Leita í fréttum mbl.is

Oklahoma City OK - Dodge City KS

Tékkaði mig út eftir morgunmat og keyrði frá Oklahoma City, norður sveitavegina sem ég kom... I LOVE IT... áleiðis til Guymon. Nema ég hélt áfram norður sem sagt keyrði til Kansas. það er alveg nóg að keyra um 300 mílur á dag... og maður verður að passa að vera ekki of seint á ferð til að fá herbergi.

Það var hrikalegt verð á mótelunum í Dodge City... fyrir utan hvað dollarinn er hár... ég tók Travelodge og setti tölvuna í samband... Ég hafði sett upp nýjan Internet explorer í gærkvöldi og þá poppaði MSN-ið upp. Ég sem var farin að halda að grænu MSN-kallarnir væru komnir með svínaflensu W00t 

Travelodge   Dodge City
1510 W. Wyatt Earp
Dodge City, KS 67801 US
Phone: 620-227-2125 Room 406


Markúsarguðspjall

Flestir telja Markúsarguðspjall vera elsta guðspjallið, sennilega skrifað um árið 60, þegar Rómverjar ofsóttu kristna. Heiti guðspjallsins er: Guðspjall samkvæmt Markúsi... þ.e. eignað einhverjum Markúsi og geta menn sér til höfundinn. Know your Bible telur að höfundurinn sé trúboðinn ,,Jóhannes öðru nafni Markús"(Post 12:25) og sá sem er ferðafélagi Péturs (1.Pét 5:13)

Mark. er stysta guðspjallið og megnið af efninu er endurtekið í Matt. og Lúk. Guðspjallið er skrifað til ,,heiðingja" og það lýsir Jesú sem manni sem framkvæmir hlutina... læknar með krafti Guðs, hefur vald yfir veðri og vindum og berst gegn hinum illa. 

Þema guðspjallsins er: Jesús Kristur er líðandi þjónn allra manna.
Markús lýsir Jesú sem hinum líðandi þjóni, þar sem gyðingar vilda drepa hann (9:31), þar sem nágrannar hans reyna að lítillækka hann (6:3) og jafnvel fjölskylda hans telur hann viti sínu fjær (3:21).
Það vers sem lærisveinar hans myndu halda á lofti væri: ,,En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar. Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé allra þræll. Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga. (10:43-45)

Fleygustu versin eru:
1:17... Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.
10:14... Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.
10:25... Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.
12:17... Gjaldið keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.
14:38... Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.

Margir halda að hinn ónafngreindi maður sem var við handtöku Jesú hafi verið Markús sjálfur.
14:51-52... ,,En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann, en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn."

Guðspjallið segir að þjáning og missir, sé ekki endilega bara slæm upplifun - heldur getur það verið upphafið að einhverju betra (8:35)


Matteusarguðspjall

Höfundur guðspjallsins er talinn vera tollheimtumaðurinn Matteus (Matt 9:9) sá sami sem Markúsarguðspjall segir að sé kynntur sem ,,Leví Alfeusson" (Mark 2:14).
Guðspjallið er sennilega skrifað á því tímabili sem Rómverjar lögðu musterið í eyði (70 e.Kr.) og virðist það vera beinlínis skrifað fyrir gyðinga með áherslu á að sanna fyrir þeim að Jesús væri sannarlega Messías, sá sem þeir biðu eftir... þ.e. uppfylling spádómanna...enda er mikið vitnað í spádóma Gt.

Ættartalan á að staðfesta að Jesús sé af ætt Davíðs, hersveit engla tilkynnir fæðinguna og ,,vitringarnir" koma til að veita hinum nýja konungi lotningu. Matteus er eina guðspjallið sem kennir Faðir vorið (6:9), nokkrum kraftaverkum er lýst sem hin guðspjöllin nefna ekki og Matt er sá eini sem segir að við dauða Krists hafi jörðin skolfið, björg klofnað og dauðir risið upp. 

Fleygustu versin eru:
1:21... Hún mun son ala, og hann skaltu láta heita Jesú, því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra.
5:13-14... Þér eruð salt jarðar. Ef saltið dofnar, með hverju á að selta það? Það er þá til einskis nýtt, menn fleygja því og troða undir fótum.
Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist.
5:44... En ég segi yður: Elskið óvini yðar, og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður,
7:1... Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir.
7:7... Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.
28:19... Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda,

Það sem sker þetta guðspjall frá hinum er að Matteus er eini guðspjallamaðurinn sem notar hugtökin ,,kirkja" og ,,himnaríki."


Bloggfærslur 27. apríl 2009

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband