Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
30.6.2008 | 20:16
Adam 9 ára
Elsku Adam okkar,
innilega til hamingju með afmælið.
Við afi bíðum spennt eftir að vita hvar afmælið verður haldið. Það er nefnilega mjög sérstakt að vera boðið í 7 ára afmæli.... á topp Helgafells.
Biðjum þér alls hins besta í framtíðinni
Amma og afi.
Afmæliskveðjur | Breytt 1.10.2008 kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2008 | 20:05
Reykjavegur, gönguferð Margfætlna
Ég hafði skráð mig í gönguferð fyrir nokkrum vikum.... gönguhópurinn Margfætlur ætlaði að ganga Reykjaveginn... þ.e. frá Reykjanes-tá/hæl til Nesjavalla. Helgarspáin lofaði mjög góðu veðri.
Fyrstu 3 leggirnir voru farnir þegar við hjónin vorum úti.... ég fór maraþon þær helgar sem þau gengu sína áfanga.
Lengsta gangan, 3 dagleiðir voru um helgina (27-29).
Við, 27 manna hópur, lögðum upp frá Kaldárseli og gengum fyrsta legginn í Breiðabliksskálann í Bláfjöllum... menn voru vel útbúnir með bestu gerð af GPS mælum. Fyrsti áfanginn var um 16 km.
Rjúpuhreiður með 11 eggjum, flugvélarflak og frábært útsýni gladdi okkur á leiðinni. Síðasta klukkutímann fengum við grenjandi rigningu ofaní hvassviðrið.
Allan tímann eltum við þessar gulustikur með bláum kolli.
Lúlli ferjaði dótið fyrir okkur í Breiðabliksskálann þar sem hópurinn svaf um nóttina. Næsta dag kl 10 fh. var lagt af stað og gengið eftir stikum frá skálanum að Þrengslaveginum. Eftir mikinn vindbarning á móti og örlitla úrkomu og 15,5 km göngu í fallegu landslagi, komum við niður á þrengslaveginn. Mikið var gott að sjá rútuna bíða þar, en hún átti að ferja okkur aftur í skálann svo við gætum sofið þar um nóttina.
Um kvöldið var kvöldvaka, með grafalvarlegri keppni um listastrengi. Auðvitað tók ég þátt, hafði fundið kolryðgaðan keðjubút sem ég skreytti með blómum og fallegum smásteinum.
Þegar ég talaði fyrir mínum streng, sagði ég að hann væri blanda af náttúrunni og drasli okkar mannanna.... það dugði samt ekki til vinnings. Síðan var sungið fram eftir kvöldi.
Þriðja daginn vöknuðu allir snemma, það þurfti að ganga frá skálanum og taka saman dótið. Allt var sett í rútuna, sem ferjaði okkur að Kolviðarhóli, þaðan sem við gengum til Nesjavalla.
Við byrjuðum í roki og rigningu..... það hljóta að hafa verið skólakrakkar í afleysingu á veðurstofunni sem spáðu helgarveðrinu.
Síðan stytti upp og veðrið var nokkurnveginn til friðs.... við vorum í stanslausum mótvindi. Landslagið, náttúrufegurðin bætti það allt upp. Við gengum fram á lóuhreiður með 4 eggjum. Við áðum í skála Orkuveitunnar í einhverjum dal ??? Engidal.... og gengum þaðan í Nautaréttir. Þaðan var talsverð hækkun en fallegt.
Við áðum næst við blekkingarskilti.... sem vísaði á Nesjavelli í 2 áttir. Hópurinn skiptist, annar leggurinn og sá auðveldari var 7 km, en sá erfiðari var 7,4 km.
Það er ekki að spyrja að því ég var í þeim hópi.... og lengri 7,4 km hef ég aldrei farið..... og þegar ég hélt að við værum búin að fara 7,4 km, komum við að skilti sem bætti 3,5 km við og það eru líka lengstu 3,5 km sem ég hef farið.... en útsýnið var breathtaking ... vá.... og á efsta hlutanum fengum við haglél..... þessi leggur var ca 20 km.
Við borðuðum í Nesbúð og rútan (með dótið okkar) sótti okkur og keyrði í bæinn. Til minja um gönguferðina fengu allir litla stiku, gula með bláum kolli, sem var áletrað á REYKJAVEGUR 2008.
I love it
Þetta var frábært...... Takk fyrir mig
Bloggar | Breytt 30.7.2008 kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2008 | 13:55
Tvö dauðsföll
Á þriðjudagsmorgun 24.júní dó Hilmar föðurbróðir minn og í gærmorgun 25.júní dó tengdamamma. Andlát Hilmars kom okkur mjög á óvart. Pabbi á bara 2 bræður og var Hilmar yngstur og vissum við ekki annað en að hann væri við góða heilsu. Synir hans og Hrafnhildur fá samúðarkveðjur frá okkur.
Tengdamamma hefur aftur á móti verið léleg til heilsunnar í nokkurn tíma og frekar búist við að hún gæti hvatt hvenær sem væri. Það eru rúm 2 ár síðan tengdapabbi dó og hefur heilsa hennar sveiflast fram og til baka á þessum tíma. Á þriðjudag var ljóst hvert stefndi og lauk þessu stríði á miðvikudagsmorgninum.
Blessuð sé minning þeirra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2008 | 12:02
Selvogsgatan
Það er fastur liður að ganga Selvogsgötuna, og helst nokkrum sinnum á sumri.
Maðurinn þurfti að fara í Selvoginn að laga eitthvað við hjólhýsið hennar Jónu. Ég notaði tækifærið og gekk Selvogsgötuna frá Bláfjallaafleggjaranum.... það er ca 16 km.
Veðrið var dásamlegt, sól en aðeins vindur.... eða logn sem var að flýta sér aðeins. Síðast þegar ég fór Selvogsgötuna gekk ég hratt og var slétta 3 tíma þessa leið. Nú ákvað ég að ganga á fjölskylduhraða... og var 3:45.... stoppaði samt aldrei.
Ég var 50 mín upp á fjallsbrúnina, 1 tíma og 10 mín yfir hraunið, 40 mín niður að stiganum, 50 mín þaðan niður að fjallsbrún og 15 mín að fara niður fjallið, niður á veg.
Það var óvenju lítið um fugla og kindur á leiðinni, sá varla fugl og ekki kind nema fyrir neðan stigann.
Lúlli sótti mig að fjallinu, við grilluðum og höfðum það gott, sváfum þar í nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.6.2008 | 23:03
Endurskipulagning næstu ferðar
Síðan við komum heim í gærmorgun, höfum við staðið í ströngu við að skipuleggja næstu ferð til Bandaríkjanna. Eins og ég bloggaði í byrjun síðustu ferðar, þá virðast flugfélög vera á einhverjum sér samningum. Þau virðast geta fellt niður og fært til flugið manns... eftir eigin geðþótta.
Við áttum flug til Minneapolis 25. sept..... sem hefur verið fellt niður. Allar okkar ferðir eru skipulagðar í kringum maraþon. Það er út-spekulerað hvenær á að fara og passað að láta tímann standa á vikum upp á bílaleigubíla. Aukadagar eru svo dýrir.
Venjulega förum við á föstudögum ef fyrsta hlaup er á sunnudegi.... og oft er búið að borga hlaupin um leið og flugmiðann... þess vegna kemur sér mjög illa þegar breytingar verða.
Sem betur fer eru þetta lítil hlaup... sem eru ekki uppseld löngu áður, svo ég var ekki búin að skrá mig, því hlaup eru aldrei endurgreidd... en við vorum búin að panta bílaleigubílinn.... og borga flugmiðann fyrir löngu.
Nú getur borgað sig að fara viku fyrr... bæta hlaupi framan við og skera aftan af ferðinni.... ???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2008 | 16:20
Komin heim
Við erum komin heim ferðalagið tók hátt í 2 sólarhringa. Komum með þetta fína þjóðhátíðarveður með okkur, sól og blíðu.... það var 30 stiga hiti í Salt Lake City þegar við pökkuðum.
Við tókum upp úr töskunum.... ætluðum ekki að leggja okkur en ég sofnaði í sólbaði á pallinum og Lúlli í stólnum fyrir framan sjónvarpið. Alltaf gott að koma heim.
Það voru dýrin sem fögnuðu okkur fyrst... Hinir sváfu áfram...
Bloggar | Breytt 18.6.2008 kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2008 | 23:52
Á heimleið með Priority Pass
Nú sitjum við í Priority stofu North West. Við erum búin að hafa þessi skírteini í rúm 2 ár... skírteinin gefa aðgang að betri stofu þar sem allt er frítt og aðgangur að neti. Við höfum oft beðið tímunum saman á flugvöllum og aldrei munað eftir þessum skírteinum.
Það er einstaklega þægilegt að geta sest niður í betri sæti, fengið sér Baileys á klaka og farið á netið. Við erum búin að vera hátt í 1 og hálfan sólarhring á leiðinni heim. Við slepptum herberginu í Utah á hádegi í gær.... dunduðum okkur í listigarði og búðum þar til við flugum til New York kl 12:45 í nótt. Flugið var 4 tímar og tímamunur 2 tímar.... lentum kl 7 í morgun á staðartíma.
Við gátum bæði sofið eitthvað... en ég var hreinlega að drepast úr sibbu, þegar ég keyrði áleiðist til Boston.... og auðvitað glaðvaknaði ég þegar Lúlli tók við. Við fengum okkur breakfast á Ihop á leiðinni....og eftir búðarráp og skoðunar-villu-vegar-ævintýri um Boston, þá borðuðum við á The Old Country Buffet.
Við skiluðum bílaleigubílum, sem var sá 4. sem við tókum í þessari ferð og vorum komin á völlinn 3 tímum fyrir brottför. Flugið heim er 21:30 á staðartíma.
Núna slöppum við af og njótum þess......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2008 | 14:47
Salt Lake City, Utah
Allt er gott sem endar vel
Við erum búin að vera rúmar 3 vikur í þessari ferð. Flugum út föstudaginn 23.maí, eigum núna 2 næturflug eftir..... og komum heim á þriðjudagsmorgni... 17.júní.
Ferðin hefur í alla staði tekist vel. Við erum búin að strauja 3 ný fylki, Vermont, Montana og Idaho. Á milli Vermont og Montana skutumst í viku til öðlinganna og höfðingjanna í Californíu.... en þar bættist ekki við nýtt fylki.. ég er búin að hlaupa lang oftast í Californíu.... held það séu komin 12 maraþon þar.
Það var sérstök upplifun að fara í Yellowstone og Jackson Hole. Og það verður að minnast á hvað við vorum blessuð með veður. Í fyrsta lagi breyttum við allri ferðinni, við ætluðum upphaflega að vera á miðríkjunum þar sem flæðir núna yfir fjölda borga og svo á austurströndinni þar sem er hvílík hitabylgja, að það er til vandræða.
En við breyttum ferðinni fyrir nokkrum mánuðum.... veðrið blessaðist hér, því við sluppum við rigningar og þrumuveður sem voru í veðurspám og náðum að sjá Yellowstone áður en það frysti og snjóaði og varð ófært þar. Einu sinni vöknuðum við (Idaho Falls) og það hafði snjóað um nóttina. En hann bráðnaði strax.
Öll hlaupin voru í ágætis veðri, þó stundum væri heitt, ég nota alltaf sólarvörn 50 svo ég brenni ekki. Ég hef ekki tekið saman hvað við erum búin að keyra mörg þúsund mílur... en það er slatti.
Við keyrðum frá Rexburg, Idaho í gær, (ca 4 tíma keyrsla) strax eftir hlaupið og tókum sama hótel (Microtel) og við vorum á þegar við flugum hingað fyrir 2 vikum.
Eins og heima þá hefur allt hækkað hérna, bæði bensín, matur og hótel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2008 | 23:24
Rexburg, Idaho
Við höfum verið eins og blóm í eggi í Idaho Falls, það var yndislegt að hafa heitan pott og gott eldhús. Við gátum bakað okkur vöfflur í morgunmat.... ummm
Þess vegna ákváðum við að afpanta fyrri nóttina okkar í Rexburg og vera sólarhring lengur í Idaho Falls. Rexburg er bara 30-45 mín norðar. Við erum búin að vera nákvæmlega 3 vikur á ferðalagi í dag. Mótelið okkar er mjög fínt, þeir eru að búa til sundlaug og heitan pott hérna.
Við verðum bara eina nótt hérna. Lúlli verður að tékka okkur út á morgun á meðan ég er í hlaupinu og við keyrum annað hvort til Salt Lake City eða í áttina þangað. Við gistum einhversstaðar eina nótt í viðbót... síðan eigum við 2 næturflug eftir... annað þeirra frá Salt Lake City til New York, þaðan keyrum við til Boston og fljúgum þaðan heim nóttina á eftir.
Við eigum að lenda í Keflavík að morgni 17.júní.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2008 | 22:03
Veðrið...
ákváðum að vera hér 1 nótt í viðbót.
Maður er í stöðugu sambandi heim.... fékk að vita að það er miklu betra veður heima. Það er sennilega ekki talað um annað en veðrið á báðum stöðum.
Við fórum í búðarráp og Lúlli tók mynd af fossum hér rétt hjá... þeir gætu verið táknrænir fyrir nafnið á bænum. Núna ætlum við að slappa af, fara í heita pottinn, síðan ætlum við að hita örbylgjumat í eldhúsinu og horfa á góða bíómynd í sjónvarpinu.....
Já, það er COLOR TV hérna. haha
Bloggar | Breytt 12.6.2008 kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007