Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spaugilegt

17.júní - Þjóðhátíðarljóð

skrúðganga

Skrúðgangan um strætið líður
sýnist löng sem görn.
Hérna fer um flokkur fríður
fullorðnir og börn.

Börn í sínum betri fötum
brosa út að eyrum.
Labbað eftir löngum götum,
við litla fætur keyrum.

Að lokinni svo langri göngu
er löngunin svo stór,
foreldrarnir stand´í ströngu
að svara þessum kór.

Mamma, ó ég vil fá fána,
rellu, blöðru og trúð?
Pabbinn, byrjaður að blána
er sendur út í ,,búð".

Oftast borinn ofurliði
hann olbogast í slaginn.
Þvílíkt verð á þessum ,,friði"
á Þjóðhátíðardaginn.

Stympast hann við sölutjaldið
stöðug er þar þröng,
en villtu dýrin með allt valdið
verða núna svöng.

Upphófst aftur stríð og stappið
það stundarfriðinn tók
aftur varð að etja kappið
eftir pylsu og kók.

Að maturinn sé mannsins megin
þarf ekki að segja þeim.
Hvað þau hjónin verða fegin
að komast aftur heim.

EN LOKSINS laus úr suði og kvabbi
lyftist á þeim brún,
með rellu og blöðru flaggar pabbi
en börnin hlaupa um tún.

Ég setti þetta saman 1992 og sendi til Lesbókar Morgunblaðsins en fékk þá orðsendingu frá Gísla að það væri ekki nógu gott til að birta það. Mér fannst einmitt að það hefði verið sniðugt að teikna myndir með hverri stöku. Nú kemur þetta í fyrsta sinn fyrir almenningsjónir. 


Tognaði í læri við að prjóna

Þetta er það vitlausasta sem ég hef vitað... en satt. Ekki er ég farin að prjóna með fótunum EN í fyrradag sat ég í HÆGINDA-stólnum og prjónaði... ég hef bæði setið of lengi, skökk í stólnum og með spennu á vöðvanum... þetta er afleiðingarnar... ég hef tognað aftan í lærinu.

Það er ekki annað hægt en að brosa af þessu - það er kannski rétt sem maðurinn segir... að ég sé af HROSSA-ætt Joyful


Rataðist rétt á munn...

Í vikunni var auglýsing frá lottóinu þar sem Siggi Sigurjóns var lottókúla nr 34... og á einum stað sagði hann, veljið mig... og svo kom, sjáumst á laugardaginn... og talan kom upp í kvöld...
2 skipta með sér pottinum - og held ég að þeir séu vandfundnir hér á landi sem hafa ekki þörf fyrir vinning af þessu tagi.

Kannski völdu einhverjir töluna út af auglýsingunni :)


mbl.is Tveir skipta 60 milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari

"An Arab at the airport: *Name? -Abdul al-Rhazib.
*Sex? -Three to five times a week.
*No, no... I mean male or female? -Male, female, sometimes camel.
*Holy cow! - Yes, cow, sheep, animals in general.
*But isn't that hostile? -Horse style, doggy style, any style!...
*Oh dear! -No, no! Deer run too fast!"

Þeir eru löngu á eftir...

Það er svona hús í Orlando í Flórida, ekki langt frá Disney garðinum. Ég hef keyrt nokkrum sinnum framhjá því og er alltaf að spá í að fara inn... nú læt ég verða af því næst þegar ég fer, þ.e. í janúar....
mbl.is Hús á hvolfi veldur svima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyfta í dulargervi !

Ég ætla bara rétt að vona að rauðu símaklefarnir hverfi ekki...
Hvernig eiga Harrý Potter og allir galdramennirnir annars að komast í galdraheiminn.  Þessi hugmynd hjá Rowlings að nota hluti sem allir þekkja var auðvitað snilld.

Auðvitað hverfa símaklefarnir einhverntíma, en það er fyndið að hugsa til þess að ef börn framtíðarinnar horfa þá á Harrý Potter, gætu þau spurt: hvað er þetta rauða?
Svar: í gamla daga þurfti að fara þarna inn til að hringja!
mbl.is Barist fyrir rauða símaklefanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

New York


Gistum í New York í nótt og fljúgum kl 10;30 til New Orleans í Louisiana.
Allt gekk að óskum, hitinn var um frostmark þegar við komum en í morgun þegar vöknuðum var snjókoma.

Hótelið stendur í brekku, sem er svo sem ekkert athugavert við, en það skrítna er, að gangurinn inni fylgir brekkunni...... sem er nokkuð löng og brött.  við erum heppin frekar ofarlega í brekkunni, því lobbyið er efst.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband