Leita í fréttum mbl.is

Hvernig vissi hún hvað þetta var mikið?

Mér finnst harla ótrúlegt... að konan hafi átt 1 milljón dollara... eins og maður heyrir mikið um fátækt frá þessum landsvæðum þarna suðurfrá... 

En ef þetta er rétt... þurfa hjálparstofnanir þá ekki að hugsa sig um tvisvar áður en ákveðið er að veita aðstoð hverju sinni.

Bara til að leika sér með þessar tölur... ef maður áætlar að konan hafi byrjað að safna um tvítugt og hafi safnað í 40 ár... þá hefur hún þurft að leggja 68,4 dollara til hliðar á hverjum einasta degi (40 ár = 14.610 dagar)... til að eiga um 1 milljón dollara...


mbl.is Henti sparnaði móður sinnar á haugana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er nú alveg örugglega nóg af milljónamæringum í ísrael. og það er heldur ekkert svakalega fátækt land (skv wiki, GDP: israel 42 ríkasta land heims, ísland 101. GDP per capita: israel 26, ísland 8).

og ein athugasemd við útreikningana þína, hefuru aldrei heyrt um vexti? :) 

gunnar (IP-tala skráð) 11.6.2009 kl. 01:19

2 identicon

Það eru nú ekki miklir vextir sem koma úr dýnunni minni.. Kannski að ég eigi öðruvísi dýnu heldur en þú.

Alexander (IP-tala skráð) 11.6.2009 kl. 02:12

3 Smámynd: Sigurjón

Hvernig vissi hún hvað þetta var mikið?  Ætli gamla konan hafi ekki sagt henni það þegar hún jafnaði sig á áfallinu?  Ætti ekki að þurfa mikla greind til að álykta það.  Auk þess fer ekkert hjálparstarf fram í Ísrael.  Það fer fram í Palestínu hins vegar...

Sigurjón, 11.6.2009 kl. 10:37

4 Smámynd: Kotik

Þessar kerlingar... Ó bojjjjj...

Kotik, 11.6.2009 kl. 19:50

5 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sælir...
Einmitt, ég veit heldur ekki um dýnuvexti... og tengdadóttirin getur varla hafa vitað að kerlingin ætti peninga...  jafnvel haldið að hún hefði ekki efni á nýrri dýnu... en mér skildist á fréttinni að þær byggu saman.
Ég var nú að spá í hvernig vissi gamla konan hver upphæðin var ???... það tekur smá stund að tæma allt úr dýnunni (í leyni) til að telja öðru hverju og maður gerir ráð fyrir að hún hafi verið einhverja áratugi að safna. 

Bryndís Svavarsdóttir, 12.6.2009 kl. 17:04

6 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Fyrirgefið... þetta var dóttir konunnar en ekki tengdadóttir

Bryndís Svavarsdóttir, 12.6.2009 kl. 17:07

7 Smámynd: Sigurjón

Sæl Bryndís.

Heldurðu virkilega að fólk sem treður seðlum í dýnuna sína til sparnaðarráðstöfunar viti ekki nákvæmlega hver fjárhæðin er hverju sinni (eða a.m.k. um það bil)?  Þar fyrir utan erum við að tala um gyðinga sem hafa það orð á sér að hugsa mikið um peninga.

Ég t.d. veit ekki nákvæmlega upp á krónu hvað er á hverjum bankareikningi mínum, en ég veit á hvaða tugþúsundi hver þeirra er.

Það sem stakk mig mest var að þú virðist ekki hafa lesið fréttina almennilega eða ert mjög illa upplýst um stöðuna í Ísrael og Palestínu...

Sigurjón, 13.6.2009 kl. 02:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband