Leita í fréttum mbl.is

Ekki sama hver er!

Nú á afsökunarbeiðni að nægja... og það hjá fólki sem krefur aðra um afsögn... Það er greinilega ekki sama hver á í hlut.
mbl.is Baðst afsökunar á ummælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hverju á hann að segja upp, að vera tónlistarmaður?

Dísa (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 17:46

2 Smámynd: Baldur Sigurðarson

Mundu Bryndís að fólkið fór fram á að hann bæðist afsökunnar. það hefur hann gert. Ég tek ofan fyrir fólki sem getur beðist afsökunar, og mér hefur oft fundist að Geir hefði mátt gera það í sínum ummælum.

Ég er ekki að segja að Hörður sé í uppáhaldi hjá mér sem mótmælandi, en hann er fínn með gítar og míkrófón.

Mál að linni.

Lifðu heil,

OfurBaldur.

Baldur Sigurðarson, 24.1.2009 kl. 17:50

3 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Baldur,
Sammála, það var gott að Hörður baðst afsökunar, en mig minnir nú að Geir hafi líka beðist afsökunar í einhverju viðtali í sjónvarpinu. Björgúlfur baðst mörgum sinnum afsökunar... Margir hafa beðist afsökunar en ekki er öllum afsökunum tekið eins.
Þakka þér fyrir að geta skipst á skoðunum á vinsamlegum nótum

Bryndís Svavarsdóttir, 24.1.2009 kl. 18:25

4 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæl Dísa,
Söng hann ummælin á Austurvelli eða sagði hann þetta sem forkólfur fyrir mótmælendum?

Bryndís Svavarsdóttir, 24.1.2009 kl. 18:59

5 identicon

Mér finnst Hörður ekki haga sér sjálfur eins og hann vill að aðrir geri. Hann krefst afsagnar manna vegna mistaka, en ætlar ekki að stíga til hliðar sem aðalforkólfur þessara mótmæla og þessa baráttuhóps sem hann fer fyrir, þrátt fyrir afar slæm mistök í því starfi.

Auk þess stendur hann fyrir nýtt og opið Ísland og meira lýðræði þar sem allar raddir megi hljóma, en samt mega Ástþór Magnússon og Kolfinna Baldvinsdóttir t.d. ekki vera með á þessum mótmælafundum. Hann vill greinilega halda öllu innan ákveðins ramma sem hentar hans pólitísku skoðunum, nefnilega skoðunum vinstri grænna, pólitísk herferð vinstri grænna, veit ekki ... kannski

Andri Björn Róbertsson (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 00:05

6 identicon

Hörður var einn af þeim fáu sem hafa tjáð sig um þetta
tilfinningaklám.

Í stað þess að viðurkenna að ríkisstjórnin er fallin,
Sjálfstæðisflokkurinn blandar saman tilkynning um
kosningartillögu og veikindi hans Geirs til að breiða yfir
niðurlæginguna sem flokkurinn gengur nú í gegnum og safna sér
stuðningi og samúð. Þetta var bara pólitiskt strategía.

En ég vorkenni þau sem horfði á Geir og Davið sem Jesús og Guð
þeirra, og Sjálfstæsðisflokkur sem trú: það hlýtur að vera
ótrúlega erfitt að fatta allt í einu að Guð og Jesús þeirra eru
búinn að svikja þeim allan tíma. Sjálfstæðisflokkur,
Rikistjórn, Davið Oddsson og FME eru landráðamenn sem munu
aldrei biðja um afsökunnar..

Svona var mótmælt í gær:
http://www.youtube.com/watch?v=VjptqbfYcEI&eurl

Reynir (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 00:41

7 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

hörður baðst afsökunar vegna þess fjölda "stuðningsmanna " hans sem fordæmdu sóðaskapinn.

Afsökunarbeiðnin er því jafn innantóm og fölsk og hann er sjálfur.

Núna ætla þessir hópar að bjóða fram - hóf Nasistaflokkurinn ekki starfssemi sína með ofbeldi - og lauk henni með heimsstyrjöld.

Það verður fróðlegt að fylgjast með framboðum þeirra og afleiðingum þeirra.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 25.1.2009 kl. 07:25

8 identicon

Reynir

Ægilega ert þú lítill maður að geta ekki óskað Geirs góðs bata,  heldur segir að veikindi hans séu aðeins hluti af pólitískri stradegíu. Hvernig heldurðu að það sé að þurfa að glíma við fólk eins og þig og ýmsa aðra sem talað hafa illa um veikindi Geirs, það er alveg sama hvað maður segir og hversu hreinskilinn maður er; það er alltaf dregið í efa.

Ég verð líka að segja það að ég trúi ennþá á það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir; frelsi einstaklingsins og möguleika fyrir hann að skapa sér tækifæri sjálfur.

Andri Björn Róbertsson (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 08:53

9 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir, Marathon Maniac # 3942

Sælir,
ég verð nú að segja að mér fannst Geir koma hreint fram að segja frá ástæðu þess að hann óski ekki eftir endurkjöri á næsta landsfundi.
Ef hann hefði ekki gert það, hefðu allskyns getgátur verið uppi.
Fyrir utan það - þá kemur almenningi þetta við.
Þegar mótmælin á Austurvelli eru hreinlega gangsett vegna kröfu um afsögn vegna ,,mistaka"... þá er eðlilegt að forystumenn mótmælanna gangi fram með fordæmi.
Já, svo er það ótrúlegt að þessi mótmæli séu ekki opin fyrir alla... Spurning hvort hið ,,nýja lýðveldi" verði það nokkuð frekar.

Bryndís Svavarsdóttir, Marathon Maniac # 3942, 25.1.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband