Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Tónlist

Ljósanótt á morgun

Það verður bara gaman að fara suður með sjó... svona einu sinni án þess að hlaupa... Ég lenti í leiðindaveðri þarna í hálfa-maraþoninu í fyrra... nú ætla ég ekki að hlaupa, bara njóta.

Edda systir er með sýningu á Hafnargötu 20... maður kíkir þar inn eins og á aðra staði og hlustar á hljómsveitirnar, svo ætlum við að borða kjötsúpu og horfa á flugeldasýninguna.

Þetta verður bara snilld.


Ja...há

Ég vona að höfundurinn hafi ekki samið um að fá greitt EFTIR flutning verksins!
mbl.is Bara 631 ár eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að loka augunum fyrir tækninni?

Framtíðin er í tölvuheiminum. Sá sem ætlar að fara aftur fyrir það ,,besta eða tæknilegasta" í sínum bransa, byrjar ekki vel.  Því það sem er í raun það nýjasta, er í raun orðið úrelt um leið. 

Í áratugi hefur fólk átt vídeó... allir hafa tekið upp efni og skipst á spólum... er það ólöglegt?  Nýjasta tækniundrið er að taka sjónvarpsefnið upp á DVD spilara sem er með minniskubbi... er það þá ekki ólöglegt líka? Segulböndin voru notuð til að taka upp tónlistina... Þessi tæki ásamt tómum spólum, núna diskum er selt í raftækjabúðum... eru búðirnar þá að stuðla að ólöglegri háttsemi borgaranna?
Að kaupa sér afþreyingu og deila henni með öðrum hefur alltaf átt sér stað og mun alltaf eiga sér stað. Enda er það þannig að þegar ég kaupi mér disk, ÞÁ Á ÉG HANN.

Á hverjum CD eða DVD disk jafnvel þó hann sé tómur, er sérstakur skattur sem fer til STEFs og skyldi maður halda að það eitt kæmi í stað höfundaréttargjalds efnisins sem færi á diskinn... jafnvel þó diskurinn sé eingöngu notaður fyrir námsgögn þ.e. skjöl og ritgerðir, fjölskyldumyndirnar eða eitthvað annað persónulegt efni, þá kemst maður ekki hjá því að borga gjaldið til STEFs...

Fyrir mörgum árum varð það að blaðafrétt þegar Guðmundur Jónsson óperusöngvari skilaði til baka greiðslu sem honum var send fyrir stefgjöld. Hann hafði sungið allt árið út í gegn LAX LAX LAX... og platan hans seldist vel... en ávísunin frá STEFi var að mig minnir 45 krónur, kannski 450 kr að núvirði.

Í fyrra þegar við vorum í undankeppninni fyrir Eurovision, þá lánaði Páll Óskar sjónvarpinu myndefni... upptökur af gömlum Eurovisionkeppnum sem vinur hans erlendis hafði SKRIFAÐ fyrir hann og sent honum...  Hvorki Páli Óskari eða Rúv fannst nokkuð athugavert við að segja frá þessu og sýna þetta efni...
Nei, það er ótrúlegt að STEF skuli hafa unnið Torrent-málið að mestu leyti. 
Fyrir það fyrsta... gerir STEF í raun ekki neitt - nema reyna að sjúga í hverri smugu út gjöld... og af diskunum sem við erum neydd til að borga stefgjöld og hýsa fjölskyldumyndirnar og gamlar ritgerðir - þar ættum við að að fá þau endurgreidd.


mbl.is Istorrent-dómur kveikir ótta í brjósti torrentáhugamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þessi kona í lagi?

Ef það er eitthvað sem skilar litlum eða engum arði út í samfélagið þá er það tónlistarhúsið.. Í þessu húsi verður starfsemi sem verður alla tíð að vera niðurgreidd svo almenningur geti notið hennar... GEYMUM þetta þangað til betur árar.  Við höfum ekki efni á byggingunni núna.
mbl.is Klára húsið með sóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir lepja dauðann úr skel...

Ég man eftir látunum sem urðu þegar ALLIR áttu að borga stefgjöld, hárgreiðslustofur og allir almennir staðir þar sem útvarp væri opið áttu að borga.  STEF ætlaði að hala inn peninga.
Ég man nú ekki hvernig þetta fór... held samt að þeim hafi tekist að fá þetta í gegn... en hvort sem þeim tókst það eða ekki, þá hafa tónlistamenn fram til þessa lapið dauðann úr skel samkvæmt skattaskýrslum.
Ég var í 15 ár í klúbbi sem leigði stundum skemmtikrafta og hélt árshátíðir... verðlagið á skemmtikröftunum og hljómsveitunum var himinhátt en allir voru þeir samt með ,,vinnukonulaun"

Nú eru menn að huga að skattaskýrslunum og fróðlegt að sjá hvað t.d. STEF borgar sínum mönnum út, fara stefgjöldin ekki bara í umsýsluna við að rukka þau inn, þ.e. laun starfsmanna??? 


mbl.is Lögbann á Torrent staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til Hamingju

Næsta útrás verður í kvikmyndaleik... Íþróttaálfurinn kominn í kvikmyndir og Glanni glæpur kominn á svið... þetta er allt í áttina Wink
mbl.is Stefán Karl vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband