Leita í fréttum mbl.is

Um hvað snýst kristin trú?

Fyrirsögnin segir sjálf svarið við spurningunni.... Kristin trú snýst um að trúa á Krist, ekki spádóma, hver sé antikristur eða hver hafi rétt fyrir sér um túlkanir á hinu ýmsu versum Biblíunnar. 

Sá sem kynnist Jesú og meðtekur hann sem frelsara sinn, þyrstir í að vita allt um hann... þá fyrst byrja hlutirnir að flækjast... því hinar ýmsu kirkjudeildir túlka ritninguna á ólíkan hátt og setja jafnvel verk framar trúnni, sem á þó að vera aðalatriðið.

Róm. 10:9-10
Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.

Þetta er mjög einfalt... sá sem trúir í hjarta sínu breytist... HEIMURINN ER SÁ SAMI.. sá sem trúir verður annar og betri maður... hann verður ekki fullkominn, en hann mun gera sitt besta til að vera ekki brotlegur við Guð og menn.
Meira er ekki hægt að gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgirsm

Sæl Bryndís

Ekki ert þú að halda því fram að þekking og lærdómur á spádómum Biblíunnar sé tilgangslaus ?

Hvað sagði Kristur:   Þér rannsakið ritningarnar, því í þeim hyggist þér eiga eilíft líf. Og það eru þær, sem vitna um mig,
  en þér viljið ekki koma til mín og öðlast lífið.
  Jóh 5:39

Fóru Gyðingar ekki illa á því að kynna sér ekki spádóma ritninganna ?

Birgirsm, 2.2.2009 kl. 18:59

2 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Birgir,
Nei, það er ég alls ekki að segja, þekking á spádómum er ekki tilgangslaus, en hún er ekki sáluhjálparatriði... það frelsast enginn fyrir þá vitneskju.... en hvað er aðalatriðið í versinu sem þú nefnir... ,,þér viljið ekki koma til mín og öðlast lífið"
Það gerist ekkert fyrr en hjartað hefur verið opnað fyrir trúnni.
Ég benti einmitt á það fyrir ofan að kristið fólk þyrstir í alla vitneskju um Frelsarann.  Alltof mörg trúfélög leggja alla áherslu á verk svo aðalatriðið - að trúa á Jesú - vill drukkna.
Þegar við tökum trú - þá breytumst við og á meðan við reynum að gera okkar besta, með Krist í hjarta og leiðsögn heilags anda, þá getum við ekki gert meira.

Bryndís Svavarsdóttir, 2.2.2009 kl. 20:00

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

14 Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann? 15 Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi 16 og einhver yðar segði við þau: "Farið í friði, vermið yður og mettið!" en þér gefið þeim ekki það, sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það? 17 Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin.

kv,

Svanur Gísli Þorkelsson, 2.2.2009 kl. 20:10

4 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Svanur,
Einmitt, þetta er það sem við gerum þegar Kristur er í hjarta okkar... við reynum að elska náungann eins og sjálf okkur... ekki vegna þess að kirkjan hamrar á því - heldur vegna þess að hjarta okkar hefur breyst. Verkin sjálf eru samt ekki sáluhjálp því við frelsumst fyrir náð.

Bryndís Svavarsdóttir, 2.2.2009 kl. 20:37

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það er næsta víst að ekkert væri til nema fyrir náð Guðs. Allavega mundi ég ekki vilja þola réttlæti hans. Allir menn ganga því í náð Guðs. Þeir sem vilja ganga á Guðs vegum reyna að þóknast honum með því að fara eftir því sem hann segir. Þetta er sem sagt óaðskiljanlegt, trú og gjörðir.´

Þú virðist leggja mjög fornaldarlega merkingu í orðið "sáluhjálp." og orðið "frelsun." Eina frelsunin sem er eftirsóknarverð er að frelsast frá sínu lægra eðli. Og eins sáluhjálpin er fólgin í því að leitast stöðugt við að rækta eiginleika sálar okkar, guðsmyndina í okkur. Að vera nálægt Guði er í þeirri merkingu að reyna að líkjast honum.

Svanur Gísli Þorkelsson, 2.2.2009 kl. 21:32

6 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Svanur,
Siðbót Lúthers spratt út frá þeirri staðreynd að hjarta hans öðlaðist ekki frið þó Lúther reyndi af fremsta megni að þóknast Guði þ.e. að fylgja boðorðunum og framkvæma samviskusamlega öll þau verk sem talin voru forsenda fyrir inngöngu í himnaríki.
Þegar hann uppgötvaði að ,,við frelsumst fyrir náðina eina saman" þá fékk hjarta hans frið.
Það þýðir auðvitað ekki, eins og vantrúaðir kasta fram, að kristnir menn geti þá hagað sér hvernig sem er... því ef við höfum trúna í hjarta, þá viljum við breyta vel. Þannig eru trú og verk óaðskiljanleg.
Það sem gerir kristnum mönnum oft erfiðast fyrir eru sjálfsásakanir, þeir eru ekki nógu góðir og eru þeir þá einmitt að reyna að líkjast Guði. Í því sambandi verðum við að vera sanngjörn gagnvart okkur sjálfum.

Bryndís Svavarsdóttir, 3.2.2009 kl. 11:58

7 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það er rétt að Martin Luther benti á að klerkarnir og páfavaldið væru búnir að einkavæða "náðina" og þóttust skammta hana til almennings eftir eigin geðþótta. En hann tók þær kreddur og snéri þeim alveg á hinn endann. Allir áttu þátt í náðinni án tillits til verka sinna. Kannski ekki nema von þegar að verk hans eru skoðuð ofan í kjölinn.  Sjálfur lifði Luther eftir siðaboðaskap sem ekki getur talist til eftirbreytni né til þess fallinn að laða að sér náð Guðs.

Eða hvaða af þessum tilvitnunum í orð Luthers mundir þú taka undir?

"Jafnvel þótt þær verði þreyttar og slíti sér út við barneignir, gerir það ekkert til; látið þær halda áfram að eiga börn til dauðadags, því til þess eru þær"  Works 20.84

"Guð skapaði Adam meistara og drottinn yfir lifandi skepnum, en Eva spillti því öllu þegar hún hvatti hann til að setja sjálfan sig ofar vilja Guðs. Það eru konurnar sem með vélum sínum og tilburðum sem leiða manninn í villu" "The bondage of the Will," 1527

"Þegar ég var barn voru margar nornir á stjái, og þær lögðu galdra sína á bæði búfénað og menn, sérstaklega börn."

"Ég mundi ekki hafa neina samúð með nornum; ég mundi brenna þær allar".

"Hvað eigum við kristnir menn nú að gera við þetta afskipta og bölvaða fólk Gyðingana? ....Ég skal gefa ykkur mitt besta ráð: Fyrst skuluð þið kveikja í bænahúsum þeirra...Síðan skuluð þið brjóta niður og eyðileggja hús þeirra....Síðan skulið þið hrekja þá úr landinu."    On the Jews and Their Lies

Allt þetta skrifaði Lúther og það sem meira var, fólk fór eftir því sem hann boðaði. Ef hann nú "réttlætist" fyrir náðina eina saman og gjörðir hans og afleiðingar gjörða hans hafa ekkert með "sáluhjálp" hans að gera, þá skipta gjörðir manna greinilega engu máli, hvorki hér né í lífinu eftir þetta líf.

Náð Guðs er eins og sólargeislarnir . Ekkert á jörðu lifir nema vegna þess að þeir eru til staðar, jafnvel það sem vex í dimmustu hellum, lifir vegna þess að ylur sólarinnar vermir jörðina. 

Það líf sem Kristur boðaði að menn ættu að sækjast eftir, gerir miklu meiri kröfur til fólks en að viðurkenna hið augljósa, að allt sé til vegna náðar Guðs. Og það líf er algerlega háð fylgni við boðorð hans og kenningar eins og þau birtist okkur í orði hans.

Guðfræði Luthers um náðina er því byggð á réttum forsendum en ályktanirnar sem hann dregur eru rangar.

Svanur Gísli Þorkelsson, 3.2.2009 kl. 14:10

8 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Svanur,
Ég myndi ekki taka undir neinar af þessum tilvitnunum Lúthers.
Það er ómögulegt að vita hverjir verða réttlættir fyrir náð.  Eitt af því sem ritningin segir:
      Efe 2:8   Því að af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú.
                    
Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf.
Ræninginn á krossinum var réttlættur á síðustu stundum lífs síns, það eina sem bjargaði honum var hugarfarsbreyting, hann trúði.

Bryndís Svavarsdóttir, 3.2.2009 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband