Færsluflokkur: Brandarar
12.3.2010 | 11:39
Brandari
Íslenskt par leigði íbúð í Bretlandi þar sem þurfti að fá leyfi til að negla í veggina. Konan vill hengja blómapotta í eldhúsgluggann og fer til leigusalans og spyr á sinni frábæru ensku: "Can my husband screw two hookers in the kitchen window tonight..."
27.1.2010 | 16:31
Brandari
He only has one eye, his hair is always a mess, his relatives are nuts, his neighbour is an asshole and his owner is a wanker.
18.1.2010 | 20:48
Újé....
Ég breytti stundatöflunni minni í morgun, sagði ég við manninn þegar ég kom heim. Ó, ertu þá í fríi alla vikuna? spurði hann...
Haha... nei, það er nú ekki svo... en mánudagarnir styttast verulega.
Ég man þegar ég var með hlaðna stundatöflu, brjálaða dagskrá, lestur og verkefni í 2 ár í Hraðbraut. Alla virka daga var skóli frá 8-5 og ekkert gefið eftir... svo kom ég stolt heim úr HÍ eftir fyrsta daginn með stundatöflu sem var eins og slitið gatasigti... og maðurinn sagði: Kallarðu þetta að vera í skóla!!!
18.1.2010 | 20:17
Nægjusemi
Eitthvað er maður orðinn gamall þegar maður stelur svona brandara af facebook hjá barnabarninu...
Hvernig á að heilla konu? Ö..... Hrósaðu henni, faðmaðu hana, kysstu hana, haltu utan um hana, elskaðu hana, strjúktu henni, stríddu henni, huggaðu hana, verndaðu hana, eyddu peningum í hana, bjóddu henni út að borða, kauptu gjafir handa henni, hlustaðu á hana, stattu við hlið hennar, styddu hana, farðu hvert sem er fyrir hana.
En hvernig á þá að heilla karlmennina? Mættu nakin með bjór...
og sé maðurinn nægjusamur... þá er nóg að koma með bjórinn.
19.1.2009 | 15:50
Elmo radarvari
Ég gleymdi nú að blogga um Elmo kallinn...
Harpa pantaði Elmo á netinu og hann var sendur á hótelið til okkar. Við höfum ekkert tekið pakkann upp... enda eigum við hann ekki.
Eitt kvöldið þegar Lúlli var að flakka á milli stöðva á sjónvarpinu... þá heyrum við flaut... hvít-hvíjú... í ca. eina mínútu. Við skildum ekkert í þessu... en svo datt okkur í hug að þetta hafi komið frá Elmo... að sjónvarpsfjarstýringin hefði komið þessu flauti af stað.
Þegar við keyrðum til Georgíu, var Elmo í aftursætinu... Allt í einu fer hann að flauta og það eina sem okkur datt í hug var að við hefðum keyrt inn í radargeisla hjá lögreglunni. Svo Elmo kallinn lét okkur vita - kannski heldur seint - að lögreglan væri að mæla.
Brandarar | Breytt 22.1.2009 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2008 | 00:22
Saumakonan
Dag einn, þegar saumakonan sat og vann á árbakkanum, þá missti hún fingurbjörgina sína útí ána. Hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu og henni til mikillar undurnar birtist Drottinn sjálfur og spurði: Hvers vegna grætur þú ?
Saumakonan svaraði að fingurbjörgin hennar hefði fallið í vatnið og hún þyrfti á fingurbjörginni að halda svo hún gæti aðstoðað bónda sinn við að afla tekna til heimilisins.
Drottinn hvarf ofan í vatnið og kom til baka með gullfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn. Saumakonan svaraði neitandi og þá hvarf Drottinn aftur í vatnið og kom upp með demantsfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn en saumkonan neitaði því. Enn hvarf Drottinn ofan í vatnið og kom nú upp með silfurfingurbjörg og spurði hvort þetta væri sú rétta og saumakonan jánkaði því. Drottinn var mjög ánægður með sannsögli konunnar og færði hennir allar fingurbjargirnar þrjár til eignar að launum, og saumakonan hélt glöð heim á leið.
Nokkru síðar þegar saumakonan var á göngu eftir árbakkanum með eiginmanni sínum, datt hann í ána.
Þegar hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu, birtist Drottinn enn á ný og spurði hvers vegna hún gréti?
"Æi Guð, maðurinn minn datt í ána". Guð stakk sér í ána og kom til baka með Mel Gibson. "Er þetta eiginmaður þinn?" spurði hann. "Já" hrópaði saumakonan.
Drottinn reiddist. "Þú lýgur" sagði hann. "Æ, fyrirgefðu Drottinn, þetta á sér sínar skýringar. Sjáðu til, ef ég hefði sagt ,,nei" við Mel Gibsons, hefðir þú næst komið með Tom Cruise og ef ég hefði sagt ,,nei" við honum, þá hefir þú komið með eiginmann minn. Ef ég hefði sagt ,,já" við honum þá hefðir þú gefið mér þá alla þrjá og þar sem ég er ekki lengur eins hress og ég var þegar ég var yngri hefði ég aldrei getað sinnt þeim öllum þremur.
Þess vegna sagði ég ,,já" við Mel Gibson.
Mórall sögunnar: Þegar konur ljúga, er það af heiðvirðum ástæðum og öðrum til heilla.
Brandarar | Breytt s.d. kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2008 | 22:28
Einn góður... af því að ég er að fara til USA á morgun,
Þrír nýkvæntir menn sátu og gortuðu yfir því hvernig þeir stjórnuðu konunum sínum.
Sá fyrsti hafði kvænst konu frá Colorado, hann hafði sagt henni að hún ætti að sjá um uppþvottinn og þrif í húsinu. Það tók tvo daga að koma henni í skilning um þetta, en á þriðja degi þegar hann kom heim var hún búin að vaska upp og þrífa húsið.
Næsti hafði kvænst konu frá Nebraska. Hann hafði gefið sinni konu skipanir að hún ætti að sjá um að þrífa, uppþvottinn og elda matinn. Fyrsta daginn sá hann engan árangur, næsta dag hafði það skánað en þriðja daginn var húsið hreint og matur á borðinu.
Þriðji maðurinn hafði kvænst íslenskri konu. Hann hafði sagt henni að hennar skyldur væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá grasið, þvo þvottinn og hafa heita máltíð á borðinu á matmálstímum.
Hann sagði að fyrsta daginn hafi hann ekki séð neitt....
annan daginn sá hann ekki neitt heldur...
en þriðja daginn var bólgan aðeins farin að hjaðna þannig að hann sá aðeins út um vinstra augað .. nægilega mikið til að finna sér matarbita og setja diskana í uppþvottavélina.
Brandarar | Breytt 1.6.2009 kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2008 | 19:29
Regnboginn
Ég byrjaði að mála aftur á föstudaginn og þegar ég var að velja litina sem ég var að mála með, rifjaðist upp atvik úr síðustu utanlandsferð. Edda sagði... þú verður að blogga þessu á netið...
Við vorum semsagt í Californíu og Arizona í 3 vikur núna eftir jólin.
Að venju fórum við í the Crystal Cathedral en þar er alltaf glæsileg jóladagskrá og sviðið skreytt þannig að það er eins og maður færist 2000 ár aftur í tímann.
Við hittum líka Hafdísi frænku í hennar kirkju í Rolling Hills. Samkomum Aðventista er skipt niður í Lexíu og samkomu sem innifelur barnasögu.
Konan sem sagði börnunum söguna, safnaði þeim upp að sviðinu, hún sjálf var með hátalara svo salurinn heyrði það sem hún sagði þeim. Við sátum aftast og heyrðum lítið í börnunum.
Konan var að kenna þeim nauðsyn þess að borða allskonar grænmeti og ávexti til að fá öll vítamínin. Litirnir voru þeim til leiðbeiningar um að ,,borða allan regnbogann"
Þið verðið að borða alla liti á hverjum degi ..... sagði hún, svo kom smá þögn.....
Nei...... ég er ekki að meina ,,Skittles"
Brandarar | Breytt 1.6.2009 kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Kef - Raleigh NC - Orlando - Kef.. 27 des 2023- 6.jan 2024
- Áramóta annáll fyrir árið 2023
- Virginia 9-20.nóv 2023
- Denver CO, WY og MT 1-9.okt 2023
- Kórferð til Bristol 27-30.sept 2023
- Erie Pennsylvanía 7-11.sept 2023
- Seattle - Alaska - Seattle - heim, 25-30.júlí 2023
- Baltimore - Boston 29.maí - 11.júní 2023
- Washington DC 23-31.mars 2023
- Annáll fyrir árið 2022
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Annálar
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Apríl 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Desember 2021
- Desember 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Apríl 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Janúar 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007