Leita í fréttum mbl.is

Óskaði eftir að vera tekin af listanum...

Vissulega vil ég hafa ,,ókeypis" sjónvarp... en er einhver stöð ókeypis? Er fólkið þarna í sjálfboðastarfi, fær það ekki laun?... hvaðan koma launin?
Auglýsingarnar borga stöðina - hvar fá auglýsendur peningana sem auglýsingin kostar... auglýsingakostnaði er bætt ofan á vöruverð... Hver borgar þá fyrir Skjá einn???  Það erum við. Það er ekkert ókeypis.

CSI og House er það eina sem mér finnst horfandi á, á Skjá einum... en ég sakna þess ekki þó ég missi af þessum þáttum.

Vissulega má segja að samkeppnin sé ekki sanngjörn, en ég skrifaði ekki undir með það í huga að Rúv fengi ekki að auglýsa, þess vegna óskaði ég eftir að vera tekin af listanum.


mbl.is Stillimynd á SkjáEinum í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jaa.. má ég þá frekar horfa á House og CSI í staðinn fyrir að horfa á þessa þætti á Rúv..

 Eða

Fella niður afnotagjöldin af Rúv..

Símon (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 18:44

2 identicon

Auglýsendur munu auglýsa og bæta því á vöruverðið hvort sem Skjár Einn er hér eða ekki. Allavega verður það ekki ódýrara að auglýsa ef engin samkeppni er. Það er á hreinu. Þessi rök eru á röngum rökum reist að mínu mati en ég er svosem ekki hlutlaus.

Sigurður J Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 20:48

3 Smámynd: Ignito

Þetta tal um að taka RÚV af auglýsingarmarkaði er að mínu mati ekki sanngjörn þá sérstaklega séð frá fyrirtækjum sem vilja koma vöru sinni á framfæri.

Hitt er annað mál að undirboð á auglýsingarmarkaði frá ríkisstyrktum fjölmiðli er óeðlilegt og er ein af ástæðunum sem ég skráði mig.

Ignito, 13.11.2008 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband