Leita í fréttum mbl.is

Oklahoma City

Ég var komin af stað um hálf 9 ...  stoppaði einu sinni í klst á leiðinni og keyrði upp að hótelinu í Oklahoma City kl 3. Í þetta sinn passaði ég mig á að lenda ekki í löggunni á leiðinni, en einn fór fram úr mér á svaka ferð og eftir smá stund keyrði ég framúr honum - löggan náði honum  Police
Þetta er höfuðborgin í Oklahoma. Ég þarf að raða saman púslinu á morgun, sækja gögnin, fara á start og finish og athuga með bílastæðamál.

Þegar ég var búin að tékka mig inn, leitaði ég að Buffeti, en það var búið að loka því - hætt... ekki í fyrsta sinn sem það er búið að loka, þegar ég kem.
Aðalvandamálið í sambandi við þessi Buffet er, að fólk tekur sér helmingi meira en það borðar og því er hent. Af því fólk borgar eitt verð - ber það enga virðingu fyrir matnum... En kannski finn ég annað Buffet á morgun - ÉG SKAL FINNA ANNAР Tounge

Super 8 OKC/Bricktown/I-35
3030 South I-35
N I-35 Exit 124B at 29th St
Oklahoma City, OK 73129-6632 US
Phone:  405-677-1000   Room 123
Email: mullesus@wynhg.com

Guymon, Oklahoma

Vaknaði rúmlega 4, jafnþreytt og þegar ég fór að sofa... hélt ég væri búin að sofa eitthvað lengi, en ég hef tapað 1 klst við að keyra til Oklahoma, nú er 5 tíma tímamunur við Ísland. Fór á lappir, það er best að vera á ,,vitlausum" tíma fram yfir maraþonið.

Hitinn hækkaði á leiðinni hingað, var kominn í 87°F í gær svo ég keypti hlíf í Dollarbúð á leiðinni, til að setja yfir vatnskassann í aftursætinu og stýrið meðan ég fer í búð. Nú er ég að bíða eftir morgunmatnum, ætla í sturtu og tala við Bíðarann ef hann kemur inn á msn.


New York - Denver - Pueblo West - Guymon, Oklakoma

Ég rétt gat klárað síðustu bloggfærslu á flugvellinum í New York, áður en ég fór um borð. Opnaði tölvuna svo seint. Flugið til Denver tók 3:40 mín... Náði að sofa í 1 tíma á leiðinni. Klst eftir lendingu var ég komin með bílaleigubílinn og svo var ég slétta 2 tíma að keyra til Lilju og Joe í Pueblo West, þá var klukkan 3:10 á staðartíma... ég lagði af stað að heiman kl 14, það er 6 tíma tímamunur svo ferðalagið var orðið 19 tímar. 

Ég verð að viðurkenna að ég var orðin dauðþreytt, þurfti að passa mig á leiðinni til Lilju að loka ekki augunum of lengi þegar ég blikkaði þeim... ég er með plástur en hefði sennilega ekki þurft að nota hann, hefði ég farið útaf... 80 mílur er 130 km. hraði W00t  

Ég vakti upp, fiskurinn þurfti að komast í frysti. Síðan skelltum við okkur fljótlega í rúmið. Ég sofnaði fljótlega og svaf til kl 8... Lilja var farin í vinnuna, Joe var uppfartari og félagsskapur þar til ég lagði af stað til Oklahoma. 
Ég lét garminn ráða, hefði betur ráðið sjálf og keyrt leiðina sem við Lúlli keyrðum þegar við fórum til New Mexico.
Þetta var nú meira sveita???  GetLost ... ég keyrði amk í 2 tíma án þess að sjá bíl og þá var það löggan sem stoppaði mig fyrir of hraðan akstur Blush ... ég slapp með áminningu Police
Það eru um 600 mílur til Oklahoma City og ég keyrði um helminginn í dag. Tók áttu í Guymon og kom mér fyrir... loksins að ég sá menningu Cool  klukkan er orðin svo margt (18 hér, miðnætti heima) að Bíðarinn er sennilega sofnaður heima  Sleeping

Super 8 Guymon

Intersection of Hwy 54 & 64
1201 Hwy 54 East
Guymon, OK 73942-4543 US
Phone: 580-338-0507  room 230

Bloggfærslur 24. apríl 2009

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband