Leita í fréttum mbl.is

Gegnum öryggisleit í USA á röngu nafni

Það er frekar erfitt að eiga tvö næturflug í röð eins og við eigum núna. Við tékkuðum okkur út af hótelinu í Phoenix og urðum eiginlega að hanga þar til miðnættis þegar vélin fór. Ekki gátum við verslað - plássið búið.

Það vildi þannig til að maginn hafði verið gersamlega öfugur í mér í nokkra daga og ég svaf lítið nóttina áður. Við keyrðum eitthvað um en síðan leyfði Lúlli mér að leggja mig, ég hallaði sætinu aftur og svaf um 2 tíma. Við keyrðum um sama svæði og síðustu skipti sem við höfum verið í Phoenix og vorum sammála um að kaktusum hafði fækkað stórlega.

Við borðuðum á buffeti og mættum snemma upp á flugvöll… vorum með þeim fyrstu til að tékka okkur inn. Konan ,,sá” að við áttum ekki sæti saman og setti okkur í öftustu röð. Við samþykktum allt því við vorum með 2 smekk-fullar töskur og alltof mikinn handfarangur. Við fórum gegnum öryggisleitina og alla leið inn í aftasta sæti í vélinni – Ég hafði ekki setið lengi þegar indversk kona kom og taldi að ég sæti í hennar sæti… þegar við skoðuðum báða miðana, þá hafði ég komist í gegnum allt eftirlit á hennar nafni… við vorum báðar með miða á hennar nafni.

Ég gat sofið á leiðinni... varð að gera það til að geta lifað af þennan dag í Boston. Við lentum kl 7 um morguninn. Við vorum með aukatösku og byrjuðum í Walmart, síðan Target og fl. Tókum nokkur moll á þetta og Buffetið okkar í einu þeirra.

Síðan skiluðum við bílnum um kl 5... þetta var orðið ágætt. Tvö heil maraþon og eitt hálft, skipt við þrjár bílaleigur (Advantage, Dollar og Budget), flogið með Icelandair, Delta og jetBlue.

Nú bíðum við eftir kalli út í vél í Boston og verðum komin heim í fyrramálið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Af því að þú nefnir magann:  Þegar ferðast er til framandi landa eins og Bandaríkjanna þá eru þar allskonar bakteríur í umferð sem maginn okkar þekkir ekki.  Þær eru aðallega í matvælum á borð við ferskt salat og annað ósoðið.  Galdurinn er að byrja á því að skella í sig mjólkurvörum á borð við jógúrt.  Þær innihalda gerla sem kunna að kljást við þessar framandi bakteríur.  Þetta er alveg pottþétt ráð. 

Jens Guð, 18.1.2012 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband