fagi, bætir það örugglega ekki að hafa þegar fengið námslánið... þá þyrfti að borga það til baka er það ekki ??? 
Ég get ekki séð annað en að Katrín verða sér úti um atkvæði námsmanna... hún er komin í kosningabaráttu.


mbl.is Vék stjórn LÍN frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um hvað snýst kristin trú?

Fyrirsögnin segir sjálf svarið við spurningunni.... Kristin trú snýst um að trúa á Krist, ekki spádóma, hver sé antikristur eða hver hafi rétt fyrir sér um túlkanir á hinu ýmsu versum Biblíunnar. 

Sá sem kynnist Jesú og meðtekur hann sem frelsara sinn, þyrstir í að vita allt um hann... þá fyrst byrja hlutirnir að flækjast... því hinar ýmsu kirkjudeildir túlka ritninguna á ólíkan hátt og setja jafnvel verk framar trúnni, sem á þó að vera aðalatriðið.

Róm. 10:9-10
Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.

Þetta er mjög einfalt... sá sem trúir í hjarta sínu breytist... HEIMURINN ER SÁ SAMI.. sá sem trúir verður annar og betri maður... hann verður ekki fullkominn, en hann mun gera sitt besta til að vera ekki brotlegur við Guð og menn.
Meira er ekki hægt að gera.


Tala dýrsins 666

Ég fékk bækling inn um lúguna, ég þekkti strax að hann var frá Aðventistum. Hvíldardagurinn, Danielsbók og Opinberunarbókin eiga hug þeirra allan. Ég býst við að þessi bæklingur fari inn á hvert heimili.
Aðventistar eru besta fólk, ég hef oft farið á samkomu hjá þeim, finnst margt gott hjá þeim... en trúin er meira en hvíldardagurinn og spádóms-samlokurnar. 
Ég hef bloggað um það áður að Aðventistar telji Kaþólsku kirkjuna vera antikrist... eitt af táknunum er einmitt yfirskrift embættis páfa... VICARIUS FILII DEI... þar sem Aðventistar leggja saman rómversku tölurnar í nafninu og fá út tölu dýrsins 666

Eitthvað finnst mér skrítið að þeir telji bæði stafina V og U vera töluna 5 og þess vegna kíkti ég á þessa síðu á netinu sem sýnir hvernig rómversku táknin eru hugsuð og hvaða tölur gilda fyrir hvern staf.
http://gwydir.demon.co.uk/jo/numbers/roman/index.htm#count

Fáið þið út... 666 ?


Fyrirgefið...

Fyrirgefið er ég að missa af einhverju... Var Steingrímur ekki alfarið á móti því að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn - fyrir stjórnarslit ???  Mig minnir það !
Mbl.is  Fylgja áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Óska þeim góðs bata

Skjótt skipast veður í loft... það er alltaf sorglegt þegar fólk fær fréttir af alvarlegum veikindum, illvígum sjúkdómum. En sem betur fer fleygir læknavísinunum sífellt fram. Við státum af einni bestu heilbrigðisþjónustu í heimi... samt þurfa ráðherrar okkar, Geir og Ingibjörg Sólrún bæði að fara erlendis til lækninga. Megi þau ná sér að fullu.

Ég vona að sem minnstur niðurskurður, helst enginn... verði í heilbrigðisþjónustu okkar Íslendinga og að það verði aldrei þannig að við verðum að snúa frá vegna hárra innlagnar- eða skoðunargjalda á sjúkrahúsum landsins.


mbl.is Fráfarandi ríkisstjórn kveður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óska þeim góðs gengis

Þó ég hafi verið á móti stjórnarslitunum núna... þó ég hafi ekki talið það breyta miklu að skipta um nokkra hausa... þá er það búið og gert.
Nýrri stjórn ber að óska góðs gengis og velfarnaðar í starfi... þau eiga að hafa okkar hag að leiðarljósi og tíminn er dýrmætur. 
Það verður þó sennilega spaugilegt að sjá Steingrím allt í einu sammála Samfylkingunni - ,,andstæðingnum sem kom þjóðinni á kaldan klakann með Sjálfstæðisflokknum"...
mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að lesa eitthvað annað en stendur!

Kommúnisminn - Jafnaðarstefnan... var blogg við frétt Mbl.is um íbúð sem hafði fundist og virtist óhreyfð frá tímum kommúnismans í A-Þýskalandi. Nokkrar athugasemdir voru færðar inn við færsluna.  Ég hef oft dottið í þá gryfju sjálf að lesa annað en það sem stendur út úr lesefninu amk. í fyrstu umferð... en er farin að passa mig betur núna.
Mættu þeir sem skrifa athugasemdir við pistla annarra hugsa sig um, lesa efnið aftur yfir og spá í hvað raunverulega standi í greininni.
Þegar ég las athugasemdirnar við þessa færslu duttu mér strax í hug orð eins kennara míns í Háskólanum. Ef ég hafði dregið ranga ályktun af námsefninu átti hann til að segja.... Við skulum þakka Guði fyrir að það er ekki próf í þessu í dag.

Ég skrifaði að menn sæju í hillingum að allir hafi jafnt... og að þau ríki sem hafi haft þessa stefnu að hugsjón... hafi haldið fólkinu í fátækt og raunin hafi orðið sú að allir hafi haft jafn lítið. Ég sagði að hugsjónin ,,að allir hefðu jafnt" væri fögur en virkaði ekki.

HUGSJÓNIN ,,að allir hafi jafnt" er grunnurinn hjá kommúnisma og jafnaðarstefnunni... framkvæmd stefnunnar og virkni er síðan allt annar handleggur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband