Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2015

Akron - Cleveland OH - Boston MA - heim

Mánudagur 27.sept.
Ég pakkaði í gær, stillti vekjarann á 4am og fór snemma að sofa. Svaf ágætlega.

Ég hitaði morgunmat og kaffi í örbylgjuofninum og tékkaði mig út kl 5... ég keyri alltaf aðeins hægar í myrkri og rigningu en kl 7 var ég búin að skila bílnum í Cleveland og komin á flugvöllinn.

Ég á flug með jetBlue til Boston kl. 9:30

............................

Það er rosalegur munur að fá síðdegisflug heim frá Boston (14:20)... og lenda um miðnætti heima og geta sofið nokkra tíma fyrir vinnu... í stað þess að mæta og vinna með ferðaþreytuna í sér allan daginn.

Bíðarinn beið á flugvellinum um miðnætti og við vorum komin heim um eittleytið.  Þá var gott að komast í rúmið sitt.


Keflavík - Boston - Cleveland - Akron Ohio

Fyrsta farfugla-haustflugið mitt.
Þetta var smá ferðalag í gær... ég er eiginlega hætt að nenna að fljúga áfram eftir kvöldflug en þetta gekk því ég fékk morgunflug til Boston og gat síðan lent í björtu í Cleveland. Það er þægilegast að geta komist út í umferðina í björtu. Það passaði að þegar ég var komin á hraðbrautina í Cleveland þá skall myrkrið á... og kl að verða 3 um nótt heima þegar ég kom á hótelið.

Ég var eitthvað um klukkutíma að keyra til Akron og er svo heppin að Walmart er við hliðina og einhver hellingur af matsölustöðum. Bíllinn sem ég fékk er algjör lúxuskerra og hótelið dekurdolla ;)

Quality Inn Conference Center
2940 Chenoweth Rd, Akron Ohio 44312
Phone 330-644-7126 room 129


Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband