Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Bryndís Líf á afmæli í dag :)

Bryndís LífHeart Innilegar hamingjuóskir...

Elsta barnabarnið og nafna mín, Bryndís Líf á afmæli í dag, 29 nóv. orðin 15 ára.
Vá... hvað árin hlaupa, maður minn (hjá mér) hún er ábyggilega búin að bíða lengi eftir þessu...

Við afi sendum Heart kveðjur frá Seattle til þín, Bryndís Líf og óskum þér alls hins besta í framtíðinni.


Komin til Seattle..

Við áttum flug frekar seint í gær frá Boston, millilentum í New York... þar var 2ja tíma bið og síðan 6 tíma flug til Seattle. Það er ekki spurning jetBlue er besta flugfélagið.

Við komum um miðnætti... og enn seinna á hótelið... var alltof þreytt til að blogga ferðalaginu. Veðrið hér er mjög ,,íslenskt" rigning og hráslagalegt. Það er annað sem er líka mjög ,,íslenskt".... það er gatnakerfið... ég er í vandræðum og er með garminn
Nú erum við búin að kíkja í bæinn og erum að fara á Buffet að borða... Tounge
Thanksgiving-útsölurnar máluðu borgina rauða í dag... kaninn verslaði brjálað en okkur finnst Seattle vera rándýr borg.

Á meðan við verðum hér gistum við á Econo Lodge North (WA162) 14817 Aurora Avenue North , Seattle, WA, US, 98133
Phone: (206) 367-7880... Room 227


Að vaða útí - varðar traust...

Jós.3:13 Og þegar prestarnir, sem bera sáttmálsörk Drottins, hans sem er Drottinn allrar veraldar, stíga fæti í vatn Jórdanar, þá mun vatnið í Jórdan stöðvast, vatnið, sem ofan að kemur, og standa sem veggur. Allt var sem Drottinn sagði.

Jós 3:15 Og er þeir, sem örkina báru, komu að Jórdan, og prestarnir, sem báru örkina, drápu fótum sínum í vatnsbrúnina  en Jórdan flóði yfir alla bakka allan kornskurðartímann ,-16- þá stóð vatnið kyrrt, það er ofan að kom, og hófst upp sem veggur mjög langt burtu, við Adam, borgina, sem liggur hjá Sartan. En það sem rann niður til vatnsins á sléttlendinu, Saltasjós, rann allt til þurrðar. Og lýðurinn fór yfir um, gegnt Jeríkó.-17- En prestarnir, sem báru sáttmálsörk Drottins, stóðu kyrrir á þurru mitt í Jórdan, meðan allur Ísrael fór yfir um á þurru, þar til er allt fólkið var komið yfir um Jórdan.

Þeir sem báru örkina voru 2 þús álnum á undan og í orðskýringum aftast (Biblían 1981) undir mál og vog, segir að alin hafi verið 50 cm. eða hálfur metri, þannig að þeir sem báru örkina voru 1 km. á undan. 
Síðan hefur það aldeilis tekið tímana tvo fyrir allt þetta fólk að komast yfir ána með allt sitt hafurtask. Á meðan, hófst vatnið upp eins og veggur fyrir ofan þá.  Vatnsmagnið hefur verið gífurlegt því Jórdan var svo vatnsmikil að hún flóði yfir alla bakka.
 
Það stendur í 16 versi að veggurinn hófst upp við borgina Adam, sem liggur hjá Sartan, sem staðarnöfn korta (aftast í Biblíunni 1981) segja að heiti nú Saretan. Og ef við flettum upp í kortunum aftast í Biblíunni, skoðum kort 4, reitur A2 sjáum við Saretan og Jerikó fyrir neðan.  Neðst á kortinu sjáum við mælistiku... sem segir okkur að það eru á milli 40-50 km í loftlínu á milli þessara staða, og engin á er þráðbein, þannig að það er enginn smá spotti sem vatnsveggurinn hefur hlaðist upp á.    


Guði er ekkert ómögulegt... en m
álið er að það hefði ekkert gerst ef þeir hefðu ekki vaðið útí.  Ef þeir hefðu ætlað að bíða við árbakkann eftir að áin þornaði, hefðu þeir aldrei komist yfir. Þetta varðar traust, þeir óðu útí VEGNA ÞESS að þeir treystu Guði. Fyrsta skrefið var traustsyfirlýsing... það var sama og að segja: við trúum því Guð, að þú stoppir ána ef við göngum útí.

Við verðum oft að treysta og nú aldrei meiri nauðsyn fyrir okkur að treysta þess að við séum leidd og blessuð.


Komin til Boston

Það er nýbreyttni hjá Icelandair að farþegar þurfa að borga fyrir heyrnartól og mat.  Ég sem á fullt af gömlum heyrnartólum - gleymdi þeim. Nú þarf ekki lengur að borga fyrir bíómyndirnar... ég horfði á 2 á leiðinni út.
Við vorum bara með nesti, langlokur úr Bónus og sáum ekki eftir því... þeir sem keyptu sér í flugvélinni fengu alveg eins langlokur og við - þeir borguðu bara meira.

Á morgun eigum við flug til Seattle.


Ótrúlega krúttlegt

Barn snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun., hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga og ég er?
Guð segir: Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér, þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér Guð, segir barnið... hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til að vera hamingjusamur.
Og Guð segir: Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást og þannig verður þú hamingjusamur.

Barnið spyr: En hvernig get ég skilið tungumálið sem mennirnir tala?
Guð svarar: Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik mun hann kenna þér að tala.
Barnið spyr: Hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Guð segir: Engillinn þinn mun setja saman hendur þínar og kenna þér að biðja.

Barnið segir: Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn, hvernig get ég varið mig?
Og Guð segir: Engillinn þinn mun verja þig þó það kosti hann lífið.
Barnið segir: En ég verð alltaf sorgmæddur, því ég sé þig ekki oftar.
Guð segir: Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn, guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara, segðu mér... hvað heitir engillinn minn?

Og Guð svaraði: Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,mömmu"

Til Hamingju

Næsta útrás verður í kvikmyndaleik... Íþróttaálfurinn kominn í kvikmyndir og Glanni glæpur kominn á svið... þetta er allt í áttina Wink
mbl.is Stefán Karl vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2,3% af þjóðinni mættu, Katrín!

Í ræðum sumra, sem segjast mótmæla friðsamlega á Austurvelli, er að finna vissan æsingatón og þeir eru farnir að gefa yfirlýsingar eins og þeir hafi umboð þjóðarinnar.
2,3% þjóðarinnar mættu og menn tala eins og meirihluti þjóðarinnar sé sammála þeirra orðum og aðgerðum.  Við höfum öll skoðanir á málunum.
97,7% þjóðarinnar mætir ekki á Austurvöll, margir þeirra geta samt sem áður verið sammála einhverju sem þar fer fram - aðrir eru ósammála...  við viljum öll að það sé tekið á málunum með festu en líka með öryggi...
Flas er ekki til fagnaðar.
mbl.is Íslendingar láti ekki kúga sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir kenna okkur ábyggilega um það...

Ef Bretinn lendir í sömu aðstæðum og við, eru þeir í verri málum en við... þeir eru 50 árum á eftir í öllu og hinn breski almenningur er í raun bláfátækur pöbbari.  Ég finn sárlega til með þeim... maður á víst að elska óvini sína...
mbl.is Bretland sömu leið og Ísland?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglissýki fárra einstaklinga?

Myndi þetta fólk mæta ef fréttamenn færðu ekki fréttir af þessum óeirðamótmælum? Er þetta ekki að nokkru leyti athyglissýki. Vissulega hefur fólk leyfi til að mótmæla... en hvað á maður að kalla þetta þegar fólk fer með sömu ræðuna laugardag eftir laugardag.

það var talið að 7þús. manns hafi mætt... pælið í því, þetta eru 2,3% af þjóðinni... en þetta fólk telur sig tala fyrir meirihluta þjóðarinnar og segir stjórnmálamennina hafa misst umboð sitt, sem þó voru kosnir til að sinna þessu starfi... en hefur þetta fólk eitthvað umboð? Ég bara spyr...


mbl.is Fanganum sleppt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klókir eða hvað?

Fyrsta tölvan mín var Macintosh... frábær tölva með allt kerfið á íslensku en vegna þess hve hún var dýr, keypti fólk sér frekar PC... sem stendur fyrir ,,personal computer"
Makkinn hafði svo margt fram yfir PC að ég dauðsá alltaf eftir að hafa skipt yfir... en þegar maður þarf að skiptast á skjölum við fólk þá verður maður að láta sig hafa ýmislegt.

macbookVandamálin við PC komu fljótt í ljós...Í fyrsta lagi stóð heimurinn á öndinni fyrir aldamótin þegar ráðamenn voru dauðhræddir að kerfið myndi hrynja... og svo eru það þessir endalausu vírusar hjá PC, sem Macintosh-eigendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af... Joyful
Nú hafa vinsældir Macintosh aukist til muna og mörg ár síðan ég hef séð PC-fartölvu í bíómynd... Eplið er mætt á svæðið og ætlar sér stærri hlut á markaðnum. Besta útspilið hjá PC er því að gefa viðskiptavinunum vírusvörn til að missa þá ekki yfir til Macintosh.


mbl.is Ókeypis vírusvörn fyrir allar PC tölvur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband