Leita í fréttum mbl.is

Misnotkun orða!

Menn eru farnir að nota orðið ,,stórkostlegt" í ótrúlegasta sambandi.
Hingað til hefur því sem hefur verið lýst sem ,,stórkostlegt" verið frábært... sem sagt merkingin er eitthvað er gott
Oftar og oftar heyri ég fólk almennt og fréttamenn fjölmiðla tala um ,,stórkostlegar hamfarir" og í þessari grein er það ,,stórkostlegur misskilningur"... eru menn ekki að ruglast eitthvað?


mbl.is Stórkostlegur misskilningur forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonbrigði með stjórnarslitin...

Vona að þessi stjórnarslit komi landinu ekki endanlega á vonarvöl. Vona að við förum ekki afturfyrir byrjunarreit.  Hver er tilgangurinn hjá Ingibjörgu Sólrúnu? Eiga forystumenn okkar ekki að hugsa um fyrst um hag þjóðarinnar... jafnvel þó það sé óvinsælt, eiga þeir ekki að klára sitt verk.

Ingibjörg Sólrún sagði á fundinum í Háskólabíói að hún teldi mótmælendur þá, ekki vera fulltrúa allrar þjóðarinnar...  Hefur eitthvað breyst... er hún að byrja sína kosningabaráttu... það hefur alltaf sést í gegnum grímuna að hún vill forsætisráðherrastólinn... er það bara til að geta rekið Davíð???


mbl.is Stjórnarsamstarfi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylking - Samkrull

Auðvitað er ástæða stjórnarslitanna ósamkomulag innan Samfylkingar. Það er alltaf meiri skoðanamunur og togstreita í flokki sem er samsteypa úr mörgum - samkrull er ávísun upp á ósamlyndi.

Samfylkingin var stofnuð með það eitt markmið að vera á móti Sjálfstæðisflokknum.
Framsókn ætlar núna að reyna að færa sig aftur á miðjuna og Vinstri grænir (Left ,,Grín") eða ,,restin af brandaranum" er ekkert nema gamlir kommar sem enginn getur unnir með.

Reynslan sýnir að þriggja flokka stjórnir hafa ekki verið langlífar... þess vegna boðar það ekki gott ef Samfylking, Framsókn og Vinstri grænir myndi stjórn. 
Það endar bara með enn einum ,,pakkanum" af biðlaunum sem við þurfum að borga.


mbl.is Verkstjórnin var ekki í lagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að spara svolítið!

Aðrar þjóðir (og miklu fjölmennari) hafa EINN seðlabankastjóra og ég held ég fari með rétt mál... að hann sé ópólitískur... Við höfum ekkert að gera með ÞRJÁ Pinch
Nú þegar niðurskurður er á öllum mögulegum og ómögulegum hlutum væri tilvalið að fækka þeim í EINN... svona í sparnaðarskyni Tounge
mbl.is Vill nýja bankastjórn í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn í kosningabaráttu...

Þetta er einmitt ástæðan þess að ég hef ekki talið tímabært að boða til kosninga... Menn fara strax að ota sínum tota til að komast að aftur... og í betra embætti.
Hvers vegna að axla ábyrgð og hlaupa svo frá henni sama dag?  Þetta er svipað og þegar fyrirtæki skiptir um kennitölu. Eigandinn hugsar bara um eigin hagsmuni og við töpum. 
Björgvin rak starfsmenn Fjármálaeftirlitsins og þeir fá STARFSLOKASAMNING... Hverjir borga ??? VIÐ


mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. janúar 2009

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband