Leita í fréttum mbl.is

Shit - skítur

Einmitt...

Það virðist vera þekkt aðferð að smygla eiturlyfjum inn í endaþarmi... eða að þau skili sér þá leiðina út ... og fyrir nokkrum árum var herferð gegn fíkniefnum meðal annars með þessari spurningu -
úr hvaða rassi kemur þitt efni?  eða eitthvað í þá áttina...

þeim sem eru í neyslu - er kanski sama hvaðan efnin koma og hvar þau hafa verið geymd, en þetta fær vonandi þá sem ekki hafa prófað, til að segja nei við fíkniefnum.


mbl.is Með fíkniefni í endaþarminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skil á næsta leyti...

Ég er búin að liggja í ritgerðinni minni síðustu vikur....

og ef ég var ekki að lesa, skrifa og breyta... þá var blessuð ritgerðin á heilanum á mér, sem er líka nauðsynlegt... það nægir ekki að sitja bara við tölvuna...
En nú held ég að ég sjái fyrir endann á þessu.  Ritgerðin var send til leiðbeinandans í dag...

OMG... hvað ég verð fegin þegar ég læt prenta hana endanlega út  Grin


Misstu af fluginu...

Allur eftirmiðdagurinn fór í það að redda heimasætunni og kærastanum... þau misstu af fluginu heim frá Portúgal í dag.

Við vorum í stöðugu sambandi við Plúsferðir.... og hana á netinu.
Þau fóru með rútunni á völlinn og tékkuðu farangurinn inn... vélin átti að fara 13:40... 10 mín áður var kærastinn við brottfararhliðið og þá var þeim sagt að vélin væri farin. Þetta er ótrúlegt... því það hefur tekið amk hálftíma að leita að töskunum þeirra innan um hinn farangurinn. 

Nákvæmlega sama gerðist fyrir dóttir Lúlla og fjölsk. í sumar... þau misstu af fluginu heim frá Spáni, ferðuðust líka með Plúsferðum... Vélin fór hálftíma fyrr.... það var reynt að kalla þau upp á spænsku en þau skildu það ekki... og framburður á íslenskum nöfnum er lélegur. Þau þurftu að bera allan kostnað af því að koma sér heim með öðru flugfélagi.

Á netinu er hægt að kaupa aukaviku á 18. þús á mann, en af því að þau misstu af fluginu verða þau að borga fyrir flugið heim, eins og þetta sé ekki nægilegur skellur fyrir þau.

Svo sér maður auglýsingar í sjónvarpinu sem segja - komdu út í plús-.... það er nú meira í mínus


Bloggfærslur 29. ágúst 2008

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband