20.1.2009 | 19:06
,,þjóðin" er þá alltaf að minnka!
Menn mótmæla fyrir framan Alþingishúsið, enda í fullum rétti til þess. Fyrirsögn fréttar Mbl.is er ,,Þjóðin var í Alþingisgarðinum"... Þjóðin er nú orðin heldur fámenn ef hún kemst fyrir í Alþingisgarðinum. Fyrirsagnir fjölmiðla eru ekki alltaf sannleikanum samkvæmar.
Auðvitað á ekki að eyða dýrmætum tíma í umræðu um bjórsölu í matvörubúðum - raunar ætti bara að loka Ríkinu og hætta að selja tóbak...
Menn heimta kosningar... en hvern ætla menn að kjósa ef gengið væri til kosninga NÚNA? það væru sömu andlitin í framboði.
Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsókn = sami grautur í sömu skál og enginn flokkur getur unnið með Vinstri grænum...
Því miður verður að bíta í það súra og bíða betri tíma með kosningar.
|
Þjóðin var í Alþingisgarðinum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Fjölmiðlar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Mannréttindi, Löggæsla | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.3.): 1
- Sl. sólarhring: 42
- Sl. viku: 112
- Frá upphafi: 85868
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 60
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Færsluflokkar
- 100 MARAÞON
- Afmæliskveðjur
- Bloggar
- Brandarar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- MARAÞON
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði










byltur
Athugasemdir
Krafan er ekki á kosningar núna Bryndís, krafan er á kosningar í vor. Stígi hins vegar ríkisstjórnin frá núna er fjöldinn allur til af mjög hæfu sérfræðingum hér heima og erlendis sem eru tilbúnir til þess að starfa í neyðarstjórn fram að næstu kosningum.
Við höfum ekki efni á því að hafa þessa algerlega vanhæfu ríkisstjórn með frestunaráráttu við stjórn lengur!
Baldvin Jónsson, 20.1.2009 kl. 19:30
Sæll Baldvin,
Vor... það er ekki langur tími.
Eru þessir sérfræðingar ekki í fullu starfi fyrir? Ástandið er mjög viðkvæmt... höfum við tíma í þessari ,,strax-áráttu" að bíða eftir að nýir menn komi sér inn í málin?
En ég er sammála þér - það er erfitt að bíða eftir virkni þeirra aðgerða sem þó hafa verið framkvæmdar, vitandi það að ástandið mun samt sem áður versna og á meðan hlaðast upp skuldir fólks og atvinnuleysi og vonleysi eykst.
Bryndís Svavarsdóttir, 20.1.2009 kl. 19:51
Það eru þegar byrjuð að byggja upp ný öfl sem verða vafalaust tilbúin þegar vorar. Við þolum ekki við lengur, óbreytt ástand þýðir aðeins almennan landflótta.
Skoðaðu vefinn okkar http://lydveldisbyltingin.is
Þar fer nú fram frjó hugmyndavinna fyrir endurheimt lýðræðisins.
Baldvin Jónsson, 20.1.2009 kl. 19:59
Sæll Baldvin,

Ég kíkti á síðuna, finnst margt gott af þessu, ég hef t.d. lengi viljað kjósa nöfn en ekki flokk... en það býður kannski bara upp á enn meiri spillingu... farið að versla með atkvæðin.
Það eru gallar á öllum kerfum
Eitt hefur mér alltaf fundist undarlegt, maður kýs flokk sem fær sæti á þingi... þingmaður flokksins verður fúll og skiptir um flokk... og fer með atkvæðið mitt... samt kaus ég flokkinn en ekki þingmanninn
Bryndís Svavarsdóttir, 21.1.2009 kl. 02:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.